Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 19

Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 19
fjallahjól, með Lauf dempara að framan, sem ég nota í fjallahjólreiðar og til dæmis Bláalónskeppnina. Ég er með breið, naglalaus dekk á fjalla- hjólinu og nota það í vinnuna þegar mikill snjór er á götum og stígum. Mér finnst virka berst í stömum snjónum að vera á breiðum dekkjum og hleypa vel úr þeim. Ljósin verða að vera góð og ég nota Bontrager Ion-ljós á bæði vetr- arhjólin. Gott endurskin er á öllum betri vetrarfatnaði og ég vel mér að- sniðin föt sem eru með vindvörn.“ Hjólað í skólann Vetrarhjólreiðar – færist það í vöxt að borgarbúar noti reiðhjólið allt ár- ið? „Já, það fer ekki framhjá okkur sem vinnum í Erninum. Hjólreiðar eru frábær ferðamáti og góð heilsu- rækt og sífellt fleiri eru að uppgötva að snjór og hálka er engin hindrun. Ef fólk er með útbúnaðinn og örygg- ismálin í lagi er ekkert mál að hjóla í hvaða færð og veðri sem er. Flestir grunnskólar eru sem betur fer hættir að banna börnum að hjóla í skólann og það er því orðið mun meira um það að foreldrar kaupi nagladekk og góð ljós á barnahjólin.“ Eru góðar aðstæður til hjólreiða í Reykjavík og nágrenni; sérútbúnir hjólreiðastígar, merkingar í lagi og annað slíkt? „Reykjavíkurborg stendur sig ágætlega, en er sirka 10 árum á eftir áætlun. Borgarstjórn var lengi að kveikja á perunni um mikilvægi þess að útbúa hér góða hjólreiðastíga og hafa merkingar í lagi. Á síðustu árum hefur samt mikið gerst í þessum málaflokki og nú er unnið eftir metn- aðarfullri hjólreiðaáætlun sem gildir til ársins 2020. Ökumenn eru líka að læra á hjólreiðamenninguna og öfugt, og hjólreiðamenn eru að læra að um- gangast hver annan í umferðinni. Enn sem komið er eru þó nánast engar merkingar á hjólastígum. Sem dæmi má nefna að þegar maður hjól- ar Fossvogsdalinn eru engar götu- merkingar við stíginn, þannig að maður hefur ekki hugmynd um hvar á að beygja út af honum ef stefnt er inn ákveðna götu. Hjólreiðamenn sem eru að fara þar um í fyrsta sinn lenda því oft í vandræðum, en með tímanum lærir maður auðvitað á stíg- inn og göturnar sem að honum liggja. Burtséð frá merkingum, og skorti á þeim, eru frábærar hjólaleiðir í Reykjavík, fjarri bílaumferð, um Fossvogsdalinn og Elliðaárdalinn. Það er ekki í mörgum höfuðborgum sem hægt er að hjóla hringinn í kringum borgina, nánast án þess að fara yfir götu, eins og raunin er hér.“ Ísmaður á Spáni Æfirðu hjólreiðar líka yfir vetr- armánuðina? „Ég hef verið félagi í Hjólreiða- félagi Reykjavíkur síðan 2012 og keppt fyrir Örninn/Trek frá því að ég byrjaði að vinna í Erninum í febrúar í fyrra. Ég æfi níu til fjórtán tíma á viku, allt árið um kring, og tek þátt í flestum keppnum sumarsins með sér- stakri áherslu á Bláalónskeppnina, Jökulmíluna, KIA Gullhringinn sem ég vann síðastliðið sumar, og WOW Cyclothon sem Örninn/Trek sigraði í fyrra. Ég stefni á tvær æfingaferðir á næstu mánuðum. Í febrúar fer ég til Tenerife með skipuleggjendum KIA Gullhringsins og um páskana ætla ég í æfingaferð til Mallorca með Hjól- reiðafélagi Reykjavíkur. Þessar ferð- ir halda mér við efnið á veturna og hvetja mig áfram, þannig að ég er í góðu formi og get tekið almennilega á því þegar kemur að keppnum sum- arsins. Fyrir áhugasama má benda á bloggsíðuna mína, ismadurinn.net, en þar segi ég mína sögu og skrái allar upplýsingar um æfingar og árangur í keppnum. Þetta er allt efni sem mig langar til að eiga í framtíðinni og auð- vitað vona ég að Ísmaðurinn sé um leið hvatning fyrir aðra. Mig langar aðallega til að sýna öðrum að þetta er hægt. Fólk geti tekið upp nýjan og heilsusamlegri lífsstíl, byrjað rólega og sigrast á sjálfu sér líkt og ég gerði. Hjá mér snerist þetta aldrei um að sigra aðra, bara sjálfan mig. Hjólreið- ar eru frábær leið til að snúa við blaðinu – núna hjóla ég af því að mér finnst það gaman og mæli með því við alla.“ www.ismadurinn.net beggo@mbl.is Öryggisbúnaðurinn Hjálmurinn, vetrardekkin og ljósin eru ómissandi að sögn Elvars. ’Í Reykjavíkeru frábær-ar hjólaleiðir. MORGUNBLAÐIÐ | 19 Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Mótun BM Áhersla lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsburð. Mótandi æfingar fyrir kvið, rass- og lærvöðva. Fit Form 60+ Alhliða líkamsrækt sem stuðlar að auknu þreki, þoli, liðleika og frábærri líðan. TT Alltaf frábær árangur á þessum sívinsælu aðhalds- námskeiðum. Mataræði, lífsstíll og líkamsrækt tekin föstum tökum. Hlýtt Yoga Styrkjandi og liðkandi yoga í heitum sal þar sem áhersla er lögð á meðvitund í æfingum og tengingu við öndun. Fjölþjálfun Fjölþjálfun í tækjasal. 4 vikna námskeið. Náðu hámarksárangri. Innritun stendur yfir á eftirtalin námskeið Gildir t i l 21. maí 2016 39.900 kr.er komið! Vetrarkortið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.