Morgunblaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Erfiði ástarsambands ræður ríkjum
í sambandinu. Ræddu við einhvern þér eldri
og vitrari því það getur komið sér vel í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert beðinn um að samræmast öðr-
um, sem þýðir að þú skalt fara í öfuga átt.
Mundu að ganga ekki á bak orða þinna.
Gakktu bara hreint til verks þegar tilefni
gefst til þess.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Eftirréttir og sætindi veita þér
gleði í dag. Síðan fer að færast meiri hraði í
líf þitt. Fyrir alla muni ekki byrgja tilfinning-
arnar inni, það endar með ósköpum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú skalt meta það kalt hvað þú vilt
axla mikla ábyrgð á öðrum. Reyndu að
forðast það jafnvel þótt það kosti það að þú
verðir að fresta mikilvægum umræðum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er farsælla að segja hug sinn en
að byrgja hlutina inni. Mundu að aðrir eru
álíka fastir fyrir og þú í þessum efnum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það reynir á stjórnunarhæfileika
þína og þá ríður á miklu að þú bregðist rétt
við. Láttu allar óþarfa áhyggjur lönd og leið
og einbeittu þér að augnablikinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er mögulegt að snúa göllum þín-
um upp í kosti. Hafðu þessa gömlu speki í
huga þegar þú vælir yfir því að allt sé
ómögulegt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samband sem legið hefur í
dvala undanfarin misseri verður að nokkurs
konar drifkrafti í lífi þínu. Gerðu bara það
allra nauðsynlegasta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færist nær og nær markmiði
þínu eftir því sem líður að árslokum. Allt
sem til þarf er traust á málsnilld þinni og
málstaðnum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú situr uppi með of marga
lausa enda og þarft því að setjast niður og
gaumgæfa mál þín. Talaðu skýrt og skor-
inort svo ekkert geti komið í bakið á þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú eyðir bróðurparti dagsins í
að gera meira en til er ætlast af þér og
jafnvel enn meira til. Hugsaðu þig því vel
um. En líttu ekki of lengi um öxl því það er
framtíðin sem skiptir máli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hver einasta breyting í lífinu þarf
ekki að verða af djúpum og þýðing-
armiklum ástæðum. Notaðu tímann til að
vinna að takmörkum þínum.
Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum og hann var með dauf-
ara móti – sagðist hafa verið á
skammvistun á Borgarspítalanum
og tautaði fyrir munni sér:
Innan við ganginn er gangur;
ég er gleymdur og einmana, svangur;
rúmið er hvítt
og rökkrið er sítt –
ég ligg hérna endilangur.
Og áfram hélt hann að tauta:
Hvort hún áleit mig ófiman, fiman?
Það er allra verst þetta með svimann!
Hún horfði mig á
á skjön og á ská
og skyggndist í innsta kimann.
Einar Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, varð sextugur 2. desember
sl. Friðrik Steingrímsson orti:
Fyrir honum virðing vex
veldur engum trega;
tórað hefur tugi sex
og tekist bærilega.
Og karlinn á Laugaveginum
sendi flokksbróður sínum og leið-
toga afmæliskveðjur:
Réttlætiskennd hans er rík
og ráð hans í pólitík; –
etur krækling úr skel,
hann er virður vel
og borinn í Bolungarvík.
Sigurlín Hermannsdóttir hafði
orð á því á þriðjudag að þingmenn
væru víst eitthvað að kvarta und-
an bjölluslætti forseta í gær. –
„Þetta er gamalt vandamál og
þessi vísa varð til hjá mér af sama
tilefni fyrir nokkrum árum þegar
þingmaður vildi ræða fundar-
stjórn forseta:
Þingmaður í stólnum stóð
og stjórn á fundum ræddi.
Forseti varð alveg óð
orða- reyndi að stöðva flóð.
Næstum því úr bjöllunni hún bræddi.“
Davíð Hjálmar Haraldsson hefur
lög að mæla:
Mörg af okkur eru stillt og hljóð,
ætíð broshýr, ljúf og þolinmóð.
Þó finnst líka þrasgjarnt, hávært fólk.
Þingmenn ættu að drekka næt-
urmjólk.
Í vikunni var margt ort á Leir
um kvengleggni og mangleggni.
Friðrik Steingrímsson gat ekki
orða bundist:
Lengi skyggnast margur má
í maka leit og ástarfléttu,
ókvenglöggur er þá sá
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af karlinum á Laugaveg-
inum og forseta Alþingis
Í klípu
„TAKTU TVÆR PILLUR Á DAG VIÐ KVÍÐA.
EF ÞÚ GLEYMIR SKAMMTI, REYNDU
ÞÁ AÐ FARA EKKI Á TAUGUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„RIGNIR ENNÞÁ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þið eruð ánægð
með rigninguna.
JÆJA, ÉG SKAL LESA YFIR
BRÉFIÐ ÞITT TIL SVEINKA
ÞAÐ ER PÍNU
STAGLKENNT,
ER ÞAÐ EKKI?
Gemmér!Gemmér!Gemmér!
Gemmér!Gemmér!Gemmér!
Gemmér!Gemmér!Gemmér!
EN ÞAÐ KEMUR
MERKINGUNNI
TIL SKILA
SAMT, FINNST
ÞÉR EKKI?
DR. TÓKI, ÉG ER Í SVO SLÆMU
FORMI AÐ ÉG GET EKKI EINU
SINNI FARIÐ UPP STIGA!
A-HA! HVAÐ
SEGIR ÞAÐ ÞÉR
AÐ ÞÚ ÆTTIR
AÐ GERA?
SELJA
KASTALANN
MINN?
Aumingjauppeldi var í umræðunnií fannferginu á dögunum og til-
finningaklám tröllríður mörgum ís-
lenskum fjölmiðlum og þá sér-
staklega um helgar. Þekktur
geðlæknir hæddist fyrir skömmu að
viðmælendum á þessu sviði, vitnaði í
systur sína og kallaði þá aumingja
vikunnar, sem hefðu ekkert gott til
málanna að leggja, þótt góður harm-
ur seldi eflaust bæði bækur og blöð.
x x x
Víkverji tekur undir með geð-lækninum. Vikulega birtast við-
töl við fólk sem hefur frelsast, ýmist
af víndrykkju, eiturlyfjum, nauðg-
unum og þar fram eftir götunum.
Það hefur náð áttum eftir að hafa
komið út úr skápnum, fundið rétta
lífsförunautinn eða réttu fjölina á
lífsins gangi. Jafnvel verið barið til
manns. Þetta fólk þarf að létta á sér
eða er beðið um það, skrifar gjarnan
bók og fær að kynna hana í spjall-
þáttum. Útkoman vill verða sama
rullan hjá sama fólkinu í sömu miðl-
unum.
x x x
Fyrir nokkru keypti Víkverji heim-ilispakka hjá Símanum og horfir
þar á þáttaraðir hjá Skjá einum,
þegar Luther á ekki hug hans allan
á norsku, dönsku eða sænsku ríkis-
stöðinni. Þær fylgja allar í heimilis-
pakkanum. Hann er til dæmis nýbú-
inn að horfa á aðra þáttaröðina af 24
Hours, þar sem Kiefer Sutherland
fer á kostum.
x x x
Sutherland er góður en enginnkemst með tærnar þar sem
James Bond er með hælana og því
fer vel á því að Spectre, nýjasta
Bond-myndin, skuli enn vera sýnd í
kvikmyndahúsum.
x x x
Daniel Craig er besti Bondinn ísögunni og erfitt verður að feta
í fótspor hans. Sennilega vonlaust.
Einhverjir hafa verið nefndir til sög-
unnar en slíkar bollaleggingar eru
ekki tímabærar því Daniel Craig er
með samning um að leika að
minnsta kosti í einni mynd til við-
bótar, að því er Víkverji best veit.
Hvorki aumingjaskapur né tilfinn-
ingaklám á þeim bænum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. (Sálm. 23:1)
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI