Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 17

Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 Vandaðir ítalskir göngu- og útivistarskór fyrir alla fjölskylduna 29.995 22.995 Verð 24.995 Verð Verð 19.995Verð 26.995 24.995Verð Verð Níu styrkir til klínískra rannsókna ungra vísindamanna á Landspítala voru afhentir úr vísindasjóði spít- alans miðvikudaginn 16. desember sl. Styrkþegarnir gerðu þar grein fyrir rannsóknum sínum. Hver styrkur nemur einni milljón króna. Meðal viðstaddra var Illugi Gunn- arsson menntamálaráðherra. Styrkþegarnir eru: Daði Helgason læknir, lyflækningasviði Landspít- ala, Elín Björk Tryggvadóttir lækn- ir, skurðlækingasviði Landspítala, augndeild, Elva Dögg Brynjars- dóttir læknir, skurðlækningasviði Landspítala, Guðrún María Jóns- dóttir læknir, svæfinga- og gjör- gæsludeild, Landspítala Fossvogi, aðgerðasviði, Hera Jóhannesdóttir læknir, flæðisviði Landspítala, Sig- ríður Zoëga hjúkrunarfræðingur, skurðlækningasviði Landspítala, Tinna Harper Arnardóttir læknir, skurðlækningasviði Landspítala, Þórarinn Árni Bjarnason læknir, lyf- lækningasviði Landspítala, og Þórir Einarsson Long læknir, lyflækn- ingasviði Landspítala. Ungir vísindamenn fá styrki til rannsókna Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Alls bárust 90 umsóknir um 6-7 störf háseta og 2-3 stöður stýri- manns á skipum Hafrannsókna- stofnunar. 58 vildu starfa sem há- setar á Bjarna Sæmundssyni eða Árna Friðrikssyni og 32 sóttu um sem stýrimenn. Umsóknarfrestur var til 14. desember og er verið að vinna úr umsóknum. Á heimasíðu Hafró segir að ástæða þessara ráðninga sé að mik- ill samdráttur hafi verið á úthaldi rannsóknaskipanna á síðustu tveimur árum með tilheyrandi fækkun starfa. Á afmælisári muni starfsemin eflast, m.a. með ráðn- ingu nýrra starfsmanna. Í hópi umsækjenda er bæði ungt og reynslulítið fólk sem vill reyna fyrir sér í sjómannsstörfum sem og umsækjendur með áratuga reynslu. aij@mbl.is Margir vilja á sjó á skipum Hafró Rannsóknaskip Margir vilja um borð. Ný Skipaskrá og sjómannaalmanak fyrir árið 2016 er komin út. Bókinni er dreift frítt til útgerða skipa og báta sem eru í rekstri, einnig til framkvæmda- og útgerðarstjóra stærri fyrirtækja auk fleiri aðila. Útgefandi er fyrirtækið Árakló slf. og er þetta tíunda útgáfa þess. Aug- lýsingar kosta bókina. Skipaskráin og sjómannaalm- anakið er hefðbundin handbók sjó- manna með ýmsum upplýsingum: sjávarföll, vita- og sjómerki, veður og sjólag, fjarskipti, öryggismál og fleira. Í skipaskrá eru öll skip og bátar sem eru á skrá hjá Sam- göngustofu. Í myndaskrá eru skip og bátar sem eru í rekstri. Í texta- skrá eru upplýsingar um önnur skip og báta. Dreifingu bókarinnar lýkur fyrir áramót. Árakló með sjómannaalmanak Glöggir smábátaeigendur hafa haft samband við skrifstofu Landssam- bands smábátaeigenda undanfarið og tilkynnt óvæntan gest í netin. Gesturinn er hrognkelsi, bæði rauð- magi og grásleppa. Spurnir af þess- ari óvæntu heimsókn í svartasta skammdeginu koma á óvart og rek- ur menn ekki minni til að þeir hafi upplifað slíkt, segir á smabatar.is Aðspurðir segja menn gráslepp- una vel á sig komna og hrogn byrj- uð að myndast. Dæmi munu vera um að veiðst hafi hrognafullar grá- sleppur. Svæðið sem um ræðir er allt frá Ísafjarðardjúpi og að Skjálf- anda. Vakin er athygli á að skipum sem stunda netaveiðar er skylt að sleppa allri grásleppu sem er lif- andi í netum þegar þau eru dregin. Hrognkelsi óvænt farin að sjást í netum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.