Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Í heilsurækt Styrks, Höfðabakka 9 eru ný
æfingatæki og aðstaðan góð til þjálfunar.
Dagskrá í hóptíma og námskeið er að hefjast
og má finna stundaskrána á heimasíðu.
Skráning og nánari upplýsingar í s. 587-7750.
Opnunartími: Virka daga 7.45 - 19.00
Laugardaga 10.00 - 13.00.
www.styrkurehf.is
Í Danslistaskóla JSB er í boði
nám allt frá forskóla fyrir 3-5 ára
börn upp í listdansbraut fyrir
nemendur á menntaskólaaldri.
„Eftir sextán ára aldur stendur
nemendum til boða að fara úr
unglingdeildinni yfir í listdans-
brautina, ef þau standast inn-
tökuprófið. Tekur listdansbrautin
þrjú ár og veitir námið 51 einingu
sem margir framhaldsskolar
meta til stúdentsprófs,“ segir
Bára en námið jafngildir um ein-
um þriðja af fullu stúdentsprófi
og hefur verið í boði við dans-
listaskólann frá árinu 2006. Á
bilinu 400-500 ungmenni stunda
almenn námskeið við skólann en
120 nemendur eru á listdans-
braut.
Bára leggur á það áherslu að
tölvuverður munur sé á starfi lík-
amsræktarinnar og dansskólans.
Við skólann eru jazzballett gerð
góð skil sem listformi og einni af
sviðslistunum. „Það er ekki löng-
unin til að vera í góðu formi sem
drífur nemendurna áfram heldur
löngunin til að skapa. Að því
sögðu þá er námið líkamlega
krefjandi og nemendur við list-
dansbrautina um sautján tíma í
viku við dansæfingar hér í skól-
anum.“
Að námi loknu geta útskrifaðir
nemendur tekið stefnuna í ýmsar
áttir. „Margir fara í Listaháskól-
ann, halda þar áfram í dansinum
eða leggja fyrir sig aðrar list-
greinar, allt frá arkitektúr og
hönnun yfir í sviðslistir af ýmsu
tagi,“ útskýrir Bára.
Dansnám sem veitir góðan grunn
Ó
hætt er að segja að það
hafi valdið straum-
hvörfum þegar Bára
Magnúsdóttir sneri til
baka úr námi í Englandi með nýja
tegund af dansi í farteskinu. Hefur
jazzballettinn orðið hennar ævi-
starf og blómleg starfsemi hjá JSB.
Þarf varla að kynna líkamsrækt
JSB, sem er í uppáhaldi hjá fjölda
kvenna, en hinn stólpinn í starf-
seminni er danslistaskóli JSB þar
sem hæfileikarík ungmenni sinna
jazzballettnáminu af miklum metn-
aði.
Finna áhrifin fljótt
Í líkamsræktinni er vel útbúinn
tækjasalur en JSB er þó þekktast
fyrir gott framboð af æfingatímum,
ýmist opnum eða lokuðum, löngum
sem stuttum. „Við höfum breytt
kerfinu okkar þannig að nýr tími
hefst á hálftíma fresti. Opnar stöð-
in kl. 05:45 á morgnana og hefst
fyrsti tíminn kl 06:15,“ segir Bára
en að hennar mati stafa vinsældir
JSB í næstum hálfa öld einkum af
því að æfingarnar þar skila ár-
angri.
„Námskeiðið frá Toppi til táar
hefur núna verið í boði hjá okkur í
um tuttugu ár og ekkert líkt þvi í
boði annars staðar. Þangað koma
konurnar því þær finna það fljótt
að æfingarnar hjálpa þeim að
grennast og móta líkamann. Ekki
nóg með það heldur virðist nálg-
unin, þar sem farið er upp og niður
alla vöðvaflokka, gefa konum fal-
legri hreyefingar og hreinlega
gera þær flottari.“
Í góðu formi yfir 60
Af öðrum námskeiðum má nefna
Fit Form 60+ sem, einsog nafnið
gefur til kynna, er ætlað þeim sem
komnir eru á sjötugsaldurinn. Er
einnig í boði námskeið fyrir konur
sem komnar eru yfir sjötugt.
„Þetta eru lokaðir tímar þar sem
kennarinn kynnist þátttakendum
vel og lagar æfingarnar að þörfum
hópsins.“
Segir Bára að mjög brýnt sé
fyrir konur á þessum aldri að
stunda reglulega hreyfingu og lyg-
inni líkast að sjá hvað konur yfir
sextugu geta tekið miklum breyt-
ingum eftir eitt ár hjá JSB. „Þeim
hentar líka mjög vel að vera í hópi
sem hefur þeirra sér þarfir í huga
og ekki sniðugt fyrir sumar þeirra
að ætla að takast á við allt of erfiða
almenna tíma fyrir yngri konur,
svo þær keyra sig alveg út. Í Fit
Form 60+ er tekið vel á móti kon-
unum, hvort sem þær hafa ein-
hverja reynslu að baki eða hafa
ekki stundað reglulega hreyfingu í
marga áratugi.“
Einnig býður JSB upp á nám-
skeiðið TT3 sem ætlað er ungum
konum á aldursbilinu 16-25 ára
sem vilja taka mataræðið í gegn og
komast í gott form. Segir Bára
margar konur á þessum aldri
nauðsynlega þurfa á því að halda
að líða betur í eigin skinni en
ganga illa að losna við aukakíló og
laga hjá sér mataræðið. „Í þessu
námskeiði eru ekki bara haldnir
æfingatímar heldur líka vikulegir
fundir um manneldismál þar sem
miðlað er mikilvægri þekkingu um
hollt og gott mataræði.“
Eins og að taka lýsið
Áramótin eru tími sem margir
nota til að reyna að taka sig á og
tileinka sér betri lifnaðarhætti. Er
þó vel þekkt að úthaldið er misgott
og líkamsræktirnar sem voru full-
ar í janúar verða tómlegri þegar
tekur að líða á febrúar. Bára segir
hægt að nálgast þennan vanda með
ýmsum hætti, og vitaskuld auð-
veldara að stunda æfingarnar sam-
viskusamlega ef gaman er í tímum.
Þá varar hún við því að ætla að
færast of mikið í fang á of stuttum
tíma, og setja óraunhæf markmið.
Þykir Báru að sumum hætti til, í
dag, að ofgera sér með of miklum
átökum við æfingarnar þar sem
markið er sett á að ná járnkarls-
stiginu.
„En jafnvel ef líkamsræktin er
krefjandi, og ekki alltaf skemmti-
leg, þá er hún eitthvað sem við eig-
um að stunda reglulega fyrir því,
rétt eins og við tökum lýsi reglu-
lega þó okkur líki ekki bragðið.
Þetta er eins og hver önnur vinna
sem verður að sinna og grunn-
urinn að flestu öðru sem við tökum
okkur fyrir hendur fyrir utan æf-
ingasalinn, hvort sem er í tóm-
stundum eða í starfi.“
ai@mbl.is
Árangurinn skýrir vinsældirnar
Bára segir tímana hjá JSB fara í gegnum alla vöðvaflokka
líkamans, upp og niður. Meðal námskeiða er Fit Form
60+ fyrir konur sem konar eru á sjötugsaldurinn og TT3
fyrir 16-25 ára hópinn þar sem fræðslu um mataræði er
blandað saman við líkamsræktina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Agi Bára segir mikilvægt að líta á líkamsrækt eins og hverja aðra vinnu sem þarf að sinna.Hress Það er ekki amalegt að fá sér eitthvað bragðgott og vítamínríkt eftir æfingu.