Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Fyrirtækjum er frá og með þessu
rekstrarári heimilt að draga hærra
hlutfall frá tekjum atvinnurekstrar
vegna framlaga til góðgerðarmála,
samkvæmt breytingum sem gerðar
hafa verið á skattalögum. Hlutfallið
hækkar úr 0,5% í 0,75%. Um getur
verið að ræða framlög til kirkju-
félaga, viðurkenndra líknarstarf-
semi, menningarmála, stjórnmála-
flokka og vísindalegra rannsóknar-
starfa.
Af þeim 32.956 aðilum sem skilað
höfðu inn framtali í gær fyrir
rekstrarárið 2014 voru 5.778 aðilar
skráðir með gjafir, eða 17,5%, sam-
kvæmt upplýsingum frá ríkisskatt-
stjóra. Fjárhæð gjafanna hjá þess-
um aðilum er rúmir 2,8 milljarðar
króna samtals. Heildartekjur þeirra
voru 2.145 milljarðar króna og gjaf-
ir eru því samtals 0,13% af tekj-
unum.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri segir að framlagið hafi
mjög lítið breyst undanfarin ár og
sömuleiðis sé hlutfallið af tekjunum
mjög svipað. „Framtöl eru þó fleiri
og því hefur fjárhæðin hækkað lítil-
lega á undanförnum árum. Í heild-
ina eru þetta 16-17% framtaldra
aðila sem nýta þennan frádráttarlið.
Ekkert er unnt að segja hver áhrif-
in verða með því að hækka frá-
dráttarbærnina úr 0,5% í 0,75%.
Það verður í fyrsta sinn við álagn-
ingu lögaðila gjaldárið 2016 fyrir
rekstrarárið 2015 sem það kemur
til framkvæmda,“ segir hann.
Rúmar heimildir til frádráttar
Vala Valtýsdóttir, lögfræðingur
og sviðsstjóri skatta- og lögfræði-
sviðs Deloitte, segir erfitt að átta
sig á hvort fyrirtæki muni í auknum
mæli hækka framlög sín til góð-
gerðarmála í framhaldi af breyting-
unum og líklegt að sum fyrirtæki
hafi ekki vitneskju um þetta. „En
það er ýmislegt sem getur fallið
undir góðgerðarmál samkvæmt
reglugerð sem var upphaflega gefin
út árið 1994. Frádráttarheimildin
nær ekki einungis til hefðbundinna
góðgerðarmála eins og líknarstarf-
semi, trúfélaga, stjórnmálafélaga,
menntamála og rannsóknarstarfs
heldur einnig til byggingar skóla-
húsa, íþróttamannvirkja og íþrótta-
starfsemi. Það er því ýmislegt sem
getur fallið þarna undir sem er
meira en það sem ákvæðið í tekju-
skattslögunum segir til um.“
Hún segir því líklegt að fyrirtæki
átti sig ekki á því hversu rúmt
þetta er og nýti sér það ekki til frá-
dráttar frá tekjum.
Þá hefur verið gerð breyting á
erfðafjárskattslögum sem snýr að
gjöfum til félagasamtaka og sjálfs-
eignarstofnana sem starfa að al-
mannaheillum. Vala segir að þar sé
um að ræða að slíkar gjafir séu
undanþegnar erfðafjárskatti sem
annars væri skattlagt í 10%. „Það
ætti því einnig að koma þeim sem
starfa að almannaheillum til góða,“
segir hún.
Rekstraraðilar veittu 2,8
milljarða til góðgerðarmála
Morgunblaðið/Rósa Braga
Skattar Fyrirtæki hafa nú heimild til að draga hærra hlutfall frá tekjum vegna framlaga til góðgerðarmálefna.
Gjafir frá 5.778 aðilum Frádráttur vegna framlaga hækkar úr 0,5% í 0,75%
þá ákvörðun til fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins í október 2011
og aftur í febrúar 2015 og nú er það
loksins staðfest að við getum rekið
tollvörugeymslu hjá okkur,“ segir
Andri.
Í leyfisveitingu tollstjóra kemur
fram að tollafgreiddar og ótoll-
afgreiddar vörur skuli vera sér-
staklega aðgreindar í húsnæði Öl-
gerðarinnar og að tollstjóra verði
tryggður aðgangur að eftirliti með
vörunum.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hef-
ur fengið leyfi tollstjóra til reksturs
tollvörugeymslu fyrir ótoll-
afgreiddar vörur. Fyrirtækið ósk-
aði fyrst eftir slíku leyfi fyrir sjö ár-
um.
Andri Þór Guðmundsson, for-
stjóri Ölgerðarinnar, segir að vinna
við uppsetningu frísvæðis hjá Öl-
gerðinni hafi hafist árið 2008.
„Þremur árum síðar sóttum við um
leyfi til reksturs tollvörugeymslu,
sem tollstjóri hafnaði. Við kærðum
Ölgerðin fær leyfi fyrir tollvörugeymslu
Tók sjö ár að fá leyfi tollstjóra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tollur Andri segir að vinna við uppsetningu frísvæðis hafi hafist árið 2008.
● Capacent hefur nú hafið áskriftar-
sölu á greiningum á hlutabréfum og
skuldabréfum, verðbólguspám sem og
greiningum á ákveðnum atvinnugrein-
um. Nokkrum dögum eftir að grein-
ingar hafa verið afhentar til áskrifenda
verða þær birtar á opnu svæði á
heimasíðu Capacent.
Í nýrri verðbólguspá greiningar-
deildar Capacent er því spáð að vísi-
tala neysluverðs lækki um 0,8% í jan-
úar. Ef spáin gengur eftir lækkar 12
mánaða verðbólgan úr 2% í 1,9%.
Verðbólga síðasta árs var 1,6% að
meðaltali og þarf að fara aftur til árs-
ins 1994 til að finna lægri verðbólgu,
segir í greiningu Capacent. Á síðustu
60 árum hefur verðbólgan tvisvar
verið lægri, árið 1994 þegar hún var
1,5% og árið 1959 þegar hún var
1,3%.
Verðbólgan á síðasta ári
sú lægsta í yfir 20 ár
!!
"#
"#
$%#
#$!
!#
"
$!
!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
#$
%
#
!
#
%
"$$
$
!%
!
"
$
!
#%
""
$%
#$
"
● Gengi allra
skráðra félaga á
aðalmarkaði Kaup-
hallarinnar lækk-
uðu í gær og féll
úrvalsvísitalan um
3,33%. Mest lækk-
uðu bréf Icelandair
Group um 4,10%
og Marel um
4,04%, auk þess
sem bréf í Síman-
um lækkuðu um 3,37%. Minnst var
lækkunin hjá fasteignafélögunum
Reitum, Regin og Eik, en gengi þeirra
fór niður um 1,19-1,55%.
Heildarvelta gærdagsins á hluta-
bréfamarkaðnum var 3,2 milljarðar
króna. Mest viðskipti voru með bréf Ice-
landair Group eða 1,25 milljarðar króna.
Árið 2016 fer ekki vel af stað á hluta-
bréfamarkaði og hefur úrvalsvísitalan
lækkað um 5,45% frá áramótum.
Öll félög í Kauphöllinni
lækkuðu verulega í gær
Rauður dagur í
Kauphöllinni.
STUTTAR FRÉTTIR ...
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma