Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21
Öflugur 1000W blandari frá Dualit, sem hentar vel fyrir heimili og smærri fyrirtæki.
Ný tækni, svokölluð VortecS, tryggir að ekkert botnfall myndast og árangurinn
verður silkimjúkir drykkir og súpur.
Dualit blandarinn er með sérstaka ísmulningsstillingu og mylur jafnt
ísmola sem og frosna ávexti á 10 sekúndum.
• 2ja lítra harðplastkanna - sterk og höggþolin
• Auðvelt að losa könnu - létt og þægileg
• Má fara í uppþvottavél
Verð kr. 41.224 kr m.vsk.
HARÐ-
SNÚINN
BLANDARI
Veit á vandaða lausn
Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
og líka þeir sem vilja efla ónæm-
iskerfið.
„Það er mjög grunnt nudd sem
mörgum finnst vera einstaklega
slakandi. Sogæðar og eitlar sjá um
að hreinsa líkamann og ef það er
álag á því vegna ýmiskonar streitu
þá safnast upp óhreinindi sem valda
fólki verkjum og þreytu og það gæti
fundið fyrir stirðleika og orðið
slappt. Þegar ég stunda so-
gæðanudd þá þrýsti ég sogæðavökv-
anum í átt að eitlum til þess að kerf-
ið hreinsi sig hraðar.
Ekki má gleyma því að fólk þarf
líka að hugsa vel um sig almennt til
þess að fá sem mest út úr öllum
meðferðum. Mikilvægt er að borða
hollan mat, vera í hreyfingu og
rækta og teygja á vöðvunum sam-
hliða nuddmeðferð. Mataræði skipt-
ir miklu máli þegar kemur að bólgu-
vandamálum.“
Mikil vinna og lítil slökun
Sara segir fólkið sem til hennar
kemur í nudd vera með ólíkan bak-
grunn og ástæðurnar fyrir heim-
sókninni misjafnar en allir eigi það
þó sameiginlegt að vinna í að ná
fram meiri vellíðan.
„Ég fæ mikið af fólki sem vinnur
við tölvur allan daginn og þá er
kyrrsetan aðallega að hrjá það. Svo
hef ég fengið svolítið af iðn-
aðarmönnum, og þá aðallega smið-
um, og þá er það ofálag og ójafnt
álag á vöðvana sem er að trufla þá.
Svo koma alltaf einhverjir sem vilja
halda sér mjúkum og fyrirbyggja
þannig eymsli og ýmsa kvilla.
Íþróttafólk kemur til dæmis til að
mýkja sig upp og halda sér heil-
brigðu. Hlauparar þurfa oft meiri
áherslu á fótleggi, mjaðmir og fæt-
ur.“
Aðspurð segir Sara að algengustu
kvillarnir séu eymsli, nánar tiltekið
vöðvabólga og spenna, í herðum og
mjóbaki, einnig ýmiskonar leiðni-
verkir frá herðum og mjóbaki og svo
andleg streita. „Það er oft á tíðum of
mikið að gera hjá fólki og lítill tími
til slökunar og íhugunar eða tími til
að átta sig á hvert maður stefnir í líf-
inu og túlka það til að ná andlegu
jafnvægi. Margir upplifa pressu um
að uppfylla ákveðna ímynd til að
vera samþykktur í samfélaginu og
það er bara mjög stressandi.“
Meira en bara dekur
Margir líta á það sem dekur að
fara í nudd, og víst er gott nudd ein-
staklega notalegt. En engu að síður
býr meira í nuddinu en dekur, eins
og Sara bendir á.
„Jú, nudd gerir margt fyrir fólk
og oft meira en það gerir sér grein
fyrir. Það eykur blóðflæði og súrefn-
isflæði líkamans, og styrkir líka
ónæmiskerfið með því að örva so-
gæðakerfið. Nudd losar um þreytu,
uppsöfnuð úrgangsefni í vöðvum og
vefjum, hjálpar líkamanum að kom-
ast í meira jafnvægi. Það hefur góð
áhrif á taugarnar, bæði andlega séð
og líkamlega. Það getur haft góð
áhrif á líffæri og það hjálpar taugum
að koma boðunum til skila. Fólk sem
fer oft í nudd er oft mun meðvitaðra
um líkama sinn, það þekkir hann
betur og tekur betur eftir því sem
gerist í honum og á auðveldara með
að fyrirbyggja. Svo vinnur líkaminn
sem ein heild svo það er hægt að
segja að eitt hefur áhrif á annað
o.s.frv. svo að nudd getur haft góð
keðjuverkandi áhrif á líkama og sál.“
Þegar mið er tekið af þeim sem
komið hafa til Söru í heilsunudd seg-
ir hún það alveg ótrúlegt hvað
spenna og bólga í líkamanum geti
gert fólki slæmt. „Spenna í kviðnum
getur valdið meltingartruflunum og
skakkri líkamsstöðu sem hefur mikil
keðjuverkandi áhrif. Ef spennan í
kviðnum væri meðhöndluð með
nuddi þá getur viðkomandi upplifað
mikinn létti. Þannig getur allt nudd
haft góð keðjuverkandi áhrif á svo
margt. Vöðvabólga í höfði, hálsi og
herðum getur valdið jafnvægistrufl-
unum og miklum verkjum, svima og
höfuðverkjum. Nudd léttir á því.
Þegar fólk hefur mikla vöðvaspennu
þá skekkist líkamsstaðan sem veld-
ur verkjum, nudd vinnur líka vel á
því. Stundum myndast litlir vöðva-
hnútar í vöðvum og það veldur
leiðniverkjum, spenntir vöðvar geta
þrengt að æðum og taugum sem
veldur verkjum, minnkuðu blóðflæði
og lélegri úthreinsun eða heftum
Heilsunudd „Vinnan er svo gefandi og skemmtileg en krefjandi. Það er ekkert betra en að hjálpa fólki við að finna
meiri vellíðan og veita slökun. Þegar ég nudda þá líður mér eins og ég sé að gera gagn fyrir samfélagið.“
taugaboðum. Nudd léttir á þessu
öllu.“
Sara bendir að lokum á að nudd sé
líka gott samhliða öðrum með-
ferðum eins og hnykklækningum og
ýmsum gerðum af líkamsrækt. Það
létti að sama skapi undir hjá fólki
með geðræn vandamál eins og þung-
lyndi og kvíða.
„Það er mjög gott að fara reglu-
lega í nudd og fyrirbyggja, halda sér
mjúkum svo maður safni ekki í sig
því það er erfiðara að gera við það
sem er skemmt heldur en að byggja
upp og næra það sem er heilbrigt
fyrir. Heilsunudd er til að fyr-
irbyggja og létta á alls konar verkj-
um og óþægindum í líkamanum. Það
hjálpar til við að viðhalda góðri lík-
amsstöðu. Það hefur góð áhrif á alla
líkamsstarfsemi og ættu allir að
leyfa sér það að fara í nudd. Við eig-
um það öll skilið!“
jonagnar@mbl.is