Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
T
rúlega slá fáir hendinni á
móti fleiri heilasellum,
enda gagnsemi þeirra
óumdeild. Í smáforritinu
Study Cake, sem kom út
í vikunni og er spurningaleikur fyrir
unga bókaorma, standa þær til boða
að því tilskildu að þátttakendur séu
þokkalega vel lesnir í barnabók-
menntum. Því fleiri heilasellur sem
þeir vinna sér inn, þeim mun veg-
legri geta verðlaunin verið.
Spurningaleikurinn er hugar-
smíð þriggja vina og frumkvöðla um
tvítugt, sem sjálfir eru miklir lestr-
arhestar og áhugamenn um bók-
menntir. Og líka og ekki síður um
tækninýjungar af ýmsum toga.
Kjartani Þórissyni, Herði Guð-
mundssyni og Kristjáni Inga Geirs-
syni rann til rifja þverrandi lestur
ungmenna og vildu leggja sitt á vog-
arskálarnar til að snúa þróuninni við.
Fyrirtækið sem þeir stofnuðu í þeim
tilgangi á sér ekki langa sögu, en
eins og Hörður segir gerast góðir
hlutir ekki endilega hægt á tækniöld.
Bylting í lestrarumhverfi
„Study Case var eitt þeirra tíu
teyma sem voru valin voru til þess að
taka þátt í viðskiptahraðlinum Start-
upReykjavík á vegum Arion banka
og Klak Innovit í sumar. Við vorum
nýútskrifaðir úr menntaskóla og
ákváðum að halda á vit ævintýranna
í stað þess að hefja háskólanám
strax,“ upplýsa þremenningarnir,
sem seint í ágúst kynntu starfsemina
og framtíðarsýn fyrirtækisins á fjár-
festingadegi StartupReykjavík.
Kynningin var í höndum Kjart-
ans, sem þeir höfðu sameinast um
sem framkvæmdastjóra, en hann er
líka hönnuður hjá fyrirtækinu.
Hörður er fjármálastjóri og Kristján
Ingi tæknistjóri, og hafa allir þrír
unnið myrkranna á milli undanfarna
mánuði við að koma spurninga-
leiknum í loftið. Stóri dagurinn rann
upp 12. janúar síðastliðinn.
„Markmið okkar er að ýta undir
Fjölga heilasellum
í spurningaleik
Sumir hafa horn í síðu snjallsímavæðingarinnar og finna henni flest til foráttu,
sérstaklega þegar börn eiga í hlut. Aðrir sjá bara uppbyggileg tækifæri. Eins og
þrír ungir frumkvöðlar, Kjartan Þórisson, Hörður Guðmundsson og Kristján Ingi
Geirsson, sem stofnuðu sprotafyrirtækið Study Cake og gáfu út snjallsímaforrit;
spurningaleik fyrir unga bókaorma og fjölskyldur þeirra.
Tvennir tímar Myndirnar spegla tímanna tvenna. T.h. er Kjartan fram-
kvæmdastjóri, sex ára, að lesa, t.v. Magnús litli bróðir hans 14 árum síðar.
Hvatakerfi Foreldrar geta umbunað börnum sínum fyrir góðan árangur.
Þýskir músíkdagar er yfirskrift kvikmynda-
daga sem hefst í dag í Kamesi Borgar-
bókasafns í Grófinni og stendur til 20. janúar í
samstarfi við Goethe-Institut í Danmörku.
Sýndar verða þýskar tónlistarmyndir sem
fengið hafa verðlaun og viðurkenningar á kvik-
myndahátíðum fyrir áhugaverð efnistök og
framsetningu.
Umfjöllunarefni myndanna er fjölbreytt,
m.a. er ein um sameiginlega leit píanóstillis og
þekktra píanóleikara að hinum fullkomna pí-
anóhljómi og önnur um heyrnarskertan slag-
verksleikara sem kannar samspil fjölbreyttra
hljóðgjafa, takts, tímasetningar og líkams-
snertingar.
Myndirnar eru sýndar kl. 15 í dag föstudag,
laugardag og sunnudag en kl. 15 og 17 frá
mánudegi til miðvikudags. Einnig er boðið upp
á að panta sýningar næstu daga þar á eftir.
Kvikmyndadagar í Kamesi Borgarbókasafns í Grófinni
Þýskir músíkdagar
Fjölbreytt Ein kvikmyndanna
fjallar um tilurð níundu sinfóníu
tónskáldsins Beethovens.
Loksins, loksins er kominnjanúar. Sumir lifa í mis-skilningi og halda að jan-úar sé versti mánuður árs-
ins og skilja ekki að hann er einn
þeirra bestu. Ferskt upphaf, hvítur
strigi, bjartari dagar og nýtt hunda-
dagatal. Hvað er hægt að biðja um
meira? Sem ung kona, umkringd
öðru ungu fólki en líka miðaldra og
stundum gömlu finnst mér svolítið
leiðinlegt hvað margir fara í ein-
hverja herferð gegn janúar. Ákveða
kannski bara að hann verði glataður
án þess að hafa eitthvað fyrir sér í
því.
Það í raun alveg gífurlega þreytt
viðhorf að janúar sé ömurlegur mán-
uður, að allir sem eigi afmæli í janúar
eigi bágt og að þegar jólin séu búin
sé ekkert framundan nema nístandi
hyldýpi þangað til klukkan slær 17 á
föstudeginum fyrir pálmasunnudag.
Nú veit ég ekki hvort janúar sé líka
hataður í heitari löndum, þar sem
það snjóar ekki inn í bíla og áfengi
fæst í matvöruverslunum eða
hvort það sé séríslenskt fyrir-
bæri að hata saklausan mán-
uð.
Janúar eins og hann legg-
ur sig er frábær tími til að
grípa tækifæri, setja sér
kannski einhver
skemmtileg markmið
og verða ef til vill ör-
lítið betri manneskja
en drullusokkurinn
sem þú varst í desem-
ber.
Nú halda eflaust
sumir að undirrituð sé
komin í sértrúar-
söfnuð, byrjuð í Cross
fit eða orðin fyrirlesari
hjá Dale Carnegie en
svo er ekki. Ég er held-
ur ekkert ofur jákvæð
manneskja eða skoppandi
orkubolti, bara svona venjuleg
miðþrítug kona sem reynir að fara í
sjálfsalann í vinnunni bara tvisvar í
viku. Augljóst áramótamarkmið. Þó
að nýtt ár marki nýtt upphaf er ég
ekki talsmaður öfgafullra markmiða.
Maður þarf ekkert að fara í ræktina
fyrir og eftir vinnu, borða eins og
steinaldarmaður einn daginn og eins
og dádýr þann næsta og lesa fjörutíu
bæk- ur á viku. Það er alveg nóg að
setja sér það markmið
kannski bara að læra
utan að textana við öll
nýju Bieber-lögin. Gerið
bara eitthvað skemmti-
legt, í guðana bænum.
Alltof lengi hefur jan-
úar þurft að vera ljóta
systirin, sem enginn hlakk-
ar til að fá í heimsókn og
geta ekki beðið þar til
dvergurinn febrúar skýtur
upp kollinum. Þetta er
ekki sanngjarnt. Nú skul-
um við breyta þessu.
Ég kalla eftir viðhorfs-
breytingu gagnvart janúar.
Farðu í megrun eða ekki.
Mér er alveg sama. Verum
bara jákvæð og hættum
þessu væli.
»Nú veit ég ekki hvortjanúar sé líka hataður
í heitari löndum, þar sem
það snjóar ekki inn í bíla og
áfengi fæst í matvöruversl-
unum eða hvort það sé sér-
íslenskt fyrirbæri að hata
saklausan mánuð.
HeimurAuðar
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Alþjóðlegu listahátíðinni Ferskum
vindum í Garði lýkur með sýningum
og viðburðum víða um bæinn á laug-
ardag og sunnudag. Einn af hápunkt-
um helgarinnar er tónleikar í Mið-
garði, sal Gerðaskóla kl. 18.00 á
morgun.
Sveitarfélagið Garður hefur verið
innblástur fyrir 50 listamenn frá 20
þjóðlöndum sem taka þátt í hátíðinni.
Áhrifa umhverfisins gætir í mörgum
verkum og mun umhverfið njóta
verka listafólksins um ókomin ár.
Þema hátíðarinnar í ár er sjávarföll.
Listahátíðin hófst 15. desember
með komu erlendu listamannanna,
sem hreiðruðu um sig í húsnæði
Garðvangs, og unnu að list sinni víða
um bæinn. Þetta er í fjórða sinn sem
Alþjóðlegu listahátíðinni
Ferskum vindum í Garði
lýkur um helgina
Nýstárleg
listaverk sem
allir fá að njóta
Mennirnir á bak við Study Cake eru:
Kjartan Þórisson, framkvæmdastjóri og hönnuður. Hann stofnaði áður
Nomo.is og timatal.is. Hörður Guðmundsson fjármálastjóri. Hann stund-
aði bitcoin-fjárfestingar og starfaði tvö sumur hjá KPMG í Lúxemborg.
Kjartan og Hörður, sem báðir eru tvítugir, útskrifuðust frá Verslunarskóla
Íslands vorið 2015. Kristján Ingi Geirsson tæknistjóri, tuttugu og eins
árs, útskrifaðist úr Tækniskólanum 2014 og hefur komið að ýmsu í forrit-
unarheiminum.
Fortíð frumkvöðlanna
SPROTAFYRIRTÆKIÐ STUDY CAKE
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is