Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 24

Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Sveit Ferils vann Íslandsmótið í parasveitakeppni Tólf sveitir tóku þátt í Íslands- mótinu í parasveitakeppni sem fram fór um helgina og sigraði sveit Ferils með 143,47 stigum. Í sveitinni spiluðu Dröfn Guðmundsdóttir, Ás- geir Ásbjörnsson, Hrund Einars- dóttir og Hrólfur Hjaltason. Í öðru sæti er sveit Hörpu með 139,46 stig og í því þriðja sveit PwC með 138,15 stig. Gullsmárinn Spilað var á 12 borðum í Gull- smára mánudaginn 14. desember. Úrslit í N/S: Þórður Jörundss. – Jörundur Þórðarson 202 Vigd. Sigurjónsd. – Sigurður Dagbjartss.197 Örn Einarsson – Friðrik Hermannss. 190 Guðlaugur Nielsen – Pétur Antonss. 182 A/V Hjörtur Hanness. – Gunnar M. Hansson 220 Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 184 Ragnar Jónsson – Lúðvík Ólafsson 183 Guðbjörg Gíslad. – Sigurður Sigurðsson 179 Síðasti spiladagur þessa árs var í gær, fimmtudagurinn 17. desember. Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 8. desember var spil- aður tvímenningur með þátttöku 24 para. Efstu pör í N/S (% skor): Bjarnar Ingimarss. – Bragi Björnss. 61,8 Örn Einarsson – Friðrik Hermannss. 60,6 Kristín Óskarsd. – Unnar Atli Guðmss. 57,6 Ragnar Jónsson – Björn Árnason 55,8 A/V Óskar Ólafsson – Sigfús Skúlason 56,5 Sigurður Láruss. – Sigurður Kristjss. 55,3 Auðunn Guðmss. – Guðm. Sigursteinss. 54,9 Kristján Þorlákss. – Ásgeir Sölvason 53,0 Föstudaginn 11. nóvember spiluðu 22 pör tvímenning. Bestum árangri náðu í N/S: Örn Einarsson – Friðrik Hermannss. 59,8 Vigdís Sigurjónsd. – Þorl. Þórarinss. 55,9 Örn Isebarn – Birgir Sigurðsson 55,8 Bjarnar Ingimarss. – Bragi Björnss. 53,3 A/V Auðunn Guðmss. – Guðm. Sigursteinss. 60,8 Sigfús Skúlason – Óskar Ólafsson 56,6 Guðm. Brandss. – Þorst. Hálfdánars. 53,7 Tómas Sigurjss. – Björn Svavarss. 53,6 Síðasti spiladagur fyrir jól er 18. desember. Fyrsti spiladagur eftir áramót er 8. janúar. BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í Hraunholti, Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. Allir spilarar, vanir sem óvanir, eru velkomnir og er tekið vel á móti öllum. Fámenni hjá FEBR í fárviðri en fjölmenni í matarveislu Mánudaginn 7. desember var spil- að á aðeins sjö borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Eðlilega slæm mæting enda spáð fárviðri Efstu pör í N/S Logi Þormóðss. – Kristinn Sölvason 147 Jón Þór Karlss. – Björgvin Kjartanss. 136 Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 128 A/V Hreiðar Þórhallss. – Halldór Kristinss. 163 Óli Gíslason – Kristján Guðmundss. 147 Hrólfur Guðmss. – Axel Lárusson 128 Fimmtudaginn 10. desember kvað við allt annan tón, enda gott veður og matarveisla kennd við jólin. 33 pör mættu til leiks. Efstu pör í N/S Guðm. Sigursteinss. – Unnar Guðmss. 397 Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 380 Logi Þormóðss. – Kristinn Sölvason 353 A/V Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 375 Bergljót Gunnarsd. – Jón H. Jónsson 371 Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 357 Jón Baldursson og Sigurbjörn Haraldsson Íslandsmeistarar í Butler Jón Baldursson og Sigurbjörn Haraldsson eru Íslandsmeistar í Butlertvímenningi en keppnin fór fram um helgina. Þeir enduðu með 90,4 impa í plús og í öðru sæti urðu Kristján Már Gunnarsson og Gunn- laugur Sævarsson með 80,5 og þriðju urðu Stefán Jóhannsson og Kjartan Ásmundsson með 67,5 impa. Árvakur leitar að einstaklingum í 50% hlutastarf Um er að ræða dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutíminn er 3-4 tímar í senn, sex daga vikunnar og að mestu í næturvinnu. Góðir tekjumöguleikar og fín hreyfing fyrir duglegt fólk. Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa bíl til umráða. Umsóknir er hægt að fylla út á mbl.is, neðst á forsíðu. Á umsóknareyðublaðinu skal tiltaka dreifingu þegar spurt er um ástæðu umsóknar. Einnig er hægt að skila inn umsókn merktri starfsmannahaldi í afgreiðslu Morgunblaðsins í Hádegismóum 2. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við dreifingarstjóra Árvakurs, Örn Þórisson í síma 569 1356 eða á ornthor@mbl.is Aukavinna fyrir orkubolta Sparisjóðirnir voru akkeri byggð- anna. Þeir voru nokkurs konar sam- félagsbankar ef mönnum leyfist að nota það orð. Þar stjórnuðu heima- menn öllu innan stokks. Aðalfundur einu sinni á ári. Spilin lögð á borðið. Þegar ekki var hægt að fá fimmeyr- ing í stóru bönkunum, þá lánuðu sparisjóðirnir sínu heimafólki, til dæmis þegar menn voru að koma þaki yfir höfuðið. Peningar fólksins sjálfs voru í vinnu heimafyrir. Það var ekki um að tala að stóru bank- arnir vildu lána fólki út á íbúðarhús í einhverjum krummaskuðum. Þetta er okkur minnisstætt. Allur hagnður sparisjóðanna fór í uppbyggingu í heimahéraði. Það var mikil hand- vömm þegar við glopruðum flestum þeirra niður. Erum að bíta úr nálinni með það þessi misserin. Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt og alþingismaður, líklega Hornstrend- ingur í einn kantinn, skrifar stundum flottar greinar í Moggann. Þær er oft gaman að lesa. Um daginn skrifar hann um Samfélags hvað? Sam- félagsbanki miðlar gæðum til gæð- inga segir Villi. Hann heldur að slík stofnun muni gefa vondu köllunum peninga og ekki vera rekinn með hagnað í huga. Kollegi Vilhjálms, Gísli Guð- mundsson, fann upp hugtakið jafn- vægi í byggð landsins fyrir mörgum áratugum. Ýmsir höfðu þetta að skotspæni að ófyrirsynju og hentu jafnvel gaman að. Þetta má vel rifja upp því stór hluti þjóðarinnar vill einmitt slíkt jafnvægi, en ekki bara að allir kúldrist í Stór-Reykjavík. Spyrja má: Væri ekki upplagt að Landsbankinn hefði það hlutverk eitt að stuðla að jafnvægi í byggð lands- ins? Við eigum öll þennan banka saman, eða svo er sagt. Af hverju ekki að hafa sparisjóðina sem fyrir- mynd að slíkri lánastofnun, Vil- hjálmur? Hvaða goðgá er það? Hverju er bankinn að tapa? Við könnumst við orðið hagræð- ing. Mikil hagræðing hefur til dæmis orðið innan bankakerfisins með svo- nefndum heimabanka. Það vita allir. En þeim sem ekki hafa slíkt apparat í höndum er bara hagrætt út af borð- inu. Til dæmis 1⁄3 íbúanna í Dýrafirði, sem margir eiga háar upphæðir í bankanum sínum. Fróðir menn segja að vaxtamunur á Íslandi í dag sé 5% til 6%. Jæja. Setjum sem svo að Dýrfirðingar eigi 500 milljónir króna sem Landsbank- inn er að sveitast í að ávaxta fyrir þá. Ef við miðum við 5% vaxtamun þá er bankinn að hala inn á Dýrfirðingum 25 milljónir. Ef við miðum við 1.000 milljónir, sem er nú satt að segja lík- legri tala, fær hann 50 milljónir fyrir snúð sinn. Miðað við sömu forsendur og talnaleik með fyrirvara. Svo segist bankinn tapa á Dýrfirðingum. Gam- an væri að sjá það tap sundurliðað. En trúlega fellur það undir svokall- aða bankaleynd! Svo er auðvitað mikil þjóðhagsleg hagræðing fólgin í því að aka 100 km leið ef menn vant- ar skotsilfur. Kannski í snarvitlausu veðri og ófærð. Við sveitamenn höf- um ekki gáfur til að skilja slíka ofur- hagræðingu. Lái okkur hver sem vill. Hagræðing og hagvöxtur eru skemmtileg orð Með viku fyrirvara er ákveðið að skella í lás á Þingeyri og reyndar Suðureyri og Bolungarvík líka án þess að tala við nokkurn mann. Svo neyðist bankinn eftir á til að opna eina klukkustund í viku, þegar hann sér hve vitlaust þetta er. Þetta eru náttúrlega stórmerkilegir starfs- hættir hjá almannafyrirtæki. Allt í nafni hagræðingar. Já, hagræðing og hagvöxtur. Skemmtileg orð. Skyldi þetta vera arðbært? Það er hin klass- íska spurning. En jafnvægi í byggð landsins? Má ekki. Það á að flytja þetta lið eins og það leggur sig á möl- ina. Miklu ódýrara. Það væri sko hagræðing í lagi! Enginn banki – engin byggð Það er ekki nokkur maður að tala um að þessi blessaði banki eigi að beygja sig í duftið fyrir einhverja móhíkana, gamalmenni og útlend- inga í fiskvinnslu vestur á fjörðum og gefa þeim peninga. En hann á að sýna þessum eigendum sínum og við- skiptavinum virðingu og koma fram við þá á mannlegan hátt. Hafa opið tvisvar-þrisvar í viku. Og ekkert ves- en. Við erum að tala um góða við- skiptavini sem sumir eiga tugi millj- óna inni í bankanum sínum. Það hljóta m.a. að vera slíkir hlutir sem menn eiga við með orðinu samfélags- banki. En ef meiningin er að allir flytji til Reykjavíkur þá þurfum við náttúrlega engan slíkan samfélags- banka. Enginn banki, engin byggð. Kannski það sé handan við hornið? Aumingjarnir í krumma- skuðunum geta bara farið suður Þegar Matthías Bjarnason var við- skiptaráðherra 1986 veitti hann bönkunum harðar átölur vegna hækkana þeirra á þjónustugjöldum. Hann harðbannaði þeim að hækka þau gjöld á almenning. Þá kom verkalýðsforystan og færði kallinum blómvönd. Í dag taka ráðherrar ekki af skarið í einu eða neinu. Þess vegna er traustið í lágmarki. Það var aldrei svo lélegt pláss í Villta Vestrinu að ekki væri þar lítils- háttar bankaþjónusta. Og er kannski enn. En vondu kallarnir og kellíng- arnar úti á landi á Íslandi mega ekki hafa smá bankaholu hjá sér. Nú skal hagræða svo hinir stóru geti orðið stærri. Græða meira og verða ríkari! En aumingjarnir í krumma- skuðunum geta bara farið suður. Við þurfum jafnvægi í byggð landsins og ekkert múður, Vilhjálmur Eftir Hallgrím Sveinsson, Bjarna G. Einarsson og Guðmund Ingvarsson » Þegar ekki var hægt að fá fimmeyring í stóru bönkunum, þá lán- uðu sparisjóðirnir sínu heimafólki. Peningar fólksins sjálfs voru í vinnu heimafyrir. Hallgrímur Sveinsson Hallgrímur er bókaútgefandi og létta- drengur á Brekku í Dýrafirði, Bjarni er fv. útgerðarstjóri á Þingeyri og Guðmundur er fv. stöðvarstjóri Pósts og síma á Þingeyri. Bjarni Georg Einarsson Guðmundur Ingvarsson Ekki er ein báran stök, orti gamli Grím- ur. Þessi orð vakna í hug þegar fréttir ber- ast af tillögugerð á Al- þingi hinu háa. Nú er lagt til að húsnæði Þjóðskjalasafns Ís- lands verði selt og safn- inu fundinn annar stað- ur. Lóðin er víst svo verðmæt. Kannski vilja hótelmenn byggja þar? Vestur á Mel- um er minnismerki um hús íslenskra fræða, hol augnatóft í ásjónu lands- ins. Kannski verður þar einhvern tíma byggt hótel? Náttúrugripasafn þjóðarinnar er geymt í kössum. Ekk- ert þessu líkt þekkist í þeim Evrópu- löndum sem ég kann skil á. Kannski eigum við von á því að Þjóðleikhúsið verði flutt upp í Ögurhvarf af því að það stendur á svo dýrri lóð? Öll ofan- greind söfn varðveita einstakan sögu- legan arf. Í safnkosti þeirra er fólginn sjálfur grundvöllur þjóðmenning- arinnar. Þessi söfn eiga að vera í al- faraleið, okkur ber skylda til þess að búa fallega um þau og opna greiðlega almenningi og erlendum gestum. Til þess þarf að kosta nokkru til; Þjóðskjala- safn Dana er t.d. í Krist- jánsborg og smekklega að því hlúð. Sú tillaga sem nú er til umræðu lýsir einstöku metnaðar- leysi. Hún er vottur um verðmætamat sem sæmir ekki menningarþjóð – en kannski langar okkur ekkert til að teljast með slíkum þjóðum? Söfn í kössum? Eftir Sölva Sveinsson Sölvi Sveinsson » Sú tillaga sem nú er til umræðu lýsir ein- stöku metnaðarleysi. Hún er vottur um verð- mætamat sem sæmir ekki menningarþjóð. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.