Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 35

Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Elsku besti afi minn með stóra og fallega hjartað sitt hefur kvatt þennan heim. Hann hefur fengið hvíldina sína langþráðu þar sem líkaminn var orðinn lúinn og þreyttur en alltaf var hann klár í kollinum og munnurinn var svo sannarlega alltaf á réttum stað; fyrir neðan nefið. Ég á honum svo margt að þakka, hann var svo miklu meira en bara afi minn, hann hugsaði vel um stóru kisuna sína eins og hann kallaði mig allta tíð. Afi sagði mér oft að þegar ég fæddist þá hefði hann viljað breyta lífi sínu til hins betra og gera allt fyrir barnabörn- in sín. Hann stóð svo sannarlega við það. Mínar fyrstu minningar eru úr Benzanum hans afa en oft fórum við í ísbíltúr í Eden í Hvera- gerði eða í kaffi í Kvíarholt. Afa fannst gaman að ferðast og átti hann það til að panta sér far út samdægurs og amma kom heim að tómum kofanum og þá hringdi afi frá Þýskalandi eða Ameríku í ömmu. Ég man einnig eftir afa keyra með mig og ömmu á hrað- braut um allt Þýskaland og síðar að keyra í margar klukkustundir til Rikka í Ameríku en að keyra um á fallegum og hraðskreiðum bílum þar var afi kóngurinn! Það var erfitt fyrir afa að þurfa að Sverrir Guðjónsson ✝ Sverrir Guð-jónsson fæddist 17. október 1933. Hann lést 29. nóvember 2015. Útför Sverris fór fram 14. desember 2015. hætta að keyra, það var hans ástríða. Afi var líka langafi barnanna minna og þá sérstaklega reyndist hann mér góður þegar dóttir mín var yngri og dvaldi hún hjá afa og ömmu eftir skóla þangað til ég var bú- in með vinnudaginn. Afi var stoð mín og stytta í gegnum tíðina og allt til síðasta dags, ég gat alltaf leitað til hans og fyrir það er ég óendan- lega þakklát. Elsku afi minn, þú varst og munt alltaf vera kóngur- inn í mínu lífi! Ó, það sem ég á eftir að sakna þín mikið. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (HJH) Þín Guðrún. Elsku afi minn (langafi) og besti vinur minn, með stærsta hjartað sem ég veit um. Minning- ar okkar eru margar saman og þeim mun ég aldrei gleyma því þú varst stór partur í lífi mínu. Ég er endalaust þakklát fyrir allan tím- ann sem ég fékk með þér og skemmtilegu stundirnar okkar saman. Þú hefur kennt mér svo margt og alltaf verið til staðar fyr- ir mig, takk fyrir allt saman. Orð geta ekki lýst því hversu mikið ég mun sakna þín. Þín Sara. Afi Árni, eða afi skegg eins og hann er kallaður í Bjarmalandi, var mikill vinnuþjarkur. Hann var yngstur í stórum systkinahópi sem ólst upp við fátækt í Fljót- unum í Skagafirði. Afi og bróðir hans Vigfús ásamt systrum náðu með mikilli vinnu og áræðni að byggja sig og sína upp með síldarsöltun á gull- árum þess tíma á Siglufirði. Þeg- ar síldin hvarf fóru Helga og Árni suður og byggðu upp nýtt líf við skrifstofustörf. Ég þekkti lítið sögurnar af uppgangsárunum á Siglufirði. Afi var bara afi. Hann var glaður, söngelskur, skapstór og snyrti- legur. Ég á fjölda minninga með hon- um í bæ og í borg, í Fljótunum, í bláa Saab-bílnum, í litla kofanum við Heytjörn, ótal gistinætur í Fellsmúlanum, og þegar ég þreif eða skrifaði reikninga í Ármúla 21 í Gátun. Borðið hans afa var alltaf eins og ekkert væri að gera, allt á sín- um stað. Í einni timburöskju voru svo sælgætismolarnir handa mér og öðrum barnabörnum. Það var samt oftar amma sem var eigandi sælgætisins – afi borðaði bara grænmeti og fisk sem var frekar sérstakt fyrir mann á hans aldri. Við fórum stundum í helgarbíltúr til Hvera- gerðis að fá alvöru grænmetis- fæði í hádegismat hjá Náttúru- lækningafélaginu. Seinna, þegar Árni Jóhann Friðjónsson ✝ Árni JóhannFriðjónsson fæddist 25. ágúst 1927. Hann lést 3. desember 2015. Útför Árna fór fram 14. desember 2015. hann vann hjá Lyfjastofnun gekk hann oft niður í bæ, og stundum á skrif- stofu Ríkisspítala þar sem amma réð ríkjum, tók við greiðslu sem féhirð- ir. Stundum hitti ég hann á gangi og þá var hann iðulega að borða epli. Hann borðaði bara eitt epli í hádeginu. Alltaf! Í mörg ár voru Helga amma og afi með sælureit rétt fyrir utan borgina. Þau dvöldu þar næstum allt sumarið og ég fékk að gista margoft. Afi gróðursetti það land allt og í dag er þar mikill skógur. Hann sló aldrei af og hamaðist vikum saman við vegagerð, gróðursetn- ingu, að kasta skít á allan gróður eða við að girða. Í gróðurhúsinu var grænmeti og blóm og fleira góðgæti sem ég fékk reglulega að njóta, bæði sem barn og svo þeg- ar við Hallbjörn vorum byrjuð að búa. Á síðari árum fengum við að heyra fleiri sögur frá því í gamla daga frá afa. Okkur þykir vænt um að eiga þær sögur, söguna þegar afi gekk á eftir ömmu til að krækja í sætustu konuna í pláss- inu, af söng hans og þegar hann flaug til fjarlægra landa sem flugmaður. Síðustu ár var minnið farið að gefa sig, kjöt varð aftur ljúffengt, vínarbrauðin enn betri og ýmis- legt gleymdist – en áfram söng afi. Hann hefur nú sungið sinn síð- asta söng hjá okkur. Hvíl í friði, elsku afi. Hall- björn, Karl, Atli, Ólöf og Embla og ég biðjum að heilsa. þín, Þorbjörg Helga. Stoppi hver klukka! Klippið símavír! Þá er ég sit í sætri hafgolunni við öldurót Ben- galflóa og læt hugann reika til nýlátins föður míns kallast fram glaðlegar myndir af uppvaxtar- árum mínum er renna saman við aðra fjarlæga sjávarsýn, Ægisíð- una. Þar við Skerjafjörðinn blasir við fagurlega búið heimili og sú virðingarfulla og kærleiksríka til- vera er faðir minn Bjarni og móð- ir mín Diljá skópu okkur systk- inunum, dóttur minni, ætt og vinum. Bjarni Guðjónsson ✝ Bjarni Guð-jónsson fæddist 17. ágúst 1927. Hann lést 29. nóv- ember 2015. Útför Bjarna fór fram 16. desember 2015. Kann ég foreldr- unum þakkir fyrir ljúfar bernskuminn- ingar og frjáls upp- vaxtarár. Var oft glatt á hjalla og spennandi, einkum á hátíðastundum, er stórfjölskyldan frá Hafnarfirði og suð- ur með sjó samein- aðist okkur. Örlátur andi gestrisni sveif um húsakynnin og fordómalaust umburðarlyndið aflaði hjónunum samheldnu aðdáenda. Gaman var að sjá Stór- val sjálfan stinga inn kolli á góðri stund og stórskrýtin vinamergð mín, tíðum framandi listaspírur frá fjarlægum ströndum, raskaði sálarlífi þeirra lítt. Allir voru jafnir og jafn velkomnir. Faðir minn, fæddur í fátækt á Bjarnastöðum, hvar beljurnar baula, bar brátt til manns, menntaði sig af festu og varð fag- maður fram í fingurgóma. Fátítt var hversu ungur hann varð vel sigldur sem gutti á strandferða- skipinu Esju. Ók fínn um sveitir með vindinn í rauðkrulluðum makkanum á eigin drossíu. Svell- kaldur töffari sem sór þess eið að kvænast móður minni þá er hann leit hana augum fyrst yfir dans- gólfið í Breiðfirðingabúð. Ósk hans um vilyrði hennar varð hans gæfuspor. Þau gengu að eiga hvort annað; hún sautján kasól- étt, hann nítján. Kostulegt. Pabbi var góður félagi, ávallt til staðar með allt á hreinu; ósér- hlífinn, hjálpsamur og einstak- lega greiðvikinn. Satt að segja minn albezti trúnaðarvinur og höfðum við yndi af samveru og dægurhjali. Sóttum tíðum friðsælt morg- unsund í Vesturbæjarlaug og er á daginn dró, blóði drifinn kvik- myndahasar í Háskólabíó. Gaman var að heyra ævintýra- sögur hans af stríðsárunum, bís- unum á Grímsstaðaholtinu, Kjar- val á Holtinu, heimsreisunni viðburðaríku eða þá er hann brá sér glettilega af bæ í leit að frek- ari næturgamni til Karíba- hafsins, kærri móður minni til ólundar og armæðu. Þrátt fyrir farsælan ferill, veraldarsigrum og vegtyllum vel skreyttum, var framreiðslumað- urinn knái hógvær einfari og bóndi innst í eðli sínu er undi sér bezt í náttúrunni með skóflu eða haka í hönd og húfu á höfði. Ræktaði jarðarber, fuglavinur mesti, kvikur á fæti og nánast hamslaus jarðýta til verka í frí- tíma sínum. Þúsundþjalasmiður í ljónsmerki með stáltaugar. Til marks um elju hans og skapfestu reisti hann risið á æskuheimilinu og sumarhús með eigin hendi hvar fjölskyldan og vinir áttu friðarskjól og ómældar unaðs- stundir. Eðlislæg umhyggja, æðruleysi og rólynd nánd aflaði pabba virð- ingar margra vildarvina jafnt í starfi og leik. Hann var góð mannvera. Þögull og þrautseigur öðlingur. Við Gígja munum ávallt minnast hans af þakklæti, kær- leika og stolti og þökkum jafn- framt starfsfólki Landspítalans, hans kæru Maríu og öðrum traustum og glaðlyndum vinum hlýju og umhyggju í hans garð. Guðjón Bjarnason. Elsku Nína mín. Hérna sit ég og hugsa hvað ég á að skrifa til þín, orð fá ekki lýst sorginni sem er í hjarta mínu núna. Mér finnst heimurinn hafa minnkað eftir að þú fórst. Ég reyni að rifja upp góðu stundirnar okkar, en verð svo of- boðslega sár þegar ég hugsa að þú sért farinn frá okkur. Þú varst svo góð manneskja, og einn sá mesti töffari sem ég hef þekkt. Þú komst öllum til að hlæja og það var alltaf svo mikil gleði í kringum þig. Ég man þegar ég hitti þig fyrst, mér fannst þú svo frábær og skemmtileg og úr varð mikil og góð vinátta í tíu ár. Þú talaðir oft um Fagradal og það var þinn griðastaður, ég fékk þann heiður að koma þangað einu sinni til þín og það var æðislegt, það geislaði af þér innan um fjöl- skylduna þína og dýrin. Þú sýndir mér sveitina og sagðir mér sögur, ég gleymi aldrei þeim degi. Og dagarnir þegar við rúntuð- um um og töluðum saman um heima og geima. Ég minnist ófárra stunda sem við áttum á spjalli, þú varst svo klár og vissir allt, ég leitaði oft Jónína Marteinsdóttir ✝ Jónína Mar-teinsdóttir fæddist 11. apríl 1974. Hún lést 13. nóvember 2015. Útför Jónínu fór fram 15. desember 2015. ráða hjá þér, þú gafst mér svo mikið. Elsku Nína mín, ég vildi að ég hefði getað kvatt þig, við höfðum ekki talað saman í nokkurn tíma en ég var svo viss um að eiga eftir að hitta þig aftur. Þú skilur eftir mikl- ar og góðar minn- ingar. Ég hef aldrei kynnst eins góðri og fallegri stelpu og þér, svo hjartahlý og með svo stóran per- sónuleika. Elsku Nína mín, núna ertu komin til englanna og þar hafa margir vinir tekið á móti þér. Og þangað til við sjáumst aftur: rokk og ról. Elsku Daði, Gabríel og fjöl- skylda, megi algóður Guð styðja og styrkja ykkur í sorginni. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Arinbjörn Árnason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, afa, langafa og langalangafa, JENS KRISTJÁNSSONAR, Breiðuvík 6, Reykjavík, sem lést hinn 13. október síðastliðinn. . Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Þorvaldur Jensson, Ragnheiður Þórólfsdóttir, Sigurður Jensson, Sjöfn Kolbeins, Jóna Karen Jensdóttir, Guðjón Símonarson. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, LÁRUSAR JÓNSSONAR, Hólastekk 6. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deildar 13-E og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun. Jafnframt sendum við ykkur öllum hugheilar jólakveðjur. . Guðrún Jónsdóttir, Jón Ellert Lárusson, Sigrún Ásdís Gísladóttir, Hólmfríður Kristjánsdóttir, Marta Kristín Lárusdóttir, Guðmundur Valsson, Jónína Sigrún Lárusdóttir, Birgir Guðmundsson. Halla var fædd og uppalin í Glerár- þorpi sem nú er hluti af Akur- eyri. Þau voru sex börnin sem foreldrar hennar, Guðlaug og Freysteinn, eignuðust en fjögur komust til fullorðinsára, þau Sig- ríður, Sigurður, Hallfríður Krist- Hallfríður Kristín Freysteinsdóttir ✝ HallfríðurKristín Frey- steinsdóttir fæddist 27. febrúar 1928. Hún lést 22. nóv- ember 2015. Útför Hallfríðar fór fram frá Garða- kirkju 1. desember 2015. ín og Pétur sem lifir þau systkinin. Sam- band þeirra systkin- anna var alla tíð mikið og afar gott. Seinni árin töluðu þau systkinin sam- an daglega. Halla og Örn Eiðsson, eiginmað- ur hennar, settust að í Kópavogi og síðar Garðabæ og þar bjó hún fjölskyldu sinni fal- legt heimili sem gott var að sækja heim. Eftir að Örn féll frá flutti hún á Snorrabraut í Reykjavík og dvaldi svo síðustu árin á Droplaugarstöðum. Halla var félagslynd og vann við ýmis og fjölbreytt störf um ævina. Hún var hávaxin og glæsi- leg kona sem hafði næmt auga fyrir að fegra umhverfi sitt og sinna. Fallegi garðurinn, blóma- skálinn, glerlistaverkin og ker- amikverk af ýmsu tagi koma upp í hugann – allt lék í hennar flinku höndum. Oft minntist hún á dvöl sína í Flatey á Skjálfanda en þangað kom hún fyrst 10 eða 11 ára göm- ul til sumardvalar hjá Sigríði, systur sinni, og manni hennar, Bjarna Jóhannessyni. Þannig þróuðust mál að öll systkinin, sem komust á fullorðinsár, áttu viðkomu um lengri eða skemmri tíma í eynni. Og það fór ekki á milli mála að sumrin í Flatey voru ævintýri líkust, þar lærði hún fyrstu danssporin, kynntist eftirminnilegu mannlífi eyjarinn- ar og reyndi sig í nýjum verk- efnum. Hún sagði svo skemmti- lega frá vinnunni við að tína kríuegg, passa börn og stokka og beita fiskilínu í beitingarskúr en þar hófst vinnan fyrir allar aldir á morgnana. Greinilegt var að mikil kátína og lífsgleði fylgdi því unga fólki sem þar vann saman. Og margt skemmtilegt átti hún eftir að upplifa um dagana. Hún sjálf var þannig gerð að það var mannbætandi að vera í návist hennar. Þegar Halla kom í heim- sókn fylgdi henni fjör og hlátur því hún hafði lag á að finna spaugilegar hliðar á sérhverju máli. Skopskynið fylgdi henni allt fram á síðasta dag og auðgaði líf allra þeirra sem hana umgeng- ust. Elsku mágkona og frænka, þökk sé þér fyrir ánægjulega samfylgd og góðar minningar. Sigrún Lovísa Grímsdóttir, Grímur, Freysteinn, Hulda Guðlaug, Guðbjörg, Sigurður og Sigrún Lovísa Sigurðarbörn og makar. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.