Morgunblaðið - 15.01.2016, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016
Listhús Artspace býður upp á for-
sýningu á hinni árlegu hátíð Skamm-
degi í Ólafsfirði 16. og 23. janúar. Á
hverju ári velur Listhús Artspace
listamenn af ýmsu þjóðerni fyrir
Skammdegi Air-verðlaunin og dvelja
þeir í Ólafsfirði frá desember fram í
febrúar og fá að upplifa veturinn og
skammdegið. Listamennirnir, sem
eru ýmist sjónlistamenn, flytjendur,
tónlistarmenn eða rithöfundar, sýna
verk sín á Skammdegi Festival í
Ólafsfirði 28. janúar til 28 febrúar.
16. og 23. janúar munu listamenn-
irnir í Listhúsinu sýna verk sín sem
túlka, tjá og svara til skammdegisins
eða stuttra daga, eins og segir í til-
kynningu. Frekari upplýsingar má
finna á skammdegifestival.com.
Forsýning á
Skammdegi
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Borgarleikhúsið frumsýnir á Nýja
sviðinu í kvöld eitt þekktasta verk
leikbókmenntanna, Hver er
hræddur við Virginíu Woolf? eftir
Edward Albee, í þýðingu Sölku
Guðmundsdóttur og leikstjórn Eg-
ils Heiðars Antons Pálssonar. Al-
bee er eitt fremsta leikskáld
Bandaríkjanna og margverðlaunað,
líkt og leikritið sem var frumsýnt í
New York árið 1962 og kvikmynd-
að í framhaldi með Elizabeth Tay-
lor og Richard Burton í aðal-
hlutverkum.
Leikritinu er á vef Borgarleik-
hússins lýst sem „eitraðasta eft-
irpartíi leiklistarsögunnar“. Í því
segir af hjónunum Mörtu og
Georgi sem elska og vita allt um
hvort annað en eru þó – og einmitt
þess vegna – ekki hamingjusöm,
eins og því er lýst. Georg er sögu-
kennari við lítinn háskóla og Marta
húsmóðir. Að lokinni rektorsveislu
í skólanum býður Marta nýja, unga
líffræðikennaranum og eiginkonu
hans heim í eftirpartí án vitneskju
eiginmanns síns sem þekkir allt of
vel gestaleiki eiginkonu sinnar.
Hún veit allt um völd sín og áhrif
og nýtur þess að leika sér að til-
finningum annarra, eins og því er
lýst á vefnum, og miskunnarlaus
og stigmagnandi barátta hrekur
þessar fjórar manneskjur út á ystu
nöf. Með hlutverk Mörtu og
Georgs fara Margrét Vilhjálms-
dóttir og Hilmir Snær Guðnason
og með hlutverk líffræðikennarans
og eiginkonu hans Eysteinn Sig-
urðarson og Elma Stefanía Ágústs-
dóttir.
Gerði sér ekki grein fyrir
umfangi hlutverksins
Margrét er spurð að því hvort
hana hafi lengi dreymt um að tak-
ast á við þetta þekkta hlutverk,
hlutverk Mörtu. „Já, það má alveg
segja það þó ég hafi ekki alveg
gert mér grein fyrir umfangi þess í
upphafi,“ segir Margrét kímin.
Hlutverkið sé eitt hinna stóru í
leikbókmenntunum og afar áhuga-
vert. Marta og Georg hafi lengi átt
í stríði en hangi samt sem áður
enn saman. „Ég var að hugsa það
síðast í morgun af hverju þau væru
ekki löngu skilin,“ segir Margrét
og hlær en bætir við að þegar fólk
eigi sér ákveðin leyndarmál og hafi
eitthvað að fela geti það reynst erf-
itt. Hjónin sitji uppi með sárar til-
finningar sem haldi þeim saman á
einhvern hátt. „Þau hafa búið sér
til þessa leiki til að lifa það af, leiki
sem þau leika með gestum sínum
og leiða þá í gegnum dálítið hel-
víti.“
– Er Marta ógeðfelld persóna?
„Þetta er góð spurning. Ég hef
líka verið að velta því fyrir mér.
Hún kemur manni dálítið þannig
fyrir sjónir en þau hjónin ná von-
andi að halda einhverjum sjarma
hjá okkur – og gera það auðvitað
alveg – í verkinu.
Þetta er hámenntað fólk, hann
er prófessor við háskóla og þau eru
snillingar í orðaleikjum. Hún er
eldklár sem gerir hana bæði mann-
lega og breyska en líka spennandi.
Hún er ólíkindatól og maður kann-
ast við þessar týpur þó að þær séu
ekki alveg eins öfgakenndar og
þessi manneskja,“ segir Margrét.
Marta sé vel gefin og fái útrás fyr-
ir eigin sársauka með því að meiða
aðra. „Hún er líka snillingur í að
lifa af og ég vildi ekki lenda í eft-
irpartíi með henni,“ segir Margrét
og hlær innilega.
Nýklassík
Stríðið sem hjónin heyja er rosa-
legt, að sögn Margrétar, stríð sem
staðið hefur yfir í 23 ár. Hjónin eru
drykkfelld og segir Margrét að það
sé athyglisvert því ofdrykkja fylgi
oft áföllum. Hvaða áfall það kann
að vera í þeirra tilfelli skal ósagt
látið til að skemma ekki fyrir þeim
sem hafa ekki séð leikritið.
„Þetta verk fellur undir ný-
klassík, er ekki bundið neinum
tíma og felur í sér einhvern lykil
að einkennum fólksins sem verið er
að fjalla um í verkinu. Það kallast
alltaf á við mannlegar tilfinningar,“
segir Margrét, spurð að því hvað
það sé í verkinu sem tali til sam-
tímans. Georg standist ekki vænt-
ingar Mörtu um að taka við stöðu
háskólarektors af föður hennar og
sé hálfgerð lydda í hennar augum,
þó að hann sé það ekki í raun.
„Það er auðvitað eitthvað sem við
getum alltaf séð í samtíma okkar
og þetta mikla þras þeirra. Þau eru
föst í lífinu, komast ekkert áfram
tilfinningalega og leita sér ekki
hjálpar. Við þekkjum þetta og líka
alkóhólismann. Fólk situr uppi með
sársauka og reynir að lifa í sinni
áfallaröskun án þess að leita sér
aðstoðar,“ segir Margrét. Enginn
sé drepinn í verkinu en líf unga
parsins sem kemur í heimsókn sé
hins vegar lagt í rúst.
„Vildi ekki lenda í
eftirpartíi með henni“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Átök Frá æfingu á Hver er hræddur við Virginíu Woolf? sem á vef Borg-
arleikhússins er lýst sem eitraðasta eftirpartíi leiklistarsögunnar.
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? verður frum-
sýnt í kvöld Stríðsástand í eitruðu eftirpartíi
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Njála (Stóra sviðið)
Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Fim 28/1 kl. 20:00 Fim 11/2 kl. 20:00
Mið 20/1 kl. 20:00 10.k Sun 31/1 kl. 20:00 Sun 14/2 kl. 20:00
Fim 21/1 kl. 20:00 aukas. Mið 3/2 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00
Sun 24/1 kl. 20:00 11.k Sun 7/2 kl. 20:00
Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið)
Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k
Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k
Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas.
Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Mið 10/2 kl. 20:00
Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k Fim 11/2 kl. 20:00 13.k
Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k Lau 27/2 kl. 20:00
Margverðlaunað meistarastykki
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 15/1 kl. 19:00 Fös 22/1 kl. 19:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Allra síðustu sýningar
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 17/1 kl. 13:00 Sun 24/1 kl. 13:00 100.sýn Sun 31/1 kl. 13:00
Síðustu sýningar
Flóð (Litla sviðið)
Fim 21/1 kl. 20:00 Frums. Mið 27/1 kl. 20:00 3.k. Sun 31/1 kl. 20:00 5.k
Sun 24/1 kl. 20:00 2 k. Fim 28/1 kl. 20:00 4.k. Mið 3/2 kl. 20:00 6.k
Nýtt íslenskt verk um snjóflóðið á Flateyri
Sókrates (Litla sviðið)
Sun 17/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 20:00
Allra síðustu sýningar!
Vegbúar (Litla sviðið)
Fös 15/1 kl. 20:00 Lau 13/2 kl. 20:00 Fim 25/2 kl. 20:00
Lau 16/1 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00 Fös 26/2 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 23/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 20:00 Lau 6/2 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Lau 6/2 kl. 19:30 Aukasýn Fös 26/2 kl. 19:30 50.sýn
Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn Lau 5/3 kl. 15:00 54. sýn
Lau 30/1 kl. 15:00 Aukasýn Lau 13/2 kl. 15:00 Aukasýn Lau 5/3 kl. 19:30 55.sýn
Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn
Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn Sun 7/2 kl. 19:30 9.sýn Lau 20/2 kl. 19:30 12.sýn
Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 14/2 kl. 19:30 10.sýn Lau 27/2 kl. 19:30 13.sýn
Sun 31/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 19/2 kl. 19:30 11.sýn
Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar
Um það bil (Kassinn)
Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Lau 23/1 kl. 19:30 9.sýn Sun 14/2 kl. 19:30 13.sýn
Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 28/1 kl. 19:30 10.sýn Fös 19/2 kl. 19:30 14.sýn
Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 4/2 kl. 19:30 11.sýn
Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn Sun 7/2 kl. 19:30 12.sýn
Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn Fim 28/1 kl. 19:30 16.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Sun 31/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 14/2 kl. 13:00 3.sýn
Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 17/1 kl. 14:00 aukasýn Sun 24/1 kl. 14:00 aukasýn
Sun 17/1 kl. 16:00 aukasýn Sun 24/1 kl. 16:00 aukasýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari)
Fös 15/1 kl. 20:00 5.sýn Fim 21/1 kl. 20:00 9.sýn Lau 23/1 kl. 22:30 13.sýn
Fös 15/1 kl. 22:30 6.sýn Fös 22/1 kl. 20:00 10.sýn Fim 28/1 kl. 20:00 14.sýn
Lau 16/1 kl. 20:00 7.sýn Fös 22/1 kl. 22:30 11.sýn
Lau 16/1 kl. 22:30 8.sýn Lau 23/1 kl. 20:00 12.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 3/2 kl. 19:30 1.sýn Mið 17/2 kl. 19:30 3.sýn Mið 2/3 kl. 19:30 5.sýn
Mið 10/2 kl. 19:30 2.sýn Mið 24/2 kl. 19:30 4.sýn Mið 9/3 kl. 19:30 6.sýn
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
Frami (Salur)
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Samfarir Hamfarir (Salur)
Fim 21/1 kl. 20:30 Fim 28/1 kl. 20:30
Sun 24/1 kl. 20:30 Sun 31/1 kl. 20:30
Old Bessastaðir (Salur)
Fim 4/2 kl. 20:30 Mið 10/2 kl. 20:30 Fim 18/2 kl. 20:30
Sun 7/2 kl. 20:30 Sun 14/2 kl. 20:30
Eldklerkurinn (Salur)
Lau 23/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 16:00
Lífið (Salur)
Sun 17/1 kl. 13:00 Sun 7/2 kl. 13:00
Sun 24/1 kl. 13:00 Sun 21/2 kl. 13:00