Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 10

Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 skref ganga hækkun skokk hreyfing Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is Garmin heilsu- og snjallúr með innbyggðum púlsmæli. toppaðu gærdaginn Stundum er fundið að því aðráðherrar og þingmenn sleppi því að lesa yfir frumvörp sem feli í sér ný fyrirmæli frá Evrópusam- bandinu í gegnum EES-samning- inn.    Raunar erþví haldið fram að virðulegir embættis- menn ríkis- ins eigi bágt með að einbeita sér að sama efni.    En óbilandi Evrópusinnarbenda á að Evrópusamstarfið sé lifandi fyrirbæri í lýðræðislegri framþróun, hvað sem það merkir.    Ein nýjasta afurð reglusetn-ingar er eftirfarandi og byggt á stofnreglugerð sem sett var fyrir 5 árum: „Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 835/2010 um gild- istöku reglugerðar framkvæmda- stjórnarinnar (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evr- ópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu.“ Þessari snilld var komið í aðeins eina setn- ingu.    Og grundvellinum, sjálfri„stofnreglugerðinni“ var einnig komið fyrir í aðeins einni setningu: „Stofnreglugerð: 835/2010 Reglugerð um gildistöku reglu- gerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu, og um breytingu á ákvörðun 2006/504/EB.“ Tær snilld STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.1., kl. 18.00 Reykjavík -6 léttskýjað Bolungarvík -6 léttskýjað Akureyri -4 skýjað Nuuk -2 skafrenningur Þórshöfn 0 heiðskírt Ósló -15 skýjað Kaupmannahöfn 0 snjókoma Stokkhólmur -13 heiðskírt Helsinki -12 heiðskírt Lúxemborg 0 alskýjað Brussel 3 léttskýjað Dublin 2 skúrir Glasgow 2 upplýsingar bárust ek London 5 skýjað París 3 skúrir Amsterdam 2 skúrir Hamborg 2 skýjað Berlín 2 léttskýjað Vín 5 léttskýjað Moskva -7 skýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 7 þoka Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 11 skúrir Aþena 11 heiðskírt Winnipeg -20 skýjað Montreal -12 snjókoma New York -1 alskýjað Chicago 2 skýjað Orlando 15 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:56 16:19 ÍSAFJÖRÐUR 11:28 15:57 SIGLUFJÖRÐUR 11:12 15:38 DJÚPIVOGUR 10:32 15:42 Afbrigðileg riða, Nor98, greindist nýlega í kind frá bænum Keldu- skógum í Beru- firði við reglulega skimun Matvæla- stofnunar, að því er segir í tilkynn- ingu. Fyrir tveimur árum fannst riða af þessari tegund í kind frá Krossi í sömu sveit. Vísindamenn telja þó ekki að Nor98 smitist á sama hátt á milli skepna og hefðbundin riða. Fyrir því eru bornar erlendar rann- sóknir en riða af þessari gerð hefur fundist í mörgum löndum. Er þetta að minnsta kosti í sjötta skipti sem afbrigðileg riða finnst í kindum hér á landi. Í fyrstu fjögur skiptin fyrirskipuðu yfirvöld niður- skurð fjárstofna að hluta eða öllu leyti. Það var ekki gert í Keldu- skógum og segir í tilkynningu Mat- vælastofnunar að það álit liggi fyrir að ekki sé ástæða til að skera niður á Kelduskógum eins og gert er þegar um hefðbundna smitandi riðu er að ræða. Afbrigðileg riða fannst í Berufirði  Ekki talið nauð- synlegt að skera Kind Einstaka greinast með riðu. Nokkur fjöldi heilsugæslustöðva víða um land er með takmarkaðan afgreiðslutíma, þ.e. þar er ekki opið alla daga vikunnar eða einungis hluta dagsins. Þær eru yfirleitt á þeim stöðum þar sem íbúar eru innan við 500. Á þessu eru þó und- antekningar og dæmi eru um þetta fyrirkomulag á þéttbýlisstöðum þar sem fleiri búa. Það vakti mikla óánægju íbúa á Hvolsvelli nýverið þegar ákveðið var að skerða afgreiðslutíma heilsugæslustöðvarinnar þar. Um tímabundna tilraun er að ræða og til stendur að bæta heimaþjónust- una á móti. Á Hvolsvelli eru 934 íbúar og þar er heilsugæslan nú opin þrjá daga í viku í stað fimm áður. Heilsugæslu- stöðin á Fáskrúðsfirði er opin þrjá daga í viku og í bænum er 671 íbúi. Á Vopnafirði búa 528, þar er opið alla daga vikunnar en hálfan dag í senn. Á minni stöðum, eins og t.d. Kópaskeri þar sem íbúar eru 114 er opið tvo daga í viku, á Kirkjubæjarklaustri, þar sem 140 búa, er opið hálfan daginn alla daga vikunnar og sömu sögu er að segja í Vík í Mýrdal. Í Vogum eru rúmlega 1.000 íbú- ar, þar er heilsugæslan einungis opin einn dag í viku, en stutt er að fara á heilsugæslustöðina í Reykja- nesbæ. Sums staðar er opið fáa daga í viku  Algengt á fámennari stöðum að opið sé stuttan tíma á heilsugæslustöðvum Morgunblaðið/Eggert Heilsugæsla Afgreiðslutími heilsu- gæslustöðva er mislangur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.