Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 11

Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýja vinnustofan Kristín er ánægð með nýju vinnustofuna sem hún stækkaði um helming. Þar er allt einfalt, þægi- legt og klæðskerasniðið að hennar þörfum. Á trönunum á innsta veggnum getur hún haft mörg verk í gangi í einu. þráður draumur sem rættist og ég er auðvitað mjög ánægð með ár- angurinn. Andrýmið er meira og gefandi og hér get ég gert margt í einu.“ Getur verið einmanalegt Þegar Kristín er spurð að því hvernig henni gangi að aga sig með vinnustofu sem er á heimilinu, seg- ir hún allan gang á því. „Ég get verið talsvert eirðar- laus, en vinn helst þegar börnin eru í skólanum. Kannski er það mitt kvenlega eðli að gera margt í einu, vinna og sinna heimilinu og það getur verið alveg frábært. Mér finnst ég hafa marga í vinnu, bak- araofninn, þvottavélina, þurrk- arann, tölvuna. Þau standa sig ágætlega en það þarf að standa yfir ryksugunni, eldavélinni og laga til í reflexinum. Að sjálfsögðu hefur það verið mikil vinna að lifa af mynd- listinni og koma sér upp vinnuað- stöðu heima með tvö börn. En ég hef verið heppin og náð að vinna ágætlega úr tækifærum sem hafa boðist. Óvissan um afkomu er oft erfið í þessari vinnu en mér finnst það skipta öllu að vinna við það sem mér finnst skemmtilegast. Gæti ekki hugsað mér að hafa það öðruvísi og finnst sjálfsagt og eft- irsóknarvert að láta vinnu, heimili og lífsstíl vera eina flæðandi heild. Það gefur ákveðið frelsi. Núna er mikið af sýningum framundan og fókusinn skerpist við það. Það er allt undir manni sjálfum komið hvernig og hvort maður nýtir tímann en það hentar mér vel að vinna heima. Ég er ein af þessum þar sem vinnan er hvíld, sé áhuginn á verk- efninu fyrir hendi, hvort sem það er að vinna á vinnu- stofunni eða vinna að heim- ilinu. Kvöldin geta reynst mér drjúg og þá kemur sér vel að vinnustofan er áföst heimilinu. Ég nýt þess að vinna í ljósaskiptunum, líka þegar dimmt er úti og jafnvel við litla lýs- ingu um hánótt. Mér hefur fundist að verktakar eins og ég, sem eru sívinnandi, átti sig ekki alltaf best á hvar skilin eru milli vinnu og ekki vinnu. Stundum breytist mar- engstertan í myndverk,“ segir Kristín og bætir við að starf myndlist- armannsins geti verið einmana- legt og mik- ilvægt sé að ein- angrast ekki. „Það er nauðsynlegt að vera í tengslum við fólk sem er að vinna í greininni og líka að gefa færi á sér og miðla. Og hrósa hvert öðru.“ Á vinnustofunni hefur Kristín komið sér upp afar hentugum trön- um, en Jón Axel myndlistarmaður á heiðurinn af þeirri hugmynd og hún mælir með henni á vinnustof- um listamanna þar sem unnin eru myndverk. Ódýr og einföld lausn á einum vegg þar sem hægt er að hafa mörg verk í gangi í einu. Sýning í Köben framundan Kristín sýndi vatnslitamyndir af mannslíkamanum þegar hún opnaði vinnustofuna í nóvember og hún segist verða með svipaða sýn- ingu í litlu herbergi í Skúmaskoti í mars. „Í augnablik- inu er ég að vinna með nokkuð margt í einu og í ólík efni, vatnsliti, pappír, glimmer, olíu og kol. Mér fellur best að teikna og fylgja línunni eins og henni líður þann daginn, því ein- faldara því betra. Núna hef ég eig- in módel sem koma og sitja fyrir hjá mér, sem er magnað og ég teikna mikið og vatnslita. En mikið fer nú í arininn. Viðhorf manns til alls sem maður horfir á skerpist og breytist þegar maður teiknar eftir lifandi fyrirmynd, það er stanslaus áskorun en fátt kennir manni meira. Mannslíkaminn er því rauði þráðurinn, en best er að leyfa verk- unum að tala í bili,“ segir hún en verk hennar um kynvitund og tabú hafa vakið mikla athygli. Á næsta ári mun Kristín ásamt Margréti Jónsdóttur leir- listakonu sýna í Norðurbryggju og sendiráði Íslands í Kaupmanna- höfn. Bjart Kristín vildi hafa stóra glugga og dyr beint út á pall. Þrjú nýleg verk Kristínar Tvær módelmyndir sem eru vatnslitastúdíur og einnig gyllt pappírsskor. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Söngskólinn íReykjavík Síðasta 7 vikna námskeið vetrarins hefst 29. febrúar 2016 og lýkur 26. apríl Einnig er hægt að fá einkatíma í söng - fjöldi tíma samkomulag SÖNGNÁMSKEIÐ Nánari upplýsingar www.songskolinn.is /  552-7366 Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi! • Fyrir fólk á öllum aldri: Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk • Kennslutímar:Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar • Söngtækni:Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur • Tónmennt:Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur arútsetningar og stýrir efnilegri tólf manna hljómsveit sem eingöngu er skipuð MR-ingum. Danshöfundurinn Guðmundur Elías Knudsen, hefur unn- ið með Íslenska dansflokknum og í Borgarleikhúsinu, og búningahönn- uðurinn Agnieszka Baranowska við út- litshönnun í leikhúsi og kvikmyndum víða um heim. Lorca var ljóðskáld, leikritahöf- undur og leikhússtjórnandi og eitt dáðasta skáld Spánverja. Hann barðist fyrir félagslegum jöfnuði og réttindum samkynhneigðra. Mörg verka hans spegla þessar skoðanir. Lorca var skotinn til bana í byrjun spænsku borgarstyrjaldarinnar 1936. Herranótt Hátt í eitt hundrað nemendur koma að uppfærslu Blóðbrúðkaups. Ást og ástríður Klassísk saga um ungar ástir.Átök Sumum verður heitt í hamski og dauðinn virðist óumflýjanlegur. Miðasala er á midi.is og í MR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.