Morgunblaðið - 15.01.2016, Side 4

Morgunblaðið - 15.01.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa kynnt tillögur að nýju deiliskipulagi svonefnds Vigdísarlundar í Fossvogi í borginni. Gert er ráð fyrir 15 íbúð- um fyrir almenning og 8 íbúðum fyr- ir fatlaða á þessum gróna reit. Svæðið afmarkast af Fossvogs- vegi í norðri, Árlandi í suðri, göngu- stíg á móts við Kjalarveg og Rækt- unarstöð Reykjavíkur í vestri og lóðamörkum aðliggjandi byggðar við Ánaland í austri, það er sunnan við Landspítalann í Fossvogi. Í kynningu á vef Reykjavíkur- borgar segir að það „virðist blasa við að reiturinn skiptist þannig að al- mennar íbúðir verði við Fossvogs- veg og teygi sig suður að Árlandi með aðkomu frá báðum götum og [að] búsetuúrræði fyrir fatlaða verði þar sunnan og austan við með að- komu frá Árlandi“. Rætt er um raðhús með 8 íbúð- um fyrir fatlaða, að meðtalinni íbúð starfsmanns. Rætt er um að íbúðir fyrir almennan markað verði að jafnaði 200 fermetrar og að parhús og raðhús komi til greina. Umferð á svæðinu er sögð aukast með þessari fjölgun íbúða á reitnum. Fasteignaverð er hátt á þessu svæði og má gera ráð fyrir að sala lóða muni skila borginni hátt í 200 milljónum króna. Í umsögn skipu- lagsyfirvalda segir að nokkur trjá- gróður sé á reitnum en annars sé svæðið í órækt og nýtist að takmörk- uðu leyti til útivistar. Svæðið heitir eftir Vigdísi Finn- bogadóttur, fv. forseta Íslands. Vigdísarlundur verður ruddur fyrir nýrri byggð Morgunblaðið/Júlíus Vigdísarlundur Svæðið er sunnan við Landspítalann í Fossvogi.  Áform um ný raðhús í Fossvogi Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Rúmlega 5.000 Íslendingar eru með 75% örorkumat vegna stoðkerfis- sjúkdóma. Þessir sjúkdómar eru al- gengasta ástæða örorku hjá konum og hjá fólki sem er 50 ára og eldra. Þeir eru líka næstalgengasta ástæða örorku hjá báðum kynjum í öllum aldurshópum. Emil Thoroddsen, framkvæmda- stjóri Gigtarfélagsins, segir að ein ástæða þessarar háu tíðni örorku vegna stoðkerf- issjúkdóma sé sú að biðtími gigtar- sjúklinga eftir greiningu og meðferð sé allt of langur. Þá hiki margir við að leita sér með- ferðar vegna kostnaðar og það leiði til versnandi sjúkdómsástands, jafnvel örorku. „Snemmgreining er lykilatriðið í baráttunni við gigtarsjúkdóma,“ segir Emil. Stoðkerfissjúkdómar eru yfirheiti um 200 sjúkdóma, t.d. iktsýki, slit- gigtar, vefjagigtar og beinþynn- ingar. Emil segir gigt vera þjóðar- mein. „Um 20% Íslendinga hafa verið greind með gigt og annan stoð- kerfisvanda og það er svipuð tala og í nágrannalöndunum,“ segir hann. 20% Íslendinga eru tæplega 66 þús- und manns. 200 gigtveik börn Að sögn Emils eru um 200 íslensk börn með alvarlega gigtarsjúkdóma. Hann segir að þjónusta Barnaspít- alans hafi verið að aukast við gigtar- börn og fjölskyldur þeirra. Samkvæmt lista á vefsíðu Gigtar- félagsins eru 13 gigtarlæknar starf- andi hér á landi. Biðlisti eftir að komast til þeirra er langur að sögn Emils, yfirleitt 5-7 mánuðir. Hann segir að nokkur hluti þeirra muni láta af störfum innan nokkurra ára vegna aldurs, fáir gigtarlæknar anni því að taka nýja sjúklinga, en nokk- uð sé af læknum í sérnámi í gigt- lækningum og þeirra sé vonandi að vænta til landsins innan tíðar. „Það er háalvarlegt mál ef fólk með alvarlega gigtarsjúkdóma þarf að bíða mánuðum saman eftir grein- ingu eða meðferð. Skemmdirnar verða nefnilega í bólguköstunum,“ segir Emil. Meðferð og lyf kosta mikið Að mati Emils er þessi skortur á sérfræðiaðstoð ein ástæða þess að örykjum með stoðkerfissjúkdóma hefur fjölgað. Langir biðlistar eftir ýmsum aðgerðum, m.a. liðskipta- aðgerðum sem eru gerðar vegna slitgigtar, eru önnur ástæða örorku. „Fólk sem þarf að bíða í nokkur ár eftir liðskiptaaðgerð dettur einfald- lega út af vinnumarkaði. Vissulega er langlundargeð gigtarfólks gríðar- legt, en fyrr má nú vera. “ Ein ástæða til viðbótar sem Emil nefnir sem huganlega ástæðu mikils fjölda fólks með stoðkerfissjúkdóma á örorkubótum er kostnaður við meðferðir og lyfjagjöf. „Það er tals- vert um að fólk hafi samband við okkur vegna þess að þetta er orðið svo dýrt. Það dregur að fara í með- ferð þangað til það er orðið mjög slæmt og örorka eina útgönguleið- in.“ Emil segir mikla þörf á að Gigtar- ráð verði endurvakið, en það var ráðgefandi samstarfsvettvangur um skipulag baráttunnar gegn gigtar- sjúkdómum. Ráðið var lagt niður af heilbrigðisráðherra í kjölfar krepp- unnar 2008 og hefur Gigtarfélagið margsinnis krafist endurreisnar þess. „Það er alvarlegur hlutur að vera ekki með neinn vettvang fyrir málefni gigtarsjúklinga. Gigtar- sjúklingar eru fjölmennur hópur sem því miður fer stækkandi.“ Segir biðtíma og kostnað geta leitt til örorku  13 gigtarlæknar sinna 66.000 manns  Örorka stundum eina útgönguleiðin Morgunblaðið/Árni Sæberg Á spítala Um 66.000 Íslendingar hafa verið greindir með gigt. Emil Thoroddsen Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Góð samstaða er um lagningu hita- veitu um Kjósina. Gert er ráð fyrir því að meginhluti þeirra 80 heimila sem eru í sveitarfélaginu tengist og 300-400 sumarbústaðir, auk atvinnu- fyrirtækja. „Það er mikill áhugi fyrir þessu, sumir segja þetta hrein mannréttindi. Klárlega eru þetta aukin lífsgæði og eykur til muna verðmæti eigna hér í Kjósinni. Þeir sem eru í ferðaþjónustu sjá aukin viðskiptatækifæri,“ segir Sigríður Klara Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Kjósarveitna. Kjósarhreppur stóð fyrir jarðhita- leit og borun á landi sínu, Möðruvöll- um. Eftir mikla vinnu tókst að fá vatn úr tveimur öflugum borholum sem dugar fyrir hitaveitu sveitarinn- ar og rúmlega það. Verkefnið kostar milljarð Áætlaður kostnaður við lagningu hitaveitu og ljósleiðara sem lagður verður samhliða er áætlaður millj- arður króna. Sveitarfélög hafa tak- markaðar heimildir til að skuldsetja sig. Því var ákveðið að stofna einka- hlutafélagið Kjósarveitur um verk- efnið. Sveitarfélagið lagði til lóðina, heitavatnsréttindi og undirbúnings- kostnað sem stofnfé inn í félagið. Veitan mun fjármagna verkið að öðru leyti með húshitunarstyrk rík- isins, tengigjöldum og bankalánum. Áformað er að hefja framkvæmdir við lagningu veitunnar í aprílmánuði og að fyrstu húsin verði tengd í haust. Lagðar verða stál- og plast- lagnir um sveitina og þær verða eins og köngulóarvefir í sumarhúsahverf- unum. Lagt er heim að bæjum og húsum en þar taka húseigendur við. Þeir þurfa sumir að leggja í veru- legan kostnað við að breyta húshit- unarkerfum til að taka inn heita vatnið. Niðurgreiðsla ríkisins á hús- hitunarkostnaði fellur niður en Kjós- arveitur fá styrk næstu tólf ára til að nota við lagningu hitaveitunnar og til að styrkja íbúa við breytingar. Leiðslurnar eru alls um 120 kíló- metrar að lengd. Kostnaður við rörin var áætlaður um 300 milljónir en ljóst virðist að þær fást fyrir nokkuð lægra verð í útboði. Sigríður segir að jarðvinna við lagningu hitaveitunnar verði boðin út í næsta mánuði. Áætl- að er að verkið verði unnið á tveimur árum. Dreifikerfi Kjósarveitna ehf. Jarðhitasvæði Loftmyndir ehf. Meðalfellsvatn Hvalfjörður Eykur lífsgæði íbú- anna að fá hitaveitu  Fyrstu húsin í Kjósinni tengd við hitaveitu í haust Kjósarhreppur ákvað að leggja ljósleiðara með hitaveitulögninni heim á alla bæi og í sumarbústaði. Sumir telja það jafnvel meira virði en hitaveit- una enda eru slök skilyrði fyrir farsíma, net og sjónvarp víða í Kjósinni. „Einn áttræður sagðist hafa meiri áhuga á ljósleiðaranum, hann væri svo lengi að lesa Moggann með núverandi netsambandi,“ segir Sigríður Klara Árnadóttir. Tengigjald á íbúðarhús og lögbýli er 1.400 þúsund kr. með virð- isaukaskatti og 890 þúsund á sumarhús. Gjaldskrá fyrir afnot af heita vatninu hefur ekki verið ákveðin. Gjaldið fyrir sumarhúsin er áætlað út frá því að 60% sumarhúsaeigenda tengist og miðast við að gengið verði frá samningi í vor. Fljótari að lesa Moggann LJÓSLEIÐARI LAGÐUR MEÐ HITAVEITULEIÐSLUNUM Opið: Mán.-F ös. 11-18 Lau. 12 -16 Njóttu þess að skapa úr litadýrðinni Laugavegur 59, 2. hæð • Sími 551 8258 • storkurinn.is Ljósmynd/Kjósarveitur Hiti Borhola á Möðruvöllum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.