Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 4

Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ F rá upphafi hafa vörur Sóley Organics verið framleiddar úr íslenskum grösum og jurt- um eftir aðferðum sem varð- veist hafa innan fjölskyldu Sóleyjar, kynslóð fram af kynslóð, og hún man vart eftir sér öðruvísi en grúskandi í náttúrunni, meðvituð um virkni og kraft náttúrulegra villijurta. Helsta fyrirmynd Sóleyjar í þessum efnum er langalangamma hennar, sem var nafntoguð víða um sveitir fyrir kunnáttu sína og þekk- ingu á grösum og lækningamætti þeirra. „Hún hét Þórunn Gísladóttir og var könnuð Grasa-Þórunn, og um hana og kunnáttu hennar eru til margar sögur,“ segir Sóley um hina mögnuðu ættmóður sína. „Hún var mikill kvenskörungur, vann meðal annars sem ljósmóðir og er talin ein fyrsta konan sem gekk í buxum á Íslandi. En merkastar eru samt sögurnar sem eru af því þegar hún hreinlega bjargaði lífi fólks með jurtunum,“ bætir Sóley við. Fleiri í ættinni gátu sér gott orð um sína daga með því að kunna skil á lækn- ingamætti íslenskra grasa. Sonur Grasa-Þórunnar, og um leið langafi Sóleyjar, hét Erlingur Filippusson og var jafnan nefndur Erlingur grasalæknir. Sóley segir svo frá honum: „Hann eignaðist tólf börn og nokkur þeirra fengu spænsku veikina [sem varð hundruðum Reykvíkinga að aldurtila síðla árs 1918, innsk. blm] og ekkert þeirra dó. Erlingur notaði þá grasalækn- ingaaðferðir til að kæla og þess háttar, enda var það hitinn sem drap fólk. En börnin lifðu sem sagt af og því er fjölskyldan ákaflega stolt af, enn í dag.“ Í jurtunum frá unga aldri Með hliðsjón af framangreindu kemur það því ekki svo mjög á óvart að hin græðandi og heilnæmu áhrif grasanna hafa alltaf hrifið og heillað Sóleyju. Jurtirnar hafa einfaldlega fylgt henni frá því í frumbernsku. „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að hafa viljað og sóst eftir að þekkja jurtirnar, sögu langafa og langalangömmu, og læra um þessa náttúrulegu virkni sem býr í jurt- unum. Ég hef sem sagt alltaf haft áhuga á náttúrulækningum, viljað vera á kafi í jurtunum og kunna að nota þær.“ Sóley segist fyrir bragðið fara mikið í göngur úti í náttúrunni og þá er hún jafnan með nefið ofan í jörðinni, eins og hún lýsir því, til að skima eftir einhverju áhugaverðu sem þar kann að spretta. „Ísland er í sjálfu sér ekki ríkt af jurtum en við eigum mjög mikið af lækn- ingajurtum, og mjög öflugum meira að segja.“ Sóley hugsaði oft með sér að ef til vill væri hægt að gera eitthvað meira með græðandi mátt grasanna en að nýta hann eingöngu fyrir sig og sína; kannski mætti jafnvel finna í jurtunum grundvöll að einhverjum rekstri. Hún sauð „græna smyrslið“ til heimilis- og einkanota, ásamt því að gefa vinum og ættingjum, og það var einfaldlega eitthvað sem varð alltaf að vera til á heimilinu. En 2007 afréð hún að taka slaginn. Sól- ey, sem er menntuð leikkona, hætti eftir um 15 ár í Borgarleikhúsinu og ákvað að helga sig jurtunum. Upp úr því varð vörumerkið Sóley Org- anics og varan sem merkið byggist á er einmitt „græna smyrslið“ – Græðir. Náttúrulegur hreinleiki Starfsemin var fljót að vaxa og vinda upp á sig og í dag eru vörurn- ar alls næstum þrjátíu talsins. Framan af samanstóð línan af húð- vörum en nú hafa bæst við sjampó, hárnæring, sturtusápa og handsápa, ásamt róandi tei, ilmkertum og ilm- úða fyrir heimilið. Það er því nær- tækara að tala um lífsstílsmerki í dag, lífrænt og náttúrulegt. Vöxt- urinn er ljóslega til marks um að fyrirtækið er að gera eitthvað rétt og hefur markað sér einhverja sér- stöðu í huga neytenda. Hver skyldi sérstaðan hinsvegar vera í huga Sóleyjar sjálfrar? „Sérstaðan er sú að varan er ís- lensk, náttúruleg, varan er lífrænt vottuð, en síðast en ekki síst þá er varan umhverfisvæn lúxusvara. Þess utan veit ég að varan virkar, hún er góð. En það er ekki án til- kostnaðar að búa til vandaða vöru sem er í senn náttúruleg, lífrænt vottuð og umhverfisvæn svo vörurn- ar frá Sóley Organics eru þegar allt kemur til alls lúxusvara. Við erum ekki að keppa á lágvöruverðs- grundvelli heldur á grundvelli gæða og náttúrulegs hreinleika.“ Sóley telur líka ótvíræð sóknarfæri til staðar fyrir frekari vöxt. „Hugsunarhátturinn er að taka gríðarlegum breytingum. Ungt fólk í dag hugsar miklu meira um um- hverfið og hollustu almennt, sækir meira í lífrænt og náttúrulegt og er almennt meðvitaðra um þessi mál.“ Sóley bætir því við að liður í hreinleikanum sé að nota ekki rot- varnarefni né heldur svokölluð PEG-efni [sem stendur fyrir poly- ethylene glycol] og er flokkur vaxefna sem binda saman olíur og vatn, og auðvelda efnum að smjúga inn í húðina, svo dæmi séu tekin um virkni þeirra. „PEG-efnin eru svo virk að þau halda áfram að vinna þegar þau eru komin á húðina og í hana. Það þurrkar húðina því PEG- efnin grassera þar áfram. Þau muntu aldrei finna í vörunum frá Sóley Organics, ekki heldur rot- varnarefni, ilmefni eða vaselín. En PEG-efnin skaltu forðast eins og heitan eldinn.“ Ilmandi ilmkjarnaolíur Blaðamaður skoðar sig um í versluninni meðan spjallinu vindur fram, handleikur hinar ýmsu vörur og hnusar af þeim. Innihaldsefnin eru hinar ýmsu jurtir úr náttúru Ís- lands, í mismunandi samsetningum frá einni vöru til annarrar, en þó eiga allar vörurnar eitt sammerkt. Þar að kemur að ekki verður komist hjá því að spyrja Sóleyju hver ástæðan – ef ekki galdurinn – er að baki hinni óskaplega góðu lykt sem er af öllu því sem fyrir augu og önn- ur skilningarvit ber í búðinni? Sóley hlær við. „Það er í fyrsta lagi af því ég pæli mjög mikið í ilmi, ég er mjög meðvituð um ilm al- mennt og hann skiptir alveg ofboðs- lega miklu máli. Í öðru lagi er ástæðan sú að ég nota ekki tilbúin ilmefni heldur eingöngu ilmkjarna- olíur. Það eru olíur sem eru unnar beint úr plöntum, og þess vegna er öðruvísi ilmur af þessum vörum en flestum öðrum snyrtivörum. Það er það sem þú finnur; þú finnur ein- faldlega gæðamun á ilmgjöfunum í þessum vörum samanborið við aðr- ar. Ilmkjarnaolíur eru dýrt hráefni og því þurfa vörurnar að kosta svo- lítið meira, en eins og ég nefndi áð- an þá liggur sérstaðan okkar og samkeppnisstaða í gæðum en ekki lágu verði. Það má segja að notkun ilmkjarnaolíanna sé önnur sérstaða varanna frá okkur.“ Útrás og nýjungar í bígerð Sóley segist alltaf vera með nýjar vörur í kollinum og það sem hana langar næst að hrinda í framkvæmd er lína af herravörum. „Það er næsta skrefið hjá mér, að sinna herrunum almennilega, og vörunar gætu vel komið á markað seinni part næsta árs.“ Meira vill Sóley ekki gefa upp að svo komnu en það er auðheyrt að það er ýmislegt áhugavert á prjón- unum hjá fyrirtækinu. Hún er líka með lengri tíma markmið sem ná út fyrir landsteinana, vel að merkja. „Ég hef alltaf haft ákveðna al- þjóðasýn fyrir merkið,“ segir Sóley og við rifjum upp hvernig stofn- endur fyrirtækja á borð við Body Shop og L’Occitane hófu sína starf- semi mjög smátt í sniðum í heima- húsi. Þar reyndist mjór heldur bet- ur mikils vísir, og hví ekki að setja markið hátt? „Einmitt,“ segir Sóley og brosir við. „Ég vil vera í samkeppni við stóru vörumerkin, og af hverju ekki? Það er leiðin sem ég ætla að fara.“ jonagnar@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Arfleifðin „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að hafa viljað og sóst eftir að þekkja jurtirnar, sögu langafa og langalang- ömmu, og læra um þessa náttúrulegu virkni sem býr í jurtunum. Ég hef sem sagt alltaf haft áhuga á náttúrulækningum.“ Sóley Elíasdóttir hefur um árabil framleitt náttúrulegar húðvörur undir nafninu Sóley Organics. Undanfarin misseri hafa svo heim- ilisvörur bæst við línuna, svo merkið er í raun lífsstílsmerki í stað þess að vera einfaldlega húðvörulína, og fleiri viðbætur eru vænt- anlegar á þessu ári. Undirritaður heimsótti Sóleyju heim í verslun Sóley Organics við Bæjarhraun í Hafnarfirði. Íslenskur hreinleiki Vörurnar Meðal nýlegri vara frá Sóley Organics eru ilmkerti og heimilisilmur sem bera sama ilminn og hið viðeigandi nafn Bústaður. Græðir er aftur á móti „græna smyrslið“ sem fylgt hefur fjölskyldunni í kynslóðir og var fyrsta vara Sóleyjar. Grasa-Þórunn Langalangamma Sóleyjar hét Þórunn Gísladóttir og var kunnátta hennar á grösum og jurtum grunnur að þekkingunni sem er að baki Sóley Organics. BAKLEIKFIMI & SAMBALEIKFIMI UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA Í HEILSUBORG, FAXAFENI 14 Hefst 12. janúar Þriðju- og fimmtudaga kl. 12.05, 16.20 og 17.20 Upplýsingar og skráning á www.bakleikfimi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.