Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 10

Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég er að vinna að teikn-ingum með mannslíkam-ann núna, þar sem égstyðst við lifandi fyrir- myndir, bæði karla og konur. Fólk er í hversdaglegum og látlausum stellingum og líka óvenjulegum sem er þó lýsandi fyrir það sjálft. Þetta er heillandi viðfangsefni. Þó ég hafi teiknað módel frá unga aldri, reyndar með hléum, þá hef ég alltaf skáldað eða teiknað eftir tilfinningu í verkum mínum, frekar en að líkja beint eftir. Núna hef ég lifandi fyrirmyndir og nálgunin verður annars eðlis og nær mann- eskjunni, ekki bara hugmynd eða tilfinning um hana. Það þarf að myndast einhver þráður milli þess sem kemur frá mér í teikningunni og svo þess sem situr fyrir. Það þarf að myndast einhver spenna eða eitthvað sem heillar og það getur verið óútreikn- anlegt hvað það er, en það er eitt- hvað sem kallar. Fólk er yfirleitt heillandi, meira en það gerir sér grein fyrir, ekki síst þegar það tal- ar ekki. Það nægir bara að vera. Svo er það línan, hún sér um sig sjálf og myndar eigið líf, hún er það sem allt snýst um. Þegar best gengur hefur línan og teikningin beinlínis áhrif bæði á þann sem gerir verkið og þann sem síðar horfir á það. Fátt veit ég magnaðra en einfaldar línur af manneskju, góð teikning segir allt. Ég finn sjálf breytingar á hjart- slætti bæði þegar ég teikna og sé góða teikningu af sál- arlífi manneskju, það kemur sláttur inn á allt kerfið hjá manni. Það er merkilegt hvað málverkið nýtur mikillar virðingar miðað við að málverk getur aldrei nálgast léttleika einfaldrar teikn- ingar,“ segir Kristín Gunnlaugs- dóttir myndlistarkona sem vinnur nú að nýjum verkum á nýrri vinnu- stofu sem hún lét byggja heima hjá sér. „Þetta er draumur sem rætt- ist. Hér er komin hlýleg og falleg vinnustofu þar sem allt er einfalt, þægilegt og klæðskerasniðið að mínum þörfum. Ég stækkaði og bætti gömlu vinnustofuna sem var hér fyrir um helming, en hún var orðin feyskin og fúin. Einnig bætt- ist við lofthæðina. Þetta gjörbreytir aðstöðunni og einfaldar lífið mikið. Gamla vinnustofan var orðin allt of lítil, sérstaklega þegar ég var að vinna stóru verkin mín, ég þurfti að leigja sérstaklega vinnustofu til að sinna þeim. En svo var ég heppin og ákvað að ráðast í þessa stóru framkvæmd, það var annaðhvort núna eða fresta því enn og aftur um óákveðinn tíma. Þetta var lang- Vinna, heimili og lífs- stíll flæðandi heild „Viðhorf manns til alls sem maður horfir á skerpist og breytist þegar maður teiknar eftir lifandi fyrirmynd, það er stanslaus áskorun en fátt kennir manni meira,“ segir myndlistarkonan Kristín Gunnlaugsdóttir sem fær til sín módel sem koma og sitja fyrir hjá henni á nýju vinnustofunni. Mannslíkaminn er rauði þráðurinn í þeim verkum sem hún vinnur að núna. Kristín Finnst skipta öllu að vinna við það sem henni finnst skemmtilegast. „Ég er ein af þessum þar sem vinnan er hvíld.“ Hjá mörgum er það líkt og jólin séu komin aftur þegar bókamarkaðurinn hefst, því þá er nú aldeilis hægt að gera góð kaup og næla sér í draumabækurnar, nú eða fylla á gjafalagerinn heima, til að eiga bæk- ur til afmælisgjafa og jafnvel jóla- gjafa um næstu jól. Í gær hófst bókamarkaðurinn á Laugardalsvelli, undir nýju stúkunni við fótboltavöllinn, þjóðarleikvang Íslendinga. Vert er að taka fram að hann er ekki í Laugardalshöll eins og margir halda. Þarna eru bækur frá hinum fjölbreyttustu forlögum og bækur af öllum tegundum og gerðum, bæði nýjar og gamlar. Bókamarkaðurinn mun standa til og með 13. mars og opið er alla daga vikunnar frá kl. 10 og til 21 öll kvöld. Á markaðinum þetta árið eru hvorki meira né minna en rúmlega 7000 titlar af bókum. Hið ánægju- lega er að barnabókadeildin hefur stækkað um þriðjung og aldrei verið betra úrval af lesefni fyrir börn og ungt fólk, enda nauðsynlegt að hlúa vel að lesendum framtíðarinnar. Sérstök áhersla er núna á þýdd og íslensk skáldverk í kiljuformi. Auk þess er gríðarlegt magn af fræðibókum, matreiðslubókum, hannyrðabókum, garðabókum, sjálfshjálparbókum, ævisögum, ljóðabókum, hljóðbókum og ýmsum handbókum. Bókamarkaðurinn hófst í gær Grams Ungmennabækurnar eru margar og spennandi, þar er nóg að hafa. Yfir 7.000 titlar af bókum Morgunblaðið/Eggert Stór Bókaúrvalið er mikið á markaðinum og hólfað niður eftir flokkum. „Sannkölluð spænsk veisla,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri og höf- undur nýrrar leikgerðar Blóðbrúð- kaups eftir Federico Garcia Lorca, sem Leikfélag Menntaskólans í Reykjavík frumsýndi á Herranótt í gær. Leik- verkið verður sett aftur á fjalirnar í Gamla bíói kl. 20 mánudagskvöldið 29. febrúar og nokkrum sinnum í mars. „Tónlistin er eftir Leonard Choen, sem var mikill aðdáandi Lorca og samdi tónlist við mörg verka hans. Hagmæltir nemendur skólans þýddu textana á íslensku,“ segir Jón Gunnar. Blóðbrúðkaup er klassísk saga um ástir og ástríður, hefðir og hefnd, mannlegt eðli og einstaklingsfrelsi. Söguþráðurinn fylgir brúði sem flýr með fjölskylduóvininum á brúðkaups- deginum. Sýningin er ætluð öllum ald- urshópum og er stútfull af hita, tónlist og rythmískum dansi með þátttöku hátt í eitt hundrað nemenda skólans. Leikstjórinn, tónlistarstjórinn, danshöfundurinn og búningahönn- uðurinn eru engir nýgræðingar. Jón Gunnar hefur leikstýrt tugum verka hér heima og erlendis, t.d. setti hann nýlega upp sýninguna Vegbúar í Borg- arleikhúsinu. Björn Thorarensen tón- listarstjóri sér um kór- og hljómsveit- Blóðbrúðkaup Herranætur í Gamla bíói Saga um ást, hefnd, mannlegt eðli og einstaklingsfrelsi Ljósmyndir/Emil Örn Kristjánsson Hefð Sýningin í ár er sú 171. í sögu Leikfélags Menntaskólans í Reykjavík. Nýr Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is Sproti 405 Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.