Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 28

Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ V ið Íslendingar erum almennt mjög opnir fyrir nýjungum en höfum þó alltaf verið ákaflega líkamsmiðaðir þeg- ar kemur að heilsurækt og ekki horft á stóra samhengið – mikilvægi þess að sameina andlega og líkamlega iðk- un,“ segir Sólveig Þórarinsdóttir, jógakennari og eigandi jógasetursins Sólir vestur á Granda. „Mér fannst sárvanta hér vettvang fyrir heilsu- rækt í víðum skilningi og það varð kveikjan að stofnun Sóla síðastliðið vor. Í Sólum bjóðum við upp á mismun- andi tegundir af jóga, en líka hug- leiðslu, gong-slökun, markþjálfun og næringarráðgjöf og allar veitingar eru frá Systrasamlaginu, lífrænar og heilnæmar. Við höfum náð að skapa hér ákaflega friðsælt og fallegt sam- félag, í orkustöð sem nærir bæði lík- ama og sál, og erum afar þakklát fyr- ir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið. Umgjörðin á sinn þátt í upplifuninni en það fylgir því ákveðin stemning að iðka jóga í húsnæði þar sem áður var unninn fiskur.“ Aukin sjálfsþekking Sólveig er menntaður viðskipta- fræðingur og starfaði við verð- bréfamiðlun þegar hún ákvað fyrir nokkrum árum að snúa við blaðinu og einbeita sér að jóga. Hún er með kennsluréttindi frá Absolute Yoga Academy, með áherslu á hatha- og ashtanga-jóga, og kennir absolute jóga í Sólum í heitum sal, fimm daga vikunnar. „Mér finnst lykilatriði að vera alltaf til staðar og ef ég er ekki sjálf að kenna eða sinna einhverjum verkefnum sæki ég tíma hjá öðrum í Sólum. Þegar ég var sjálf að byrja mína jógaástundun hefði ég gjarnan vilja njóta meiri stuðnings og ráð- gjafar og því legg ég mikið upp úr því að við sem tilheyrum Sólateyminu séum jógaiðkendum til halds og trausts. Starfsemin stendur auðvitað ekki og fellur með mér, heldur bygg- ir hún á frábærum kennurum og starfsfólki Sóla sem allt hefur lyft með mér grettistaki.“ Spurð út í hugrækt og jógaiðkun okkar Íslendinga segir Sólveig mikla vitundarvakningu hafa orðið hér hin síðari ár um ávinninginn af því að stunda hugleiðslu og jóga og það sé ekkert skrýtið að þessi heilsurækt höfði til svo margra. „Jóga er mögn- uð leið til þess að hlúa að líkama og sál og sjálf stunda ég heitt jóga vegna þess að ég get ekki án þess verið. Jóga hefur breytt mér til hins betra og hjálpað mér á ótal vegu við að segja skilið við svo margt í mínu lífi sem gerði hvorki mér né öðrum gott. Tilvera mín er nú hlýrri og betri og lífið innihaldsríkara og einfaldara. Það er laust við átök og um leið streitu, sem er ein mesta heilsuvá okkar tíma. Mér finnst eins og ég hafi öll „stækkað“ í jákvæðum skilningi með aukinni sjálfsþekkingu en í mínum huga er það lykillinn að velsæld og hamingju að vita hver maður er. Um- burðarlyndi gagnvart sjálfri mér og öðrum hefur líka aukist til muna, núna myndi ég ekki láta mér detta í hug að rífa sjálfa mig niður, hvorki með neikvæðum hugsunum né orð- um. Við erum mörg hver afar óvægin í eigin garð, dæmum okkur hart, og í mínu tilviki jaðraði það við ofbeldi. “ 364 daga á ári Í Sólum eru jógaiðkendur á öllum aldri, bæði byrjendur og lengra komnir, og daglega tínist inn nýtt fólk sem er forvitið að prófa, að sögn Sólveigar. „Það er ótrúlega gaman og gefandi að fylgjast með fólki upp- götva jóga. Hingað kemur þver- skurðurinn af þjóðinni; atvinnu- íþróttafólk, öryrkjar og allir þar á milli. Viðkvæðið hjá þeim sem eru að byrja er mjög oft „æ, ég er svo stirð/ ur“, en svo kemur undantekn- ingalaust í ljós að fólk getur mun meira en það heldur. Hér eru allir á sínum eigin forsendum og fara eins langt og þeir treysta sér til. Það er svo skemmtilegt að upplifa hve fólk er óhrætt við að blanda saman ólík- um tegundum jóga og þannig dýpka þekkingu sína.“ Jógadjamm á fullu tungli Í jógasetrinu Sólum er boðið upp á hugleiðslu, gong- slökun og jóga, meðal annars í heitum sal, ásamt næring- arráðgjöf, markþjálfun, vinnustofum og viðburðum. Með vorinu er von á þekktum erlendum gestakennurum úr jógaheiminum og í ágúst leiðir Jimmy Barkan hot yoga- kennaranám í Sólum, það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Umgjörðin „Það fylgir því ákveðin stemning að iðka jóga í húsnæði þar sem áður var unninn fiskur.“ Ávinningurinn Sólveig Þórarinsdóttir, eigandi Sóla: „Jóga er mögnuð leið til þess að hlúa að líkama og sál og sjálf stunda ég heitt jóga vegna þess að ég get ekki án þess verið.“ Dagskrá 2016 Bus-hostel kl.19:00 Skógarhlíð Allir velkomnir! Fylgjumst með á facebook - Fjallavinir.is www.fjallavinir.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.