Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 26

Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ J ón Arnar Guðbrandsson hlýt- ur að vera að gera eitthvað rétt. Jón Arnar er fram- kvæmdastjóri og einn af stofnendum Lemon-veitingastað- anna. Var fyrsti Lemon-staðurinn opnaður í mars 2013 en núna tæp- um tveimur árum síðar eru þeir orðnir fjórir talsins: á Laugavegi, Suðurlandsbraut, í Hjallahrauni og loks við Hafnargötu í Reykja- nesbæ. Lesendur ættu að þekkja Jón Arnar ágætlega en hann stýrði á sínum tíma matreiðsluþáttunum Að hætti hússins á RÚV, í félagi við vin sinn Rúnar Gíslason. Jón Arnar á langan matreiðsuferil að baki, starfaði erlendis um tíma og stóð meira að segja vaktina í eldhúsinu á stóru skemmtiferðaskipi. „En síð- an tók ég mér frí frá matreiðslunni um átta ára skeið og rak með frúnni Oasis-búðirnar bæði hér heima og í Danmörku. Sú hugmynd hafði samt lengi blundað í mér að reka einhvers konar safa- og sam- lokustað, og beið ég ekki boðanna þegar Jón Gunnar Geirdal kom að tali við mig og spurði hvort ég vildi ekki taka þátt í að opna einn slík- an.“ Að sögn Jóns Arnars var vandað mjög til við undirbúninginn áður en fyrsti veitingastaðurinn var opn- aður. Fóru t.d. nokkrir mánuðir í það að dvelja í London og skoða hvernig safa- og samlokustöðum eru gerð skil þar í borg. „Í Lemon blöndum við saman nokkrum heild- arhugmyndum og reynum að setja saman í einum stað allt það besta sem við sáum úti,“ útskýrir Jón Arnar. Voru viðtökurnar svo góðar strax í upphafi að ekki liðu þrír mánuðir á milli þess að fyrsti veitingastað- urinn var opnaður á Laugavegi þangað til sá næsti tók við fyrstu gestunum á Suðurlandsbraut. Jón Arnar skrifar árangurinn ekki síst á það góða fólk sem starfar hjá fyr- irtækinu, en svo má ekki heldur gera lítið úr því að Lemon virðist hafa komið fram á sjónarsviðið sem hárréttur veitingastaður á réttum tíma. Hefur landinn undanfarið orðið mög meðvitaður um heilsumál og gott mataræði og vaxandi eft- irspurn verið eftir hollum bita. Hollt og fljótlegt Jón Arnar lýsir Lemon sem „fast casual“ en gott íslenskt hugtak virðist vanta til að lýsa veit- ingastöðum af þessum toga sem lenda mitt á milli hefðbundinna veitingastaða og skyndibita. Mat- urinn er hollur og eldaður af fag- mennsku, laus við allt bras, en samt líka fljótlegur kostur á hag- stæðu verði. „Það er rétt að mikil vakning hefur orðið hjá Íslend- ingum og margir sem láta sig miklu varða hvað er í matnum sem lendir á diskinum þeirra. Við mæt- um þörfum þessa hóps með heil- næmum uppskriftum og fersku gæðahráefni þar sem engum óþarfa og óhollustu er bætt við.“ Sem dæmi um einfaldleikann má nefna árbítinn á Lemon. Á morgn- ana (og reyndar allan daginn) er þar t.d. hægt að fá, fyrir lítið, ljúf- fengan hafragraut með eplum eða gríska jógúrt með hunangi. Kveðst Jón Arnar vilja sjá Íslendinga gera meira af því sem tíðkast í stórborg- unum erlendis, þar sem skrif- stofufólkið grípur eitthvað létt og hollt á leiðinni í vinnuna, sparar sér þannig tíma og byrjar daginn á hollri næringu. Ekki skemmir held- ur fyrir skammtur af koffíni með einum góðum kaffibolla. Hollustuvakningin hefur verið út- skýrð með ýmsum hætti. Sumir tala um viðhorfsbreytingu í kjölfar hrunsins, en aðrir benda á aukna umfjöllun og bætta fræðslu um leið og læknavísindin virðast skilja æ betur hvernig maturinn sem við borðum hefur áhrif á líkama og líð- an. „Allt helst þetta í hendur við aukið framboð og þarf ekki að leita svo langt aftur til að finna tímabil þegar úrvalið var mun fábreyttara í íslenskum matvöruverslunum. Breytir það miklu að þar má í dag finna ferska ávexti og grænmeti af öllum gerðum, lífræna valkosti og mat fyrir fólk með hvers kyns sér- þarfir.“ Einbeiting og orka Bendir Jón Arnar á að vitund- arvakningin sé meira að segja farin að sjást í atvinnulífinu og klárir stjórnendur hafa komið auga á að rétt næring stuðlar að aukinni ein- beitingu og afköstum. „Einn af við- skiptavinum okkar er stór banka- stofnun sem heldur í hverjum mánuði stóra kynningu fyrir stjórn- endur leiðandi fyrirtækja. Þar var vaninn að bjóða upp á þungar snitt- ur og sætar kökur á fundinum, en úr varð að prófa að panta mat frá Lemon eitt skiptið. Við komum á staðinn, settum Lemon-tónlist á fóninn, framreiddum létta rétti og næringarríkan safa. Var mál manna á fundinum að þeir væru helmingi einbeittari og orkumeiri en áður og hefur Lemon verið fast- ur liður á þessum viðburðum alla tíð síðan.“ ai@mbl.is Íslendingar eru meðvitaðir um mikilvægi þess að borða hollt Lemon sækir innblástur í það besta í safa- og samlokumenninguni í London. Á fundum víkja þungar snittur og sætar kökur fyrir næringarríkum safa og hollusturéttum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tíðarandi „Vakning hefur orðið hjá Íslendingum og margir láta sig miklu varða hvað er í matnum sem lendir á diskinum þeirra,“ segir Jón Arnar. Bomba Safi er næringarríkur Stundum má heyra skiptar skoðanir um ágæti ávaxtasafa enda er oft nokkuð hátt sykurhlutfall í náttúrulegum safa. Jón Arnar segir að gera verði greinarmun á því hvernig safinn er gerður. Þannig er t.d. mikill munur á þeim safa sem seldur er á fernum úti í búð og kaldpressuðum safa sem gerður er jafnóðum úr ferskum ávöxtum. Gerir það t.d. safann hollari að trefjarnar úr ávextinum fari með í drykk- inn en séu ekki aðskildar. „Trefjarnar eru stór hluti af næringargildinu og eins og við gerum djúsinn þá skilast mikið magn af trefjum í glasið. Gerum við safann að hluta til í safapressu, en maukum líka í blandara svo að fólk fær allt það besta úr ávöxtunum og grænmetinu.“ Trefjarnar má ekki vanta Þessi safi er með þeim vinsæl- ustu hjá Lemon. Einfaldur, hollur og bragðgóður. 2 epli ½ avókadó, vel þroskað ¼ sítróna þumalfingursstór biti af engifer 3 klakar Eplin eru pressuð ásamt engi- fer og sítrónu. Safinn er síðan settur í blandara ásamt avókadó og klaka. Blandað í um 20 sek- úndur og þá er djúsinn tilbúinn. Good Times Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út- hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land. Vilt þú létta á líkamanum eftir jólahátíðina? Weleda Birkisafinn hjálpar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.