Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 af öllum snyrtivörum, ilmum og gjafakössum fyrir dömur og herra í desember TAX FREE Velúrgallar fyrir konur á öllum aldri Nýir litir Stærðir S-XXXXL Jólabomba Mývatn | Allt stefnir í að gestir Jarðbaðanna við Mývatn verði 149 þúsund á þessu ári, að sögn Gunn- ars Atla Fríðusonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins. Á síðasta ári var fjöldi baðgesta um 121 þúsund, þannig að aukn- ingin á milli ára gæti orðið um 23%. Jarðböðin eru einnig með veit- ingasölu þar sem ýmsar vörur eru seldar ferðamönnum. Stór hluti gesta er erlendir ferðamenn, eink- um yfir vetrartímann. Opið er frá morgni fram á kvöld, alla daga ársins, sem hefur mikið gildi því ætíð eru einhverjir á ferð- inni sem þurfa hvíld eða hressingu, eða hvort tveggja. Fram hefur komið í Morgun- blaðinu að eigendur Jarðbaðanna íhugi að stækka aðstöðuna, í ljósi aukinnar aðsóknar ár frá ári. Fjöldi baðgesta gæti farið í 149 þúsund Morgunblaðið/Birkir Fanndal Mývatn Baðgestir tékka sig inn hjá Sigurbirni Reyni Björgvinssyni, afgreiðslumanni Jarðbaðanna.  Metaðsókn í Jarðböðin við Mývatn Hæstiréttur hefur staðfest 15 mánaða fangelsidóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir karlmanni á sjötugsaldri fyrir að hafa í fórum sínum mikið magn barnakláms. Tólf mánuðir af fangelsisrefsing- unni eru skilorðsbundnir og er ástæða þess sú, að rannsókn máls- ins tók afar langan tíma. Rann- sóknin hófst í febrúar árið 2013 en ákæra var gefin út í janúar á þessu ári. Við húsleit á heimili mannsins fundust hátt í 35.000 ljósmyndir og hátt á sjötta hundrað hreyfimynda sem sýndu börn eða fullorðna ein- staklinga í hlutverki barna á kyn- ferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn viðurkenndi að mestu leyti að hafa haft myndirnar í vörslu sinni en neitaði engu að síð- ur sök fyrir dómi. Geisladiskar, myndbandsspólur, harðir diskar og tölvur, sem mynd- irnar fundust á, voru gerð upptæk, nema ein tölva þar sem myndir fundust einungis í tímabundinni möppu fyrir netvafra. Fangslsis- dómur fyrir barnaklám Í dag, föstudaginn 18. desember kl. 18, verður vígður minningarreitur um snjóflóðin í Neskaupstað. Reit- urinn er innan við þéttbýlið á þeim slóðum er Mánahús stóð áður og er helgaður minningu þeirra sem far- ist hafa í snjóflóðum í Neskaupstað. Reitinn prýðir minnisvarði úr járni og íslenskum steini, hannaður af Robyn Vilhjálmsson, listakonu í Listasmiðju Norðfjarðar og smíð- aður af Beate Stormo, eldsmið á Akureyri. Minnisvarðinn sýnir 17 bláklukkur í skál, sem tákna þau sautján mannslíf sem snjóflóð hafa tekið í Neskaupstað. Minningarreiturinn hefur verið gerður samhliða uppbyggingu snjó- flóðavarnarmannvirkja ofan Urð- arteigs og Hlíðargötu. Mannskæð snjóflóð hafa í þrígang fallið á byggðina eða á árunum 1885, 1974 og 1978. Mannskæðustu flóðin féllu árið 1974, en þá týndu 12 manns lífi. Minningarreit- ur í Neskaup- stað vígður Minning Teikning af minnisvarð- anum sem vígður verður í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.