Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 18

Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is                                    ! "# !"# !#  $  %# %# $!# $ "% &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 % !"  !"%% !%# "!"  !#  $  "%  " ! !" !% "!!%  %"% ! $$$ $% "$ !%#!!! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Seinagangur vegna regluverks, skipulagsmála eða endurskipulagningar er hugsanlega ein ástæða þess að íbúðafjárfesting mældist 7,6% minni á fyrstu 9 mánuðum ársins en yfir sama tímabil í fyrra, að mati greiningardeildar Arion banka. Þá sé óraunhæft að ætla að byggingargeirinn hafi getað séð fyrir 30% fjölgun ferðamanna í ár og á sama tíma mætt aukinni eftirspurn eftir íbúð- arhúsnæði. Mikill uppgangur í byggingu gististaða geti haft ruðningsáhrif á íbúðamarkaðnum, þegar verktakar séu uppteknir við slíkar framkvæmdir og geti því ekki byggt íbúðir á sama tíma. Fjölgun gististaða hefur áhrif á framboð íbúða ● Stjórn VÍS hefur ákveðið að stefnt verði að útgáfu á víkjandi skuldabréfi fyrir allt að 2,5 milljarða króna á næsta ári, náist ásættanleg kjör. Í tilkynningu frá því í ágúst í tengslum við hálfsárs uppgjör VÍS var greint frá því að þáver- andi stjórn hygðist ekki fara í útgáfu á víkjandi skuldabréfi á þeim tímapunkti en að lagt yrði mat á fýsileika útgáfu með reglulegum hætti. Ný stjórn sem kjörin var á hluthafafundi VÍS 10. nóv- ember hefur nú tekið ákvörðun um að stefna að útgáfunni. VÍS stefnir að útgáfu víkjandi skuldabréfs STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is „Það eru tækifæri á LinkedIn fyrir þá sem eru að leita að nýju starfi og fyrir þá sem vantar starfsfólk. En það er lykilatriði að vera með upp- færða ferilskrá og nýja mynd fyrir þá sem eru að afla upplýsinga,“ segir Hjalti Rögnvaldsson, sérfræðingur í markaðssetningu á netinu hjá Ís- landsbanka. Í vikunni hélt hann nám- skeið um samfélagsmiðilinn LinkedIn hjá Félagi viðskiptafræð- inga og hagfræðinga. LinkedIn fór í loftið í maí 2003 og eru nú yfir 300 milljónir manna skráðar á vefinn. Hjalti segir að ekki sé hægt að fá upplýsingar um fjölda Íslendinga í þeim hópi en þeir séu fjölmargir. „Nánast allir í atvinnulíf- inu eru skráðir en eiginlega mjög fáir sem kunna að nota þetta og eru virk- ir. Það eru fjölmargar leiðir til að nýta sér þennan miðil, hvort sem er til að halda utan um tengslanetið, finna störf eða styrkja ásýndina á netinu.“ Hann segir miðilinn sérstaklega sterkan fyrir þá sem eru að leita sér að nýju starfi. „Það eiga allir að vera á LinkedIn og með uppfærðan prófíl. Þetta er það fyrsta sem kemur upp þegar leitað er að viðkomandi nafni í Google en allir helstu ráðningarstjór- ar í landinu fletta upp nöfnum þar. Því er mikilvægt að vera með glænýj- ar upplýsingar á LinkedIn.“ Hjalti segir að LinkedIn sé tengslanet fyrir vinnuna en Face- book sé meira fyrir vini og fjölskyldu. „Við hjá Íslandsbanka höfum verið að auglýsa eftir fólki á LinkedIn með mjög góðum árangri og kostnaðurinn er brot af því sem það kostar að aug- lýsa í atvinnublöðunum. Þó að það séu færri augu sem sjá auglýsinguna þá er hægt að ná til rétta fólksins. Þetta er möguleiki sem allir mann- auðsstjórar ættu að kynna sér.“ Hjalti segir að áhuginn á LinkedIn sé að aukast mikið. „Sérstaklega núna þegar landið er að rísa og fólk er í meiri samskiptum við útlönd. Það eru fleiri að fara til útlanda á ráð- stefnur þar sem er alltaf mögu- leiki að ná nýjum viðskiptasam- böndum og þá er þetta mikilvægt tæki.“ Hægt að horfa víðar en til Ís- lands Jakobína Árna- dóttir, hópstjóri ráðninga hjá Capa- cent, segir LinkedIn komið af fullum þunga til Íslands. „Við notum þetta mjög mikið og auglýsum nánast öll störf þarna. Í auknum mæli eru fyr- irtæki ekki endilega að auglýsa held- ur að biðja okkur að finna fólk í störf- in. LinkedIn er því orðið mjög góð viðbót við okkar gagnagrunn þó við séum örugglega með einn stærsta gagnagrunn landsins.“ Hún tekur sem dæmi að ef fyrir- tæki vantar fjármálastjóra þá er leit- að á LinkedIn eftir þeim kröfum sem fyrirtækið setur. „Það eru orðnar fjölbreyttari leiðir til að ná í fólk sem vantar. Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta víkki jafnvel út mögu- leika á að ná í starfsfólk til landsins frá alþjóðlegum vinnumarkaði. Með komu LinkedIn er hægt að horfa víð- ar en bara til Íslands.“ Jakobína á ekki von á að þetta komi í stað auglýsinga í blöðum. „Samkvæmt fræðunum er það aðferð sem virkar og gefur alltaf umsækj- endur sem okkur hafði ekki dottið í hug áður. Þá má benda á að lögin um opinberar ráðningar gera kröfu um að auglýsa í blaði sem hefur dreifingu á landsvísu.“ LinkedIn notað í auknum mæli Helga Rún Runólfsdóttir, ráðgjafi hjá Intellecta, segir LinkedIn hafa ákveðna kosti. „Við höfum í auknum mæli heyrt af fyrirtækjum sem nýta sér þetta og þá helst upplýsinga- tæknifyrirtækin.“ Hún segir að Intellecta auglýsi bæði á netinu og í blöðum eftir starfsfólki. „En við er- um að skoða viðveru okkar á þessum tiltekna miðli eins og á öðrum sam- félagsmiðlum. Heimurinn er svo hraður að við þurfum alltaf að endur- skoða hvað við tileinkum okkur og hvaða leiðir eru bestar. Ef þetta hjálpar til við að finna fleiri fram- bærilega umsækjendur þá er sjálf- sagt að skoða hvernig við gætum nýtt þetta í meira mæli.“ Helga Rún segir erfitt að segja til um hvort auglýsingar á LinkedIn komi beinlínis í staðinn fyrir atvinnu- auglýsingar í blöðum. „En það er erf- itt að segja fyrir um hver þróunin verður.“ LinkedIn orðið mikilvægt í ráðningarferli á Íslandi Morgunblaðið/Eggert Ráðningar LinkedIn er í auknum mæli notað til að finna störf eða ráða fólk.  Miðill til að leita að nýjum störfum og starfsfólki  Yfir 300 milljónir skráðar Hjalti Rögnvaldsson. Helga Rún Árnadóttir. Jakobína Árnadóttir. „Það er tilfinning okkar að forsvars- menn Norðuráls á Grundartanga séu á opinberum vettvangi að beita kjaradeilunni í Straumsvík í samn- ingaviðræðum sínum við Lands- virkjun,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins, í samtali við Morgunblaðið. Nú standa yfir við- ræður milli Norðuráls og Lands- virkjunar um nýjan raforkukaupa- samning en sá sem nú er í gildi rennur út árið 2019. „Við höfum hvergi séð forsvars- menn Rio Tinto Alcan í Straumsvík beita raforkukaupasamningi sínum við Landsvirkjun fyrir sig í þeirri viðkvæmu deilu sem þeir standa í þessa dagana. En það er mat okkar að Norðurál sé að draga kjaradeil- una inn í málið til að veikja umboð Landsvirkjunar til að semja um sem best verð fyrir rafmagnið sem fyr- irtækið framleiðir,“ bætir Hörður við. Í fréttatilkynningu sem Lands- virkjun sendi frá sér í gær kemur fram að vilji fyrirtækisins standi til að endursemja við Norðurál og tryggja álframleiðandanum rafmagn í nýjum samningi. Í tilkynningunni er ítrekað að það sé gert með það að leiðarljósi að hann verði hagstæður fyrir báða aðila. Hörður segir að Norðurál geti greitt hærra verð fyrir rafmagnið en fyrirtækið gerir í dag. „Norðurál er rekið með mjög miklum hagnaði og því er það í stakk búið til að greiða hærra verð fyrir orkuna. Það voru röksemdir fyrir því að bjóða Norður- áli, eins og öðrum sambærilegum fyrirtækjum, lægra verð þegar verið var að koma verksmiðjunum á lagg- irnar, til þess að hægt væri að koma þeim upp. Nú eru aðstæður hins veg- ar allt aðrar og eðlilegt að þeir borgi sambærilegt verð og aðrir eru að semja um í dag,“ segir Hörður. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segist mjög undrandi á orðum Harðar en mun að öðru leyti tjá sig nánar um málið í dag. ses@mbl.is Segja Norðurál nýta sér kjaradeilu  Forstjóri Norð- uráls undrast um- mæli Harðar Hörður Arnarson Ragnar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.