Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 36

Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef eitthvað sem þú tekur þér fyrir hendur er leiðinlegt, er eitthvað að. Notaðu tækifærið til að ná sambandi við þinn innri mann. 20. apríl - 20. maí  Naut Reyndu að haga orðum þínum þannig að þau meiði ekki aðra. Mundu að svo upp- sker maðurinn sem hann sáir til og ekki sakar að bera á. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu óhrædd/ur við að standa upp og krefjast réttar þíns. Tafir í umferðinni gætu komið sér illa fyrir þig svo best er að hafa vaðið fyrir neðan sig og leggja snemma af stað. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Börn gætu orðið til þess að auka mjög á skyldur þínar. Slakaðu á klónni og leyfðu hlutunum að þróast. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er eitt og annað sem þú ert að kljást við þessa dagana en með réttu hug- arfari ferðu létt með það. Leikaraskapur fellur bara um sjálfan sig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þeir sem þú rembist við að fyrirgefa eða taka í sátt gera þér erfitt fyrir núna. En þú pirrar þig ekkert. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú færð hugmyndir um það hvernig þú getur aukið tekjur þínar. Hann sér skemmti- legasta vinkilinn og nálgast viðfangsefnið þannig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú gleymdir, í einhvern tíma, vissu atriði á tossalistanum þínum, en það mun minna á sig. Gerðu þér far um að kanna alla málavexti til hlítar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Haltu þig við skammtímaáætl- anirnar og láttu hjá líða um sinn að skipu- leggja til lengri tíma. Gefðu þér tíma til þess svo þú tapir samt ekki heildarsýninni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Loksins einbeitir þú þér að hlutum sem gefa eitthvað til baka. Reyndu að treysta því að hlutirnir fari á besta veg, hvernig svo sem það kann að líta út. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér lætur betur að láta verkin tala en að setja upp langar orðræður um hlutina. Stutt hugleiðsla, sundsprettur eða nokkrar jógaæfingar geta skipt sköpum. Ekki gleyma að vökva lífsblómið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Minningar úr fortíðinni skjóta upp kollinum með heimsókn gamals kunningja. Gefðu þér tíma til að hafa samband við vini og ættingja. Það var fjörugt á Leirnum á mið-vikudaginn. „Draumakjóllinn!“ sagði Fía á Sandi. „Í hugmyndaleysi dagsins rakst ég á verðlista og sá fyrir mér hvernig farið hefði hefði ég pantað eftir honum. Mig er mikill hryllingur að hrjá. Ég horfði beint í spegilinn og sá mig í kjól sem víst ég hafði valið. Í draumi sérhvers manns er fall hans falið.“ Sigmundur Benediktsson var strax með á nótunum: „Já Fía, speg- illinn er fáránlega afskiptasamur. Að speglinum er lítið lið langfæst tetrið metur andans glóð og innra svið ekki letrað getur. – – – Eigðu glaðbeitt ævistig önd skal rjúfa hrjúfu, hans ef ásýnd hneykslar þig honum snú á grúfu.“ Hallmundur Kristinsson kom með gamla spegilvísu, „sem finna má í hinni ofurvinsælu bók er út kom fyr- ir nokkru og nefnist einfaldlega LEIR: Einhverntíma lærði ég það á Laugum að labba króka til að forðast gjótur. Hverju sinni er ég lít hann augum undrast ég hve spegillinn er ljótur“. Fía á Sandi svarar: Ellin læðist að oss hljóð afturför er bölvuð synd. En fjarsýnin er frekar góð fegrar jafnvel spegilmynd. Og bætir síðan við: „Þessa ellivísu fann ég svo í ferðasögu Harmoniku- félagsins. Passar vel fyrir mig núna þar sem ég fór á hækjunum á ball um helgina var. Ellin birtist í mörgum myndum. Mannskapinn langar á skrall. Í hjólastólum og göngugrindum gætum við haldið ball.“ Í Flugum Jóns Thoroddsen heitir ein flugan „Eftir dansleik“: Elskar hann mig? spurði hún, og lagaði á sér hárið. Elskar hann mig? spurði hún, og púðraði sig í flaustri. Elskar hann mig? spurði hún. Spegillinn brosti. Já, sagði spegillinn, og brosti. Það rifjaðist upp fyrir Höskuldi Jónssyni að hann sendi vísu inn á Leir fyrir fjórum árum, – „(hún komst reyndar ekki í Bókina, en það er önnur saga): Blágrár himinn horfir oní sjóinn. Í speglinum sér sjálfan sig: „sætur er nú flóinn““ Þessi bragarháttur kallast vik- henda eins og segir í Bragfræði Sveinbjarnar Beinteinssonar frá Draghálsi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Spegillinn Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „BANKINN MUN LÁNA ÞÉR FÉ, EN ÞAÐ STENDUR UPP Á ÞIG AÐ SANNA FYRIR OKKUR AÐ ÞÚ ÞURFIR ÞAÐ EKKI Í RAUN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að dansa við suðræna tónlist. ÞAÐ YRÐI ERFITT AÐ GERA ÞENNAN DAG BETRI Ó, ÉG VEIT EKKI MEÐ ÞAÐ… ÞETTA GÆTI ALLT SAMAN VERIÐ ÍS KANNSKI ÆTTI ÉG AÐ GEFA NAFNIÐ „GRÍMUR GRIMMI“ UPP Á BÁTINN! BREYTTU GRETTUNNI Í BROS OG SJÁÐU HVAÐ ÞÚ FÆRÐ… GRÍMUR GERVILEGI! GLEYMDU ÞVÍ Brunn- stigi Líf Magneudóttir, varaborgar-fulltrúi Vinstri-grænna, kvartaði á dögunum yfir hundaskít í Vestur- bæ Reykjavíkur. Víkverji tekur heilshugar undir með fyrrverandi formanni mannréttindaráðs borgar- innar. x x x Líf þarf ekki að leita langt að rót-um vandans. Hann er í ráðhús- inu þar sem maðurinn sem státar af heilbrigði í ferilskrá og hinn maður- inn sem kenndur er við holur ráða húsum. Þessir menn, öðrum fremur, hafa séð til þess að borgin lítur út eins og öskuhaugur og því kemur ekki á óvart ef hundaeigendum sést yfir skítinn hundanna, sem þó eru eflaust þrifnari en margur annar. x x x Með þessu er Víkverji ekki aðverja þá sem ganga úti með hunda og þrífa ekki upp eftir þá. Hundur viðrar oft Víkverja og öfugt og þá tekur Víkverji alltaf upp skít- inn úr dýrinu, eins og flestir í hans sporum. x x x Reykjavík er eina borgin sem Vík-verji veit um þar sem ráðamenn gera ekkert til þess að fegra hana, hvað þá að halda henni í horfinu. Samgöngumál eru bannorð, götur og gangstígar eru látin drabbast nið- ur svo stórhætta hlýst af með miklu tjóni bíleigenda og annarra vegfar- enda, þau eru hvorki þrifin né rudd þegar á þarf að halda, götulýsingar eru af skornum skammti, íbúar þurfa að greiða sífellt hærri upp- hæðir fyrir hirðingu sorps sem er svo ekki tekið fyrr en eftir dúk og disk og svo framvegis. Það kemur því ekki á óvart að það sé skítalykt hér og þar og borgin iði af lífi, eins og formaður borgarstjórnarflokks Sf. segir í Mogganum í gær. x x x Líf Magneudóttir þekkir betur enmargur annar andrúmsloftið í ráðhúsinu og líklega hefur enginn skitið hana meira út en borgar- fulltrúi Vg. Hún ætti að sýna hunda- eigendum og öðrum gott fordæmi með því að byrja í ráðhúsinu á þrifn- aðartalinu, tiltektinni og losun skíts. víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. Sálm. 8:2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.