Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
Eins og fram hefur komið er„bisnessmódelið“ hjá Pírötum
að fá sem mest-
ar tekjur frá
ríkinu. Það er
athyglisvert en
ekki sérstak-
lega virðingar-
vert markmið
hjá stjórnmála-
flokki að vilja gera sérstaklega út á
vasa almennings.
Fleira er umhugsunarvert við Pírata þegar kemur að skattfé.
Nú hafa þeir til dæmis samþykkt þá
ófrávíkjanlegu stefnu að taka ekki
þátt í ríkisstjórn nema ráðherrar
sitji ekki jafnframt sem þingmenn.
Þetta mundi hafa ýmsar afleið-ingar, til að mynda þá að
launakostnaður ríkisins myndi
aukast um tíu til tólf þingfararkaup,
eftir því hversu fjölmenn ríkis-
stjórnin yrði.
Kostnaðurinn yrði að minnstakosti eitt hundrað milljónir
króna á ári.
Að vísu færi hluti þess kostnaðartil Píratanna í stjórnarmeiri-
hlutanum, þannig að þetta fer að
því leyti ágætlega saman við „bis-
nessmódelið“, en erfitt er að sjá
aðra kosti við þessa gömlu og göll-
uðu hugmynd.
Það er sérkennilegt að flokkursem ekki er vitað til að hafi
stefnu í nokkru máli skuli hafa sett
sér stefnu um slík skilyrði fyrir því
að setjast í ríkisstjórn.
Væri ekki nær að móta og jafnvelkynna málefni flokksins? Það
gæti jafnvel líka orðið til þess að
forystumenn flokksins fyndu sér
annað að deila um en meintan róg-
burð sinn og ósannindi.
100 milljóna króna
ekki-stefna
STAKSTEINAR
Búnaðarþing verður sett við hátíð-
lega athöfn í Hörpu á morgun, sunnu-
daginn 28. febrúar, klukkan 12.30. Af
því tilefni verður slegið upp landbún-
aðar- og matarhátíð í Hörpu á milli kl.
11 og 17 þar sem allir eru velkomnir
og aðgangur ókeypis. „Gestum gefst
kostur á að kynna sér úrval íslenskra
búvara hjá nokkrum úrvinnslufyr-
irtækjum bænda, skoða búvélar og
virða fyrir sér mannlífið í Hörpu,“
segir í frétt frá Bændasamtökunum.
Fyrir utan tónlistarhúsið verður grill-
vagn sauðfjárbænda, hamborg-
arabíllinn Tuddinn, ásamt drátt-
arvélum og öðrum tækjabúnaði sem
bændur nota í sínum störfum. Meðal
fyrirtækja sem verða á svæðinu eru
MS, Sláturfélag Suðurlands, Sölu-
félag garðyrkjumanna, Flúðasveppir,
Biobú, Kraftvélar, Vélfang, Fóð-
urblandan og Landbúnaðarháskóli
Íslands.
Setningarathöfnin er öllum opin.
Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ,
flytur setningarræðu og Sigurður
Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráð-
herra, ávarpar gesti. Guðlaug El-
ísabet Ólafsdóttir leikkona og bóndi á
Mýrum stýrir athöfninni. Dömur í
Graduale-kórnum syngja nokkur lög
og bóndinn Svavar Pétur Eysteins-
son, Prins Póló, flytur nokkra af sín-
um þekktustu slögurum.
Landbúnaðarhátíð haldin í Hörpu
Bóndinn Prins Póló flytur þekkta
slagara við setningu Búnaðarþings
Hátíð Bændasamtökin búast við
fjölda gesta á hátíðina í Hörpu.
Veður víða um heim 26.2., kl. 18.00
Reykjavík 2 léttskýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -6 skýjað
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 2 léttskýjað
Ósló 3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -2 snjókoma
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 3 léttskýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 5 alskýjað
London 6 léttskýjað
París 5 alskýjað
Amsterdam 5 heiðskírt
Hamborg 3 skýjað
Berlín 3 skýjað
Vín 5 skýjað
Moskva 1 heiðskírt
Algarve 12 skúrir
Madríd 7 skúrir
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -5 léttskýjað
Montreal -12 skýjað
New York 1 léttskýjað
Chicago 1 skýjað
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:44 18:38
ÍSAFJÖRÐUR 8:55 18:37
SIGLUFJÖRÐUR 8:38 18:20
DJÚPIVOGUR 8:15 18:06
Uppþvottavélar
Helluborð
Ofnar
Háfar
Kæliskápar
Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15
friform.is
Viftur
SANNKALLAÐ
PÁSKAVERÐ
NÚÍAÐDRAGANDAPÁSKANNAHÖFUMVIÐÁKVEÐIÐ
AÐBJÓÐAOKKARALBESTAVERÐ
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
AFSLÁTTUR
15%
AFÖLLUMINNRÉTTINGUMTILPÁSKA
20%AFSLÁTTURAF
RAFTÆKJUM
VÖNDUÐRAFTÆKIÁVÆGUVERÐI
Veðurstofan
spáði því að víða
yrði léttskýjað í
dag. Í kvöld á að
þykkna upp suð-
vestanlands með
vaxandi suð-
austanátt.
Á morgun,
sunnudag, geng-
ur í suðaustan
hvassviðri eða
storm, fyrst suðvestantil upp úr há-
deginu með snjókomu og síðar
slyddu eða rigningu. Lengst af
verður hægari vindur og úrkomu-
lítið norðaustantil. Annað kvöld á
að lægja vestantil. Veður fer þá
hlýnandi. Á mánudag er spáð stífri
suðvestanátt með éljum.
Það á að þykkna
upp með kvöldinu
Hvasst Leiðinda-
veður á morgun.
Allar björgunarsveitir á Norður-
landi vestra voru kallaðar út um
kvöldmatarleytið í gær til leitar í
Vesturárdal í Miðfirði. Um bónda af
svæðinu var að ræða, sem fór frá
heimili sínu á vélsleða stuttu eftir
hádegi.
Maðurinn fannst í gærkvöldi, en
bóndi sem var á ferð á traktor fann
hann. Maðurinn hafði þá velt sleða
sínum ofan í læk og ekki tekist að
koma honum upp úr. Maðurinn var
heill á húfi þegar hann fannst, þó
orðinn kaldur eftir hremming-
arnar.
Leituðu manns í
Vesturárdal