Morgunblaðið - 27.02.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
Benidorm
*Á mann m.v. tvo í herbergi með hálfu fæði á
hótel Melia Benidorm.
Skemmtanastjóri er Hjördís Geirsdóttir.
Verð frá154.600 kr.*
16. og30. september
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Erlent kvikmyndatökulið er búið að setja upp
búðir við Svínafellsjökul í Öræfum. Aðalleikar-
inn í myndinni er Jackie Chan en auk hans eru
indverski leikarinn Sonu Sood og hinn kanadíski
Damian Mavis í aðalhlutverkum. Samkvæmt
vefnum imdb.com heitir myndin Kung Fu Yoga.
Æsispennandi atburðarás við Svínafellsjökul
Ljósmynd/Halldór Kolbeins
Kvikmyndagerðarmenn hafa slegið upp búðum á ísnum við Svínafellsjökul í Öræfum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hækkun verðlags á Íslandi er orðin
áhyggjuefni fyrir íslenska kvik-
myndagerð. Með sama áframhaldi
gæti þróunin haft áhrif á útfærslu al-
þjóðlegra kvikmyndaverkefna á Ís-
landi og jafnvel dregið úr umfangi
þeirra.
Þetta segir Leifur B. Dagfinnsson,
stjórnarformaður Truenorth, en
fyrirtækið hefur komið að gerð
fjölda erlendra stórmynda á Íslandi
á síðustu árum með stórstjörnum.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að slík verkefni hafa velt tug-
um milljarða króna á Íslandi á síð-
ustu árum, samkvæmt tölum
Hagstofunnar.
Leifur segir vinnuaflið á Íslandi
samkeppnishæft í verði við til dæmis
Bandaríkin og
Bretland. Aðrir
kostnaðarliðir,
einkum matur,
gisting, bílar og
annar flutningur,
séu hins vegar að
hækka upp að
sársaukamörk-
um.
„Gisting er
klárlega að verða
dýrari. Það er verið að rukka fyrir
2-3 stjörnu gistingu á verði 4-5
stjörnu gistingar. Þetta skiptir
máli.“
Tjaldi ekki til einnar nætur
„Ísland er langt frá því að vera
ódýrt. Verð á gistingu úti á landi er í
sumum tilfellum eins og í stórborg-
um. Við það bætist að framboðið af
gistingu er líka orðið of lítið. Við
þurfum að hafa vakandi auga með
þessu. Við viljum ekki tjalda til einn-
ar nætur. Við höfum byggt upp
þessa atvinnugrein í 15-20 ár og
megum ekki fá það orðspor að vera
of dýrt land. Þegar ég fer yfir kostn-
aðarliðina með erlendum framleið-
endum súpa þeir hveljur. Við eigum
enn svolítið langt í land með að geta
gert heila erlenda bíómynd á Íslandi.
Landið er of dýrt fyrir stúdíóin.“
Ísland er að verða of dýrt
Stjórnarformaður kvikmyndafyrirtækisins Truenorth bendir á hættumerki
Gisting úti á landi verðlögð eins og í stórborgum Framboðið líka of lítið
Leifur B.
Dagfinnsson
Ljósmynd/Truenorth/Birt með leyfi
Atvinnugrein Frá tökum á kvik-
myndinni Oblivion með Tom Cruise.
Mikil umsvif
» Íslensk kvikmyndagerð velti
samtals rúmum 75 milljörðum
króna á verðlagi nú frá janúar
2008 og fram á mitt síðasta ár.
» Veltan nær til framleiðslu á
kvikmyndum, myndböndum og
sjónvarpsefni.
» Veltutölurnar eru frá Hag-
stofu Íslands.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Helstu framkvæmdaaðilar hins opin-
bera tilkynntu á útboðsþingi Sam-
taka iðnaðarins (SI) í gær áformaðar
framkvæmdir á þessu ári fyrir tæpa
100 milljarða króna. Þetta er veruleg
aukning frá því í fyrra, þegar kynnt-
ar voru framkvæmdir á útboðsþingi
upp á 58,5 milljarða.
Landsvirkjun áætlar að fram-
kvæma fyrir um 20 milljarða króna.
Þar á eftir koma Isavia, Landsnet og
Framkvæmdasýsla ríkisins, sem eru
með áform um framkvæmdir upp á
11-12 milljarða króna hvert.
„Orkufyrirtækin eru komin aftur
af stað. Landsvirkjun, Orkuveita
Reykjavíkur (OR) og Landsnet eru
öll með stór áform um framkvæmdir
og í þeim liggur aukningin á milli
ára,“ sagði Árni Jóhannsson, for-
stöðumaður bygginga- og mann-
virkjasviðs SI. Hann sagði að áform
um hefðbundnar innviðafjárfesting-
ar, svo sem í vegagerð og öðrum
samgöngumannvirkjum ríkisins,
virtust vera nálægt því óbreytt á
milli ára. Fjárveitingar til Vega-
gerðarinnar vegna viðhalds og þjón-
ustu vega lækka um 0,8 milljarða frá
því í fyrra og verða um 10,3 millj-
arðar á þessu ári.
Reykjavíkurborg áætlar að verja
um 9,3 milljörðum til fjárfestinga á
þessu ári. Veitur, sem eru dóttur-
fyrirtæki OR, ætla að fjárfesta í
veitukerfum fyrir rúmlega 6,6 millj-
arða króna. Þar af eru nýfram-
kvæmdir upp á 3,9 milljarða og
endurnýjun upp á 2,7 milljarða. Orka
náttúrunnar, sem er annað dóttur-
fyrirtæki OR, áformar að fjárfesta
samtals fyrir 3,5 milljarða 2016.
Fjárfestingaáætlun Kópavogs
gerir ráð fyrir heildarfjárfestingu
upp á um 2,2 milljarða á þessu ári.
Faxaflóahafnir áætla að verja um 2,4
milljörðum til fjárfestinga og við-
halds á þessu ári, sem er um tvöfalt
meira en í fyrra.
Meiri orkuframkvæmdir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Búrfellsvirkjun Landsvirkjun
hyggur á stækkun virkjunarinnar.
Hið opinbera ætlar
að framkvæma fyrir
100 milljarða 2016
Axel Jóhannesson húsgagnasmiður
á Akureyri er hundrað ára í dag og
er það fyrsta aldarafmælið í ár hér á
landi. Axel, sem er mjög hress, býð-
ur vinum og velunnurum í kaffi á
dvalarheimilinu Hlíð, þar sem hann
býr, í dag á milli klukkan 15 og 17.
Axel er fæddur á Móbergi í
Langadal í Austur-Húnavatnssýslu,
sonur Jóhannesar Halldórssonar og
Elísabetar Þorleifsdóttur. Jóhannes
var sagður völundur í höndum og El-
ísabet sérstök ágætiskona. Hún var
náskyld Jóni Leifs tónskáldi, Jóni
Pálmasyni, alþingismanni og ráð-
herra á Akri, og Sigurði Guðmunds-
syni skólameistara.
Axel var yngstur níu systkina.
Þrjú þau elstu urðu 91 árs, 96 ára og
98 ára. Kona Axels var Birna
Björnsdóttir. Þau höfðu verið gift í
69 ár þegar hún lést í ársbyrjun
2010, 87 ára að aldri. Börn þeirra eru
fjögur. Axel og Elísabet bjuggu
lengst af á Ægisgötu 15 á Akureyri.
Nú eru á lífi 36 Íslendingar á aldr-
inum frá 100 ára til 106 ára. Átján
aðrir en Axel gætu náð þeim áfanga
á árinu að verða hundrað ára, að því
er fram kemur í samantekt Jónasar
Ragnarssonar á fésbókarsíðunni um
langlífi. skapti@mbl.is
100 ára
húsgagna-
smiður
Fyrstur til að ná
áfanganum á árinu
Opinberir aðilar brutu mögulega
gegn ýmsum reglum stjórnsýslu-
réttar í þeirri atburðarás sem leiddi
til endaloka Sparisjóðs Vestmanna-
eyja. Þetta er niðurstaða lögfræðilegs
mats sem bæjarstjórn Vestmanna-
eyja lét gera vegna „framgöngu ríkis-
aðila við þvingaða sameiningu Spari-
sjóðs Vestmannaeyja og Lands-
bankans“. Þetta kemur fram í
fundargerð bæjarstjórnar frá 25.
febrúar síðastliðnum.
Bæjarstjóra var falið að gæta
áfram hagsmuna bæjarfélagsins
vegna þessa ríka réttlætismáls, eins
og það er orðað. Því var beint til hans
að stefna Landsbankanum til að veita
óháðum dómkvöddum matsmönnum
aðgang að verðmatinu sem lá til
grundvallar verðmæti stofnfjárhluta í
SPVE. Að óska eftir áliti umboðs-
manns Alþingis á framgöngu stjórn-
valda í málinu og að beina kvörtun til
fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Vilja stefna
Landsbanka