Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
02.01.2016
Ágæti lesandi, velkomin/-n á byrjunarreit. Nýtt
ár er brostið á og framundan eru 365 dagar
sem við ætlum að nýta vel, alveg þangað til ég
skrifa sambærilegan leiðarapistil að ári.
Mér finnst áberandi í umræðunni hvað fólk
af yngri kynslóðinni – yngra en undirritaður, vel
að merkja – er að verða meðvitaðra um mik-
ilvægi heildræns lífstíls með langtímahugsun, í
stað tímabundinnar tarnavinnu, sem löngum
hefur verið einkenni Íslendinga í líkamsrækt
sem öðru. Fyrir það fyrsta skiptir mataræðið
talsvert meira máli en heimsóknir í ræktina og
svo spilar svo ótalmargt meira inn í og þar
finnst mér unga fólkið vera upp til hópa á réttri
leið. Það skilur mikilvægi þess að fá nægan
svefn, því án hans geta efnaskiptin farið í
hundana með tilheyrandi kviðfitu; það skilur
mikilvægi þess að lifa í núinu og njóta líðandi
stundar, það stundar jóga og hugleiðslu og set-
ur sjálfu sér markmið í stað þess að stunda lífs-
gæðakapphlaup við nágrannann. Hvað ungur
temur mætti gamall nema.
Á nýju ári skulum við gera
meira af því sem okkur var ljúft ár-
ið 2015 og minna af því sem var
okkur leitt. Gerum það að
besta árinu hingað til.
Gleðilegt 2016!
Besta árið
hingað til er
framundan
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók
Styrmir Kári
Prentun
Landsprent ehf.
18
Elvar Þór Reynisson
hjólar af öryggi í vetur
á 240 nöglum.
26
Jón Arnar, framkvæmdastjóri Lemon,
segir hollan mat lykilatriði
fyrir orkuna og einbeitinguna.
6
Ragga Nagli gaf
nýlega út bók
og býður upp
á fjarsálfræði-
meðferðir.
8
Notarðu ranga gerð af
lesgleraugum? Það gæti
haft slæm áhrif á þig.
12
Hugleiðsla í hádeginu og heilsu-
sveppur í ræktun; hvað gerir þú
fyrir eigin heilsu?
22
Hólmfríður Gísladóttir
hráfæðiskokkur gefur
nokkrar hollar og
ljúffengar uppskriftir.