Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ Þann 23. desember 2015 lagði Eygló Þorgeirsdóttir niður ánægju- legan og farsælan starfsferil sem snyrti-, nudd og fótaaðgerða- fræðingur og heldur á vit nýrra ævintýra eftir 48 ára starfsemi. Stofan sendir öllum viðskiptavinum sínum og starfsfólki fyrr og síðar, sínar bestu jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum. Eygló Heilsulind ehf. Langholtsveg 17 hættir starfsemi sinni É g hef alla tíð haft mikinn áhuga á heilsu og lífsstíl, sérstaklega þegar kemur að mat og matreiðslu, og áhug- inn á hráfæði kviknaði fyrir alvöru á námskeiði hjá Sollu Eiríks árið 2008,“ segir Hólmfríður Gísladóttir flugfreyja, heilsumarkþjálfi og hrá- fæðiskokkur. „Ég sótti námskeiðið meira af forvitni, fannst þessi mat- argerð spennandi og sá líka fyrir mér að þannig gæfist gott tækifæri til að auka vægi grænmetis í mat- aræðinu. Hráfæði höfðaði strax til mín og ég fann hvað það fór vel í mig, auk þess að vera heilsusamlegt og afar ljúffengt. Í framhaldinu sótti ég ýmis námskeið, tengd heilsu og hollum mat, hóf svo fjarnám og út- skrifaðist sem heilsumarkþjálfi frá Institute for Integrative Nutrition í New York árið 2011. Mér fannst spennandi að læra heilsumark- þjálfun því þar er lögð mikil áhersla á mataræðið og unnið út frá því að það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum. Hráfæði er nú mikilvægur partur af mínu mataræði, en ég einskorða mig ekki við það heldur neyti fjöl- breyttrar fæðu og borða mat sem mér líður vel af og gefur mér mestu orkuna. Þannig nota ég mjólk- urvörur í algjöru lágmarki og tek af og til hreinsikúra þar sem ég borða bara grænmetisfæði í 7 til 10 daga og sleppi meðal annars kjöti, fiski, kaffi, sykri, glúteni og áfengi.“ Nám á Indlandi Hólmfríður hefur á liðnum árum aflað sér þekkingar og reynslu í matreiðslu á hráfæði, meðal annars á námskeiðum hjá Kate Magic bæði á Íslandi og Indlandi, og sótt fyr- irlestra hjá David Wolfe sem er reglulegur gestur hér á landi. „Það var einmitt á námskeiði hjá Kate á Indlandi árið 2012 sem ég komst í kynni við Boris Lauser, einn fremsta hráfæðiskokk Evrópu, en hann var þar nemandi eins og ég. Boris lærði hjá Matthew Ken- ney, en hann er eitt stærsta nafnið í heimi grænmetis- og hráfæðis og stofnaði hinn frábæra heilsuveit- ingastað Pure Food and Wine í New York. Mér fannst allt spennandi sem Boris hafði fram að færa á nám- skeiðinu og langaði til að kynna hann fyrir Íslendingum. Ég fékk hann því til að koma hingað til lands um haustið og þá hélt hann frábært hráfæðisnámskeið á Café Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal sem vakti mikla lukku.“ Spennandi hráefni Í kjölfarið vel heppnaðs nám- skeiðs í Café Flórunni segist Hólm- fríður hafa ákveðið að leita sjálf í smiðju Matthew Kenney. „Nám- skeiðið hjá Boris kveikti hjá mér neistann að læra enn meira um hrá- fæðisgerð. Það kom ekki annað til greina en að komast í læri hjá Matt- hew Kenney, en auk þess að starf- rækja vinsæla heilsuveitingastaði víða um Bandaríkin rekur hann þar þrjá matreiðsluskóla og einn til við- bótar á Taílandi. Ég lauk fyrsta námskeiðinu í fjarnámi frá Matthew Kenney Academy vorið 2013 og tók svo framhaldsnámskeið 2014, og það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina.“ Uppistaðan í hráfæði er ferskt grænmeti og ávextir, hnetur, fræ, þari og spírur. Hólmfríður er spurð út í hráefnið og úrvalið í verslunum hérlendis, hvort hér sé hægt að kaupa allt sem til þarf. „Ég er heppin að komast reglulega til út- landa og þá nota ég hvert tækifæri sem gefst til að heimsækja spenn- andi matarmarkaði og mat- vöruverslanir og borða á góðum veitingastöðum. Þannig fæ ég góðar hugmyndir og oft kippi ég einhverju matarkyns með mér heim. Auðvitað er ekki hægt að bera saman matvöruversl- anir á Íslandi og í erlendum stór- borgum, en sem betur fer hefur hráefnaúrvalið hér aukist til muna síðustu árin.“ Erlendir gestir Hólmfríður hefur haldið fjölda matreiðslunámskeiða, bæði í gerð hráfæðis og grænmetisrétta, og að- spurð segist hún hafa mikla ánægju af því að miðla af þekkingu sinni og reynslu og leiðbeina öðrum. „Ég hef fengið ótalmörg spennandi tækifæri og tók til dæmis þátt í vel heppn- aðri heilsuviku í Stykkishólmi fyrir tveimur árum, þar sem ég útbjó fimm rétta hráfæðisveislu í sam- vinnu við veitingastaðinn Narfeyr- arstofu. Ég tek líka að mér að elda grænmetis- og hráfæðisrétti fyrir smærri hópa og hef útbúið hráfæð- iskökur við ýmis tilefni, til dæmis fyrir fermingar. Hráfæði er orðið mjög vinsælt á Íslandi, eins og annars staðar, og það færist í vöxt að fólk panti kokka heim til að slá upp hráfæðisveislu. Ég hef fengið slík verkefni, þau eru mjög skemmtileg, og nú langar mig að gera meira af því að elda fyrir smærri hópa og einstaklinga, ekki síst erlenda gesti sem vilja halda sig við sitt hráfæði meðan á Íslandsdvöl stendur. Annars finnst mér ég alltaf geta lært meira og því er ég á leið í frí til Balí, þar sem ég ætla að nota tækifærið og sækja nýtt hráfæð- isnámskeið hjá Boris.“ facebook.com/reykjavikgoesraw beggo@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir, flugfreyja og heilsumarkþjálfi, er flinkur hráfæðiskokkur og heldur vinsæl matreiðslunám- skeið en kunnáttuna hefur hún meðal annars frá hráfæð- ismeistaranum Matthew Kenney, stofnanda hins þekkta veitingastaðar Pure Food and Wine í New York. Morgunblaðið/Styrmir Kári Séróskir „Mig langar til að gera meira af því að elda fyrir smærri hópa og einstaklinga, ekki síst erlenda gesti sem vilja halda sig við sitt hráfæði á meðan á Íslandsdvöl stendur,“ segir Hólmfríður Gísladóttir, sem er á leiðinni til Balí þar sem hún ætlar að læra meira um hráfæðisgerð. Spínatsalat með „osti“ Eitt af því skemmtilegra við nám- skeiðið hjá Matthew var „ostagerð“, en við prófuðum að gera alls konar „osta“ úr hnetum og fræjum. Maca- damia-„geitaosturinn“ passar sér- staklega vel með þessu salati en það er einnig hægt að gera „ostinn“ úr kasjúhnetum. 2 bollar spínat 2 msk. góð ólífuolía 2-3 tsk. sítrónusafi ½ tsk. fínt rifinn sítrónubörkur ½ tsk. agavesíróp eða hunang 1 msk. gular rúsínur, saxaðar 1 msk. furuhnetur sjávarsalt og pipar pera/epli í sneiðum furuhnetur og rúsínur til að skreyta með Allt sett saman í skál, nuddið olí- unni vel á salatið, setjið plastfilmu eða lok yfir og hitið í þurrkofni í um 20 mínútur við 45°C. Macadamia-„geitaostur“ 2 bollar macadamia- eða kasjúhnetur, lagðar í bleyti í u.þ.b. 2 klst. ½ bolli vatn, eða nóg til að hneturnar maukist vel ½ tsk./duft úr 2 hylkjum af probiotics Öllu blandað saman í góðum blandara þar til mjúkt. Deigið sett í grisju/cheesecloth í sigti og fergt. Látið gerjast í um 24-36 klst. við stofuhita. Þá er bætt við: 1⁄4 tsk. sjávarsalt 2 tsk. næringarger ½ tsk. sítrónusafi Hrærist saman við „ostablönd- una“. Mótið í lengju og kryddið ef vill, t.d. með kryddjurtum eða öðru kryddi. Rauðrófu-ravioli 2 meðalstórar rauðrófur ½-1 msk. ólífuolía sjávarsalt Sneiðið rauðrófurnar með mandól- íni í um 1½ mm sneiðar og hafið þær áþekkar að lögun. Raðið sneiðunum Grænt og vænt Rauðrófuravioli Með pestó og ostafyllingu. Spínatsalat Með macadamia geitaosti. Í læri hjá meisturum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.