Morgunblaðið - 18.12.2015, Síða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Omar Salama, skákdóm-ari og skákkennari viðHjallastefnuna, er 35
ára í dag. Hann er sá eini á
Norðurlöndunum sem er með
réttindi til að halda námskeið
fyrir skákdómara á vegum Al-
þjóðaskáksambandsins, FIDE.
Hann var 1. dómari á Ólympíu-
skákmótinu í Istanbúl í Tyrk-
landi 2012 og var fyrsti íslenski
skákdómarinn á ólympíumóti.
Hann dæmdi einnig á ólympíu-
mótinu í Tromsö í Noregi 2014
og var yfirdómari á Evrópu-
móti landsliða sem haldið var í
Laugardalshöll fyrir
skemmstu. Hann situr í stjórn
Skáksambands Íslands, stjórn
Taflfélag Reykjavíkur og er í
stjórn hjálparsamtakanna Sól í
Tógó. Hann er líka formaður
dómaranefndar Skák-
sambandsins og situr í dóm-
aranefnd FIDE. Hann er með
alþjóðleg skákmótshaldara- og
skákþjálfararéttindi.
Omar hefur unnið fyrir Hjallastefnuna síðan 2009 og hafði áður
kennt skák í Namibíu á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. „Í
ár vann vinnustaðurinn minn, Laufásborg, hvatningarverðlaun frá
Reykjavíkurborg fyrir skákkennslu í leikskólanum.“
Omar fæddist í hafnarborginni Alexandríu í Egyptalandi. „Faðir
minn var stærðfræðikennari í 45 ár og móðir mín var einnig kennari.
Svo á ég eldri bróður sem er verkfræðingur. Ég fluttist til Íslands árið
2006.“ Synir Omars, Adam 8 ára og Jósef 4 ára, eru báðir efnilegir
skákmenn. Adam er Íslandsmeistari í skák 8 ára og yngri, en í ár var í
fyrsta sinn keppt í þeim flokki, og Jósef vann sinn aldursflokk, fimm
ára og yngri, á jólamóti Víkingaklúbbsins í sínu fyrsta móti sem
haldið var fyrir rúmri viku.
Omar er í fríi í Kaíró þessa stundina en fer síðan til Doha, höfuð-
borgar Katar, að dæma á Qatar masters open, sem er sterkasta opna
mótið í skáksögunni. Það var í fyrsta sinn haldið í fyrra, en mótið
verður enn sterkara í ár og mun sjálfur heimsmeistarinn, Magnus
Carlsen, keppa á mótinu ásamt köppum eins og Vladimir Kramnik.
„Í dag ætlar pabbi að halda stóra afmælisveislu fyrir mig og á
morgun fer ég til Doha. Í byrjun janúar verð ég svo með dómara-
námskeið fyrir sænska skáksambandið.“
Skákdómarinn Omar Salama.
Staddur í Kaíró en fer
til Katar á morgun
Omar Salama er 35 ára í dag
Þ
orsteinn fæddist í
Reykjavík 18.12. 1940
og ólst upp í Vestur-
bænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1960, arkitektaprófi frá Arkitekta-
skóla konunglega listaháskólans í
Kaupmannahöfn 1966, stundaði
framhaldsnám í byggingafornleifa-
fræði við Franska fornleifaskólann í
Aþenu 1963-64, var í Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins 1959 og Leiklistar-
skóla LR 1967-68 og lauk leikara-
prófi 1968.
Þorsteinn starfaði á teiknistofu
Ráðhússins í Reykjavík, vann við
byggingarannsóknir á vegum Þjóð-
minjasafns Dana í Kaupmannahöfn
1966, var arkitekt á Teiknistofu
Inger og Johannes Exner í Kaup-
mannahöfn 1966-67 og hefur verið
arkitekt í Reykjavík frá 1967.
Þorsteinn var kennari í Iðnskól-
anum í Reykjavík og Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1967-71, var
leikari hjá LR öðru hvoru frá 1957
og fastráðinn þar frá 1971, hefur
leikstýrt fjölda leikrita á vegum LR
og víðar og var leikhússtjóri Leik-
félags Reykjavíkur ásamt Stefáni
Baldurssyni 1980-83.
Meðal arkitektastarfa Þorsteins
má nefna könnun gamalla bygginga
og varðveislugildi þeirra í Reykja-
vík í samvinnu við Hörð Ágústsson
og sams konar könnun fyrir Akur-
eyrarbæ, endursmíð Viðeyjarstofu
og -kirkju, lokaáfangi í samvinnu
við Leif Blumenstein, 1969-88; end-
urreisn Hóladómkirkju í samvinnu
við Ríkharð Kristjánsson, 1987-90;
endurreisn Bessastaðastofu og
húsakosts forsetaembættisins, end-
urbætur á Stjórnarráðshúsinu,
hvort tveggja í samvinnu við húsa-
meistara ríkisins, 1989 og 1997;
endursmíð Nesstofu og aðlögun úti-
húsa að nýrri notkun, 1978-92 og
2004-2008, og endurbætur á Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í áföngum á
árabilinu 1977-2000, hönnun Auð-
unarstofu á Hólum í Hjaltadal og
breytingar á Gljúfrasteini, húsi
skáldsins. Hann endurbyggði Sjó-
minjasafn Austurlands í Gömlu-Búð
á Eskifirði og annaðist endurbætur
á Eyrarlandsstofu á Akureyri og á
Sauðárkrókskirkju, Fríkirkjunni í
Hafnarfirði og Hafnarfjarðarkirkju,
ásamt fjölda annarra friðaðra
kirkna. Þá teiknaði hann Borgar-
leikhúsið í samvinnu við arkitektana
Guðmund Kr. Guðmundsson og
Ólaf Sigurðsson.
Á kafi í skrifum um kirkjur
Þorsteinn er félagi í Arkitekta-
félagi Íslands frá 1967, í stjórn
Leikfélags Reykjavíkur 1969-77 og
1992-95, í Húsafriðunarnefnd 1970-
74 og 1979-90 var formaður hennar
frá 1995-2010, sat í stjórn Banda-
lags íslenskra listamanna 1974-79, í
stjórn Norræna menningarmála-
sjóðsins 1997-2004 og á sæti í full-
trúaráði Norðurbryggju í Kaup-
mannahöfn.
Þorsteinn hefur skrifað í blöð og
tímarit um byggingarlist og varð-
veislu gamalla bygginga, er höf-
undur bóka um Viðeyjarstofu og
-kirkju, Hóladómkirkju og Auð-
unarstofu, og er ásamt Jóni Torfa-
syni ritstjóri ritraðar um kirkjur Ís-
lands: „Þetta er feikilega mikil
samantekt og þýðingarmikið verk.
Nú eru komin út 25 bindi en þrjú
eru enn eftir. Svo kom út bók eftir
mig í sumar, Hóladómkirkjur til
forna. Ég hef því verið á kafi í
ritstörfum um kirkjur.“
Þorsteinn hlaut Stefaníustjakann
1972 fyrir leikstjórn, menningar-
verðlaun DV í byggingarlist 1989
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari – 75 ára
Leikarahjón Þorsteinn og Valgerður Dan hafa verið gift í rúm 48 ár.
Stendur vörð um 18.
aldar húsin á Íslandi
Fáskrúðsfjörður Snæ-
dís Birta fæddist 18.
desember 2014 kl. 5.36
á Akureyri. Hún vó
3.850 g og var 54 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Guðbjörg Steins-
dóttir og Guðmundur
Harðarson.
Nýr borgari
Þessir krakkar héldu tombólu í Kaskó á Húsavík og afhentu Halldóri Valdimars-
syni, formanni Þingeyjarsýsludeildar Rauða krossins, ágóðann, 14.100 kr. Frá
vinstri á myndinni: Andri Már Sigursveinsson, Halldór, Birta María Eiðsdóttir og
Sigrún Egla Unnarsdóttir. Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir og Borgar Elí Jónsson
eru ekki á myndinni en voru með í hópnum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.