Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 12

Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 12
unni. Mér finnst nauðsynlegt að gefa mér tíma í erli dagsins, fjárfesta í sjálfri mér, og eftir að ég uppgötvaði hot jóga finn ég að það er það sem heldur mér gangandi.“ Kaffi og súkkulaði Fylgirðu ákveðinni línu í mataræð- inu? „Ég hef prófað eitt og annað gegn- um tíðina sem hefur verið í „tísku“. Minnisstæðastur er heilsusveppurinn sem ég ræktaði heima í geymslunni og drakk safann af. Það eru mörg ár síðan markaðsöflin hættu að hafa áhrif á mig með sín „góðu ráð“ varð- andi fæðuval. Það er svo einstaklings- bundið hvað hentar fólki. Ég hef tamið mér hollt mataræði og lært að hlusta á hvað líkaminn þarf til að halda heilsu. Ég hef frekar hraða brennslu og þegar ég er undir álagi þarf ég sérstaklega að passa mig og gefa mér tíma til borða vel. Ég tek alltaf inn Omega D-vítamín, ásamt Spirulina Blue, Super Beets og Bio-Kult. Svo gæti ég þess að borða ekki tveimur til þremur klukkustundum fyrir hot jóga, en drekk aftur á móti vel af vökva. Eftir æfingu er kókos- vatn tilvalið. Mitt mottó er annars að allt er gott í hófi og ekki má gleyma að njóta þess sem gerir manni gott, bæði líkama og sál. Ég fæ mér í raun- inni allt sem mig langar í og það sem mér líður vel af, þar með talið kaffi og súkkulaði.“ Jóga að morgni Besti tími dagsins fyrir líkams- rækt? „Það er oft púsluspil að finna tíma þegar maður er í fullu starfi, MA- námi og með lítil börn, en ég reyni að fara í hot jóga þrisvar í viku og oftar É g hef alltaf verið frekar með- vituð um heilsuna, bæði varð- andi mataræði og hreyfingu. Í gegnum tíðina hef ég stundað líkamsrækt reglulega í einhverju formi, þó aðallega lyft lóðum og synt. Ég fékk grindarlos á meðgöngunni þegar ég gekk með börnin mín þrjú, en með því að viðhalda styrknum í ræktinni og synda fram á síðustu viku meðgöngunnar átti ég auðvelt með að koma mér fljótt aftur í gott líkamlegt form. Ég byrjaði að stunda hot jóga fyrir um þremur árum og fann strax að það hentaði mér mjög vel, ekki síst vegna hinna góðu andlegu áhrifa. Maður mætir sjálfum sér á jógadýn- ef ég fæ tækifæri til. Þetta er bara spurning um skipulagningu. Ég fer venjulega í jóga eftir vinnu í eftirmiðdaginn, með dyggri hjálp frá elsta syni mínum sem gætir yngsta sonarins, eða á kvöldin eftir að mað- urinn minn er kominn heim úr vinnunni. Persónulega finnst mér best að vekja líkama og sál í heitum jógasal að morgni. Ég færði mig yfir í nýja jógastöð síðastliðið vor, Sólir, þegar hún var opnuð úti á Granda. Í Sólum kemst ég í hina fullkomnu jógavímu og þangað fer ég á morgnana um helgar.“ Áformin á árinu, tengd heilsurækt? „Ég er ein af þeim sem strengja aldrei nýársheit, hvorki varðandi heilsuna né annað. Ég held mínu striki í líkamsræktinni enda er ég frekar íhaldssöm á því sviði, það vant- ar að minnsta kosti spennufíkilinn í mig og löngunina til að prófa jað- aríþróttir. En ég mun reyna mitt besta við að rækta sjálfa mig og verða betri manneskja.“ beggo@mbl.is Heilsusveppur í ræktun Hrafndís Tekla Pétursdóttir framkvæmdastjóri Morgunblaðið/Golli Framundan Hrafndís Tekla Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Vímu- lausrar æsku – Foreldrahúss: „Ég held mínu striki í líkamsræktinni enda er ég frekar íhaldssöm á því sviði, það vantar að minnsta kosti spennufíkilinn í mig og löngunina til að prófa jaðaríþróttir.“ 12 | MORGUNBLAÐIÐ É g hef stundað allskyns íþrótt- ir og hreyfingu frá unga aldri, en það var ekki fyrr en á seinni árum sem ég fór að huga að mataræði og andlegri heilsu af einhverju viti. Nú iðka ég fyrst og fremst jóga, þá aðallega Hot jóga, jóga Nidra og Yin jóga í Sólum, ásamt jóga Moves hjá Tómasi en það er blanda af hefðbundnu jóga, dansi og hugleiðslu. Einnig held ég í gömlu indíánahefðina og hef notið þess að stunda sweat með óreglulegu milli- bili, ásamt heitum og köldum böðum. Þess á milli er ég meðvitað skorpu- maður í ræktinni, þar sem ég fók- usera á að nota eigin þyngd í lyft- ingum. Þegar álagið er mikið í daglegu amstri stunda ég frekari hugleiðslu í stuttum 10 til 20 mínútna lotum, til dæmis með Calm-appinu og hlakka ég einnig til að prufa Happ-appið þegar það kemur á markað. Mér finnst einkar gott að brjóta upp dag- inn með hugleiðslu í hádeginu og hvet alla atvinnurekendur til að koma upp kósí aðstöðu á vinnustaðn- um, þar sem starfsfólki gefst kostur á að draga sig í hlé og stunda hugar- leikfimi.“ Góð endorfínveisla Ertu mikill útivistarmaður? „Ég hleyp reglulega úti í nátt- úrunni þar sem ég nota appið Strava til að halda utan um endorfínveisl- una. Á síðasta ári fór ég svo að bæta inn í dagskrána göngum með döm- unni minni, þar sem Gróttan er al- gjörlega uppáhalds, en ég hlakka einnig til að prufa nýjar gönguleiðir með nýja Wapp-appinu. Annars má nú ekki gleyma því sem skiptir mjög miklu máli, en er alltof sjaldan tekið inn í umræðuna um betri andlega og líkamlega líðan. Það eru opinská samskipti og nánd með þeim sem þú elskar, það jafnast hreinlega ekkert á við það að horfa inn á við með þeim sem er manni nánastur. Að lokum er það svefninn sem er oftast frekar reglulegur hjá mér, sjö til átta tímar, og engin síma- og tölvunotkun eftir klukkan níu á kvöldin, nema í vinnutörnum. Þá mæli ég með því við alla að hætta að sofa með snjallsímann við rúmstokk- inn og fá sér náttúruhljóðs- og ljós- birtuvekjaraklukku. Ég er ekki frá því að það séu ein bestu kaup sem ég hef gert um ævina.“ Hafragrautur og egg Mataræðið, er það úthugsað, hollt og gott? „Ég get nú ekki sagt að ég sé mjög meðvitaður um það sem ég læt inn fyrir mínar varir, þótt það sé í meg- indráttum hollt. Mataræðið er í þró- un má segja, ásamt ásetningi um meiri skynsemi í matarinnkaupum. Morgunmaturinn hefur síðustu árin verið hafragrautur og harðsoðin egg, hann tók við af ristuðu brauði og kakói sem ég fæ mér reyndar enn af og til, þegar þannig liggur á mér. Ég er hægt og bítandi að venja mig á að taka slurk af lýsi daglega og auka- skammt af D-vítamíni. Einnig er ég oftast með vatnsglas við höndina til þess að grípa í yfir daginn, en ég er einmitt að vinna í því að hafa vatnið volgt fremur en kalt og set stöku sinnum sítrónu út í. Í hádeginu fæ ég mér annaðhvort boost, til dæmis með banönum, hnetusmjöri, kókósolíu, haframjöli, döðlum og ýmsu öðru, eða þá dýr- indis hádegismat hjá RE Bergsson í Sjávarklasanum. Kvöldmaturinn er hinsvegar í algjörri óreglu hjá mér þessi misserin og verða skyndibita- staðirnir oftar en ekki fyrir valinu. Þó er ég einna hrifnastur af Gló, sem býður reyndar upp á afskaplega holla og góða rétti. Sælgætis- og gos- neysla hefur snarminnkað hin síðari ár og ég fæ mér það aðallega þegar eitthvað sérstakt er í gangi eins og bíó, ferðalög eða kósíkvöld heima.“ Aldrei heilsuátak Eitthvað nýtt á áætlun, tengt heilsurækt eða útivist? „Ég stefni að minnsta kosti ekki á heilsuátak. Í mínum huga snýst heilsurækt um að finna sig í ein- hverju sem maður hefur gaman af og finnur að gerir manni gott. Þannig þarf maður ekki að neyða sig í verknaðinn, heldur kallar líkami og sál eftir því og það verður hægt og bítandi að vana. Annars er ég mjög nýjungagjarn í alla staði. Ég hljóp til dæmis Lauga- veginn síðasta sumar, sem er mitt lengsta hlaup um ævina, og naut náttúrudýrðarinnar í botn. Einu heilsumarkmiðin sem ég er búinn að setja mér á árinu eru að prufa sjó- sund og ná að hlaupa maraþon undir fjórum klukkustundum. Á lang- tímaplaninu er svo að taka þátt í WOW Cyclothon, keppa í járnmann- inum og ganga Jakobsveginn; San- tiago-pílagrímastíginn frá Frakk- landi yfir til norðvesturhluta Spánar.“ beggo@mbl.is Hugleiðsla í hádeginu Kristinn Jón Ólafsson frumkvöðull Morgunblaðið/Árni Sæberg Kyrrð og ró Kristinn Jón Ólafsson frumkvöðull: „Ég hvet alla atvinnurekendur til að koma upp kósý aðstöðu á vinnustaðnum, þar sem starfsfólki gefst kostur á að draga sig í hlé og stunda hugarleikfimi.“ Árvakur leitar að duglegum einstaklingum í 50% hlutastarf. Um er að ræða dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutíminn er 3-4 tímar í senn, sex daga vikunnar og að mestu í næturvinnu. Góðir tekjumöguleikar og fín hreyfing fyrir duglegt fólk. Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa bíl til umráða. Umsóknir er hægt að fylla út á mbl.is, neðst á forsíðu. Á umsóknar- eyðublaðinu skal tiltaka dreifingu þegar spurt er um ástæðu umsóknar. Einnig er hægt að skila inn umsókn merktri starfsmanna- haldi í afgreiðslu Morgunblaðsins í Hádegismóum 2. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við dreifingarstjóra Árvakurs, Örn Þórisson í síma 569-1356 eða á ornthor@mbl.is Hressandi aukavinna með hreyfingu HREYFING OG HOLLUSTA Kristinn Jón Ólafsson frumkvöðull, Hrafndís Tekla Pétursdóttir framkvæmdastjóri, Þór Sigfússon framkvæmdastjóri og Ragna Sæmundsdóttir birtingarstjóri fást við ólíka hluti frá degi til dags en eiga það sameiginlegt að vera meðvituð um mikilvægi þess að hugsa um heilsuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.