Morgunblaðið - 15.01.2016, Síða 33
einu birtist undurfalleg stúlka of-
an af lofti, gullið hárið náði í mitti
og hún sveif um eins og álfkona.
Hún hélt á risastórum blómavasa,
sem hún hafði verið að skreyta.
Það var eins og enginn hefði vitað
af nærveru hennar þennan dag.
Eftir á að hyggja held ég að þetta
hafi verið dæmigert fyrir hana –
að taka lítið pláss, að hafa fá orð
og vinna verkin sín í hljóði.
Systa var listamaður í eðli sínu,
fagurkeri, sem gerði allt fallegt
sem hún kom nálægt. Það var
gaman að fylgjast með henni þeg-
ar hún bjó sér og Árna, eigin-
manni sínum, heimili, fyrst á loft-
inu í Barmahlíð 26 og síðan í
Breiðholtinu og ekki síst í Mos-
fellsbænum, þar sem þau áttu
þrjú falleg heimili. Hún hafði ein-
stakt lag á að gera fallegt í kring-
um sig, oft ekki af miklum efnum.
Hugmyndarík og smekkvís var
hún svo af bar.
Leið hennar lá í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands, þaðan sem
hún útskrifaðist sem mynd-
menntakennari. Ys og þys skóla-
stofunnar hentaði ekki hennar
lundarfari og hún sérhæfði sig í
leirlist og vann sem leirlistamað-
ur mestan hluta ævinnar. Þar
náði hún flugi og einstaklega list-
rænir munir urðu til í höndum
hennar.
Ég minnist heimsóknar okkar
hjóna til hennar þegar hún opnaði
sýningu í Danmörku á verkum
unnum í sumarlangri dvöl sinni
þar á listamannavinustofu í upp-
hafi tíunda áratugarins. Það var
dýrðardagur, munirnir svo kröft-
ugir og íslenskir í formi og litum,
umvafðir hlýju dönsku sumri,
andstæður sem mynduðu sam-
hljóm. Ég held ég hafi aldrei séð
hana glaðari en einmitt þennan
dag.
Að leiðarlokum langar mig að
þakka fyrir samfylgdina. Hún
gætti sonar okkar hjóna fyrsta ár-
ið hans, þegar hún var sjálf
heimavinnandi með sín litlu börn
og seinna þegar eldri dóttir okkar
fæddist fékk hún nafnið hennar,
en þær eiga sama afmælisdag.
Síðustu æviárin var Systa bú-
sett í Danmörku. Við hjónin heim-
sóttum hana í ágúst sl. þá nýút-
skrifaða af sjúkrahúsinu og von
um bata góð. Við áttum saman
yndislegan dag og hittum þá okk-
ar gömlu, góðu Systu, þessa blíðu
og fallegu konu, sem hafði þann
eina galla að standa ekki nógu vel
með sjálfri sér. Það var því reið-
arslag þegar sjúkdómurinn tók
sig aftur upp og hafði sigur.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til barna hennar, Hildi-
gunnar og Lúðvíks, og fjöl-
skyldna þeirra. Verði hún Systa
okkar ætíð kærust kvödd og hvíli í
friði Guðs.
Ragnheiður Ásta
Magnúsdóttir.
Fyrir margt löngu kynntist ég
Eydísi, þá starfrækti hún leir-
verkstæðið Ás í Mosfellsbæ
ásamt Daða Harðarsyni. Það var
mjög lærdómsríkt fyrir mig að
koma í leirsmiðjuna til þeirra,
Daði mótaði leirinn á rennibekkn-
um af mikilli leikni en Eydís ann-
aðist allar skreytingar á listgrip-
unum. Hún þróaði með sér
persónulegan og fágaðan stíl,
auðvelt var að þekkja fíngert
handbragð Eydísar á brothættu
postulíninu.
En Eydís var ekki aðeins fær
listamaður, hún var sönn mann-
eskja: heiðarleg, grandvör og
lagði aldrei illt orð til nokkurs
manns, mér fannst það mannbæt-
andi að vera í návist hennar. Ey-
dís gerði allt af myndarskap og
natni, hún var sterkur persónu-
leiki en gat verið viðkvæm líkt og
postulínið sem hún skreytti af svo
mikilli list.
Í dag handleik ég lítinn listmun
sem er prýddur fallegum, lit-
mjúkum blómum; nafn Eydísar
er markað í leirinn. Í myrkri
skammdegisins vekur þessi grip-
ur hjá mér ljúfar minningar um
góða konu.
Þóra Sigurþórsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016
Smáauglýsingar
Hljóðfæri
ÚTSALA ÚTSALA
30% útsala á rafmagns-
gíturum og bössum í jan
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
ÚTSALAN ER BYRJA
- KRISTALL LJÓSAKRÓNUR
Glæsilegar kristalsljósakrónur eru
komnar. Handskornar kristals ljósa-
krónur, veggljós, matarstell, kristals-
glös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL,
Grensásvegi 8
Sími 7730273
Ýmislegt
Vandaðir þýskir kuldaskór úr
leðri, fóðraðir með lambsgæru
og með góðan sóla. Tilboð:
A.m.k. 20% afsláttur meðan á
útsölu stendur
Teg. 853501 Litir: rautt og svart.
Stærðir: 36 - 42 Verð: 25.900.-
Tilboðsverð: 19.900
Teg: 408503 Litir: brúnt og svart.
Stærðir: 40 - 47 Verð: 26.900.
- Tilboðsverð: 19.900
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Útsala - Útsala - Útsala
Handslípaðar kristalsljósakrónur frá
Tékklandi og Slóvakíu..
Slóvak Kristall,
Dalvegur 16 b, Kópavogur
s. 5444333.
50% afsláttur af völdum úrum
og úravöggum sem hafa verið
sýningargripir og unglingaúrum með
MP4 o.fl. Langt er síðan við höfum
haldið útsölu þ. a. nú er tækifæri sem
aldrei fyrr til að gera góð kaup.
ERNA, Skipholti 3,
www.erna.is
Hjólbarðar
Matador vetrar og heilsársdekk
tilboð
215/70 R 16 kr. 21.990
235/60 R 18 kr. 31.890
255/55 R 18 kr. 33.100
255/50 R 19 kr. 38.900
275/40 R 20 kr. 49.900
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Frábær dekk á góðu verði
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur,
s. 5444333
Húsviðhald
Húsaviðhald
o.fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Félagsfundur
FEB – Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni boðar til félagsfundar fimmtu-
daginn 21. janúar 2016, kl. 15.00 í Ásgarði
félagsheimili FEB, Stangarhyl 4, Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Tillaga um lagabreytingar – kynning
2. Fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir –
kynning og staða
3. Önnur mál
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórn FEB - Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Aðalfundur
Málfundafélagsins Óðins
verður haldinn fimmtudaginn 28. janúar kl.
17.30 í Valhöll.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Styrkir
Styrkir til verkefna í þágu barna árið 2016
Barnavinafélagið Sumargjöf auglýsir hér með til umsóknar
styrki á sviði rannsókna, lista og þróunarverkefna í þágu
barna.
Vakinn er athygli á að umsækjendum er gert að fylla út
umsókn á sérstöku eyðublaði sem vistað er á vef félagsins
og senda það síðan í viðhengi á tölvupóstfang Sumargjafar
sumargjöf@simnet.is að lokinni útfyllingu. Nánari upplýs-
ingar er að finna vef félagsins sumargjof.is.
Stjórn Sumargjafar áskilur sér rétt til að óska eftir nánari
upplýsingum um verkefnin og leita umsagnar fagaðila.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2016
Reykjavík, 14. janúar 2016
Barnavinafélagið Sumargjöf
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9. Bingóið hefst að nýju eftir
jólafrí föstudaginn 22. janúar.
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16, mynd-
list með Elsu kl.13.30-16.30.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9 og línudans fyrir byrjendur kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Þorrablót verður föstudaginn 22. janúar. Uppl. í
síma 535-2760.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, morgunleikfimi kl. 9.45, lestur úr
dagblöðum vikunnar kl. 10.
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í
kaffi kl. 8.30, opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9, útskurður kl. 9, mor-
gunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10.30, hádegismatur kl. 11.30. ATH!
Bingó í Þórðarsveig í dag kl. 13.30.
Garðabær Vatsleikfimi í Sjálandi kl. 8 og 8.50. Félagssvist FEBG kl.
13, bíll frá Litlakoti kl. 12.20 ef óskað er, frá Hleinum kl. 12.30, frá
Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að loknum spilum.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16, glervinnuhópur kl. 9-12,
prjónakaffi kl. 10-12, leikfimi gönguhóps kl. 10, ganga um hverfið kl.
10.30, kóræfing Gerðubergskórs kl. 13.30-15.30, bókband með
leiðbeinanda kl. 13-16.
Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl 9.10, gler- og postulínsmálun
hefst mánudaginn 18. janúar, eftirmiðdagsdans kl. 14.
Gullsmári Tiffanýgler kl. 9, leikfimi kl 10, ganga kl. 10, fluguhnýtingar
kl. 13 og gleðigjafarnir kl. 14.
Gullsmári 13 Gleðigjafarnir í Gullsmára í dag kl. 14. Allir velkomnir,
aðgangur ókeypis. Dansleikur í Gullsmára á morgun laugardag kl. 20
til 23, Haukur Ingibergsson leikur fyrir dansi. Miðaverð 1000 kr.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30, handavinnuhópur kl. 9,
morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, spilað bingó kl. 13.15, kaffi-
sala í hléi, fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.45, við hringborðið kl. 8.50, thai chi kl.
9, listasmiðjan kl. 9, botsía kl.10.20, síðdegiskaffi kl. 14.30.
Allir velkomnir óháð aldri og búsetu nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30, qigong í Borg-
um kl. 11, hannyrðahópur í Borgum kl. 12.30, útskurður á Korpúlfs-
stöðum kl. 13 og brids í Borgum kl. 13. Síðan er föstudagsvöfflukaffi
eins og venjulega að hætti Borgardætra.
Selið, Sléttuvegi Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, gönguhópur kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30-12.30, botsía kl. 13, síðdegiskaffi frá kl. 14.30-
15.30, dagblöðin og púsl liggja frammi allan daginn.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, spilað í króknum kl.
13.30, syngjum saman með Friðriki og Ingu Björgu í salnum Skóla-
braut kl. 13. Ath. síðasti skráningardagur er mánudagurinn 18. janúar
vegna leikhúsferðar á Njálu, 3. febrúar. Allar upplýsingar og skráning
er hjá Kristínu í síma 8939800, einnig liggja skráningarblöð frammi á
Skólabraut.
Stangarhylur 4. Qigong kl. 10.30 Leiðbeinandi Inga Björk Sveins-
dóttir. Íslendingasögur námskeið; Vatnsdælasaga kl. 14, leiðbeinandi
Baldur Hafstað. Félagsfundur FEB verður haldinn í Stangarhyl 4,
fimmtudaginn 21. janúar kl. 15. Dagskrá: Lagabreyting, kynning á
lögumfélagsins, fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir, kjaramál o.fl.
Vesturgata 7 Fótaaðgerð kl. 9, hárgreiðsla kl. 9, enska (framhald)
kl.10.15, Peter. Sungið við flygilinn undir stjórn Gylfa Gunnarssonar
kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.
Vitatorg Handavinna og spjall kl. 9, spilum bingó kl. 12.30.
Þórðarsveigur 1-3 Bingó verður spilað í dag kl. 13.30. Fínir vinning-
ar og kaffihlaðborð á hóflegu verði að bingói loknu.