Morgunblaðið - 15.01.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.01.2016, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 5. J A N Ú A R 2 0 1 6 Stofnað 1913  11. tölublað  104. árgangur  ÍTARLEG ÚTTEKT Á EVRÓPUMÓTINU Í HANDBOLTA EITRAÐ EFTIRPARTÝ SPURNINGA- LEIKUR FYRIR UNGA BÓKAORMA HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF?39 SNJALLSÍMAFORRIT 1224 SÍÐNA SÉRBLAÐ AFP Tilnefndur Jóhann Jóhannsson.  „Þetta er mjög ánægjulegt, gleði- leg tíðindi og mikill heiður að vera tilnefndur í annað skipti. Mér finnst sérstaklega gaman að það sé fyrir þessa mynd og fyrir þessa tónlist,“ segir Jóhann Jóhannsson tónskáld um tilnefningu sem hann hlaut í gær til Óskarsverðlauna fyrir bestu frumsömdu tónlist í kvikmynd, kvikmyndinni Sicario. Jóhann var einnig tilnefndur til verðlaunanna í fyrra fyrir tónlist sína í The Theory of Everything. Fjögur önnur tónskáld eru til- nefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir bestu frumsömdu kvikmynda- tónlist: Thomas Newman fyrir tón- listina í Bridge of Spies, Carter Burwell fyrir tónlistina í Carol, En- nio Morricone fyrir tónlistina í The Hateful Eight og John Williams fyr- ir tónlistina í Star Wars: The Force Awakens. »41 „Gleðileg tíðindi og mikill heiður“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Barnaspítali Hringsins Fyrirtæki gefa mörg hver til heilbrigðismála. Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri segir framlög fyrirtækja til góðgerðarmála lítið hafa breyst undanfarin ár og hlutfall framlag- anna af heildartekjum sömuleiðis. „Framtöl eru þó fleiri og því hef- ur fjárhæðin hækkað lítillega á und- anförnum árum. Í heildina eru þetta 16-17% framteljenda sem nýta þennan frádráttarlið,“ segir hann. Af 32.956 aðilum sem skiluðu framtali fyrir rekstrarárið 2014 voru 5.778 aðilar skráðir með gjafir. Fjárhæð gjafanna hjá þessum að- ilum er rúmir 2,8 milljarðar króna, en heildartekjur þeirra 2.145 millj- arðar króna. Gjafir eru því samtals 0,13% af tekjum þeirra. Frádráttarheimildin hækkar Frá og með þessu rekstrarári er fyrirtækjum heimilt að draga hærra hlutfall frá tekjum sínum vegna framlaga til góðgerðarmála, áður var það 0,5% en verður nú 0,75%. Áhrif þessa koma í ljós á næsta ári. » 18 Góðgerðarheimildin rýmri  17,5% fyrirtækja nýta frádrátt vegna góðgerðarmála Lausamjöll þakti Akureyri þegar bæjarbúar risu úr rekkju í gærmorgun. Þeir sem höfðu skafið af bílnum áður en þeir fóru í háttinn þurftu að endurtaka leikinn en flestir komust þó leiðar sinnar enda helstu umferðargötur mokaðar eld- snemma. Veðrið var mjög gott í gær, logn og smávegis frost. Þessi herramaður og fleiri hraustmenni drógu fram gönguskíðin og tóku vel á því í Kjarnaskógi um kvöldmatarleytið. Kjarnafólk í Kjarnaskógi Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fallegt um að litast á Akureyri eftir að snjó kyngdi niður á miðvikudag og aðfaranótt fimmtudags  Kjósarveitur ehf., fyrirtæki í eigu Kjósar- hrepps, er að hefja lagningu hitaveitu um sveitarfélagið. Reiknað er með að meginhluti heimila í sveit- arfélaginu tengist veitunni ásamt 300-400 sumarhúsum og nokkrum atvinnufyrirtækjum. „Það er mikill áhugi á þessu, sumir segja hrein mannréttindi. Klárlega eru þetta aukin lífsgæði og eykur til muna verðmæti eigna hér í Kjósinni,“ segir Sigríður Klara Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Kjósarveitna. »4 Hitaveita eykur lífsgæði í Kjósinni Hiti Vatnið verður leitt frá Möðruvöllum. Mörg dæmi eru um að umsækjendur hjá umboðsmanni skuldara, sem voru án vinnu þegar þeir sóttu um greiðsluaðlögun, geti ekki greitt af lánum þótt þeir hafi nú vinnu. Vænt- ingar um auknar tekjur hafa brugð- ist, enda eru greidd laun litlu hærri en greiddar atvinnuleysisbætur. Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi umboðsmanns skuldara, segir að umræddir einstaklingar hefðu þurft meiri eftirgjöf skulda en samið var um á sínum tíma. Hún segir leigjendur nú í meiri- hluta þeirra sem sækja um aðstoð hjá embættinu. „Þetta er fólk sem er í erfiðleikum, vegna þess að þegar búið er að taka tillit til leigugreiðslna er lítið eftir til framfærslu og til að borga aðrar skuldir,“ segir Svanborg um stöðu þessa hóps. Hlutfall leigjenda í hópi umsækj- enda um aðstoð hjá embættinu fór í hittifyrra í fyrsta sinn fram úr um- sækjendum sem búa í eigin eign. Hlutföllin voru þá 45,5% og 31,4%. Síðan hefur dregið í sundur með hópunum og í fyrra voru leigjendur 50,8% umsækjenda en fólk í eigin fasteign 28,5% umsækjenda. »14 Geta hvorki greitt af lánum né húsaleigu Rekstrarvandi » Skortur er á þjónustusamn- ingum við ríkið um rekstur öldrunarheimila. » Mörg hjúkrunarheimilanna nálgast þrot ef ekki verður gripið til aðgerða. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samtök fyrirtækja í velferðarþjón- ustu hafa boðað til neyðarfundar í dag vegna bágrar stöðu aðildar- félagana, en rúmlega 30 hjúkrunar- heimili eru innan vébanda samtak- anna. Í skýrslu um öldrunarþjónustu Akureyrarbæjar, sem KPMG vann fyrir bæinn, kemur fram að kostn- aður á hvern íbúa 67 ára og eldri hef- ur vaxið um 148% frá 2007-2014, mælt á föstu verðlagi. Ríkið ber ábyrgð á fjármögnun rekstrar öldrunarheimila en enginn samningur hefur verið í gildi milli ríkisins og Akureyrar frá árinu 2008. Rekstrarframlög bæjarins til Öldr- unarheimila Akureyrar hafa þannig aukist um 384% á tímabilinu, en dag- gjöld hafa ekki staðið undir rekstr- inum síðustu ár og bærinn greitt hundruð milljóna með rekstrinum. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæj- arstjóri Akureyrar, segir mikilvægt að ríkisvaldið viðurkenni að leggja þurfi meira fjármagn í þjónustu við aldraða á Akureyri og að fram fari uppgjör við ríkið vegna fyrri ára. Öldrunarheimili illa stödd  Neyðarfundur boðaður vegna ástandsins Ríkisvaldið viðurkenni þörf fyrir aukið fjármagn Hundruð milljóna greidd með öldrunarheimilum á Akureyri MHundruð milljóna með … »18

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.