Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 ✝ Eydís Ingi-björg Lúðvíks- dóttir (Systa) fæddist í Reykja- vík 16. febrúar 1950. Hún lést á sjúkrahúsinu í Óð- insvéum 16. des- ember 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Lúðvík Ástvaldur Jóhannesson bif- reiðasmiður, stofnandi og for- stjóri Bílasmiðjunnar hf., f. 19. desember 1915, d. 10. ágúst 1971, og kona hans Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, starfsmaður á Kjarvalsstöðum, f. 27. febrúar 1914, d. 4. ágúst 1999. Lúðvík var sonur Jóhannesar Krist- jáns Jóhannessonar trésmiðs og byggingameistara, f. 15. júní 1885, d. 22. nóvember 1953, og konu hans Elísabetar Davíðsdóttur húsfreyju, f. 20. ágúst 1889, d. 5. desember 1973. Ingibjörg var dóttir Vil- hjálms Kristins Hákonarsonar kaupmanns og síðar bónda á Hafurbjarnastöðum á Miðnesi, f. 26. apríl 1881, d. 10. ágúst listasýningar á Kjarvalsstöðum og Gallerí List. Árið 1994 breyttu þau Eydís og þáver- andi eiginmaður hennar, Árni Valur, heimili sínu á Ási í Mos- fellsbæ í sveitakrána Áslák, sem þau ráku við góðan orðs- tír til ársins 1999. Árið 2001 keyptu þau með syni sínum og tengdadóttur rekstur barna- skóverslunarinnar Smáskóa ehf. og var verslunin starfrækt til ársins 2004. Eydís og Árni fluttu búferlum til Danmerkur árið 2005. Eydís giftist árið 1968 Árna Val Atlasyni húsasmið, f. 9. apríl 1949. Þau skildu. Eydís og Árni eignuðust tvö börn, þau eru: 1) Hildigunnur Árna- dóttir Clausen, f. 23. janúar 1969, innanhússarkitekt og eigandi arkitektastofunnar Locus Lab í Kaupmannahöfn, maki Carl Balslev Clausen, þau eiga tvö börn, Önnu Lunu og Lukas. 2) Lúðvík Örn Árnason, f. 18. júlí 1973, raf- virkjameistari og eigandi Raf- glóðar ehf., maki Valdís Ragnh. Ingadóttir, þau eiga tvær dætur, Eydísi Emblu og Emelíu Eik. Dóttir Valdísar er Ester Eir og á hún tvö börn, Carmen Ýri og Frosta Brimi. Minningarathöfn verður í Lágafellskirkju í dag, 15. jan- úar 2016, kl. 14. 1956, og Eydísar Ingibjargar Guð- mundsdóttur hús- freyju, f. 22. jan- úar 1890, d. 10. október 1972. Bræður Eydísar eru: Vilhjálmur efnaverkfræð- ingur, f. 4. apríl 1940. Davíð, f. 12. janúar 1943, d. 10. júní 1951. Konráð Alexander kvensjúkdómalækn- ir, f. 14. maí 1948. Davíð Þór verkfræðingur, f. 14. mars 1956. Eydís lauk gagnfræðaprófi frá Austurbæjarskóla og fór að loknu námi þar í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk prófi frá kennaradeild árið 1971. Hún starfaði við útstill- ingar og kennslu á árunum 1971-1978. Árið 1979 gerðist Eydís hönnuður hjá Gliti hf. og starfaði þar til ársins 1987 þegar hún stofnaði sína eigin leirvinnustofu ásamt Daða Harðarsyni sem fékk nafnið Ás leirsmiðja. Á árunum 1982- 1988 hélt Eydís fjórar leir- Köttur úti í mýri, setti upp á sér stýri, úti er ævintýri. Hversu oft höfum við börnin, og seinna barnabörnin, ekki heyrt mömmu fara með þessa litlu þulu eftir langan lestur ævintýra og bóka að kvöldi dags. Við vissum að þulan merkti að nú væri lestr- inum lokið. Nú væri kominn tími til að fara að sofa. Nú er komið að okkur að fara með þessa litlu þulu yfir henni mömmu okkar og ömmu og leggja hana til hinstu hvílu. Úti er sannkallað ævintýri. Hildigunnur Árnadóttir Clausen, Lúðvík Örn Árna- son og fjölskyldur. Meira: mbl.is/minningar Ég hafði samband við hana systur mína að morgni 15. desem- ber þá hún var á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum til að fá sína aðra meðferð vegna illvígs sjúkdóms, sem hún hafði barist við síðan á vordögum. Rödd hennar hljómaði af þakklæti og gleði vegna alls hins góða fólks sem hlúði að henni í þessari baráttu. Henni fannst hún heimavön enda tiltölulega ný- lokið fyrri meðferð sem miklar vonir voru bundnar við. Hún lét ekki bugast af vonbrigðum þótt hún stæði frammi fyrir annarri lotu, því lyfin þyldi hún svo vel og allir voru henni góðir. Að morgni næsta dags var hún öll. Þannig mætti hún sínum hinsta degi af sömu hógværð og æðruleysi eins og flestum dögum í lífi sínu. Á bernskuheimili okkar í Barmahlíð 26 mættust gjarnan þrír ættliðir við kvöldverðarborð- ið. Efst í ættartrénu voru móður- og föðurömmur, á öndverðum meiði í lífsskoðunum og pólitík, ástríkir foreldrar og við bræður mis hávaðasamir. Þá kom hún systir okkar einhvers staðar að og tók ekkert pláss við borðið. Þann- ig var hún ætíð, sennilega hafði hún verið að teikna mynd, ein með sjálfri sér, því það var hennar eðli. Og þegar hún mætti með hann Árna Val inn á heimilið og bar Hildigunni undir belti, fannst manni það allt hafa gerst hávaða- laust og af sjálfu sér. Hún Systa hafði einstaka nær- veru með sínu hlýja viðmóti. Hún hallmælti engum og skellti ekki hurðum. Þau Árni voru ætíð höfð- ingjar heim að sækja hvar sem þau voru stödd í sinni lífsbaráttu. Sjálf var hún völundur í höndum og eru ófá heimili í landinu sem keramikverk hennar prýða. Hún hélt yfirgripsmikla listasýningu á Kjarvalsstöðum 1985 og aðra löngu síðar í Danmörku. Við hjón- in hrifumst mjög af verkum henn- ar. Þau Árni voru að mörgu leyti frumkvöðlar, órög við að prófa nýja hluti. Sú vegferð var þó ekki alltaf rósum stráð. Þegar þau gerðu upp gömul niðurnídd hús og stofnuðu Áslák sveitakrá var það til að sameina menningu og listir. Húsakynnin voru innréttuð af smekkvísi og listin fékk að njóta sín. Það var ætíð notalegt að sækja þau þangað heim. Veik- indaferli Systu var ekki langt. Við hjónin ásamt góðvinum okkar heimsóttum hana í sumar er hún hafði lokið fyrri lyfjameðferðinni. Eins og ætíð var návistin kær- leiksrík og góð án þykkju og kala út í Guð og menn. Þannig var hún. Kæru Hildigunnur og Lúlli, við vottum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar dýpstu samúð. Konráð Lúðvíksson (Alli) og fjölskylda. Elsku Systa mín. Allt frá því að ég man eftir mér varst þú mín góða stóra systir sem alltaf var gott vera nærri. Ég man satt best að segja aldrei eftir að okkur hafi orðið sundurorða á þeim nær sex- tíu árum sem leiðir okkar lágu saman. Við áttum gott æskuheimili í Barmahlíð 26, þar sem við nutum frelsis til athafna í skapandi um- hverfi og lærðum að bera ábyrgð á okkar lífi. Þú varst glöð og glett- in á þínum unglingsárum og ég naut oft góðra ráða hjá þér sem unglingur í heimahúsum sex ár- um yngri. Þú þroskaðir vel frum- kvæði og listræna hæfileika þína í námi og starfi sem skilur eftir sig fjársjóð góðra leirlistaverka og nytjahluta sem enn prýða fjölda íslenskra heimila. Það var gagnlegt og gaman fyrir mig að taka þátt í lífi ykkar Árna þegar þið voruð að taka ykkar fyrstu skref sem hjón – passa og leika við börnin ykkar Hildigunni og Lúlla og hjálpa til við að standsetja ykkar fyrstu íbúð Breiðholtinu. Það var líka gott að eiga ykkur að þegar við Emma vorum að taka okkar fyrstu skref með börn og buru nokkrum árum seinna. Þá voruð þið flutt í Mosfellsbæinn þar sem alltaf var gott að koma í heimsókn, boðin eða óboðin, hversdags eða við hátíðleg tæki- færi. Ykkar hús stóð okkur alltaf opið. Gestrisni og smekkvísi á ykkar heimili var mikil og fylgdi ykkur líka þegar þið opnuðuð sveita- krána Áslák í Mosfellsbæ að danskri fyrirmynd. Þegar þið nokkrum árum seinna fluttust á Fjón í Danmörku varð lengra á milli okkar og daglegu samskiptin urðu minni. Það var þó alltaf gott að tala saman og nýta þau tæki- færi sem gáfust til að hittast þeg- ar leiðir lágu saman á Íslandi eða í Danmörku á þeim tíu árum sem þú lifðir þar. Veikindi þín færðu okkur aftur nær hvort öðru og samskiptin urðu tíðari, ekki síst vegna þess að til stóð að ég yrði merggjafi fyrir þig í baráttunni við hvít- blæðið. Það var gott að geta hitt þig í lok ágúst og eiga góðan dag saman á þínum heimaslóðum í Danmörku í sól og sumaryl. Bar- áttan við sjúkdóminn virtist vera að bera árangur. Það voru því mikil vonbrigði þegar við fengum þær fréttir í byrjun desember að sjúkdómurinn hefði náð yfirhönd- inni á ný og sorgartíðindi um miðjan desember við fráfall þitt. Eftir stöndum við fjölskyldan þín, Systa mín, og reynum að ylja okkur við minninguna um þig og þína hlýju nærveru. Við vitum líka að við eigum eftir að njóta hennar á ný þegar við hittumst aftur hinum megin. Bless á meðan, kæra systir. Davíð Lúðvíksson. Það er haustið 1963. Systa hringir til mín og tilkynnir mér óðamála að ég verði að koma heim til hennar áður en við förum á dansæfinguna í Lídó til að læra nýja dansinn sem allir dansi núna. Ég var að koma úr sveitinni og hafði ekki fylgst með nýjustu straumum og stefnum og hún var hrædd um að ég gæti orðið mér til skammar. Þegar ég fór í sveitina austur á Fljótsdalshérað um vor- ið, sem þá var ekki hinum megin á landinu heldur hinum megin á hnettinum, var tvistið aðalmálið en um haustið var tvistið úti og shake-ið komið inn. Ég mætti full eftirvæntingar í risherbergið í Barmahlíðinni. Þar beið mín sýni- kennsla í shake og upplýsingar um aðalhljómsveitina The Beatles sem var það nýjasta nýtt. Þessi minning er aðeins ein af svo ótal- mörgum sem ég á um Systu frænku mína, en hún kom fyrst upp í hugann er ég minnist henn- ar núna þegar hún er horfin okk- ur, því hún er svo lýsandi fyrir hvernig hún var, hugulsöm, gjöful og skemmtileg. Allý mamma mín og Lúlli pabbi hennar voru systk- ini. Þau byggðu ásamt mökum sínum húsið í Barmahlíð 26 og þar fæddumst við Systa með sex mán- aða millibili og þar bjuggum við okkar fyrstu ár nánast eins og systur í faðmi stórfjölskyldunnar með ömmu Elísabetu í risinu. Við byrjuðum saman í Ísaksskóla og vorum skotnar í sama stráknum sex ára. En ég átti enga mögu- leika því Systa skrifaði svo vel. Þá strax voru hennar miklu listrænu hæfileikar komnir fram. Við fylgdumst síðan að gegnum allan barnaskólann en leiðir skildi þeg- ar við fórum í gagnfræðaskóla. Samt voru samskiptin alltaf mikil og margar ánægjustundir áttum við, aðallega í Barmahliðinni, í sumarbústaðnum við Þingvalla- vatn og Hafravatn en líka í djass- ballett hjá Báru og á dansæfing- um í Lídó. Eftir unglingsárin skildi leiðir þegar ég fór í Kennó og hún í Myndlistaskólann og áhugamálin breyttust. Ég fylgd- ist samt alltaf stolt með starfi hennar í myndlistinni. Hún skap- aði sér eintaklega fallegan stíl þar sem hún vann með íslenskar jurt- ir og leir og verkin sem hún skilur eftir sig bera listfengi hennar fag- urt vitni. Nú þegar komið er að leiðarlokum Systu frænku minn- ar sakna ég þess að hafa ekki haft meira samband við hana hin síð- ustu ár. Hún bjó reyndar í Dan- mörku en það á ekki að vera af- sökun á þessum tímum auðveldra samskipta. Það minnir mann bara á að enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Ég kveð mína ástkæru frænku með söknuð í brjósti en þakklæti fyrir þann gjöfula tíma sem við áttum saman. Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. „Eina ævi, skamma, eignast hver um sig.“ Þessi ljóðlína úr fal- lega kvæðinu hans Guðmundar Böðvarssonar, Fylgd, hefur verið mér ofarlega í huga undanfarið, þegar vinir og ættingjar hafa kvatt, allt of fljótt að því er virðist. Mig langar að minnast í örfá- um orðum hennar Systu mág- konu minnar, eins og hún var æv- inlega kölluð í fjölskyldunni, sem er kvödd í dag hinstu kveðju og allt of fljótt að okkur finnst, eftir stutt en erfið veikindi. Hugurinn hvarflar til baka til fyrstu kynna. Hún birtist mér einn fagran sumardag árið 1967 þegar ég var í fyrstu heimsókn minni í sumarbústað fjölskyld- unnar við Hafravatn. Fjölskyldan hafði unað sér við margvísleg gróðurstörf daglangt og naut nú góðgerða húsfreyju þegar allt í Eydís Ingibjörg Lúðvíksdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRA GÍGJA ÞÓRHALLSDÓTTIR, áður til heimilis að Hátúni 6a, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 2. janúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 15. janúar, klukkan 15. . Guðrún Andrésdóttir, Þórhallur Andrésson, Sigríður Thorsteinsson, Kristján Ottó Andrésson, Dóra Gígja Þórhallsdóttir, Atli Sævar Guðmundsson, Ragnar Þórhallsson, Birna Ásbjörnsdóttir, Áróra Sirrí Atladóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI SVEINBJÖRNSSON, yfirvélstjóri, Öldugötu 52, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut þann 10. janúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 18. janúar 2016 og hefst athöfnin kl. 15. . Ragna Matthíasdóttir, Sveinbjörn M. Bjarnason, Ebba Sverrisdóttir, Elín B. Bjarnadóttir, Adolf Árnason, Matthías Æ. Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra PÁLÍNA ODDSDÓTTIR, fv. skrifstofustjóri Sjónvarpsins, Unnarbraut 28a, Seltjarnarnesi, er látin. . Oddrún Kristjánsdóttir, Leifur Magnússon, Kristján Leifsson, Fanney Ída Júlíusdóttir, Magnús Leifsson, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÁSGEIRS ÞÓRÐARSONAR. . Erla Gígja Erlingsdóttir, Anika og Andrea Ásgeirsdætur Guðríður M. Thorarensen og Þórður Ásgeirsson Þórarinn, Grímur Örn og Egill Þórðarsynir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ARNFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður búsett á Selfossi, sem lést föstudaginn 8. janúar, verður jarðsungin frá Selfosskirkju mánudaginn 18. janúar klukkan 11. . Sigurður G. Sigurðsson, Tryggvi Sigurðsson, Kristbjörg Einarsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Henry Þór Gränz, Elín María Sigurðardóttir, Richard Ö. Richardsson og afkomendur. Ástkær móðir okkar , ELÍN TORFADÓTTIR, framhaldsskólakennari og fóstra, Aflagranda 40, lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 9. janúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, fimmtudaginn 21. janúar klukkan 13. . Gunnar Örn Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Guðmundur Halldór Guðmundsson, Elín Helena Guðmundsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.