Morgunblaðið - 15.01.2016, Side 31

Morgunblaðið - 15.01.2016, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 Ógleymanleg er ferð okkar frændanna norður á Sigló í febr- úar 2011. Við vorum þarna 15 stykki af ætt Jóhannesar Finn- bogasonar frá Heiði. Þannig hátt- aði að afi minn Jón Jóhannesson og amma þeirra Nonna, Helga Jó- hannesdóttir, voru systkini og svo voru Jón Gíslason afi þeirra Nonna og Guðlaug Gísladóttir amma mín systkini. Líffræðingur- inn Konni Þóris hafði reiknað það út að þessi skyldleiki gæfi mér þá stöðu í frændahópnum að ég væri í raun hálfbróðir þeirra. Það leidd- ist mér ekki. Það er sannast frá því að segja að þessi ferð varð ein skemmtun út í gegn. Haft var á orði að þarna hefði þurft að vera tæknimaður á launum til að taka upp allar þær óborganlegu sögur sem sagðar voru og þar dró Nonni ekki af sér. En Konni bætti úr því og kom þessu á mynddisk kom- andi kynslóðum til skemmtunar. Að leiðarlokum langar mig og okkur í Merkismönnum að bera fram þakkir fyrir samveruna, heimsóknirnar, spjallið, vísdóm- inn og gleðina. Heiðu og krökkunum sendi ég alla mína samúð. Gunnar Trausti. Jón Þórisson leikmyndahönn- uður var í hópi þeirra sem gerðu gömlu Iðnó að töfrahöll leiklistar við hlið Þjóðleikhússins áður en hugsjónafólki Leikfélags Reykja- víkur lánaðist að komast í aðra stærri höll, Borgarleikhúsið. Hann var kornungur sviðsmaður í Iðnó, í námi við leikmyndagerð, þegar traust ævivinátta okkar hófst, og hafði þann starfa meðal annars að draga gamaldags svið- stjaldið frá og fyrir með handafli á leiksýningum. Því var hann nefndur Jón mínus meðal okkar samstarfsmanna. Það ríkti alltaf mikil gamansemi í afar þröngum húsakosti í elsta leikhúsi höfuð- staðarins, gömlu Iðnó við Tjörn- ina, sem allan fyrri hluta síðustu aldar var aðalleikhús borgarinnar – eða þar til Þjóðleikhúsið tók til starfa. Þar voru miklir húmoristar einatt saman komnir og til urðu sögur sem kallaðar voru Iðnó- brandarar. Jón Þórisson kunni vel að fara með þá og reyndar margt annað minnisvert frá Iðnó-árun- um. Smæð leiksviðsins kallaði til að mynda á mikið úrlausnahugvit þeirra listamanna sem hönnuðu leikmyndir í öll þau ár sem Leik- félag Reykjavíkur átti sitt höfuð- ból í Iðnó og síðan sýndu sviðs- menn ótrúlega snilld við að leysa skiptingar á leiktjöldum milli þátta í leiksýningum. Jón okkar mínus kunni um það ótal sögur sem hann sagði af mikilli list, m.a. þegar litla húsið á Tjarnarbakk- anum þóttist vera svo miklu stærra en það var og þeim töfra- brögðum beitt, þegar þurfti að skipta um sviðsmynd, að leik- mynd í einhverjum þætti leiksýn- ingar var rennt út í port bak við hús, með óútskýranlegum aðferð- um til að skýla henni í öllum veðr- um og þar falin þar til í næsta at- riði að hún var hífð inn aftur til að gegna áfram hlutverki í leiksýn- ingunni. Þannig varð portið bak við Iðnó að hringsviði leikhússins. Mér er sérstaklega ljúft að minnast samstarfs okkur Jóns á Listahátíð 1976 þegar Leikfélag Reykjavíkur setti upp Söguna af dátanum með tónlist Igors Stra- vinskys – með lifandi tónlist sem þótti stórafrek þá. Jón stóð fyrir sviðsmynd, sem var í senn einföld og áhrifarík í anda verksins. Við höfðum spurnir af því að Nína Tryggvadóttir listakona hefði í New York gert leikmynd fyrir sýningu þar og okkur tókst með ærinni fyrirhöfn að fá þær myndir lánaðar hingað heim og höfðum á Listahátíð í Reykjavík 1976 sýn- ingu á þessum sviðsteikningum í rýminu aftan við áhorfendasalinn. Það var í fyrsta sinn – og senni- lega hið eina – sem myndlistar- sýning var haldin í tengslum við leiksýningu í gamla leikhúsi Leik- félags Reykjavíkur í Iðnó. Fastast situr þó í minni síðasta samstarfsverkefni okkar Jóns Þórissonar. Hann fól mér fyrir tæpum fimm árum, þegar Ljóða- setrið á Siglufirði var stofnað, að færa setrinu ljóðabókina Hrannir eftir Einar Benediktsson, frum- eintak sem hann og systkini hans höfðu eignast. Með bókinni fylgdi bréf sem skýrir frá því að móðir hans, Hrönn, var skírð eftir þess- ari ljóðabók og fyrst til að bera það nafn á Íslandi. Ég sakna Jóns Þórissonar, hlýs viðmóts hans og hógværrar gamansemi og votta Heiðu, Steindóri Grétari, Mar- gréti Dórótheu og fjölskyldunni allri innilegan samhug. Vigdís Finnbogadóttir. Þegar ég var unglingur norður á Sigló var heimsókn til Reykja- víkur viðburður og tilhlökkunar- efni. Fyrst og fremst vegna þess að þá fengi ég að gista hjá móð- ursystur minni, Nönnu, í húsinu við Vitastíg en þá voru þeir á heimilinu bræðurnir Nonni og Konni, með herbergin sín ógleym- anlegu með öllum hljómsveita- myndunum og plakötunum. Heimilið var eins og umferðar- miðstöð, slíkur var gestagangur- inn. Umferðin var hvað þyngst til þeirra bræðra. Það vildi svo til að ég þekkti marga gestina, að vísu bara í sjón og úr sjónvarpinu, því þar voru komnar poppstjörnur og listaspírur þess tíma sem áttu er- indi við þá bræður. Þeir voru í hringiðunni miðri og ég áttaði mig á því að það skipti máli fyrir stór- stjörnurnar hvað þeim bræðrum fannst og lögðu til. Einu sinni birt- ist uppáhaldshljómsveit mín, Tat- arar, með eitthvað frumsamið. Ég sat allt í einu á tónleikum Tatara með Nonna í bakgarðinum á Vita- stígnum. Hljómsveitarfélagar mínir á Sigló töldu mig yfirdrifinn þegar ég sagði þeim frá stór- mennunum sem ég hitti á Vita- stígnum hjá þeim Nonna og Konna. Það var líka mikil upplifun að fara niður á Sjónvarp á Suður- landsbrautinni og fá að sjá Nonna frænda hanna og pæla með öllum þessum stjörnum sem ég hafði séð í svarthvíta sjónvarpinu norður á Siglufirði; Halla og Ladda, Óla Ragnars … Ég var stoltur af frænda teiknandi niðri í leikhúsi og að leysa hluti og búa til undra- veröld á sviðinu. Sjálfur fór ég í það sama starf og Nonni frændi. Hef verið að teikna og hanna alla mín starfsævi og er stoltur af því. Síðustu ár höfum við unnið nokk- ur verkefni saman og oft hringdi ég í frænda og bað um ráð – þá sagði frændi: „Bíddu aðeins, leyfðu mér að hugsa – verð í bandi.“ Nonni hefur verið primus mot- or á samkomum og ferðalögum okkar systkinasonanna. Alltaf jafn ljúfur og glaður. Góður vinur og hlustandi. Þegar Nonni fór í gang með sögur og gamanmál þurfti ekki leikmynd og leiktjöld. Frásögnin var líflegt leikrit þar sem Nonni mannaði öll hlutverk- in, hermdi eftir og túlkaði af inn- lifun Birgir Ingimarsson og frændur. Árið 2011 átti ég því láni að fagna að kynnast Jóni Þórissyni leikmyndahönnuði er við unnum saman nokkra mánuði að verkefni í Kvennaskólanum á Blönduósi. Jón hafði þá starfað þar við hönn- un innanstokks og uppsetningu sýninga að frumkvæði hugsjóna- manna um viðhald og framtíð þess sögufræga húss. Þar er nú Þekk- ingarsetrið á Blönduósi til húsa og blómleg starfsemi. Þannig var mál með vexti að Þekkingarsetrið hafði þegið ýmis gögn og skjöl úr mínum fórum, einkum er varðaði hafís og leiðangra þá á norður- slóðir sem ég hafði tekið þátt í um ævina. Eins konar undanfari þessa var stofnun Hafíssetursins á Blönduósi fimm árum áður og hafði ég þá mér til ánægju og fróð- leiks unnið að uppsetningu þess í samvinnu við annan snilling á sviði hönnunar leikmynda og sýninga, Björn G. Björnsson. Mér hafði nú veist sá heiður að ákveðið var að setja upp veggspjöld um hafís, hafísrannsóknir og leiðangra mína í allstóru herbergi í Kvenna- skólabyggingunni og stilla þar jafnframt upp munum og viðeig- andi bókum er ég átti. Jón Þórisson tók ljúfmannlega í þá beiðni að bæta þessu verki við í hönnunarvinnu sinni við Kvenna- skólann. Við ræddum fyrst saman í síma en 4. júlí 2011 mæltum við okkur mót í gryfju Kaffitárs í Kringlunni og gaumgæfðum sam- an vel ígrunduð drög Jóns að „Þórsstofu“ sem herbergið var nefnt og hefur það síðan verið vel nýtt sem fundar- og fyrirlestrasal- ur Þekkingarsetursins. Skemmst er frá að segja að þessi tveggja tíma fundur okkar Jóns í Kaffitári var einstaklega ánægjulegur og gagnlegur. Skipt- umst við síðan á skeytum og fund- uðum nokkrum sinnum næstu mánuði heima hjá mér. Jón var glaðlyndur maður, fróður og hugmyndaríkur. Hann reyndist auðvitað þaulreyndur og fær á sínu sviði og varð að því er virtist ekki skotaskuld úr því að hrista fram úr erminni skilmerki- lega og fallega sýningu til prýði í eina stofu. En eftirtektarvert var hve fjölfróður Jón var um efnið fyrir og síðan fljótur að koma auga á það frásagnarverða í óreiðu upplýsinga og útskýringa sem ég hafði fram að færa. Þórs- stofu var síðan hrundið af stokk- unum með fræðilegu málþingi 16. október 2011. Með þessari stuttu upprifjun læt ég í ljós við andlát og útför Jóns Þórissonar þakklæti fyrir að hafa orðið þess aðnjótandi að kynnast honum og vinnulagi hans. Verkefni það sem hér er sagt frá er vissulega fyrirferðar- lítið miðað við stórvirki Jóns um dagana en hugur og hönd meist- arans leynir sér ekki í hinum minni viðfangsefnum. Skylt er mér og ljúft að minnast með þökk góðra og eftirminnilegra kynna við Jón Þórisson. Ragnheiði konu hans og fjölskyldu er vottuð sam- úð á sorgarstundu. Þór Jakobsson. Vinur okkar Jón Þórisson hef- ur dregið tjaldið fyrir í síðasta skiptið og kvatt okkur alltof fljótt, en minningin um góðan dreng mun lifa. Söknuðurinn er mikill hjá fjölskyldu og vinum. Við vott- um okkar dýpstu samúð konu hans og fjölskyldu sem og öllum ástvinum. Við biðjum Guð að blessa þau öll í þeirra sorg. Guð blessi og varðveiti fallega minn- ingu Jóns Þórissonar. Sofðu, litli ljúfur, ljósið dagsins þverr. Ofan af heiðum angan blæ inn um gluggann ber. Drottning dags þig leiðir draums um gullin torg. Nóttin, móðir manna mildar hverja sorg. Ský á vinda vængjum veglaust þreyta flug. Sólin frækorn fagurs draums felur þér í hug. Vaxa þar á viði vonablómin skær. Nóttin, móðir manna er mörgu hjarta kær. Hún býr hæga rekkju hverri þreyttri sál. Hún á bak við húmdökk ský heitrar sólar bál. Þangað sál þín, sonur sækir nýjan þrótt. Miskunn manni þjáðum ber móðir okkar, nótt. (Kristján frá Djúpalæk) Björgvin Halldórsson og fjölskylda. Kæri vinur, hvíl í friði. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Elsku Heiða, Steindór, Mar- grét, Kristjana og Jón Geir. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Björg og Gary, James og Jo, Maggý, Paul og Fjóla Rose. Mig langar að minnast vinar míns Jóns Þórissonar með örfáum orðum. Við Jón höfum þekkst í marga áratugi og þá aðallega í gegnum sameiginlegan vinahóp okkar. Margir eiga eflaust eftir að minnast Jóns og geta hans mörgu og mikilfenglegu verka en ég ætla að láta nægja persónuleg kynni okkar. Jón var afar skemmtilegur maður, hafði mikinn og góðan húmor og minnist ég margra stunda þegar við gátum skemmt okkur konunglega yfir skondnum frásögnum eða minnisverðum til- vitnunum. Frasar og setningar úr sögum og bókmenntum voru okk- ur uppspretta þessarar glettni og spaugs. Ein þessara setninga, „stendur í brekku Brúsaskeggur og bíður mín þar“, rataði meira að segja í fallegt myndverk sem Jón gerði og færði okkur hjónum af sérstöku tilefni. Mér finnst ég enn geta heyrt dillandi hláturinn hans Jóns þegar einhver skondin frá- sögn eða atvik var rifjað upp. Þær eru svo margar og góðar minningarnar sem ég á um hann Jón minn en aðeins eitt orð á ég til að lýsa manninum. Jón Þórisson var öðlingur í þess orðs fyllstu merkingu. Ég færi Ragnheiði, Steindóri og Margréti mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hjörtur Örn Hjartarson. Gull af manni. Öðruvísi er ekki hægt að lýsa Jóni „mínus“ Þór- issyni, sem teygði líf sitt yfir á nýtt ártal en lést 1. janúar 2016, bara svona til að menn haldi að hann hafi „ekki dáið of snemma“ eins og hann hefði orðað það. Hví- lík firra. Hann fór allt of fljótt. Það finnst manni alltaf þegar góðir menn eða konur fara um aldur fram. Jón hefur verið einn af föstu akkerunum í félagsskap sem teygir rætur sínar aftur til Abba- áranna, í kringum 1970. Við áttum því láni að fagna að kynnast þess- um dreng í gegnum þennan fé- lagsskap. Hann var hugleiks- og skapandi maður af stærðargráðu sem okkur hinum var fjarlæg, allir meira og minna jarðbundnir náungar með bindi. Jón mínus var algjör andstæða gælunafns síns „mínus“ (leikhúsmál), jákvæður, hreinskiptinn öðlingur, húmoristi og félagi eins og þeir gerast best- ir, greiðasamur, hjálpsamur og úrræðagóður. Það segjum við Ragnheiði til huggunar og stuðn- ings við fráfall þessa vinar að hún á feiknin öll af minningum um ást- kæran eiginmann og félaga, fyr- irmyndarföður barna þeirra, minningar sem ylja og hugga á þessari sorgarstundu. Það var þetta einfalda og sjálf- sagða við Jón, hann var ekki fram- hleypinn, ekki yfirgangssamur, ekki raupari, lét lítið á sér bera en var alltaf hlustandi og með „stoð- setningar“, kom með drepfyndin innskot, aðra vinkla á sjónarhorn- in og spaugsamur svo unun var á að hlusta og vera í nærveru hans. Hópurinn okkar, PIP, er búinn að snæða saman í hartnær 2.300 skipti svo reynsla var komin á fé- lagsskap hans og viðmót. Ef innrétta þurfti sýningarbás, íbúð eða skrifstofu, safn eða sýn- ingarsal, leiksvið eða umhverfi í bíómynd, hver annar en Jón Mín- us var þá kallaður til? Hann á hverja skrautfjöðrina af annarri og það er von okkar að einhver hafi haldið utan um þau fjölda verka sem Jón kom að, nefna má Kjarvalssetrið á Borgarfirði eystri eða Þórbergssetur á Hala sem dæmi. Að skreyta sýningar- húsið að utan eins og bókahillu hjá Þórbergi, engum dytti það í hug nema Jóni, setja í verk „Ráðgjöf“, „Pip Ferðir“ „Farandi reður“ „Gullhófurinn“ eða myndverkið „Málaferli“ sem í átta smámynd- um myndar sögu (drykkjar)máls og er í réttum höndum vel metins lögfræðings sem skilgreining á „málaferli“ frá öðrum vinkli en lögfræðinga! Allir eigum við okk- ar „glens“verk hangandi uppi á vegg sem jafnvel Engilberts og Kjarval verða að víkja fyrir. Þessi hópur karla sem hefur verið límdur saman í nær 50 ár þarf sterkt lím og það framleiddi Jón. Það hlaut líka að vera eitt- hvað í hann spunnið þegar vænsti kvenkostur landsins féll fyrir hon- um strax á unga aldri. Þau áttu hamingjuríkt líf Heiða og Jón Mínus, öðrum til aðdáunar, og lykillinn var eflaust sú ómælda virðing sem Jón bar fyrir Ragn- heiði sinni. Ekki síðra var stolt hans af Steindóri og Margréti. Sárastur er þeirra missir og við drúpum höfði við fráfall þessarar geislandi persónu sem Jón átti að geyma og gaf endalaust af. Ólafur Magnús Schram og félagar í PIP. Látinn er fyrir aldur fram sam- verkamaður til margra ára, Jón Þórisson leikmyndateiknari. Jón var eiginlega alinn upp af okkur í Iðnó á gullnu árunum á sjöunda áratugnum og þegar upp var stað- ið var varla nokkurt starf í leik- húsinu sem hann hafði ekki ann- aðhvort sinnt eða þekkti í þaula – nema kannski helst starf leikhús- stjórans. Hann nam undir hand- arjaðri Steinþórs meistara Sig- urðssonar og setti svo formlegan stimpil á menntun sína með námi í Myndlista- og handíðaskólanum. Sem listamenn leiddum við fyrst saman hesta okkar – hann þá kornungur – í Iðnórevíunni haust- ið 1969. Þar var lagt upp með ný- stárleg vinnubrögð, ekkert fyrir fram útbúið handrit, ekkert módel af sviðinu – allt töfrað fram í sjálf- kvæmni augnabliksins. Þetta leist nú ekki öllum á að yrði barn í brók, en reyndist þegar upp var staðið býsna frjó reynsla sem smitaði frá sér einnig síðar. Oft áttum við Nonni síðan sam- leið, meðal annars í þeirri minn- isstæðu vinnu að Brekkukotsann- áli. En hann kom víða við, samdi leikmyndir fyrir öll helstu leikhús landsins og sjónvarpið með, skipu- lagði frá grunni merkar menning- arsýningar og söfn, auk þess sem hann átti drjúgan þátt í að koma Borgarleikhúsi á tæknilegan kjöl þegar starfseminni þar var hleypt af stokkunum. Á síðari árum lágu leiðir okkar einkum saman í því hugsjónamáli að koma á sæmilegan fót íslensku leikminjasafni. Þrenningin Ólafur Engilbertsson, Björn G. Björns- son og Jón áttu þar stóran hlut og voru okkur Jóni Viðari ómetanleg stoð í því streði. Satt að segja hefði fátt af þeim merku sýning- um og viðburðum sem tókst að standa að ekki átt sér stað nema fyrir elju þeirra, ósérhlífni og hug- myndaauðgi – þeir voru óþreyt- andi. Nú er um að gera að halda kyndlinum myndarlega á lofti – bæði yfirvöld, stofnanir og stétt- arsystkin; hér eru menningar- verðmæti sem víðar og sem ekki mega fara í glatkistuna. Þar sem stund er lögð á leikhússögu ættu menn þar einnig að leggja málinu lið. Í einkalífi var Jón hamingju- maður, átti góða konu, eina fremstu leikkonu okkar, Ragn- heiði Steindórsdóttur, og tvö mannvænleg börn. Hann gat verið manna skemmtilegastur, sögu- fróður um leikhúsið og það sem þar fer fram og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar í þeim efnum. Jón Þórisson er kvaddur með miklum hlýhug og söknuði. Sveinn Einarsson. Jón Þórisson var drengur góð- ur og hans verður sárt saknað af stórum hópi fólks í lista- og menn- ingargeiranum, sem hefur í ára- raðir reitt sig á fjölbreytta þekk- ingu hans og fagmennsku. Lífshlaup Jóns og starfsævi ein- kennast af hugmyndaauðgi, sköp- unarkrafti, útsjónarsemi, örlæti og jákvæðu hugarfari. Líklega er starfsferill hans fyrirtaks dæmi um vegferð manns innan hins skapandi geira, sem ýmsir leggja nú mikið á sig við að skilgreina og skýra. Þeim sem stunda slíkar skilgreiningar væri hollt að skoða framlag Jóns Þórissonar og þátt hans í að knýja „hjól atvinnulífs- ins“; þannig fengist dýrmæt inn- sýn í líf og starf þess sem hefur hæfileikana, driftina og hugar- farið sem skilar eftirsóknarverð- um árangri innan skapandi greina. Starfsvettvangur Jóns var í myndlist, leikhúsi, kvikmyndum og söfnum. Hann starfaði með auglýsingastofum, arkitektastof- um, þjónustufyrirtækjum og framleiðslufyrirtækjum að fjöl- breyttri hönnun og sýningarhaldi. Hann átti viðkomu í margbreyti- legum menningarstofnunum um land allt, þar sem hann lagði hönd á plóg við uppbyggingu og út- færslu stórra sem smárra verk- efna. Auk þess lagði hann drjúgan skerf til félagsmála á vettvangi menningar og lista, innan fag- félaga, vinafélaga og frumkvöðla- félaga af ýmsu tagi. Listinn yfir verkefnin er ótæmandi, enda féll Jóni aldrei verk úr hendi og það var sama hversu mikið hann hafði á sinni könnu, alltaf var svigrúm til að greiða úr hvers kyns vanda vina og kunningja eða beina koll- egum í blindgötu á leiðir til lausna. Örlæti hans á tíma og fagþekk- ingu var einstakt. En þrátt fyrir að hann hefði ævinlega mörg járn í eldinum sáust sjaldan á honum merki um streitu, því hann virtist þeim hæfileikum gæddur að nær- ast á álaginu. Kannski var það brosið og blikið í auganu sem gerði það að verkum, því alltaf skyldi hann brosa a.m.k. út í ann- að. Þannig minnumst við hans, með bros á vör og blik í auga. Á sorgarstundu, þegar allt virð- ist svo endanlegt og búið, áttum við okkur á því að verkin lifa manninn. Ævistarf Jóns Þórisson- ar er víða sýnilegt í menningu okkar en eðli máls samkvæmt læt ég mér nægja að nefna hér hans mikilvæga framlag til stofnunar og uppbyggingar Leikminjasafns Íslands. Þar átti hann drjúgan þátt, sem að hluta er varðveittur á heimasíðu safnsins, þar sem grein er gerð fyrir fjölda sýninga sem hann átti þátt í að hanna og koma upp. Þekking Jóns á íslenskri leik- list frá miðri síðustu öld og fram til dagsins í dag hefur verið lykill að ótal textum og ljósmyndum sem hafa verið efniviður sýninga safnsins. Þetta framlag skal þakk- að af alhug nú þegar einn af mátt- arstólpum safnastarfs íslenskrar leiklistarsögu er kvaddur. Stjórn Leikminjasafns Íslands sendir fjölskyldu Jóns innilegar samúðarkveðjur á þessari sorgar- stundu. Kolbrún Halldórsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Jón Þórisson bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.