Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 10

Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ Chikly Stofnunin mun bjóða upp á glænýtt námskeið þróað af Dr. Bruno Chikly ( USA) og Dr. Perrin Do (UK) á Íslandi dagana 3.-6.mars næstkomandi Á þessu námskeiði verður kennt að greina og meðhöndla vefjagigt og síþreytu. Nálgunin og tæknin sem notuð er við greiningu á einkennum kemur frá Dr. Perrin og meðferðarformið kemur meðal annars úr smiðju Dr. Chikly þ.e. blanda af tækni úr lymph therapy (sogæðameðferð) og brain technique (meðferð á heila). Nánari lýsing á námskeiðinu og umsagnir meðferðarþega má finna á heimasíðu Dr. Bruno Chikly www.chiklyinstitute.com Námskeiðið er opið öllum þeim sem vinna við líkamsmeðferðir. Námskeiðið verður haldið á Hótel Cabin, Borgartúni 32, 105 ,Reykjavík Upplýsingar og skráning í símum 8624898 og 8981760 og í annabjarna@gmail.com. Vefjagigt og síþreyta námskeið Þ etta byrjaði allt saman þegar ég var sjálf enn að vinna í banka. Þá upplifði ég mikið álag á árunum í kringum hrunið og var sjálf nýbyrjuð að stunda jóga á þessum tíma, haustið 2008,“ segir Eygló um aðdraganda og tilurð Jakkafatajóga. „Ég tók upp á því að standa upp frá borðinu mínu af og til og gera einhverjar skrýtnar æfingar og vekja með því ansi skemmtilega athygli,“ bætir hún við og hlær. Það var þó ekki fyrr en sumarið 2013 sem Eygló fór að sinna nýja verkefninu af fullum krafti. „Hug- myndin var út af fyrir sig löngu komin en ég fór ekkert að vinna með hana fyrr en ég fór að fá fyrirspurnir úr atvinnulífinu. Til mín leituðu hóp- ar sem töldu að ég gæti leiðbeint þeim, bæði af því að ég er jógakenn- ari og líka að ég gæti kennt þeim sérstakar „bankamannaæfingar“ vegna bakgrunns míns í þeim geira.“ Gegn kyrrsetukvillunum Þannig fór boltinn að rúlla og Eygló bjó til ákveðinn æfingagrunn sem stuðst er við. Í kjölfarið hefur Jakkafatajóga undið ærlega upp á sig, um leið og atvinnulífið hefur náð sér á strik eftir hrunið og kreppuna. „Mér þótti ég voða bjartsýn og metnaðarfull að gera ráð fyrir fimm hópum í Jakkafatajóga, en núna er- um við með hátt í þrjátíu hópa, bara hérna í Reykjavík.“ Sér til trausts og halds hefur Eygló þrjá starfsmenn í borginni og aðra þrjá úti á landi. „Eitthvað sem byrjaði sem mitt litla hugarfóstur er því farið að veita fullt af fólki vinnu í dag,“ segir Eygló og það er ekki laust við stolt í röddinni. Jakkafatajóga er öðrum þræði stefnt til höfuðs hinum ýmsu kyrrsetukvillum og með sinn bak- grunn úr bankanum veit Eygló upp á hár hvaða slæmu áhrif langtíma kyrrseta getur haft á fólk. „Við stirðnum rosalega í stóru liðamótunum okkar og þá sér- staklega í mjöðmum og öxlum,“ út- skýrir hún. „Úr því verður svokallað vöðvaójafnvægi í líkamanum vegna þess við eigum það til að slúta fram, missa axlirnar niður og sitja bogin í baki. Þetta gerir það að verkum að hryggurinn er ekki í uppréttri stöðu og líffærin okkar, til að mynda lung- un, fá ekki nægt pláss. Allar æfing- arnar hjá okkur miða á einn eða ann- an hátt að því að leiðrétta þessa stöðu, teygja á vöðvum á réttum stöðum og styrkja þá á réttum stöð- um, ásamt því að liðka öll helstu liða- mót frá toppi til táar. Þetta tekst okkur bara mjög vel og samhliða því erum við að vinna stanslaust með öndunina og svo einfaldasta form hugleiðslu sem eru einbeitingar- eða núvitundaræfingar.“ Líkamsvitund er nauðsynleg Ekki veitir heldur af því að hjálpa líkamanum til baka þegar hann er tekinn að stirðna eftir langtíma kyrrsetur, og ávinningurinn skilar sér til þeirra sem taka þátt. „Ég heyri það frá viðskiptavinum okkar að í þessari jólatörn – að lok- inni ástundun í Jakkafatajóga síð- ustu mánuði – er fólk ekki eins stíft og stirt í öxlum og baki og finnur einfaldlega ekki eins mikið til. Það er ekki þar með sagt að einn tími lækni allt saman og þess vegna leggjum við upp með reglulega ástundun. Við erum að mæta til fólks einu sinni í viku og það hefur líka sitt að segja að við reynum að mennta fólk sam- tímis hvað rétta líkamsbeitingu varðar. Við verðum jú að taka sjálf ábyrgð á eigin heilsu, það gerir það enginn fyrir okkur. við gleymum þessu oft og líkaminn tekur stundum ekki í taumana fyrr en það er orðið of seint og líkaminn gengur allur úr jafnvægi vegna lífstílstengdra streitusjúkdóma. Við leggjum því áherslu á að kenna fólki að þekkja líkama sinn nægilega vel til að geta brugðist við einkennum áður en í óefni er komið. Líkamsvitund er nauðsynleg, ekki síst nú á dögum þar sem við fáum sífellt færri og færri tækifæri til að hreyfa okkur eins og okkur var ætlað því líkaminn er gerður til þess að hreyfa sig mik- ið. Þetta er mikilvæg kunnátta fyrir okkur sem leggjum langmesta áherslu á að mennta okkur frá hálsi og uppúr,“ bætir Eygló við og kímir. „Líkaminn er ein heild og hann er bara jafn heilbrigður og veikasti hlekkurinn.“ Jógastöð á vinnustaðnum Jakkafatajóga gengur þannig fyr- ir sig að jógakennarinn mætir á vinnustað og stýrir tímanum í heppi- legu rými í viðkomandi húsnæði. „Allir standa á fætur og fylgja leið- beiningum í fimmtán til tuttugu mín- útur og fara svo aftur til vinnu, end- urnærðir. Í rauninni þarf ekki til þessarar iðkunar nema gólfplássið. Og fólk!“ Eygló tekur það fram að engin þörf sé á jógadýnum, jógafatn- aði eða öðru, og það geri Jakkafata- jóga einmitt svo heppilegt á vinnu- stað. „Við erum ekki að taka tíma frá fólki til fataskipta eða annars und- irbúnings svo núningstími er enginn og ekki sekúnda fer til spillis. Við mætum og fólk stendur upp; við för- um svo og fólk sest niður. Allt og sumt. Allar æfingar eru lagaðar að hversdagsfatnaði og lífstíl þeirra sem mæta. Við gerum okkur fyr- irfram grein fyrir því að sumar kon- ur eru kannski í þröngu pilsi og sum- ir herrarnir í aðsniðnum skyrtum sem gerir það að verkum að við er- um ekki að fara í dýpstu jógastöð- urnar en það er samt sem áður hægt að gera mikið af jógastöðum. Það kom mér talsvert á óvart til að byrja með. Að sama skapi kemur það fólki í opna skjöldu hvað ávinningurinn er mikill þrátt fyrir að tíminn hverju sinni sé ekki lengri en þetta.“ Eygló útskýrir í framhaldinu að flestir vinnustaðahópar fái leiðbein- anda til sín einu sinni í viku en aðrir fái tvo tíma í viku, einkum stór fyr- irtæki, og önnur smærri stíla á einn til tvo tíma í hverjum mánuði. Og Eygló er ekki á leiðinni í bank- ann aftur því Jakkafatajóga á hug hennar allan. „Klárlega. Hér er ég á réttri hillu,“ segir hún að lokum. jonagnar@mbl.is Að taka sjálf ábyrgð á eigin heilsu Morgunblaðið/Árni Sæberg Jakkafatajóga „Jógakennarinn mætir á vinnustað og stýrir tímanum í heppilegu rými í viðkomandi húsnæði. „Allir standa á fætur og fylgja leiðbeiningum í fimmtán til tuttugu mínútur og fara svo aftur til vinnu.“ Eygló Egilsdóttir starfaði sjálf í banka þegar hún fékk hugmyndina að Jakkafatajóga. Einn tími á viku getur gerbreytt, líðan og líkamsburði fólks segir Eygló, sem leggur áherslu á líkamsvitund og segir lík- amann aðeins jafnhraust- an og veikasta hlekk hans. Eygló lætur ekki staðar numið við Jakkafatajóga, sem eru hóptímar, heldur býður líka upp á einkatíma í jóga. „Þetta er blanda af jógateygjum og nuddi, nokkurskonar jóganudd sem kallast á ensku Thai Yoga Massage og er tækni sem ég lærði í Taílandi. Þetta eru æfingar þar sem ég aðstoða við- komandi við að fara dýpra inn í jóga- stöður,“ útskýrir Eygló. „Það gerir svo aftur það að verkum að viðkomandi fær dýpri teygjur og um leið dýpri upplifun af jógatíma en hann fengi ella. Stundum erum við að vinna al- mennt með líkamann og stundum er ég að fá fólk til mín sem vill vinna í ein- hverju ákveðnu svæði, til dæmis vinna á stífleika í mjöðmum eða mjóbaki. En þar kemur aftur fram það sem er í raun rauður þráður gegnum jóga, að líkaminn er ein heild. Þó við séum að vinna í mjöðmunum þá byrjum við í fótunum og endum á höfðinu.“ Tímarnir virka eins og nudd að því leytinu til að viðskiptavinurinn ein- beitir sér að því að slaka á. Í stað þess að taka við leiðsögn og bregðast við, eins og í hefðbundnum jógatímum, gerir hann ekkert nema að taka við, rétt eins og þegar farið er í nudd. Eina hlutverk hans er í rauninni að anda djúpt, og gæta þess að halda ekki niðri í sér andanum, bendir Eygló á. „Ég færi viðkomandi varlega í hinar ýmsu jógastöður og lokatakmarkið er að úr verði einskonar jógaflæði tveggja einstaklinga. Dálítið fallegt form jóga,“ segir Eygló og brosir við. Aðspurð segir hún loks að engar forkröfur um lágmarkskunnáttu í jóga séu fyrir jóganuddið, hver sem er geti mætt í það. Jóganudd í einkatímum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.