Morgunblaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 11
þannig,“ útskýrir samhöfundurinn.
„Við fórum eftir uppskrift af full-
kominni sögu. Reyndum okkar besta
til að gera Stefán óhamingjusaman og
lögðum á hann ýmsar raunir svo við
gætum gert hann hamingjusaman í
lokin. Góðar sögur fjalla um þrauta-
göngu og sigra. Rauði þráðurinn hjá
okkur er að unglingar eigi ekki alltaf
að hugsa um hvað öðrum finnst, held-
ur taka sjálfstæðar ákvarðanir og
standa með sjálfum sér og vinum sín-
um,“ segja þeir.
Tókst ykkur að koma Stefáni til
slíks þroska?
„Að lokum, já, á mjög drama-
tískan hátt,“ svara þeir leyndardóms-
fullir.
Nenna varla að verða full-
orðnir
Hvað finnst ykkur erfiðast við að
vera unglingur?
„Það að allir koma fram við mann
eins og barn, en búast við að maður
bregðist við og hegði sér eins og full-
orðinn.“ Óli Gunnar er með þetta á
hreinu.
„Prófin“, dæsir Arnór, nýbúinn
með bóklega bílprófið og jólaprófin í
skólanum. „Líka að kveðja spang-
irnar, þær voru mitt bling – skart
meina ég. Spangirnar táknuðu sak-
leysi mitt. Erfiðir tímar fóru í hönd
þegar þær voru fjarlægðar.“
„Mér finnst erfitt að hafa æ minni
þolinmæði og verða pirraður á alls
konar seinagangi. Ég nenni til dæmis
ekki að lesa eða vera í ferming-
arveislum,“ bætir Óli Gunnar við. Þeir
segjast eiginlega ekki nenna að full-
orðnast.
En hvað er skemmtilegast við að
vera unglingur?
„Á bókakynningum og -upplestr-
um er litið á okkur sem svona krútt-
araleg krúsímúsí af því við erum
yngstir og þá er gaman að koma á
óvart, flippa. Það er ógeðslega gaman
að flippa. Flippið fylgir unglingunum,
en svo dvínar flippið innra með manni
þegar maður fullorðnast.“ Þeir virðast
svolítið daprir í bragði við tilhugsun-
ina.
Hvenær verðið þið fullorðnir?
„Þegar ég er fertugur og á jepp-
ling. Í mínum huga er pabbi minn
dæmigerður fullorðinn maður og hann
keyrir jeppling. Ætli ég verði ekki
unglingur til tvítugs,“ segir Arnór.
„Sumir halda bara áfram að vera
unglingar,“ segir Óli Gunnar. „Maður
verður fullorðinn þegar maður byrjar
að elda fyrir sjálfan sig í stað þess
kannski að panta sér pitsu. Um leið og
maður segir: „Nei, takk, ég ætla að
fara í Bónus að kaupa hakk, þegar vin-
irnir stinga upp á pitsu“ þá er maður
raunverulega orðinn fullorðinn.“
Algjörlega óþolandi
Arnór er hjartanlega sammála.
Hann hlakkar meira til að verða gam-
all en fertugur – svona 60 til 65 ára afi
sem segir barnabörnum sínum sögur.
Óli Gunnar er heldur ekki frá því að
lífið sé alveg ágætt svona undir lokin.
„Fólk á að lifa í núinu,“ mælir hann
spakur.
Hvað finnst ykkur leiðinlegast við
unglinga?
„Fikt með snjallsíma og stöðugt
snapp [snapchat] alls staðar af öllu og
öllum. Algjörlega óþolandi,“ svara þeir
einum rómi. Erkiunglingarnir virðast
vera að fullorðnast. „Líka þegar þeir
nota of mikið af emoji, kannski fimm
broskalla og jafnmörg hjörtu, alveg
eins og þeir elski mann út af lífinu. Og
stælar, unglingar með stæla eru líka
leiðinlegir, en við þekkjum ekki marga
svoleiðis. Við erum umkringdir góðum
unglingum.“
Þeir þola ekki tillitsleysi, frekju
og dónaskap fullorðinna í garð ung-
linga. „Unglingum er kennt að bera
virðingu fyrir fullorðnum, sem er ekki
hægt ef virðingin er ekki gagnkvæm.
Fullorðnir eiga ekki að missa kúlið.
Allir eiga bara að vera góðir við alla.“
Hvort haldið þið að sé skemmti-
legra að vera unglingur núna eða þeg-
ar foreldrar ykkar voru ungir?
„Örugglega í gamla daga því
núna eru unglingar svo mikið á netinu.
Níundi áratugurinn er ábyggilega
sambærilegur við gullöld Rómverja
nema auðvitað nútímalegri,“ segir Óli
Gunnar og bætir við að þá hafi allt ver-
ið náttúrulegra og unglingarnir ekki
alltaf í þessum „djöflatækjum“ sem
snjallsímarnir eru. Annars telja þeir
félagar að unglingum bjóðist fleiri
tækifæri nú en þá og sífellt sé verið að
koma þeim á framfæri á ungmennahá-
tíðum og víðar. „Fullorðnir eru að
fatta að unglingarnir eru framtíðin,“
eins og þeir orða það.
Hvernig er að vera frægur ung-
lingur?
„Við erum ekkert frægir, kannski
þekktir í Hafnarfirði þegar við vorum
með leikritið og núna rétt á meðan við
erum úti um allt að kynna bókina. Síð-
an hverfum við alveg og enginn man
eftir okkur lengur.“
Unglingarnir eru farnir að ókyrr-
ast. Þegar þeir eru spurðir hvað þeir
ætli að verða þegar þeir eru orðnir
fullorðnir svara þeir stutt og laggott:
„Eitthvað skapandi og skemmtilegt.“
Viðtalið er búið. Hjúkkett …
Arnóri og Óla
Gunnari fannst
nauðsynlegt að
myndir af höf-
undum væru í
bókinni og sáu
enga meinbugi
á að láta reyna
á teiknihæfi-
leika sína.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Stundum er gott
að gera sér dagamun
Mjúk og bragðgóð jógúrt með stökkum
kornkúlum sem leika við bragðlaukana.
Tilvalinn kostur sem sparimorgunverður,
gómsætur millibiti eða ljúffengur eftirréttur.
…hvert er þitt eftirlæti?
1
5
-2
5
7
3
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Undir undirskriftinni Gefum & gleðj-
um mun Olís styrkja Geðhjálp um 5
kr. af hverjum seldum bensínlítra hjá
Olís og ÓB í dag, 18. desember.
„Við erum ótrúlega ánægð með að
Olís velji að styrkja Geðhjálp ásamt
fernum öðrum góðgerðarsamtökum.
Framtakið sýnir að Olís telur sam-
tökin hafa náð árangri. Styrkurinn er
mikil hvatning,“ segir Anna Gunn-
hildur Ólafsdóttur, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar. Margt er á prjón-
unum í ársbyrjun, m.a. verður
tveimur sjálfshjálparhópum ýtt úr
vör. „Carlotta Tate Olafson stendur
fyrir stofnfundi hóps fyrir innflytj-
endur 13. janúar kl. 16.00. Markmiðið
er að stuðla að seiglu, draga úr fé-
lagslegri einangrun og hættu á and-
legum erfiðleikum meðal innflytj-
enda,“ segir Anna Gunnhildur. „Tvær
mæður ætla að stofna stuðningshóp
fyrir aðstandendur barna með geð-
röskun. Þegar nær dregur verða upp-
lýsingar um báða hópana á www.ged-
hjalp.is.“
Ofgreiningar og ofnotkun lyfja
Fleira er á döfinni. „Við erum ný-
flutt í húsnæði með Drekaslóð og
langar að halda málþing með sam-
tökunum um tengsl áfalla og ofbeldis
við geðraskanir. Við munum standa
fyrir fyrirlestri um Samning Samein-
uðu þjóðanna um réttindi fatlaðra og
raddheyrn og rúsínan í pylsuend-
anum er málþing með aðkomu
bandaríska geðlæknisins Allen Fran-
ces í vor, en hann berst gegn ofgrein-
ingum og ofnotkun lyfja, m.a. með
útgáfu bókarinnar Saving Normal,“
segir Anna Gunnhildur.
Gefum & gleðjum – Olís styrkir Geðhjálp um 5 kr. af hverjum seldum bensínlítra
Styrkurinn er okkur mikil hvatning
Geðhjálp Samtökin verða öflug í
hagsmunabaráttunni.
Unglingurinn kom fyrst
fram á fjölunum í Gaflara-
leikhúsinu haustið 2013.
Arnór Björnsson og Óli
Gunnar Gunnarsson skrif-
uðu verkið, þá 15 og 14
ára, og fóru létt með að
túlka Unglinginn. Leikritið
var sýnt fjörutíu sinnum
fyrir fullu húsi auk þess
sem það var síðar sýnt á
RÚV og gefið út á DVD.
Gagnrýnendur lofsungu
frammistöðu ungu leik-
aranna sem og verkið,
sem þeir sögðu þrælfynd-
ið og upplýsandi. „Snill-
ingar“ sagði einn um tví-
menningana og að þeir
vissu nákvæmlega hvað
þeir væru að tala um þegar þeir lýstu lífi unglingsins.
Unglingurinn hlaut tvær tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2014 og
var sýndur í Wroclaw í Póllandi, á barna- og ungmennahátíð í Tianjin í
Kína og á fjórum stöðum í Noregi.
FJÖRUTÍU SÝNINGAR FYRIR FULLU HÚSI
Höfundarnir Óli Gunnar og Arnór ungir að árum.
Unglingurinn sem var á fjölunum