Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
1
6
0
0
0
1
www.kadeco.is
Fjöldi annarra eigna er til sölu eða leigu á Ásbrú.
Ellefu 115 m2 íbúðir. Allar í útleigu.
Sjö íbúðir 103–150m2 sem þarfnast endurbóta
og frágangs.
Skrifstofuhúsnæði í tveimur álmum. Góð staðsetning
í nálægð við Háaleitishlað Keflavíkurflugvallar.
Átta 160 m2 raðhúsaíbúðir á góðum stað.
Stálgrindarhúsmeð tveimur iðnaðarhurðum í
sitthvorum enda.
Fyrrum viðhaldsverkstæði. Í byggingunni eru
klefar og búnaður til bílasprautunar.
Byggingin er með 24 einstaklingsíbúðum. Hver íbúð
er tæplega 54 fermetrar og samanstendur af stofu,
svefnherbergi og baðherbergi.
Átta íbúðir 103–110m2 sem þarfnast endurbóta
og frágangs.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
REYKJANESBÆR
ÁSBRÚ
REYKJAVÍK
Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun
eignanna, t.d. hvaða áhrif sú nýting hefur á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og áhrif tiltekinnar nýtingar á nærsamfélagið.
Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem talið er
hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum eða hafna öllum.
BOGATRÖÐ • 1 • 2 • 4 • 10 • 10A •13 • 15 • 17 • 23 • 25 • 31 • 33 BORGARBRAUT • 953 • 960-963 • 962 BREIÐBRAUT • 643-647 • 643R •668-669 • 668R •670 • 671-679 • 671R •672 • 673 • 674 • 675
FERJUTRÖÐ • 9 FLUGVALLARBRAUT • 701 • 710 • 732 - 736 • 749• 740 • 752 • 755• 770• 771• 773• 778• 790 • 937 • 941 GRÆNÁSBRAUT • 501 • 506 • 602-614 • 602R •603-607603R604-606 • 604R
619 •700 • 920 • 999 HEIÐARTRÖÐ 517 KEILISBRAUT • 745 • 747-748 • 747R •749 • 750-751 • 750R •753• 755 • 762 • 770-778 • 770R •771 • 773 KLETTATRÖÐ • 19A LINDARBRAUT600 •624 • 635
636 •634R •639 SKÓGARBRAUT • 914• 915• 916-918• 917• 919•923•914•916-918•916R•921• 922• 923• 924• 925• 932•946•945 SUÐURBRAUT • 758•759 VALHALLARBRAUT • 738•743•744
756-757•756R•763-764•763R
Viltu fjárfesta á vaxtarsvæði?
Fjöldi fasteigna af öllum stærðum og gerðum er til sölu eða leigu á Ásbrú. Meðal annars mikið af nýuppgerðu íbúðarhúsnæði
og spennandi iðnaðarhúsnæði. Þá er einnig mikið landrými á svæðinu sem er óráðstafað undir byggingar eða önnur mannvirki.
Margar eignanna eru nú þegar í útleigu en allar eru þær áfram til sölu. Þú getur skoðað þær nánar á kadeco.is
BOGATRÖÐ 23 2114
BREIÐBRAUT 672
GRÆNÁSBRAUT 605
BREIÐBRAUT 675
FLUGVALLARBRAUT 740
BREIÐBRAUT 671 STÆRÐ: 1360 M2
STÆRÐ: 1700 M2
STÆRÐ: 1193 M2
STÆRÐ: 370 M2 STÆRÐ: 1428 M2 STÆRÐ: 110 M2-150 M2
STÆRÐ: 1500 M2 STÆRÐ: 1014 M2
LINDARBRAUT 635
BOGATRÖÐ 1
Talið er að samtök íslamista, sem kalla sig Ríki íslams,
hafi staðið fyrir sprengju- og skotárásum í miðborg
Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, í gær. Að minnsta
kosti tveir óbreyttir borgarar, Indónesi og Kanada-
maður, létu lífið í árásunum. Fimm árásarmenn biðu
einnig bana, þrír í skotbardaga við lögreglumenn og
tveir þegar þeir sprengdu sig í loft upp. Að minnsta
kosti tuttugu særðust. Fyrsta sprengjuárásin var gerð
á Starbucks-kaffihús nálægt verslunarmiðstöð og átök-
in stóðu í nokkrar klukkustundir. Lögreglumenn skýla
sér hér á bak við bíl þegar leitað var að árásarmönn-
unm.
Árásirnar voru gerðar í verslunar- og skrifstofu-
hverfi í miðborginni. Þar eru meðal annars skrifstofur
Sameinuðu þjóðanna og einnig mörg sendiráð. Frétta-
stofa, sem tengist Ríki íslams, sagði að árásirnar hefðu
beinst að útlendingum í borginni og öryggisvörðum
þeirra. Lögreglustjóri Jakarta sagði að Indónesinn Ba-
hrun Naim, sem talið er að sé nú í Sýrlandi, hefði skipu-
lagt árásirnar. Talsmaður ríkislögreglu Indónesíu
sagði að grunur léki á að indónesískur hryðjuverka-
hópur, sem tengist Ríki íslams, hafi verið að verki.
Árásarmennirnir hafi líkt eftir árásunum í París í nóv-
ember þegar 130 manns biðu bana.
Talið er að um 200 Indónesar hafi farið til Sýrlands í
því skyni að berjast með Ríki íslams.
AFP
Íslamistar gerðu árásir í Jakarta
Alþjóðaheil-
brigðismála-
stofnunin (WHO)
tilkynnti form-
lega í gær að
ebólufaraldrinum
í Vestur-Afríku
væri lokið. Nær
29.000 manns
smituðust af
sjúkdómnum á
tveimur árum og
vitað er um 11.315 dauðsföll af völd-
um hans. Líklegt þykir þó að þau
hafi verið mun fleiri vegna þess að
talið er að margir hafi dáið úr ebólu
án þess að hafa verið greindir með
sjúkdóminn.
Faraldurinn hófst í Gíneu í des-
ember 2013. Veiran breiddist ört út í
þremur löndum, Gíneu, Líberíu og
Síerra Leóne, sligaði heilbrigðis-
kerfi landanna og olli þeim miklu
efnahagstjóni.
Manntjónið var mest í Líberíu þar
sem að minnsta kosti 4.800 manns
dóu úr ebólu. Tveir síðustu ebólu-
sjúklingarnir voru útskrifaðir af
sjúkrahúsi í Líberíu 3. desember síð-
astliðinn.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði að búast
mætti við einangruðum ebólu-
tilvikum á árinu en talið væri að
hættan á slíkum tilvikum minnkaði
með tímanum.
Ebólu-
faraldri
lokið
Kostaði minnst
11.300 manns lífið
Læknir í Síerra
Leóne.
Bretinn Robert
Lawrie, 49 ára
fyrrverandi her-
maður, slapp við
fangelsisdóm
fyrir að reyna að
lauma fjögurra
ára afganskri
stúlku úr flótta-
mannabúðum í
Frakklandi. Dómstóll í borginni
Boulogne-sur-Mer dæmdi Lawrie
til að greiða 1.000 evrur í sekt ef
hann endurtæki brotið. Lawrie
kynntist stúlkunni þegar hann var
við hjálparstörf í búðunum og féllst
á beiðni föður hennar um að smygla
henni til ættingja hennar í Leeds.
FRAKKLAND
Bretinn slapp við
fangelsisdóm
Yfirvöld í Túrk-
menistan hafa
neytt verslanir til
að hætta að selja
sígarettur eftir
að forseti lands-
ins, Gurbanguly
Berdymukhame-
dov, krafðist
„umfangsmikilla
aðgerða til að uppræta reykingar“
á ríkisstjórnarfundi 5. janúar. Síðan
þá hafa verslanir aðeins selt
„tryggum viðskiptavinum“ sígar-
ettur undir borðið og fíkniefna-
lögreglumenn hafa skipað kaup-
mönnum að fjarlægja sígarettur úr
hillum og hótað þeim háum sektum.
Stjórnin hefur þó ekki tilkynnt síg-
arettubann opinberlega.
TÚRKMENISTAN
Yfirvöld stöðva
sölu á sígarettum