Morgunblaðið - 18.12.2015, Síða 33

Morgunblaðið - 18.12.2015, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Kæri bróðir. Mér finnst erfitt að hugsa til þess að þú skulir hafa farið svo snemma frá okkur. Það var svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Örlög ungs fólks, sem ekki gat lokið lengri skólagöngu en barnaskóla í heimabyggð sinni, voru þau að fara ung að heiman til frekara náms. Fimm ára aldursmunur er ekki mikill en varð til þess að við vorum ekki lengi saman í æsku. Samt náði ég því að geta stolist í fötin þín þegar mikið lá við á unglingsárum. Þau voru of stór og þú ekki hrifinn en samt gekkstu ekki hart að mér vegna þessa. Svo fórum við hvor í sína áttina. Þú suður, ég norður og þú svo austur á Bláhorn eins og kunningi minn einn kallar Melrakkasléttuna. Ég sá fram á að við færum að hafa tíma til að vera meira saman þegar erill vinnudagsins færi að minnka. Við áttum eftir að kafa dýpra í sameiginleg áhugamál. Heimahagana, Látra og sögu frændfólks sem löngu er farið. Þegar þú sagðir mér frá veikind- um þínum og ég spurði hve alvar- leg þau væru var svarið: Ætli þetta sé ekki bara vindverkur. Svolítið líkt þér að gera lítið úr slæmri heilsu þinni. Það var gott að koma til þín hvar sem það var, fyrir sunnan eða austan. Höfðingi heim að sækja. Við fjölskyldan eru þakk- lát og eigum góðar minningar þar um. Einhver besta æskuminning Braga sonar okkar er þegar hann fór með Skafta vini sínum til þín austur á Sléttu með tjald og veiði- búnað. Þú vísaðir þeim veginn að veiðivötnunum og slepptir þeim lausum. Þeir komu sér til byggða eftir nokkra daga, mikið ævintýri og góða veiði. Alsælir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Kæra Ágústa, Arnar, Þórgnýr, Rakel Fríða, Elías og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Kveðja, Ólafur B. Thoroddsen og Þóra Ákadóttir. Enginn slítur þau bönd, sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn, en þorpið fer með þér alla leið. … (Jón úr Vör.) Þrír kostulegir kverúlantar voru herbergisfélagar á Bifröst veturinn 1966-1967. Undirritað- ur, miðbæjarrotta úr Reykjavík, villuráfandi vinstri sauður með skáldagrillur, Benni Steingríms, listrænn ljúflingur frá Akureyri, af framsóknarættum og loks Er- lingur Bragason, Patreksfirðing- ur, góður íhaldsmaður, skáld- mæltur og lífsreyndur þrátt fyrir ungan aldur. Við félagarnir náð- um vel saman í grallaraskapnum undir styrkri stjórn Erlings. Sagðar voru drykkju- og kvenna- farssögur, sannar og lognar, og framdir ýmsir gjörningar í anda Hitlers og Los Lambos. Erlingur B. Thoroddsen ✝ Erlingur B.Thoroddsen fæddist 15. júlí 1948. Hann lést 3. desember 2015. Útför Erlings fór fram 14. desember 2015. Eftir skóla skildi leiðir en grunnur lagður að ævilangri vináttu, einkum mín og Erlings. Benni féll frá fyrir tíu ár- um, á besta aldri. Fyrstu árin eftir útskrift var Erling- ur skrifstofumaður hjá Eimskip en ég vann í Útvegsbank- anum. Það var gam- an að lifa á þessum árum. Við vor- um blessunarlega lausir við alla vínfælni, minnugir orða Lúthers er hann segir (í snilldarlegri þýð- ingu séra Guðmundar Sveinsson- ar á Bifröst): „Sá óð ei elskar vín né víf/hann verður glópur allt sitt líf.“ Þá stunduðu ungir menn ís- lenskan heimilisiðnað. Erlingur fékk lánuð eimingartæki hjá Hauki frænda sínum og við suð- um landa með þeirra tíma tækni. Landinn var ætíð með þrálátu suðubragði en við létum okkur hafa það! Seinna komu viðarkolin sem gerbreyttu öllu til hins betra. En þá vorum við hættir að brugga. Að vestfirskum sið sauð Er- lingur okkur skötu á Þorlák 1969. Sú máltíð er ógleymanleg, því gestgjafinn hellti hálfri brennivín í pottinn með skötubörðunum og smakkaðist dýrðlega! Eftir að Erlingur varð hótel- stjóri á Raufarhöfn fækkaði okk- ar fundum. Ég skrapp þó stund- um norður og naut gestrisni þeirra hjóna, Ágústu og Erlings. Það voru ánægjustundir. Þau voru glæsileg hjón og vinsæl meðal heimamanna. Erlingur gerðist snemma þaulkunnugur sögu og náttúru byggðarlagsins, svo leitun var á fjölfróðari manni um þær slóðir. Hugarfóstur hans, Heimskautsgerðið, hefur laðað að fjölda ferðafólks til Raufarhafn- ar. Erlingur var víðlesinn og hafði t.d. á hraðbergi tilvitnanir úr verkum Guðbergs Bergssonar. Stundum var hann „ögn til hliðar við aðra menn“ eins og sagt var í gamni um nóbelsskáldið. Þegar leiðtogi kirkjunnar gerðist fjölþreifinn til kvenna og fékk bágt fyrir hjá þjóðinni fann Er- lingur annan vinkil á málinu. Hann sendi bispa bréf og stapp- aði í hann stálinu! Við Laufey sendum Ágústu og allri fjölskyldunni dýpstu samúð- arkveðjur. Við leiðarlok þakka ég tæplega 50 ára trausta vináttu og læt skáld tregans, Tómas Guðmunds- son, eiga síðasta orðið: Ei þekkti eg ást sem aldrei dó. En ást, sem gerði lífið bjart um stundarbið, ég þekkti þó. Og þegar næturhúmið svart um sálu mína síðast fer og slökkur augna minna glóð, þá veit ég hvaða ljúflingsljóð mun líða hinzt að eyrum mér: Ó, fagra veröld, vín og sól, ég þakka þér! Gunnar Finnsson. Það var glaðvær hópur sem hóf nám við Samvinnuskólann á Bif- röst haustið 1965. Erlingur B. Thoroddsen frá Patreksfirði var einn af þessum nýju nemendum við skólann. Hann mætti heldur seinna en við hin og var komið fram á kvöld þegar hann birtist á setrinu. Það var laust rúm á her- berginu hjá okkur Jörundi Áka- syni og var Erlingi vísað til okk- ar. Herbergið hét Framtíðin og þarna bjuggum við þrír veturinn 1965-1966. Það kom fljótt í ljós að þarna var mættur góður félagi sem féll óðara inn í nemendahópinn og einnig eignaðist hann vini í hópi starfsmanna með glettni sinni og einlægni. Það var t.d. eftirminni- legt að fylgjast með rökræðum Erlings og Guðlaugar skólastjó- rafrúar og heyra Guðlaugu segja þegar Erlingur var horfinn á braut: „Hann er yndislegur hann Erlingur.“ Þetta lýsir vel hve Er- lingur átti gott með að ná til fólks og að aldur skipti engu máli í samskiptum hans við samferða- mennina. Erlingur stundaði nám sitt vel eins og aðrir sem voru undir skólastjórn Guðmundar Sveins- sonar, annað var heldur ekki í boði hjá skólastjóranum á Bif- röst, þeim mikla dugnaðarforki og frábæra skólamanni. Sam- vinnuskólinn á Bifröst var á þess- um tíma talinn einn besti sérskóli landsins og nemendur þaðan voru hvarvetna eftirsóttir til starfa. Á heimavistarskóla eins og Bifröst eignast fólk vini og félaga til lífstíðar. Við bekkjarsystkinin komum síðast saman í haust þeg- ar 50 ár voru liðin frá því að við hittumst fyrst. Erlingur var því miður ekki í þeim hópi, en hann mætti ásamt konu sinni í fyrravor á Nauthóli, en engan grunaði að það yrði í síðasta sinn sem hann yrði með okkur og verður hans sárt saknað. Erlingur stundaði framhalds- nám í Edinborg. Hann vann hjá nokkrum fyrirtækjum í Reykja- vík m.a. Eimskip og Olís. Hann annaðist leiðsögn ferðafólks og rak gistiheimili í Reykjavík. Árið 1996 flutti Erlingur til Raufar- hafnar ásamt Ágústu eiginkonu sinni til að reka Hótel Norðurljós. Samhliða hótelrekstrinum sinnti Erlingur margvíslegum fé- lagsmálum, m.a. átti hann sæti í menningarnefnd Raufarhafnar- hrepps. Hann var áhugamaður um ljósmyndun og hafði yndi af útivist. Þá var hann frumkvöðull að heimskautsgerðinu á Mel- rakkaásnum ofan við Raufar- höfn. Erlingur hlaut hvatningar- verðlaun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga árið 2009. Hann hlaut viðurkenninguna fyrir eftirtekt- arverðan árangur í rekstri ferða- þjónustu og óbilandi frumkvæði að nýsköpun sem nýtast mun svæðinu sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn um ókomin ár. Erlingur er sá fimmti af út- skriftarárgangi 1967 sem fellur frá. Við bekkjarsystkinin sem eftir stöndum minnumst góðs vinar, þökkum liðnar samveru- stundir og biðjum honum allrar blessunar á nýju tilverustigi. Ágústu, börnum þeirra og öðrum ástvinum vottum við okkar dýpstu samúð. Gísli Jónatansson. „Maður kemur í manns stað“ en jafn fleyg er setningin að „skarð sé fyrir skildi“ er fellur góður liðsmaður. Í baráttu Mel- rakkasléttu og Raufarhafnar fyr- ir tilveru sinni var Erlingur Thoroddsen ekki aðeins góður liðsmaður, heldur var hann ótrauður við að hvetja fólk áfram, benda á sóknarfæri og sanna að þetta svæði hafi upp á margt að bjóða sem gestir hafi gagn og gaman af. Erlingur var ekki að- eins í vörn, heldur öflugur sókn- armaður og barátta hans skilaði árangri. Fámennt lið mátti því einfaldlega ekki við því að missa hann, en skapadægur velja menn ekki – þar er annar sem ræður. Á síldarárunum er silfur hafs- ins hélt landsjóði uppi og gerði Íslendingum loks kleift að rétta að fullu úr bakinu eftir margra alda streð var Raufarhöfn malandi gullkvörn. Er síldin hvarf virtist ekki þörf fyrir stað- inn lengur og erfiðir tímar tóku við. Þegar heimamenn náðu vopn- um að nýju hófst barátta fyrir til- verunni sem hér verður ekki rak- in, nema hvað hún stendur enn. Það vakti athygli er hótel var opnað á staðnum árið 1973; Hótel Norðurljós. Þrátt fyrir erfiðan rekstur og tíð skipti á hótelstjórum tókst að halda því á floti. Það var svo árið 1996 að enn einn hótelstjórinn birtist. En hann kom ekki einn, hafði með sér unga konu og eitt af fyrstu verkum þeirra Erlings og Ágústu var að ganga í hjónaband að hætti ásatrúarmanna og fór athöfnin fram á þá skráðum nyrsta hluta landsins – Hraun- hafnartanga, hvar reka má tærn- ar norður fyrir heimskautsbaug- inn. Í tuttugu ár hafa þau hjónin staðið vaktina á Hótel Norður- ljósum og sífellt sótt fram með það að markmiði að reka þar fyrsta flokks hótel, fjölga gestum og vekja athygli á því sem svæðið hefur upp á að bjóða. Er ég, fyrir sex árum, hóf vinnu við ritun sögu Melrakka- sléttu, er senn sér fyrir endann á, hitti ég Erling til að heyra reynslu hans og framtíðarsýn. Ekki stóð á því en fyrst og fremst vakti athygli mína brennandi áhugi hans á svæðinu og öllum þeim möguleikum sem hann sá að það hefði upp á að bjóða. Ég hef ráðið næturstað nokk- urra hópa sem leið hafa átt um Melrakkasléttu og stoltur vísað á Hótel Norðurljós. Síðastliðið sumar var ég þar með 40 manns og eftir að hafa komið sér fyrir var safnast saman og spjallað. Bað ég Erling að segja okkur frá Heimskautsgerðinu sem rís við Raufarhöfn og vekur nú þegar athygli þótt ekki sé fullgert. Orð- ræða hans og einlægur áhugi á málinu fangaði gestina svo mjög að þeir gleymdu að dreypa á drykkjarhornum. Heimskauts- gerðið er hans hugmynd og þótt aðrir hafi komið þar að var Er- lingur heili og drifkraftur verks- ins. Ég er viss um að fullskapað verði það meiri segull fyrir ferða- menn en marga grunar og haldi nafni Erlings á lofti. Melrakkasléttan og Raufar- höfn standa mér nærri og ég met þá mikils sem vinna svæðinu vel. Þeirra á meðal var Erlingur Thoroddsen. Um leið og ég þakka honum ágæta kynningu og störf í þágu byggðarlagsins votta ég Ágústu og öðrum aðstandend- um einlægustu samúð mína. Blessuð sé minning Erlings og megi hann friðar njóta á fögrum völlum þess sem okkur er æðri. Níels Árni Lund. Það er alltaf dapurlegt þegar öflugt fólk sem á margt eftir ógert fellur frá á góðum aldri. Það fór kaldur gustur um hugann þegar fréttir bárust um að Er- lingur hótelstjóri á Raufarhöfn væri allur. Ég kynntist Ella fyrst fyrir alvöru eftir að hann flutti með Ágústu sinni til Raufarhafn- ar á útmánuðum 1996. Ég mundi þó eftir honum sem ungum manni vestur á Patró. Fjögur ár voru reyndar mikill aldursmunur á þeim árum. Hann fór snemma að vestan og því vissi ég einungis af honum af afspurn áratugum saman. Ég hef oft hugsað um það síðar að það hefur þurft tölu- verða áræðni að flytjast norður til Raufarhafnar og taka við rekstri Hótel Norðurljósa fyrir 20 árum. Aðstæður á hótelinu voru svo sem ekki sérstakar á þessum tíma. Að stofni til var hótelið gömul verbúð sem hafði verið skveruð upp á ódýran hátt. Það kom hins vegar fljótt í ljós að Elli kunni eitt og annað fyrir sér í þessum bransa. Hann var lista- kokkur, hann hafði auga fyrir einu og öðru áhugaverðu í um- hverfinu sem þeir sem kunnugri voru höfðu ekki veitt sérstaka at- hygli og að síðustu hafði hann tengsl við erlenda aðila í ferða- bransanum sem kunnu að meta sérstöðu Sléttunnar. Allt þetta skipti máli í hótelrekstrinum. Hreppsnefndin og samfélagið báru gæfu til að styðja við bakið á honum og það var hafist handa við að gjörbreyta hótelinu af miklum metnaði. Það verk tók nokkur ár en þegar upp var stað- ið var Hótel Norðurljós orðið besti gististaðurinn á stóru svæði norðaustanlands. Vertinn naut sín vel við fyrirtaksaðstæður. Elli var náttúruunnandi í þess orðs víðustu merkingu. Björgunar- sveitarmaður, ljósmyndari, fuglaspekingur og veiðimaður. Slíkir menn búa við kjörlendi á Sléttunni. Hann kenndi mér m.a. að síga í björg í eftirminnilegum ferðum út á Langanes. Það var reyndar eitthvað haft á orði eftir á að við hefðum ekki alveg þekkt gleggstu skil á landamerkjum. Landeigendur voru hins vegar það stórir að þeir voru ekki að erfa það við langt að komna Vest- firðinga þótt þeir færu heim með fáein egg til einkanota. Í þessum ferðum voru engir undanskildir sem vildu láta reyna á getuna. Enn í dag eru þær rifjaðar af og til upp hér á bæ sem hámark manndómsvígslunnar hjá ungum drengjum. Það eru ekki margir sem ná að skilja eftir sig bauta- steina sem fanga athygli almenn- ings langt út fyrir landsteinana. Í góðum hópi áhugasamra félaga var Elli frumkvöðull, hugmynda- smiður og drifkraftur að þróun og byggingu Heimskautagerðis- ins. Þrátt fyrir að þar sé margt enn óunnið er það nú þegar orðið merkasta kennileiti Raufarhafn- ar. Elli var ásatrúarmaður í þess orðs bestu merkingu. Hann var mikill náttúruunnandi en einnig glúrinn í kennisetningunni. Í byggingu Heimskautagerðisins náðist að tvinna þetta tvennt saman. Þess vegna er það svo merkilegt og þess vegna fær það verðskuldaða athygli. Það ásamt svo mörgu öðru mun tengja minningu Ella órjúfanlegum böndum við sögu Raufarhafnar um ókomna framtíð. Gunnlaugur Júlíusson. Ég kynntist Óm- ari í gegnum Ferða- klúbbinn 4x4 , gott ef það var ekki í kringum 1987 þegar Ferðaklúbb- urinn hóf byggingu á skála sínum Setrinu, sem er staðsettur sunnan undir Hofsjökli. Við störfuðum saman í nefnd- um klúbbsins og þar kallaði Ómar ekki allt ömmu sína, hann tók allt- af vel í öll verkefni og kláraði þau með sóma. Við fórum líka margar ferðir inn í Setur, en ein eftirminnileg- asta ferðin var ferð sem við köll- Ómar Wieth ✝ Ómar Wiethfæddist 18. maí 1953. Hann varð bráðkvaddur 21. nóvember 2015. Útför Ómars fór fram 2. desember 2015. uðum okkar á milli Go West-túrinn, en þar hafði Ómar boðið nokkrum aðilum með sér upp í Setur. Komu þeir á 19 misvel útbúnum bíl- um upp í skála eftir ca 12 tíma ferð upp Gljúfurleitina. Þetta fannst Ómari nú ekki mikið mál, en á laugardagskvöldinu fengum við þær upplýsingar að veður yrði arfaslæmt á sunnudeg- inum og ekkert ferðaveður. Ég vatt mér að Ómari og spurði: Hvernig ætlar þú með alla þessa bíla heim ef veður versnar? Ekkert mál, sagði hann, við komum bara á eftir ykkur, verð- um aðeins seinni, en komum. Úr varð að við urðum samferða til byggða og komum við öllum hópnum eftir töluvert basl heim og að sjálfsögðu var enginn skilinn eftir, því það hefði Ómar ekki tek- ið í mál. Frekar hefði hann orðið eftir og haldið áfram með viðkomandi þótt hann hefði þurft að ýta honum. Þannig maður var Ómar. Ómar lagði mikla og óeigin- gjarna vinnu á sig fyrir Ferða- klúbbinn 4x4 bæði við byggingu Setursins, rekstur þess auk þess sem hann tók virkan þátt í dag- legu amstri klúbbsins. Hann var mjög frjór og vildi alltaf vel. Allt sem hann tók að sér leysti hann vel af hendi og kláraði málin þó að það tækist kannski ekki í fyrstu tilraun. Ómar Wieth setti mikinn svip á starf félagsins og á hann sérstak- an stað innan þess. Um leið og ég þakka Ómari fyr- ir öll hans störf í þágu klúbbsins og kveð hann í hinsta sinn vil ég senda fjölskyldu hans og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Sveinbjörn Halldórsson, formaður Ferðaklúbbsins 4x4. Við þökkum fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og afa, EINARS MAGNÚSAR EINARSSONAR byggingarverkfræðings, Breiðvangi 6, Hafnarfirði. . Þórdís Stefánsdóttir, Stefán Einarsson, Elsa Margrét Einarsdóttir, Gunnar Sigfússon, Júlíus Gunnarsson og Stefán Gunnarsson. Ástkær sambýlismaður minn, bróðir okkar og frændi, HINRIK PÁLL FRIÐRIKSSON frá Höfn í Hornafirði, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 13. desember. Útförin verður frá Grensáskirkju mánudaginn 21. desember klukkan 15. . Sigríður Á. Sigurðardóttir, Þórhildur Haraldsdóttir, Bergþóra H. Haraldsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir, Súsanna H. Friðriksdóttir, Hallfríður Friðriksdóttir, Sigurveig Friðriksdóttir, Guðrún J. Friðriksdóttir, Gunni, Gummi, Frissi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.