Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
aðalfundur
eimskipafélags íslands hf.
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 17. mars 2016
kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík.
reglur um þátttöku og
atkvæðagreiðslu á fundinum
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram
ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða
rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða
drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en
10 dögum fyrir fund, fyrir kl. 16:00 þann 7. mars 2016. Nánari
upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu
félagsins: www.eimskip.is/investors/agm
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum
eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar,
atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur til
boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða
veita umboð. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með
rafrænum hætti á fundinum.
Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa
um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.
Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig
má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má
atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Atkvæðin
skulu berast félaginu fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta veitt
skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík
umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst eða
við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um
atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu
félagsins: www.eimskip.is/investors/agm
aðrar upplýsingar
Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu
félagsins: www.eimskip.is/investors/agm
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík,
virka daga milli kl. 9:00 og 16:30.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar tveimur
vikum fyrir fundinn. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær
birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri
dagskrá. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 má
tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm
dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 25. febrúar 2016
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
drög að dagskrá
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
á liðnu starfsári
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2015
4. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
5. Kosning stjórnar félagsins
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna
og undirnefnda stjórnar
7. Kosning endurskoðenda
8. Önnur mál, löglega upp borin
Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | 525 7000 | eimskip.is
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) fagnar eitt
hundrað ára tilvist sinni hinn 12. mars næst-
komandi og í tilefni þess verður efnt til veg-
legra hátíðarhalda víðsvegar um land.
„Við ákváðum að fagna þessum tímamótum
með tónleikaveislu enda hefur tónlist leikið
stórt hlutverk í verkalýðshreyfingunni alla tíð
og um leið verið einkennandi í afmælisfagnaði
ASÍ,“ segir Snorri Már Skúlason, deildarstjóri
upplýsinga- og kynningarmála hjá ASÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið. Meðal annars verður
boðið til tónleika á fjórum stöðum á landinu
þar sem fjölmargir listamenn, ungir jafnt sem
eldri, stíga á svið og skemmta viðstöddum.
„Með þessu viljum við meðal annars ná til
yngri hluta þjóðarinnar því verkalýðshreyfing-
unni hefur oft verið legið á hálsi fyrir það að
vera gamaldags og þunglamaleg, en við viljum
sýna að afmælisbarnið er kvikt og í fullu fjöri.“
Baráttusagan túlkuð með list
Afmælishátíðin hefst með fjölskyldu-
skemmtun í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu
Hörpu í Reykjavík klukkan 14 á afmælisdag-
inn. Verður þar boðið upp á tónleika með Páli
Óskari og Úlfi Úlfi í Norðurljósasal. Þá mun
tvíeykið Hundur í óskilum setja upp stutta
leiksýningu í Kaldalóni klukkan 15 og 16 þar
sem farið verður yfir nokkra merkisatburði úr
aldagamalli sögu verkalýðshreyfingarinnar.
„Við fengum þá til þess að setja upp leiksýn-
ingu og er ég viss um að hún eigi eftir að slá í
gegn, en þeir vinna nú hörðum höndum að því,
undir leiðsögn Kjartans Ragnarssonar [leik-
stjóra], að fínstilla sýninguna áður en að sjálf-
um afmælisdeginum kemur,“ segir Snorri Már
og bendir á að sögu Alþýðusambandsins verða
einnig gerð viðeigandi skil á ljósmyndasýn-
ingu, sem nefnist Vinnandi fólk, í Þjóðminja-
safninu. „Við höfum í samvinnu við safnið unn-
ið að undirbúningi sýningarinnar í hálft ár og
hún verður gríðarlega flott,“ segir hann, en
sýningin verður opnuð 5. mars næstkomandi.
Þennan sama dag verður sýningin Gersem-
ar opnuð í Listasafni ASÍ og gefst almenningi
þar færi á að kynna sér mörg af þekktustu
myndverkum tuttugustu aldar eftir nokkra
fremstu listamenn þjóðarinnar, s.s. Ásgrím
Jónsson, Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur
og Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Lúðrasveit verkalýðsins verður að sjálf-
sögðu á sínum stað og standa meðlimir hennar
fyrir fjörugum tónleikum í salnum Kaldalóni í
Hörpu klukkan hálfsex á afmælisdaginn, en
áðurnefnda viðburði í tónleikahúsinu geta
landsmenn sótt án endurgjalds.
Þegar kvölda tekur hefjast svo fernir tón-
leikar samtímis klukkan 20 og verða þeir
haldnir í Eldborgarsal Hörpu, Hofi á Akur-
eyri, Edinborgarhúsinu á Ísafirði og Egilsbúð
í Neskaupstað. Aðgangur á tónleikana er án
endurgjalds en Snorri Már segir fólk hins veg-
ar þurfa að verða sér úti um miða og eru þeir
afhentir á vefsíðunum trix.is og harpa.is og
hefst afhending þeirra á hádegi 4. mars næst-
komandi.
Meðal þeirra sem fram koma á þessum tón-
leikum má nefna Retro Stefson, Mannakorn,
Valdimar, Agent Fresco, Hvanndalsbræður,
Emmsje Gauta, Mugison og Lay Low. Nánari
upplýsingar um tónleikana og þá listamenn
sem þar koma fram má finna á heimsíðu ASÍ.
Grímur Atlason heldur utan um afmælistón-
leikana. „Markmiðið er að halda góða hátíð
sem getur glatt og skemmt fólki,“ segir hann
og heldur áfram: „Ég held að flestir ættu að
geta fundið sér eitthvað til skemmtunar á
þessum degi enda taka flottir listamenn þátt í
þessari hátíð víðsvegar um land.“
Spurður hvort ekki sé strembið að skipu-
leggja svo marga viðburði sem að auki eiga all-
ir að hefjast á sama tíma kveður Grímur já við.
„Þetta er vissulega mikil vinna en ég tók þetta
að mér því mig langaði mjög að koma að þessu
verkefni,“ segir hann.
Sagan hófst í Báruhúsinu í Reykjavík
Það var 12. mars árið 1916 sem fulltrúar sjö
stofnfélaga söfnuðust saman í Báruhúsinu í
Reykjavík og samþykktu stefnuskrá Alþýðu-
sambandsins. Er talið að stofnfélagar hafi ver-
ið á bilinu 1.500 til 1.900 talsins, en í dag eru fé-
lagsmenn Alþýðusambands Íslands yfir 75
þúsund í tæplega 100 félögum og deildum.
Hátt í helmingur þeirra er konur en kynja-
skipt félög eru á hröðu undanhaldi. Aðild-
arfélögin raða sér svo í sex landssambönd.
Alþýðusamband Íslands senn 100 ára
Saga verkalýðshreyfingarinnar rifjuð upp í máli og myndum Haldnir verða fernir tónleikar á
jafn mörgum stöðum víðsvegar um land Ljósmyndasýningar og leikur fara yfir aldagamla baráttu
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Réttindi Í fyrstu snérust baráttumálin einkum um að verkafólk fengi greitt fyrir vinnu í pen-
ingum og um hvíldartíma. Myndin sýnir kröfugöngu sem farin var 1. maí í Reykjavík.
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Málflutningur í kaupréttarmáli
Landsbankans hófst í Hæstarétti í
gær. Í því eru Sigurjón Árnason,
fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, og Sigríður Elín Sigfúsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri fyr-
irtækjasviðs bankans, ákærð fyrir
umboðssvik við veitingu sjálfskuld-
arábyrgðar á lánasamningum
tveggja aflandsfélaga við Kaupþing.
Héldu félögin utan um kauprétti
starfsmanna Landsbankans og voru
þau skráð á Panama. Heildarábyrgð-
in hljóðaði upp á 6,8 milljarða.
Sigríður Elín og Sigurjón voru
bæði sýknuð í héraðsdómi og ríkið
dæmt til að greiða málsvarnarlaun
verjenda upp á 23 milljónir.
Helgi Magnús Gunnarsson, vara-
ríkissaksóknari, fór fram á það við
upphaf málflutnings síns að ákærðu
yrðu sakfelld í Hæstarétti. Hann fór
yfir málsatvik í stuttu máli, en þau
eru óumdeild hjá bæði sækjanda og
verjendum. Þar lýsti hann því að
aflandsfélögin Empennage Inc. og
ZimhamCorp hefðu fengið ábyrgðir
frá Landsbankanum þegar félögin
keyptu hlutabréf í Landsbankanum
fyrir 2,5 milljarða og 4,3 milljarða.
Voru kaupin fjármögnuð með lán-
veitingu frá Kaupþingi og voru vist-
uð á vörslureikningi í þeim banka.
Átti þetta sér stað í júlí 2006, en í
júní ári seinna voru bréfin og
ábyrgðin flutt að fullu yfir í félagið
Empennage og skilmálum lána-
samningsins breytt, m.a. með leng-
ingu samningsins um 2 ár.
Sigurjón og Sigríður Elín sam-
þykktu þessi viðskipti og í seinna
málinu hefur ekki fundist neitt stað-
fest ákvörðunarblað í málinu.
Líkti málinu við Ímon-málið
Líkti Helgi málinu við Ímon-mál-
ið, þar sem Sigurjón og Sigríður Elín
voru dæmd í fangelsi fyrir umboðs-
svik og markaðsmisnotkun fyrir sölu
á eigin bréfum til tveggja aflandsfé-
laga og lán til viðskiptanna. Hann
sagði að við ákvörðun refsingar í
þessu máli ætti að horfa til niður-
stöðunnar í Ímon-málinu, þar sem
um sambærileg brot væri að ræða. Í
því máli fékk Sigurjón 3,5 ára fang-
elsi og Sigríður Elín 1,5 ára fangelsi.
Helgi lagði það jafnframt fyrir
dóminn að skoða mögulegt refsi-
þyngingarákvæði samkvæmt 72.
grein almennra hegningarlaga í
brotum sem þessum. Hann sagði að
væntanlega væri ekki hægt að flokka
málið sem vanabrot þar sem fyrri
mál sem Sigurjón og Sigríður Elín
hafa verið dæmd fyrir gerðust eftir
málsatvik þessa máls.
Saksóknari vill
þyngri refsingu
Kaupréttarmál Landsbankans
Morgunblaðið/Sverrir
Hæstiréttur Málflutningur er haf-
inn í kaupréttarmáli Landsbankans.