Morgunblaðið - 15.01.2016, Side 20

Morgunblaðið - 15.01.2016, Side 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 VINNINGASKRÁ 37. útdráttur 14. janúar 2016 69 9942 18676 29977 39359 50086 61024 72060 724 10829 19093 29989 39444 50113 61128 72127 750 10939 19126 30056 39661 50238 61589 72364 1020 11363 19232 30592 39698 50579 62007 72729 2052 11428 19424 30757 39795 50644 62077 72768 2078 11635 19525 31080 40056 50794 62110 73326 2186 11734 19684 31157 40293 51182 62726 73725 2422 12337 19787 31294 40403 51346 63159 74172 2638 12343 20225 31448 40427 51983 63499 74987 3437 12346 20440 31537 40770 52774 63788 75010 3499 12458 20498 31597 41612 53011 63850 75116 3522 12953 20772 32301 42203 53339 63956 75342 3558 13146 20859 32388 42539 53615 63982 75374 3569 13533 21389 32422 43089 54391 64207 75472 3577 13552 21486 32692 43183 54547 64414 75796 4182 13725 21663 32753 43473 55591 64608 75806 5482 13915 21760 33197 43706 55714 64995 76412 5961 15167 21884 33255 43929 56371 65146 76501 6319 15242 22546 33876 44129 57232 65328 76888 6433 15934 23030 34441 44547 57359 65454 77334 6510 15960 23260 34917 44752 57740 66798 77516 6863 16001 23954 34973 45926 57952 67237 77684 7277 16127 24082 35078 46229 57998 67696 77693 7401 16560 24137 35275 46613 58003 67762 77839 7745 17041 24224 35674 47237 58283 67962 78022 7880 17053 24287 35889 47505 59142 68049 78363 8564 17284 24315 36041 47613 59569 68204 78436 8584 17569 24328 36228 48147 59628 68216 78599 8656 17664 25373 36250 48540 60001 68387 79289 8761 17667 26068 36475 48560 60350 69452 79810 8922 17693 27144 37694 48707 60407 69841 79906 9017 17808 27589 37806 48762 60596 69945 9036 17839 28419 38664 49063 60640 70872 9455 17874 28587 38772 49358 60758 71265 9614 17993 28944 39099 49916 60924 71702 9718 18489 29557 39127 49965 60998 71781 9741 18591 29868 39233 50051 61018 71820 292 9530 18580 26330 42430 49116 60509 69178 2048 9899 18776 27430 43230 49293 60748 69603 2166 12618 19630 27802 44210 49868 61233 70285 2553 13565 19793 27880 44439 50631 62345 71383 3174 13893 21106 28698 44672 52660 62612 72544 3221 14617 21630 29597 45014 52672 63975 76620 3647 15080 21818 30129 45209 54428 64323 76822 3664 15192 22185 30196 45328 54430 65649 77832 4910 15316 22444 30589 45440 54784 65837 78945 5269 15523 25261 31259 46077 57551 66604 5415 17439 25424 32759 46404 58430 68567 6052 17515 25778 39799 46968 58650 68605 8399 18495 25788 41108 47609 60058 68850 Næstu útdrættir fara fram 21. & 28. janúar 2016 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 34816 51327 53533 58608 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 9795 18644 27903 40415 55981 66082 10459 23070 30974 45672 62008 66618 11670 23148 34227 48839 65428 74173 14126 26331 36010 49440 65787 78706 Aðalv in ingur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 1 5 4 1 2 Moskvu. AFP. | Rússinn Kirsan Ilj- úmzhínov, forseti Alþjóðaskák- sambandsins (FIDE), var í nánum tengslum við einræðisherrana Muammar Gaddafi og Saddam Hussein áður en þeir voru teknir af lífi og nú hafa bandarísk stjórnvöld sett hann á svartan lista vegna tengsla hans við Bashar al-Assad, einræðisherra í Sýrlandi. Iljúmzhínov hefur verið forseti FIDE í tvo áratugi en þurfti að láta af störfum að mestu í desember eftir að hann var settur á lista bandaríska fjármálaráðuneytisins yfir þá sem refsiaðgerðir Bandaríkjastjórnar ná til. „Þessar refsiaðgerðir eru verð- laun,“ sagði Iljúmzhínov í viðtali við AFP. „Það komast ekki allir á svona lista.“ Vinmargur búddisti Iljúmzhínov er 53 ára að aldri og hefur verið mjög umdeildur vegna ýmissa hneykslismála og furðulegra uppátækja frá því að hann var kjör- inn forseti FIDE árið 1995. Hann hafði þá auðgast á bankastarfsemi og rekstri bílafyrirtækis eftir hrun Sovétríkjanna. Hann er búddisti og á árunum 1993 til 2010 var hann for- seti Kalmykíu, eina rússneska lýð- veldisins þar sem búddistar eru í meirihluta. Á vegg á skrifstofu hans í Moskvu er mynd af Dalai Lama, leiðtoga tíbeskra búddista. Bandaríska fjármálaráðuneytið sakar Iljúmzhínov um að hafa veitt einræðisstjórn og seðlabanka Sýr- lands aðstoð og bannað öllum ein- staklingum og fyrirtækjum, meðal annars bönkum, að eiga viðskipti við hann. Hann segist hafa haft „mjög góð samskipti“ við leiðtoga einræðisstjórnarinnar og farið reglulega til Sýrlands síðustu tvo áratugina, meðal annars til að standa fyrir skákmótum ungmenna. Hann kveðst hafa rætt við Assad í þrjár klukkustundir árið 2012 og einræðisherrann hafi þá talað um skákiðkun sína þegar hann var námsmaður í London. „Ég á vini í Líbíu, Sýrlandi, Írak, Frakklandi, Bandaríkunum, og ég leyni því ekki,“ segir Iljúmzhínov. „Ég ætla að fara aftur til Damaskus til að kynna mér hvernig ástandið er þar.“ Lengir sólarhringinn í 25 klukkustundir Kirsan Iljúmzhínov kveðst ætla að höfða mál gegn Bandaríkjastjórn og krefjast skaðabóta að andvirði 50 milljarða dala, 6.500 milljarða króna, vegna refsiaðgerðanna gegn honum. Hann segir að markmiðið með að- gerðunum hafi verið að koma höggi á Rússa og valda honum álitshnekki. Iljúmzhínov hefur verið mjög um- deildur í skákheiminum. Á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt hann eru Anatolí Karpov, sem bauð sig fram gegn honum í forsetakjöri FIDE ár- ið 2010, og Garrí Kasparov, mót- frambjóðandi hans fjórum árum síð- ar. Ýmis ummæli Iljúmzhínovs hafa vakið mikla athygli. Hann hefur m.a. haldið því fram að dularfullar verur frá annarri plánetu, klæddar gulum geimbúningum, hafi rænt honum ár- ið 1997. Hann kveðst hafa átt 69 líf vegna endurfæðinga og geta lengt „sólarhringinn í 25 klukkustundir“ með íhugun. Forseti FIDE hefur lagt lag sig við nokkra af illræmdustu einræðis- herrum heimsins, m.a. Saddam Hussein og Muammar Gaddafi, auk Assads. Þegar herþotur NATO gerðu árásir á Trípólí í júní 2011 fór Iljúmzhínov til líbísku höfuðborgar- innar í því skyni að tefla við Gaddafi og sæma hann titlinum „alþjóðlegur stórmeistari“ í skák. „Við Gaddafi undirrituðum samning um skák- fræðslu í skólum,“ segir Iljúmzh- ínov. „Hvað er að því? Mér þótti mikið til hans koma. Vissir þú að hann orti ljóð?“ Lítur á sig sem boðbera friðar Iljúmzhínov varð skákmeistari Kalmykíu fjórtán ára gamall og seg- ist hafa notað auð sinn til að efla skáklistina í heiminum og í þágu búddisma í stað þess að eyða pen- ingum í lystisnekkjur og herragarða á frönsku rívíerunni. Hann lítur á sig sem boðbera friðar og líkir sér við framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon. „Ef menn vilja frið þurfa þeir að taka þátt í gagnvirkum samskiptum,“ segir hann. „Ég tel að leysa eigi allt við skákborðið og með samninga- viðræðum.“ Iljúmzhínov neitar því að hann sé vinur Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands, og segist ekki hafa verið í nánum tengslum við rússnesku stjórnina eftir að hann lét af emb- ætti forseta Kalmykíu árið 2010. „Við erum samstarfsmenn,“ segir hann um Pútín. „Ég drekk ekki te með honum á hverjum degi.“ Iljúmzhínov sigraði Kasparov í forsetakjöri FIDE árið 2014 með 110 atkvæðum gegn 61 og sakaði keppinaut sinn um að byggja mót- framboðið á andúð á rússneskum stjórnvöldum. Kasparov, sem hefur gagnrýnt stjórnvöld í Kreml, hefur aftur á móti sakað Iljúmzhínov um spillingu og sagt hann hafa laumað peningum FIDE til leyniþjónustu Rússlands, en Iljúmzhínov neitar þeirri ásökun. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur einnig sakað Ilj- úmzhínov um að vera viðriðinn smygl á olíu frá Ríki íslams, sam- tökum íslamista í Sýrlandi, eftir að stjórnvöld í Rússlandi sökuðu fjöl- skyldu tyrkneska forsetans um að tengjast ólöglegum innflutningi á olíu frá íslamistunum. Iljúmzhínov segir að FIDE ætli að gera árið 2016 að „ári skákar- innar“ í Bandaríkjunum og kveðst vera að íhuga þann möguleika að koma þar á fót stofnun sem hafi það að markmiði að stuðla að lýðræði. „Ég lít ekki svo á að Bandaríkja- menn séu á móti mér,“ segir hann. „Ég styð Bandaríkjamenn. Þeir færðu mér refsiaðgerðir, ég færði þeim 30 skákmót.“ Þeir færðu mér refsiað- gerðir, ég færði þeim skák  Forseti FIDE hyggst höfða mál gegn Bandaríkjastjórn AFP Hefur átt 69 líf Kirsan Iljúmzhínov, forseti FIDE, er á svörtum lista í Bandaríkjunum vegna tengsla hans við einræðisherra Sýrlands. Yfirvöld í Chiayi-sýslu á Taívan hafa látið reisa sautján metra háa skólaga byggingu sem þau vona að verði vinsæll ferðamannastaður. Byggingin nefnist „skókirkjan“ og yfirvöldin vonast til þess að hún laði að brúðhjón og önnur ástfangin pör sem láti taka myndir af sér fyr- ir framan hana. „Við höfum trú á að að hún verði vinsæll viðkomustaður ferðamanna,“ hefur AFP eftir tals- manni ferðamálayfirvalda í sýsl- unni. „Hönnunin er einstök. Flestar brúðir hafa dálæti á háhæluðum skóm og ég tel að þær hrífist af þessari byggingu. Reyndar höfum við þegar fengið margar fyrir- spurnir í síma um hvenær bygg- ingin verði opnuð.“ Hún verður opnuð 8. febrúar.AFP Vona að skó- kirkjan laði að brúðhjón Yfirvöld hafa handtekið yfirmann fangelsa í Komi-héraði í norðurhluta Rússlands vegna gruns um að hann hafi stolið 50 kílómetra löngum vegi. Embættismaðurinn Alexander Protopopov hefur verið ákærður fyrir að hafa látið taka steinsteyptar hellur af veginum og síðan selt þær fyrirtæki sem seldi þær einnig með hagnaði. Vegurinn var úr meira en 7.000 hellum og þær voru fjarlægðar á um tólf mánaða tímabili sem lauk á síðasta ári. Protopopov á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur um stuldinn. Talið er að stuldurinn hafi kostað rússneska ríkið rúm- ar sex milljónir rúblna, jafnvirði rúmra tíu milljóna króna. Saksóknarar segja að fleiri starfsmenn fangelsa í héraðinu séu grunaðir um aðild að stuldinum og einn þeirra hafi þegar verið handtekinn. Handtekinn fyrir að stela vegi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.