Morgunblaðið - 18.12.2015, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Kæri bróðir. Mér
finnst erfitt að
hugsa til þess að þú
skulir hafa farið svo
snemma frá okkur. Það var svo
margt sem við áttum eftir að gera
saman. Örlög ungs fólks, sem
ekki gat lokið lengri skólagöngu
en barnaskóla í heimabyggð
sinni, voru þau að fara ung að
heiman til frekara náms. Fimm
ára aldursmunur er ekki mikill en
varð til þess að við vorum ekki
lengi saman í æsku. Samt náði ég
því að geta stolist í fötin þín þegar
mikið lá við á unglingsárum. Þau
voru of stór og þú ekki hrifinn en
samt gekkstu ekki hart að mér
vegna þessa. Svo fórum við hvor í
sína áttina. Þú suður, ég norður
og þú svo austur á Bláhorn eins
og kunningi minn einn kallar
Melrakkasléttuna.
Ég sá fram á að við færum að
hafa tíma til að vera meira saman
þegar erill vinnudagsins færi að
minnka. Við áttum eftir að kafa
dýpra í sameiginleg áhugamál.
Heimahagana, Látra og sögu
frændfólks sem löngu er farið.
Þegar þú sagðir mér frá veikind-
um þínum og ég spurði hve alvar-
leg þau væru var svarið: Ætli
þetta sé ekki bara vindverkur.
Svolítið líkt þér að gera lítið úr
slæmri heilsu þinni.
Það var gott að koma til þín
hvar sem það var, fyrir sunnan
eða austan. Höfðingi heim að
sækja. Við fjölskyldan eru þakk-
lát og eigum góðar minningar þar
um. Einhver besta æskuminning
Braga sonar okkar er þegar hann
fór með Skafta vini sínum til þín
austur á Sléttu með tjald og veiði-
búnað. Þú vísaðir þeim veginn að
veiðivötnunum og slepptir þeim
lausum. Þeir komu sér til byggða
eftir nokkra daga, mikið ævintýri
og góða veiði. Alsælir.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Kæra Ágústa, Arnar, Þórgnýr,
Rakel Fríða, Elías og fjölskyldur.
Innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra. Kveðja,
Ólafur B. Thoroddsen
og Þóra Ákadóttir.
Enginn slítur þau bönd,
sem hann er bundinn heimahögum
sínum.
Móðir þín
fylgir þér á götu, er þú leggur af
stað út í
heiminn,
en þorpið fer með þér alla leið.
…
(Jón úr Vör.)
Þrír kostulegir kverúlantar
voru herbergisfélagar á Bifröst
veturinn 1966-1967. Undirritað-
ur, miðbæjarrotta úr Reykjavík,
villuráfandi vinstri sauður með
skáldagrillur, Benni Steingríms,
listrænn ljúflingur frá Akureyri,
af framsóknarættum og loks Er-
lingur Bragason, Patreksfirðing-
ur, góður íhaldsmaður, skáld-
mæltur og lífsreyndur þrátt fyrir
ungan aldur. Við félagarnir náð-
um vel saman í grallaraskapnum
undir styrkri stjórn Erlings.
Sagðar voru drykkju- og kvenna-
farssögur, sannar og lognar, og
framdir ýmsir gjörningar í anda
Hitlers og Los Lambos.
Erlingur B.
Thoroddsen
✝ Erlingur B.Thoroddsen
fæddist 15. júlí
1948. Hann lést 3.
desember 2015.
Útför Erlings fór
fram 14. desember
2015.
Eftir skóla skildi
leiðir en grunnur
lagður að ævilangri
vináttu, einkum mín
og Erlings. Benni
féll frá fyrir tíu ár-
um, á besta aldri.
Fyrstu árin eftir
útskrift var Erling-
ur skrifstofumaður
hjá Eimskip en ég
vann í Útvegsbank-
anum. Það var gam-
an að lifa á þessum árum. Við vor-
um blessunarlega lausir við alla
vínfælni, minnugir orða Lúthers
er hann segir (í snilldarlegri þýð-
ingu séra Guðmundar Sveinsson-
ar á Bifröst): „Sá óð ei elskar vín
né víf/hann verður glópur allt sitt
líf.“ Þá stunduðu ungir menn ís-
lenskan heimilisiðnað. Erlingur
fékk lánuð eimingartæki hjá
Hauki frænda sínum og við suð-
um landa með þeirra tíma tækni.
Landinn var ætíð með þrálátu
suðubragði en við létum okkur
hafa það! Seinna komu viðarkolin
sem gerbreyttu öllu til hins betra.
En þá vorum við hættir að
brugga.
Að vestfirskum sið sauð Er-
lingur okkur skötu á Þorlák 1969.
Sú máltíð er ógleymanleg, því
gestgjafinn hellti hálfri brennivín
í pottinn með skötubörðunum og
smakkaðist dýrðlega!
Eftir að Erlingur varð hótel-
stjóri á Raufarhöfn fækkaði okk-
ar fundum. Ég skrapp þó stund-
um norður og naut gestrisni
þeirra hjóna, Ágústu og Erlings.
Það voru ánægjustundir. Þau
voru glæsileg hjón og vinsæl
meðal heimamanna. Erlingur
gerðist snemma þaulkunnugur
sögu og náttúru byggðarlagsins,
svo leitun var á fjölfróðari manni
um þær slóðir. Hugarfóstur hans,
Heimskautsgerðið, hefur laðað að
fjölda ferðafólks til Raufarhafn-
ar.
Erlingur var víðlesinn og hafði
t.d. á hraðbergi tilvitnanir úr
verkum Guðbergs Bergssonar.
Stundum var hann „ögn til
hliðar við aðra menn“ eins og sagt
var í gamni um nóbelsskáldið.
Þegar leiðtogi kirkjunnar gerðist
fjölþreifinn til kvenna og fékk
bágt fyrir hjá þjóðinni fann Er-
lingur annan vinkil á málinu.
Hann sendi bispa bréf og stapp-
aði í hann stálinu!
Við Laufey sendum Ágústu og
allri fjölskyldunni dýpstu samúð-
arkveðjur.
Við leiðarlok þakka ég tæplega
50 ára trausta vináttu og læt
skáld tregans, Tómas Guðmunds-
son, eiga síðasta orðið:
Ei þekkti eg ást sem aldrei dó.
En ást, sem gerði lífið bjart
um stundarbið, ég þekkti þó.
Og þegar næturhúmið svart
um sálu mína síðast fer
og slökkur augna minna glóð,
þá veit ég hvaða ljúflingsljóð mun líða
hinzt að eyrum mér:
Ó, fagra veröld, vín og sól, ég
þakka þér!
Gunnar Finnsson.
Það var glaðvær hópur sem hóf
nám við Samvinnuskólann á Bif-
röst haustið 1965. Erlingur B.
Thoroddsen frá Patreksfirði var
einn af þessum nýju nemendum
við skólann. Hann mætti heldur
seinna en við hin og var komið
fram á kvöld þegar hann birtist á
setrinu. Það var laust rúm á her-
berginu hjá okkur Jörundi Áka-
syni og var Erlingi vísað til okk-
ar. Herbergið hét Framtíðin og
þarna bjuggum við þrír veturinn
1965-1966.
Það kom fljótt í ljós að þarna
var mættur góður félagi sem féll
óðara inn í nemendahópinn og
einnig eignaðist hann vini í hópi
starfsmanna með glettni sinni og
einlægni. Það var t.d. eftirminni-
legt að fylgjast með rökræðum
Erlings og Guðlaugar skólastjó-
rafrúar og heyra Guðlaugu segja
þegar Erlingur var horfinn á
braut: „Hann er yndislegur hann
Erlingur.“ Þetta lýsir vel hve Er-
lingur átti gott með að ná til fólks
og að aldur skipti engu máli í
samskiptum hans við samferða-
mennina.
Erlingur stundaði nám sitt vel
eins og aðrir sem voru undir
skólastjórn Guðmundar Sveins-
sonar, annað var heldur ekki í
boði hjá skólastjóranum á Bif-
röst, þeim mikla dugnaðarforki
og frábæra skólamanni. Sam-
vinnuskólinn á Bifröst var á þess-
um tíma talinn einn besti sérskóli
landsins og nemendur þaðan voru
hvarvetna eftirsóttir til starfa.
Á heimavistarskóla eins og
Bifröst eignast fólk vini og félaga
til lífstíðar. Við bekkjarsystkinin
komum síðast saman í haust þeg-
ar 50 ár voru liðin frá því að við
hittumst fyrst. Erlingur var því
miður ekki í þeim hópi, en hann
mætti ásamt konu sinni í fyrravor
á Nauthóli, en engan grunaði að
það yrði í síðasta sinn sem hann
yrði með okkur og verður hans
sárt saknað.
Erlingur stundaði framhalds-
nám í Edinborg. Hann vann hjá
nokkrum fyrirtækjum í Reykja-
vík m.a. Eimskip og Olís. Hann
annaðist leiðsögn ferðafólks og
rak gistiheimili í Reykjavík. Árið
1996 flutti Erlingur til Raufar-
hafnar ásamt Ágústu eiginkonu
sinni til að reka Hótel Norðurljós.
Samhliða hótelrekstrinum sinnti
Erlingur margvíslegum fé-
lagsmálum, m.a. átti hann sæti í
menningarnefnd Raufarhafnar-
hrepps. Hann var áhugamaður
um ljósmyndun og hafði yndi af
útivist. Þá var hann frumkvöðull
að heimskautsgerðinu á Mel-
rakkaásnum ofan við Raufar-
höfn.
Erlingur hlaut hvatningar-
verðlaun Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga árið 2009. Hann hlaut
viðurkenninguna fyrir eftirtekt-
arverðan árangur í rekstri ferða-
þjónustu og óbilandi frumkvæði
að nýsköpun sem nýtast mun
svæðinu sem aðdráttarafl fyrir
ferðamenn um ókomin ár.
Erlingur er sá fimmti af út-
skriftarárgangi 1967 sem fellur
frá. Við bekkjarsystkinin sem
eftir stöndum minnumst góðs
vinar, þökkum liðnar samveru-
stundir og biðjum honum allrar
blessunar á nýju tilverustigi.
Ágústu, börnum þeirra og öðrum
ástvinum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Gísli Jónatansson.
„Maður kemur í manns stað“
en jafn fleyg er setningin að
„skarð sé fyrir skildi“ er fellur
góður liðsmaður. Í baráttu Mel-
rakkasléttu og Raufarhafnar fyr-
ir tilveru sinni var Erlingur
Thoroddsen ekki aðeins góður
liðsmaður, heldur var hann
ótrauður við að hvetja fólk áfram,
benda á sóknarfæri og sanna að
þetta svæði hafi upp á margt að
bjóða sem gestir hafi gagn og
gaman af. Erlingur var ekki að-
eins í vörn, heldur öflugur sókn-
armaður og barátta hans skilaði
árangri. Fámennt lið mátti því
einfaldlega ekki við því að missa
hann, en skapadægur velja menn
ekki – þar er annar sem ræður.
Á síldarárunum er silfur hafs-
ins hélt landsjóði uppi og gerði
Íslendingum loks kleift að rétta
að fullu úr bakinu eftir margra
alda streð var Raufarhöfn
malandi gullkvörn. Er síldin
hvarf virtist ekki þörf fyrir stað-
inn lengur og erfiðir tímar tóku
við.
Þegar heimamenn náðu vopn-
um að nýju hófst barátta fyrir til-
verunni sem hér verður ekki rak-
in, nema hvað hún stendur enn.
Það vakti athygli er hótel var
opnað á staðnum árið 1973; Hótel
Norðurljós.
Þrátt fyrir erfiðan rekstur og
tíð skipti á hótelstjórum tókst að
halda því á floti.
Það var svo árið 1996 að enn
einn hótelstjórinn birtist. En
hann kom ekki einn, hafði með
sér unga konu og eitt af fyrstu
verkum þeirra Erlings og
Ágústu var að ganga í hjónaband
að hætti ásatrúarmanna og fór
athöfnin fram á þá skráðum
nyrsta hluta landsins – Hraun-
hafnartanga, hvar reka má tærn-
ar norður fyrir heimskautsbaug-
inn.
Í tuttugu ár hafa þau hjónin
staðið vaktina á Hótel Norður-
ljósum og sífellt sótt fram með
það að markmiði að reka þar
fyrsta flokks hótel, fjölga gestum
og vekja athygli á því sem svæðið
hefur upp á að bjóða.
Er ég, fyrir sex árum, hóf
vinnu við ritun sögu Melrakka-
sléttu, er senn sér fyrir endann á,
hitti ég Erling til að heyra
reynslu hans og framtíðarsýn.
Ekki stóð á því en fyrst og fremst
vakti athygli mína brennandi
áhugi hans á svæðinu og öllum
þeim möguleikum sem hann sá
að það hefði upp á að bjóða.
Ég hef ráðið næturstað nokk-
urra hópa sem leið hafa átt um
Melrakkasléttu og stoltur vísað á
Hótel Norðurljós. Síðastliðið
sumar var ég þar með 40 manns
og eftir að hafa komið sér fyrir
var safnast saman og spjallað.
Bað ég Erling að segja okkur frá
Heimskautsgerðinu sem rís við
Raufarhöfn og vekur nú þegar
athygli þótt ekki sé fullgert. Orð-
ræða hans og einlægur áhugi á
málinu fangaði gestina svo mjög
að þeir gleymdu að dreypa á
drykkjarhornum. Heimskauts-
gerðið er hans hugmynd og þótt
aðrir hafi komið þar að var Er-
lingur heili og drifkraftur verks-
ins. Ég er viss um að fullskapað
verði það meiri segull fyrir ferða-
menn en marga grunar og haldi
nafni Erlings á lofti.
Melrakkasléttan og Raufar-
höfn standa mér nærri og ég met
þá mikils sem vinna svæðinu vel.
Þeirra á meðal var Erlingur
Thoroddsen. Um leið og ég
þakka honum ágæta kynningu og
störf í þágu byggðarlagsins votta
ég Ágústu og öðrum aðstandend-
um einlægustu samúð mína.
Blessuð sé minning Erlings og
megi hann friðar njóta á fögrum
völlum þess sem okkur er æðri.
Níels Árni Lund.
Það er alltaf dapurlegt þegar
öflugt fólk sem á margt eftir
ógert fellur frá á góðum aldri.
Það fór kaldur gustur um hugann
þegar fréttir bárust um að Er-
lingur hótelstjóri á Raufarhöfn
væri allur. Ég kynntist Ella fyrst
fyrir alvöru eftir að hann flutti
með Ágústu sinni til Raufarhafn-
ar á útmánuðum 1996. Ég mundi
þó eftir honum sem ungum
manni vestur á Patró. Fjögur ár
voru reyndar mikill aldursmunur
á þeim árum. Hann fór snemma
að vestan og því vissi ég einungis
af honum af afspurn áratugum
saman. Ég hef oft hugsað um það
síðar að það hefur þurft tölu-
verða áræðni að flytjast norður
til Raufarhafnar og taka við
rekstri Hótel Norðurljósa fyrir
20 árum. Aðstæður á hótelinu
voru svo sem ekki sérstakar á
þessum tíma. Að stofni til var
hótelið gömul verbúð sem hafði
verið skveruð upp á ódýran hátt.
Það kom hins vegar fljótt í ljós að
Elli kunni eitt og annað fyrir sér í
þessum bransa. Hann var lista-
kokkur, hann hafði auga fyrir
einu og öðru áhugaverðu í um-
hverfinu sem þeir sem kunnugri
voru höfðu ekki veitt sérstaka at-
hygli og að síðustu hafði hann
tengsl við erlenda aðila í ferða-
bransanum sem kunnu að meta
sérstöðu Sléttunnar. Allt þetta
skipti máli í hótelrekstrinum.
Hreppsnefndin og samfélagið
báru gæfu til að styðja við bakið á
honum og það var hafist handa
við að gjörbreyta hótelinu af
miklum metnaði. Það verk tók
nokkur ár en þegar upp var stað-
ið var Hótel Norðurljós orðið
besti gististaðurinn á stóru svæði
norðaustanlands. Vertinn naut
sín vel við fyrirtaksaðstæður. Elli
var náttúruunnandi í þess orðs
víðustu merkingu. Björgunar-
sveitarmaður, ljósmyndari,
fuglaspekingur og veiðimaður.
Slíkir menn búa við kjörlendi á
Sléttunni. Hann kenndi mér m.a.
að síga í björg í eftirminnilegum
ferðum út á Langanes. Það var
reyndar eitthvað haft á orði eftir
á að við hefðum ekki alveg þekkt
gleggstu skil á landamerkjum.
Landeigendur voru hins vegar
það stórir að þeir voru ekki að
erfa það við langt að komna Vest-
firðinga þótt þeir færu heim með
fáein egg til einkanota. Í þessum
ferðum voru engir undanskildir
sem vildu láta reyna á getuna.
Enn í dag eru þær rifjaðar af og
til upp hér á bæ sem hámark
manndómsvígslunnar hjá ungum
drengjum. Það eru ekki margir
sem ná að skilja eftir sig bauta-
steina sem fanga athygli almenn-
ings langt út fyrir landsteinana. Í
góðum hópi áhugasamra félaga
var Elli frumkvöðull, hugmynda-
smiður og drifkraftur að þróun
og byggingu Heimskautagerðis-
ins. Þrátt fyrir að þar sé margt
enn óunnið er það nú þegar orðið
merkasta kennileiti Raufarhafn-
ar.
Elli var ásatrúarmaður í þess
orðs bestu merkingu. Hann var
mikill náttúruunnandi en einnig
glúrinn í kennisetningunni. Í
byggingu Heimskautagerðisins
náðist að tvinna þetta tvennt
saman. Þess vegna er það svo
merkilegt og þess vegna fær það
verðskuldaða athygli. Það ásamt
svo mörgu öðru mun tengja
minningu Ella órjúfanlegum
böndum við sögu Raufarhafnar
um ókomna framtíð.
Gunnlaugur Júlíusson.
Ég kynntist Óm-
ari í gegnum Ferða-
klúbbinn 4x4 , gott
ef það var ekki í
kringum 1987 þegar Ferðaklúbb-
urinn hóf byggingu á skála sínum
Setrinu, sem er staðsettur sunnan
undir Hofsjökli.
Við störfuðum saman í nefnd-
um klúbbsins og þar kallaði Ómar
ekki allt ömmu sína, hann tók allt-
af vel í öll verkefni og kláraði þau
með sóma.
Við fórum líka margar ferðir
inn í Setur, en ein eftirminnileg-
asta ferðin var ferð sem við köll-
Ómar Wieth
✝ Ómar Wiethfæddist 18. maí
1953. Hann varð
bráðkvaddur 21.
nóvember 2015.
Útför Ómars fór
fram 2. desember
2015.
uðum okkar á milli
Go West-túrinn, en
þar hafði Ómar boðið
nokkrum aðilum
með sér upp í Setur.
Komu þeir á 19
misvel útbúnum bíl-
um upp í skála eftir
ca 12 tíma ferð upp
Gljúfurleitina. Þetta
fannst Ómari nú
ekki mikið mál, en á
laugardagskvöldinu
fengum við þær upplýsingar að
veður yrði arfaslæmt á sunnudeg-
inum og ekkert ferðaveður. Ég
vatt mér að Ómari og spurði:
Hvernig ætlar þú með alla þessa
bíla heim ef veður versnar?
Ekkert mál, sagði hann, við
komum bara á eftir ykkur, verð-
um aðeins seinni, en komum.
Úr varð að við urðum samferða
til byggða og komum við öllum
hópnum eftir töluvert basl heim
og að sjálfsögðu var enginn skilinn
eftir, því það hefði Ómar ekki tek-
ið í mál.
Frekar hefði hann orðið eftir og
haldið áfram með viðkomandi þótt
hann hefði þurft að ýta honum.
Þannig maður var Ómar.
Ómar lagði mikla og óeigin-
gjarna vinnu á sig fyrir Ferða-
klúbbinn 4x4 bæði við byggingu
Setursins, rekstur þess auk þess
sem hann tók virkan þátt í dag-
legu amstri klúbbsins.
Hann var mjög frjór og vildi
alltaf vel. Allt sem hann tók að sér
leysti hann vel af hendi og kláraði
málin þó að það tækist kannski
ekki í fyrstu tilraun.
Ómar Wieth setti mikinn svip á
starf félagsins og á hann sérstak-
an stað innan þess.
Um leið og ég þakka Ómari fyr-
ir öll hans störf í þágu klúbbsins
og kveð hann í hinsta sinn vil ég
senda fjölskyldu hans og vinum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Sveinbjörn Halldórsson,
formaður Ferðaklúbbsins
4x4.
Við þökkum fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar og afa,
EINARS MAGNÚSAR EINARSSONAR
byggingarverkfræðings,
Breiðvangi 6,
Hafnarfirði.
.
Þórdís Stefánsdóttir,
Stefán Einarsson, Elsa Margrét Einarsdóttir,
Gunnar Sigfússon, Júlíus Gunnarsson
og Stefán Gunnarsson.
Ástkær sambýlismaður minn, bróðir okkar
og frændi,
HINRIK PÁLL FRIÐRIKSSON
frá Höfn í Hornafirði,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
sunnudaginn 13. desember.
Útförin verður frá Grensáskirkju mánudaginn
21. desember klukkan 15.
.
Sigríður Á. Sigurðardóttir,
Þórhildur Haraldsdóttir, Bergþóra H. Haraldsdóttir,
Steinunn Friðriksdóttir, Súsanna H. Friðriksdóttir,
Hallfríður Friðriksdóttir, Sigurveig Friðriksdóttir,
Guðrún J. Friðriksdóttir, Gunni,
Gummi, Frissi.