Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
17. - 22. NÓVEMBER 2016
BANDARÍKIN
ORLANDO
Hvernig væri að skella sér með
vinkonu hópnum eða sauma-
klúbbnum í einstaka kvenna
ferð til Orlando þar sem hægt
er að sameina, sól, skemmtun
og verslun. Fararstjóri Ransý Bender
NÁNAR Á UU.IS
Síðustu tveir mánuðir hafa verið
óvenju þungir á Landspítalanum, að
því er fram kemur í vikulegum pistli
Páls Matthíassonar, forstjóra Land-
spítalans.
Í pistlinum segir hann álagið á
spítalanum endurspeglast í nýtingu
sjúkrarúma, sem hafi verið yfir 100
prósent undanfarið, en Páll segir að
til að spítalinn geti sinnt hlutverki
sínu sem skyldi þurfi að miða við að
nýting sé undir 85 prósent. Því hafi
verið lögð þung áhersla á að þeir
sem ekki þurfi lengur á þjónustu
spítalans að halda hafi möguleika á
að komast heim eða þangað sem við-
eigandi þjónusta bjóðist.
Páll segir að lausn ástandsins liggi
þó utan spítalans, en hann fagnar
eflingu heilsugæslunnar sem heil-
brigðisráðherra boðaði í vikunni,
þrátt fyrir misjafnar skoðanir fólks á
útfærsluatriðum.
Inflúensan nær hámarki
Í frétt sóttvarnalæknis á vef land-
læknis segir að mun fleiri hafi
greinst með inflúensu á heilsugæslu-
stöðvum og bráðamóttökum; líklega
sé inflúensan í hámarki um þessar
mundir. Tólf sjúklingar lágu á
Landspítalanum í vikunni vegna
inflúensu.
Á fyrstu sjö vikum ársins hafa alls
24 innliggjandi sjúklingar fengið
greiningu á inflúensu, flestir með
undirliggjandi áhættuþætti.
jbe@mbl.is
Mikið álag
síðustu tvo
mánuði
Landspítali Mikið álag undanfarið.
Inflúensan
breiðist hratt út
Morgunblaðið/Ómar
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Uppi eru áform um að opna veit-
ingastað á Klambratúni í sumar.
Staðurinn mun njóta þeirrar sér-
stöðu að gestir eru dregnir upp í um
45 metra hæð
með krana þar
sem þeir geta
notið útsýnis yfir
borgina. Jóhann-
es Stefánsson
veitingamaður,
gjarnan kenndur
við Múlakaffi, er
einn þeirra sem
standa að verk-
efninu, sem hefur
fengið jákvæða
umsögn hjá umhverfis- og skipu-
lagssviði, og var erindi hans tekið
fyrir á fundi borgarráðs í fyrradag.
Jón Axel Ólafsson, útgefandi hjá
Eddu, er talsmaður hópsins sem
stendur að verkefninu, sem hann
segir að samanstandi af vinum.
Hann segir að hugmyndin sé upp-
runnin í Belgíu og nefnist vöru-
merkið Dinner in the Sky.
Staðir í 53 borgum
Þegar eru sambærilegir veitinga-
staðir í 53 borgum. Jón Axel segir
að fjármögnun verksins sé ekki
tryggð og að ekki sé búið að stofna
félag utan um reksturinn en búið sé
að fá leyfi til þess að nota vöru-
merkið á Íslandi og í Noregi. Fyrstu
skrefin séu að fá hin ýmsu leyfi hjá
borginni áður en haldið sé áfram.
„Við erum nokkrir vinir sem feng-
um þessa hugmynd þegar við sáum
þetta erlendis,“ segir Jón Axel.
Hann segir að eðli málsins sam-
kvæmt verði bara um sumaropnun
að ræða. „Við viljum vinna þetta í
samstarfi við borgina við uppbygg-
ingu hjá Kjarvalsstöðum, sem við
teljum að sé eitt fallegasta hús
borgarinnar, á einu fallegasta svæði
borgarinnar,“ segir Jón Axel.
Spurður hvort menn hafi ekki
áhyggjur af vindum og veðrum, seg-
ir Jón Axel svo ekki vera. „Er ekki
hægt að segja að veðrið á Íslandi sé
yfirleitt gott á sumrin og sólsetrið í
júní og júlí er með því fallegra sem
gerist,“ segir Jón Axel.
Gestir í beltum
Að sögn hans er eldað á staðnum
og verður um að ræða aðstöðu fyrir
22 gesti sem setjast á pall sem hífð-
ur er upp í allt að 45 metra hæð.
Skuldbindur hver gestur sig til að
vera í einhvern ákveðinn tíma áður
en farið er niður. Allir eru spenntir í
sætin sín auk þess sem starfsfólk er
fest í öryggislínu en ekkert handrið
er til að halla sér upp að.
Sjálfur segist Jón Axel ekki hafa
prófað að borða við þessar aðstæður
en stefni að því að gera það bráð-
lega í Mexíkó.
Gestir njóti veitinga í 45
metra hæð á Klambratúni
Krani hífir gesti upp Pláss fyrir 22 niðurfesta gesti Belgísk fyrirmynd
Morgunblaðið/Golli
Brussel Háloftaveitingastaðirnir sem þekkjast undir nafninu Dinner in the Sky eru víða um heim. Hér má sjá fólk
að snæðingi í Brussel, en hugmyndin á rætur sínar að rekja til Belgíu. Áform eru um að opna slíkan stað í Reykjavík.
Morgunblaðið/Eggert
Útivist Klambratún er vinsæll útivistastaður á sumrin.
Jón Axel
Ólafasson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að þessu sinni er ég alveg tvöfaldur í roðinu á afmæl-
isdeginum; verð 16 og 64 ára í senn. Sextán ára er fólk
orðið þokkalega þroskað, er komið í fullorðinna manna
tölu og svo verður líka alveg sérstakt tilhlökkunarefni
að setja Bítlanna á fóninn og spila When I’m 64,“ segir
Valtýr Pálsson, athafnamaður á Selfossi.
Hann er hlaupársbarn og fæddur árið 1952, einn af
208 Íslendingum sem eiga afmæli 29. febrúar, sem er
næstkomandi mánudag.
Sem kunnugt er ber hlaupársdag upp á fjögurra ára
fresti og er þetta í raun ákveðin leiðrétting á dagatali
sólargangsins. Það er rétt – svo langt sem það nær – að
í hverju ári eru 365 dagar. Það tekur jörðina hins vegar
365 daga, 5 klukkustundir, 48 mínútur og 46 sekúndur
að komast umhverfis sólina og því þarf að bæta einum
degi við fjórða hvert ár svo þessi fínstilling tímatalsins
gangi upp. Það má svo rekja alveg aftur til menningar
hins forna Rómaveldis að hlaupársdagur sé í febrúar.
Styttist í bílprófsaldurinn
„Afmælisdagurinn er nú annars nokkuð sem maður
spáir ekkert mikið í. Þegar ég var strákur var alltaf
boðið heim gestum í tilefni dagsins og þá vildi ég að það
væri 1. mars. Mér fannst ekki annað ganga upp, enda
ekki fæddur 28. febrúar. En eðlilega var stundum haft
orð á þessum afmælisdegi við mig og það bara vandist.
Stundum fylgdu þessi einhver létt skot en þá var bara
að svara fyrir sig. Núna segi ég til dæmis að óðum
styttist í formlegan bílprófsaldur, bara fjögur ár,“ seg-
ir Valtýr sem rekur gistiheimili á Selfossi.
Á Íslandi er algengast að börn fæðist frá vori til
hausts. Um 52% þjóðarinnar eiga afmæli á tímabilinu
apríl til september. Sérstaklega hefur 27. september
komið sterkur inn, en skv. nýlegum tölum Hagstof-
unnar eru 992 fæddir þann dag. Í dag, 27. febrúar, eru
afmælisbörnin 849. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Afmælisbarn Tvöfaldur í roðinu, segir Valtýr Pálsson.
Sextán ára og spilar
Bítlana í tilefni dagins
208 Íslendingar eiga af-
mæli á hlaupársdeginum