Morgunblaðið - 15.01.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.01.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 Útsöluaðilar: Útilíf Kringlunni – Smáralind – Glæsibæ I Debenhams I Englabörn Intersport - Bíldshöfða - Akureyri - Selfossi I barnaheimar.is I Leiksport I Músik & Sport K Sport Keflavík I Nína Akranesi I Sportver Akureyri I Toppmenn og Sport Akureyri Borgarsport Borgarnesi I Hafnarbúðin Ísafirði I Siglósport Siglufirði I Sentrum Egilsstaðir Sportbær Selfossi I Pex Reyðarfirði I Axel Ó Vestmannaeyjum I Efnalaug Vopnafirði Verið getur að auglýstar vörur séu ekki til hjá útsöluaðila. Umboðsaðili: DanSport ehf. fatnaður Fótboltabuxur Gjöf sem hittir í mark Hummel kerfisins frá því að upprunalegur samningur var gerður. Undirbún- ingur að þeirri vinnu er hafinn. Sú vinna er í raun rétti farvegurinn fyr- ir það sem stjórn VR er að álykta nú,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn segir að VR hafi áður tekið þetta mál upp við Samtök at- vinnulífsins hvað varðar Lífeyrissjóð verzlunarmanna sérstaklega og endurskoðun á samþykktum sjóðs- ins. „Það er bara fullkomlega eðli- legt að setjast yfir þær samþykktir í framhaldi af niðurstöðu í endur- skoðun samningsins milli SA og ASÍ um lífeyrismál, til að endurspegla þær breytingar sem kynnu að verða á umhverfi sjóðanna með þeirri endurskoðun,“ sagði Þorsteinn Víg- lundsson. Guðrún Hafsteinsdóttir, forstjóri Kjöríss ehf. og formaður Samtaka iðnaðarins, sagðist í gær ekkert vilja um ályktun stjórnar VR segja að svo stöddu. í tengslum við gerð kjarasamninga sl. vor og rammasamkomulagsins frá því í október í haust að okkar bíð- ur á næstu vikum og mánuðum sú vinna að endurskoða þann samning, þar sem við munum m.a. setjast yfir og ræða þær breytingar sem orðið hafa í umhverfi lífeyrissjóðanna á undanförnum árum og breytt hlut- verk þeirra sem fjárfesta á markaði og þær grundvallarbreytingar sem orðið hafa á umfangi lífeyrissjóða- BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir að ályktun stjórnar félagsins frá því í fyrrakvöld, um að stjórnar- menn í Lífeyrissjóði VR sitji ekki í stjórnum fyrirtækja sem sjóðurinn á hluti í, sé tilkomin vegna þess að stjórnin vilji auka gagnsæi og mynda traust um stjórnarmenn, líkt og kom fram í frétt í Morgunblaðinu í gær. „Okkur ber að standa vörð um Lífeyrissjóð verzlunarmanna, trú- verðugleika hans og traust. Til að það sé hægt verður að tryggja að þeir sem skipa stjórn sjóðsins gæti fyrst og fremst hagsmuna sjóðsins sjálfs og sjóðfélaga. Það er að mati stjórnar VR óásættanlegt að stjórn- armenn í Lífeyrissjóði verzlunar- manna sitji í stjórnum eða eigi hlut í fyrirtækjum sem sjóðurinn fjár- festir í. Stjórn VR lýsir því yfir að þeir fulltrúar sem félagið tilnefnir í stjórn sjóðsins eigi ekki sæti í stjórnum fyrirtækja eða félaga sem sjóðurinn fjárfestir í. Stjórn VR ger- ir þá kröfu til samtaka avinnurek- enda sem tilnefna fulltrúa í stjórn lífeyrissjóðsins að þau hagi tilnefn- ingum sínum með sama hætti,“ segir m.a. í ályktun stjórnar VR sem sam- þykkt var í fyrrakvöld. Á hlut í 3 skráðum félögum Í fréttinni í gær kom m.a. fram að Helgi Magnússon, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunar- manna á sæti í stjórnum þriggja skráðra félaga sem VR á umtals- verðan hlut í. Það eru Marel hf. en þar á Lífeyrissjóður verzlunar- manna 9,1% hlut, Síminn hf. en þar á sjóðurinn 14,3% og N1, en þar á sjóðurinn 14,2%. Helgi á hlut í öllum ofangreindum félögum og er með- stjórnandi í stjórnum þeirra. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, var í gær spurður um afstöðu SA til ályktunarinnar: „Það eru engar deilur um það á milli okkar og verka- lýðshreyfingarinnar að það er afar mikilvægt að lífeyrissjóðirnir starfi eftir mjög vönduðum starfsreglum og að fyrirkomulag um skipan í stjórnir lífeyrissjóða og fyrir- komulag lífeyrissjóðanna sjálfra um skipan stjórnarmanna í fyrirtækjum séu í mjög skýrum og föstum skorð- um og fullt traust ríki í garð lífeyris- sjóða í þeim efnum,“ sagði Þor- steinn. Hann segir að samningur um líf- eyrismál frá 1995 sé í gildi á milli SA og Alþýðusambandsins, sem rammi inn núverandi fyrirkomulag lífeyris- kerfisins. „Það liggur jafnframt fyrir Morgunblaðið/Golli Skráð félög Síminn var skráður á markað í Kauphöllinni í október í haust. Samningur um lífeyris- sjóði endurskoðaður  Óljóst hvaða áhrif ályktun stjórnar VR mun hafa Stjórnarmenn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og hlutafélög Heimild: Talnakönnun hf. LIVE - Nafn Er í stjórn Fram- kvstj. Prókúru- hafi Stofnandi Endursk. Félög alls Þ.a. eign LIVE Stjórnarmaður: Anna G Sverrisdóttir 0 0 0 0 0 1 0 Ásta Rut Jónasdóttir 0 0 0 0 0 0 0 Birgir Már Guðmundsson 0 0 0 0 0 0 0 Birgir S Bjarnason 10 1 4 1 0 10 0 Fríður Birna Stefánsdóttir 2 0 0 0 0 2 0 Helgi Magnússon 15 3 4 4 0 17 3 Margrét Sif Hafsteinsdóttir 6 1 7 1 37 44 0 Páll Örn Líndal 0 0 0 2 0 2 0 Þorsteinn Víglundsson Helgi Magnússon Lögreglumaðurinn sem sakaður hefur verið um óeðlileg samskipti við brotamenn í störfum sínum hjá fíkniefnadeild lögreglunnar og var í framhaldi af því fluttur til í starfi hefur nú verið leystur frá störfum um stundarsakir meðan málið er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Þetta staðfestir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. í gær. Ekki er um að ræða sama mál og þar sem lögreglumað- ur var settur í gæsluvarðhald eftir að saksóknara barst í hendur upp- taka af óeðlilegum samskiptum hans við brotamann. Sá var einnig leystur frá störfum á mánudaginn. Mennirnir eiga það þó sameiginlegt að hafa báðir starfað innan fíkni- efnadeildar lögreglunnar. Karl Steinar Valsson, sem var yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglu frá 2007- 2014, sagði frá því í Fréttablaðinu að hann hefði fengið upplýsingar um meint brot mannsins og sent greinargerð um það til yfirmanna sinna. Ekkert virðist þó hafa verið gert í því og engin rannsókn fram- kvæmd. Maðurinn var aftur á móti færður til í starfi, en samstarfs- menn hans höfðu gert ítrekaðar at- hugasemdir við starfshætti hans. Sigríður Björk sagði í samtali við mbl.is í gær ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að Friðrik Smári Björg- vinsson yfirlögregluþjónn og Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglu- stjóri tjái sig við fjölmiðla um greinargerð sem þeir fengu um störf lögreglumanns sem héraðs- saksóknari hefur nú til skoðunar, svo framarlega sem rannsókna- hagsmunir séu ekki í húfi. Lýstu níu samstarfsmenn lögreglumanns- ins vantrausti á hann síðasta vor og vísuðu áhyggjum sínum til Friðriks Smára Björgvinssonar, sem þá var yfirmaður deildarinnar. Eftir að þeir fengu engin viðbrögð var farið með málið lengra til Sigríðar og var í framhaldinu ákveðið að færa fulltrúann til í starfi. Eins og fyrr segir hefur hann nú verið leystur frá störfum um stundarsakir vegna málsins. Ekki tilefni til rannsóknar Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlög- reglustjóri sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að ekkert í greinagerð Karls Steinars hafi gefið tilefni til rannóknar. „Það var ekki neitt í þessu sem benti til þess að menn væru ekki að vinna eftir lögum og verklagsreglum,“ segir Jón. og bæt- ir við: „Niðurstaðan er mjög af- dráttarlaus í þessari greinargerð.“ Annar leystur frá lögreglustörfum  Óeðlileg samskipti við brotamenn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Lögreglustöð Búið er að víkja öðr- um starfsmanni frá störfum. Reynir Þór Jónasson var í Hæsta- rétti í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás í Grundarfirði árið 2014. Hann og samverkamaður hans þurfa jafn- framt að greiða fórnarlambinu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna árásarinnar en það hlaut lífshættu- lega áverka í árásinni. Krafðist þyngri refsingar Hæstiréttur staðfesti dóm Hér- aðsdóms Vesturlands yfir Reyni Þór en saksóknari hafði áfrýjað honum og krafist þyngri refsingar. Reynir Þór var sakfelldur ásamt öðrum manni fyrir að hafa ráðist á mann á hafnar- svæði í Grundar- firði 17. júlí árið 2014. Slógu þeir manninn í andlit- ið þannig að hann missti meðvitund og slógu hann svo í andlitið þar sem hann lá meðvit- undarlaus á jörðinni með þeim af- leiðingum að fórnarlambið hlaut lífs- hættulega höfuðáverka. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að fórnarlambið hafi strítt við varanlegar afleiðingar af lífshættu- legum heilaskaða sem það varð fyrir í árásinni. Manninum hafi nær ekk- ert farið fram undanfarið hálft ár og horfur á frekari bata teljist tak- markaðar. Bæði Reynir Þór og hinn árásar- maðurinn, sem bíður dóms, hafa set- ið í gæsluvarðhaldi frá því að árásin var gerð og dregst það frá fangels- isdómnum. Auk hlutar í miskabót- unum til fórnarlambsins þarf Reynir Þór að greiða allan áfrýjunarkostn- að málsins, 2.358.670 krónur, sam- kvæmt dómi Hæstaréttar. Dæmdur í 4 ára fangelsi  Hæstiréttur staðfesti dóm í héraði í líkamsárásarmáli 4 ár Hæstiréttur staðfesti dóm. Lögreglustjórinn á Vesturlandi hef- ur sent mál vegna líkamsleitar á 16 ára stúlku til embættis héraðssak- sóknara til meðferðar. „Lögreglustjóri telur að ekki hafi verið rétt staðið að framkvæmd lög- reglustarfa í umrætt sinn og hefur því sent málið til embættis héraðs- saksóknara til meðferðar,“ segir í tilkynningu. Lögreglustjórinn sendi frá sér aðra tilkynningu 12. janúar þar sem hann kvaðst hafa tekið málið til sér- stakrar skoðunar. Stúlkan var stöðv- uð ásamt ungmennum í bíl á leið frá Ólafsvík til Reykjavíkur í umdæmi lögreglunnar á Akranesi 21. ágúst í fyrra. Nafnlaus ábending hafði borist um að öku- maður væri undir áhrifum fíkni- efna, að sögn Oddgeirs Ein- arssonar, lög- manns stúlk- unnar. Á lögreglustöðinni á Akranesi var stúlkan látin afklæðast í fangaklefa fyrir framan aðra stúlku sem einnig var í bílnum. Lögreglukona lét hana svo beygja sig fram á meðan hún skoðaði kynfæri og rass hennar án snertingar. Líkamsleitarmál til héraðssaksóknara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.