Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 Höskuldur Þráinsson, prófessor í ís-lensku nútímamáli við Háskóla Ís-lands, er sjötugur í dag. Hann mun hætta kennslu um næstu mánaðamót en held- ur áfram að sinna rannsóknum og leiðbeina nemendum í doktors- og meistaranámi. „Ég fæ einhverja vinnuaðstöðu hérna uppi í skóla til að geta sinnt þessu áfram. Ég er m.a. að rannsaka vesturíslensku, en hún er að deyja út og nú eru síðustu forvöð að ná í það sem eftir er af henni. Það er til fólk í Vesturheimi sem talar hana reiprennandi, mest kannski fólk um áttrætt, og svo líka fólk sem talar bara lítið sem ekkert en skilur eitthvað. Það er áhugavert að skoða þróun vesturíslensk- unnar því aðstæður þar voru allt öðruvísi en hér á Íslandi. Þar var hún notuð heimavið en ekki í skólum eða á op- inberum vettvangi. Vonandi náum við að gefa út bók með niður- stöðum úr rannsóknunum, þar sem fjallað verður um mál, menningu og sjálfsmynd Vestur-Íslendinga, t.d. hvaða máli það skipti fyrir þá að vera af íslenskum ættum. Við vorum með ráðstefnu tengda þessu verkefni í byrjun desember þar sem nemendur í framhaldsnámi voru meðal fyrirlesara og líka erlendir gestir.“ En hvernig mun íslenskt nútímamál þróast á þessari öld? „Það er erfitt að segja. Það er til gamalt orðtæki: „Því læra börnin málið að það er fyrir þeim haft“ og það er alveg rétt. Börn læra ekki móður- málið af beinni kennslu nema að litlu leyti. Nú er sagt að börn og ung- lingar lesi minna af hefðbundnum textum en áður og það hefur áhrif á máltilfinninguna. Það sem ræður mestu um þróun málsins er að við- halda máltilfinningunni. Til þess dugir ekki að kenna börnum málið eins og það sé útlenska, t.d. með því að leggja áherslu á beygingu sjaldgæfra orða. Lestur og ritun skipta áreiðanlega meira máli, t.d. það að nemendur endursegi í rituðu máli stuttar sögur sem eru lesnar fyrir þá. Það eykur líka orðaforða og ritfærni. Utan vinnu reyni ég að halda mér í sæmilegu formi svo líkaminn verði ekki ónýtur fyrir aldur fram. Svo hef ég áhuga á tónlist og syng í Karlakórnum Stefni í Mosfellsbæ.“ Höskuldur ætlar ekki að halda veislu í tilefni afmælisins. „Við kon- an vorum með fjölmenna veislu í tilefni sextugsafmælis okkar. Við eigum jörð norður á Skaga og héldum útihátíð þar og komu um 120 manns þangað. Ég verð heima í dag og býð gestum úr nánustu fjöl- skyldu í kvöldmat.“ Eiginkona Höskuldar er Sigríður Magnúsdóttir, dósent í talmeina- fræði við HÍ, en hún var einnig talmeinafræðingur á Landspítalanum fram að síðustu áramótum. Börn þeirra eru Steinar, Guðrún Þuríður og Margrét Lára. Þau eiga þrjú barnabörn og eitt væntanlegt í næsta mánuði. Málfræðingur Hösk- uldur Þráinsson. Rannsakar vesturíslenskuna Höskuldur Þráinsson er sjötugur í dag I nga Lind fæddist í Reykjavík 15.1. 1976 en ólst upp í Garðabænum þar sem hún gekk í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Hún var send í sveit á bæinn Breiðabólstað í Reykholtsdal í Borgarfirði sumarið 1985 og sumarið eftir á Bólstað, skammt frá Hvolsvelli: „Þetta var nú engin alvörusveitamennska eins og í gamla daga þegar krakkar fóru upp í rútu með brjóstsykurspoka í lok maí og komu aftur heim eftir réttir. Slík sveitadvöl var liðin tíð. Ég fór bara í stuttan tíma til að kynnast sveitalífinu og skepnunum.“ Við Þingvallavatn öll sumur „Hins vegar skoppaði ég um þúfur og stiklaði á steinum við Þingvalla- vatn, tíndi þar ber og veiddi fiska öll mín sumur í æsku frá vori til hausts. Þar hafa foreldrar mínir verið með bústað í hálfa öld, skammt frá Mið- felli. Ég var oft ein að skottast með sjálfri mér en leiddist samt aldrei. Ég er nefnilega nokkuð góð í því að vera ein þótt ég sé félagslynd. Þarna kenndi pabbi mér að veiða og síðan hef ég verið með veiðidellu.“ Inga Lind lærði hagnýta íslensku við HÍ og lagði einnig stund á list- fræði við sama skóla. Hún sat svo nýlega kúrs í viðskiptaháskólanum Inga Lind Karlsdóttir dagskrárgerðarmaður – 40 ára Ljósmynd/Ólafur Már Svavarsson Allur hópurinn Frá vinstri: Arnhildur með Xavi, Haukur, Árni, Inga Lind, Jóhanna, Matthildur og Hrafnhildur. Félagslyndur einfari Veiðiklær Inga Lind í banastuði með Árna í veiðiferð þeirra við Laxá í Kjós. Dalvík Klara Björk Krist- jánsdóttir fæddist 20. maí 2015 kl. 0.00. Hún vó 2.916 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Telma Björg Þórarins- dóttir og Kristján Guðmundsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Frá morgni líkama og sál fyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama Laugarnar í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.