Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 18
É
g hjóla alla daga í og úr vinnu,
bæði sumar og vetur, og fer
nánast allra minna ferða hjól-
andi,“ segir Elvar Örn Reyn-
isson, sölumaður í hjólreiðaversl-
uninni Erninum í Skeifunni, en hann
er búsettur í efra Breiðholti og notar
ekki bíl. „Auðvitað sest ég upp í bíl
með öðrum og tek stundum strætó
með dætur mínar ef við erum að fara
í bíó eða heimsóknir. Mér líður samt
einhvern veginn best á hjólinu, því
fylgir minnsta stressið og ég fæ mína
útrás. Kærastan mín á bíl og býður
mér oft far, eða réttara sagt bauð
mér oft far. Hún er hætt því núna því
ég hef svo oft afþakkað.“
Elvar Örn var vanur að ferðast
með strætó til vinnu en keypti sér
hjól árið 2011 og var það upphafið að
gjörbreyttum lífsstíl. „Ég var orðinn
alltof þungur, borðaði ekki nógu
heilsusamlegan mat og hreyfði mig
lítið, og ákvað loks að gera eitthvað í
mínum málum. Ég tók þetta skref
fyrir skref. Markmiðið var fyrst að
hjóla til vinnu einu sinni í viku, svo tvo
daga vikunnar, svo byrjaði ég að hjóla
lengri leiðina heim. Að lokum fór ég
að mæta á hjólaæfingar og þetta vatt
upp á sig, núna æfi ég reglulega og
keppi í hjólreiðum. Á sama tíma tók
ég mataræðið í gegn, hætti svo að
drekka kók um áramótin 2012/2013
og er nú 50 kílóum léttari.“
Hleypt úr dekkjum
Reiðhjólið þitt og vetrarútbúnaður-
inn?
„Ég á þrjú hjól og nota tvö þeirra
yfir vetrartímann. Racerinn er Trek
Émonda SL8 carbon; það er keppn-
ishjólið sem ég nota í götuhjólakeppn-
um.
Trek Boone 9 carbon Cyclocross er
æfingahjólið mitt á haustin og vet-
urna og hjólið sem ég nota til að spara
racerinn. Ég er með 240 nagla Soumi
dekk á Cyclocross-hjólinu og það
hentar vel í hálku, þegar lítill snjór er
en þeim mun meiri klaki.
Svo á ég Trek Superfly carbon-
Vetrarútbúnaðurinn „Ljósin verða að vera góð og ég nota Bontrager Ion ljós á bæði vetrarhjólin. Gott end-
urskin er á öllum betri vetrarfatnaði og ég vel mér aðsniðin föt sem eru með vindvörn,“ segir Elvar.
Öruggur á
240 nöglum
Elvar Örn Reynisson hjólar til vinnu úr efra Breiðholti í
Skeifuna allan ársins hring, æfir með Hjólreiðafélagi
Reykjavíkur og tekur þátt í keppnum. Hann notar tvö
reiðhjól á veturna og er ýmist á negldum dekkjum, eða
breiðum og grófum með minna lofti í, allt eftir því hvort
hált er úti eða mikill snjór á stígum.
Morgunblaðið/Eggert
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Þórður Sverrisson
augnlæknir
Jóhannes Kári Kristinsson
augnlæknir
Eiríkur Þorgeirsson
augnlæknir
Glæsibær • Vesturhús • 2. hæð
Álfheimar 74 • 104 Reykjavík
Sími 414 7000 • www.augljos.is
Ármúla 24 • 108 Reykjavík
Sími 568 2525 • www.lasersjon.is http://www.facebook.com/Augljos
Augljós og LaserSjón snúa bökum saman frá áramótum og bjóða upp á sjón-
lagsaðgerðir bæði með laser og augasteinsskiptum. Augnlæknar fyrirtækjanna,
Eiríkur Þorgeirsson, Jóhannes Kári Kristinsson og Þórður Sverrisson munu sameina
reynslu, þekkingu og bestu tækni í þessum aðgerðum.
SAMEINAÐIR
KRAFTAR
Snertilausar laseraðgerðir með
nýjustu SmartPulse tækni
Presbymax sjónlagsaðgerðir
við aldursbundinni fjarsýni
Augasteinsaðgerðir með
ísetningu á gervilinsu