Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 14

Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 14
ÚR BÆJARLÍFINU Jón Sigurðsson Blönduósi Snjó- og auðnutittlingar hafa nánast ekkert sést á Blönduósi í vet- ur. Það er mat manna að fjarvera snjótittlinganna stafi fyrst og fremst af breyttum búskaparháttum og er þá átt við kornræktina. Hvað auðnu- tittlingana varðar þá virðist sem hrun hafi orðið í stofninum sem eng- ar skýringar eru á. Ólíklegt er að þeir 19 kettir sem skráðir eru á Blönduósi afreki það að halda stofn- inum niðri og því síður 51 hundur sem skráður er. En það er ekki bara auðnutittlingunum sem fækkar því íbúum hefur fækkað um 46 á 10 ár- um og er fækkunin einna mest á síð- asta ári en þá fækkar íbúum um 20 frá árinu á undan.    Oft hefur verið rætt um að þjóð- vegurinn í gegn um Blönduós þarfn- ist lagfæringar. Fram hefur komið að undirbúningur Vegagerðarinnar að lagfæringum á Blöndubrú er langt kominn en í þeim áfanga verð- ur bríkin að sunnanverðu fjarlægð og sett nýtt handrið á brúna. Þá verður gólf brúarinnar endurnýjað. Áætlaður kostnaður við þessa fram- kvæmd er um 30 milljónir. Samhliða þessu þarf að breikka veginn báðum megin við brúna og er kostnaður áætlaður 10-15 milljónir.    En fleira af vettvangi sveit- arstjórnarmála. Geta má þess að sveitarstjórn hefur ákveðið að sækja um styrk úr húsfriðunarsjóði til að undirbúa umsókn um að „Gamli bærinn á Blönduósi“ verði vernd- arsvæði í byggð. Og ekki nóg með það. Byggðaráð Blönduóss ætlar að styrkja Félag íslenskra krafta- manna um 140.000 kr til að keppa í 1 – 2 keppnisgreinum í ágúst í sumar og koma bænum á sjónvarpskortið.    Það eru ekki allir sem vita það að Blönduós er gæsabær. Arnór Þ Sigfússon fuglafræðingur er að fjár- magna um þessar mundir merkingar á grá- og heiðargæsum. Um er að ræða m.a. merkingar með gsm-sendi sem sendir daglega upplýsingar um staðsetningu gæsanna með gps- merki. Arnór hefur reifað að hann sé tilbúinn að merkja hér gæs nái hann að safna sem nemur 1.700 evrum en það er kostnaðurinn við tækið. Arn- ór hefur mikinn áhuga á að merkja gæsir á Blönduósi því hér voru merktar gæsir árið 2000 sem skiluðu sem sér ótrúlega lengi aftur í heima- hagana eftir merkingu. Til gamans má geta þess að síðastliðið ár var enn að skila sér gæs sem var merkt sem ungi árið 2000 og ber einkenn- isstafina AVP. Nú er bara að spýta í lófana og safna saman 1.700 evrum svo við eignumst á ný merkta gæs sem hægt er að fylgjast með daglega og fara þess á leit við skyttur hér- aðsins að skjóta ekki vel merkta fugla. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Í vetrarblíðu Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi í góublíðunni með með Strandafjöllin í bakgrunni. Fjármagna gæsamerkingar 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Einstök náttúrufegurð og forn menning. Serbía, Svartfjallaland og Króatía. Við ferðumst um þrjú af löndum fyrrum Júgóslaviu, Serbiu, Svartfjallaland og Króatíu. Þar er æfa gömul menning, sagan mikil og náttúrufegurð einstök. Við förum aftur í tíma og rúmi, sjáum gömul þorp þar sem tíminn hefur staðið í stað. Keyrum um falleg sveitahéruð, skoðum kirkjur, klaustur, söfn og glæsilegar borgir svo eitthvað sé nefnt. Við kynnumst brosandi heimamönnum og því spennandi umhverfi sem þeir lifa í. 13.-25. júní 2016 Verð 337.900 kr. á mann í 2ja manna herbergi Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgun- mat, allar ferðir, öll keyrsla, hálft fæði megin- part ferðar og íslenskur fararstjóri Sími 588 8900 transatlantic.is Balkan- skaginn Leyst úr Læðingi Áhrif erfiðra uppeldisaðstæðna og áfalla á andlega heilsu Gullteigur, Grand Hótel 1. mars 2016. Fundarstjóri Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlamaður. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda verkefnisstjori@gedhjalp.is. Aðgangseyrir kr. 2.000, frítt fyrir félaga í Geðhjálp 13.00 - 13.10 13.10 - 13.25 13.25 - 14.05 14.05 - 14.45 14.45 - 15.00 15.00 - 15.20 15.20 - 15.40 15.40 - 16.00 16.00 - 16.30 Hvernig er hægt að draga úr ofbeldi í samfélaginu? Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hvers vegna? Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar Áhrif kynferðisofbeldis á andlega heilsu karla og kvenna, Gæfusporin, heildræn meðferðarúrræði Sigrún Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, doktorsnemi í hjúkrunarfræði við HÍ. Mín saga – mín leið Jokka G. Birnudóttir. Gunnar Hansson. Jenný Henriksen. Sunna Rós Baxter. Kaffi SUSS!!! Leikhópurinn RaTaTam kynnir vinnu sína við leikverkið SUSSS!!! Verkið byggir á reynslusögum þolenda, gerenda og aðstandenda í heimilisofbeldi. Þegar áföll leiða til geðröskunar og fíknar. Þorgeir Ólason, forstöðumaður meðferðarheimilisins Krísuvíkur. Áhrif erfiðra upplifana í æsku: Hvernig er hægt að vinna með afleiðingarnar? Dr. Gyða Eyjólfsdóttir, sálfræðingur. Pallborðsumræður Sigmar Guðmundsson stýrir pallborðsumræðum. Eftirtaldir verða í pallborði: Hrannar Jónsson, Thelma Ásdísardóttir frá Drekaslóð, Sigrún Sigurðardóttir, Þorgeir Ólason og Gyða Eyjólfsdóttir. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ákvæði íslenskra laga um heimildir endurupptökunefndar til að fella nið- ur réttaráhrif dóma Hæstaréttar eiga sér ekki fyrirmynd í norrænum rétti nema að mjög litlu leyti. Þetta kemur fram í grein Krist- ínar Benediktsdóttur, dósents við lagadeild Háskóla Íslands, og Stef- áns Más Stefánssonar, prófessors við lagadeild Háskóla Íslands, sem birtist á síðasta ári í öðru tölublaði Úlfljóts, tímarits laganema. Í greininni gagnrýndu höfundar lagasetningu um endurupptöku dómsmála, en þar segir að verulegur vafi leiki á stjórnskipulegu gildi laga- heimilda sem liggi að baki. Hæstiréttur sló því föstu með dómi sínum í fyrradag að tiltekin lagaákvæði um nefndina færu í bága við 2. gr. stjórnarskráarinnar um greinar ríkisvaldsins. Endurupp- tökunefnd væri því óheimilt að ógilda dóma réttarins enda væri það dómsvaldsins að leysa endanlega úr réttarágreiningi milli manna. Einsdæmi á Norðurlöndum Höfundar greinarinnar telja að með stofnun nefndarinnar hafi verið gerð grundvallarbreyting á verkefn- um dómsvaldsins í þeim skilningi að ákvörðun um endurskoðun á niður- stöðu dóma Hæstaréttar og óáfrýj- aðra héraðsdóma, sem áður féll undir dómsvaldið, hafi verið verið fengin framkvæmdarvaldinu. Í greininni er fjallað um lagaumhverfi nágrannaþjóða okkar í endurupp- tökumálum. Telja höfundar að regl- ur í nágrannaríkjunum séu ekki sambærilegar við þær sem í gildi eru hér á landi. Norðmenn eru fyrst teknir fyrir, en þar starfar sambærileg nefnd, sem vísar beiðnum um endurupp- töku á dómum Hæstaréttar aftur til hans. Í Danmörku fjallar sér dómstóll um endurupptöku undirréttar, milli- dómstigs og Hæstaréttar í sakamál- um. Hæstiréttur fjalli um endurupp- töku á einkamálum. Í Finnlandi, Svíþjóð og Þýskalandi er endurupptaka dæmdra mála ein- göngu málefni dómstólanna. Höfundar telja það ástæðu til endurskoðunar laganna að íslensku lögin séu í jafn miklu ósamræmi við þau norrænu og raun ber vitni. Endurskoðun Hæstaréttar Þriðja atriðið sem þau Kristín og Stefán Már benda sérstaklega á í grein sinni er vald Hæstaréttar til að endurskoða ákvarðanir endurupp- tökunefndar. Taka þau fram að nefndin sé skil- greind í lögum sem stjórnvald og niðurstöður hennar skoðist því sem stjórnvaldsákvarðanir og þær sæti almennt endurskoðun dómstóla, bæði um form og efni. Færa höfundarnir rök fyrir því að það sé þannig á valdi dómstóla að endurskoða hvort skilyrði endurupp- töku séu fyrir hendi, þeir hafi jafnvel sjálfstæðar skyldur til að kanna ávallt hvort skilyrði endurupptöku mála séu fyrir hendi. Lög um endurupptöku ólík norrænum lögum  Fræðimenn við HÍ gagnrýndu lög um endurupptökunefnd Stefán Már Stefánsson Kristín Benediktsdóttir Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þjónustuauglýsingar Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is Endurupp- tökunefnd mun skoða dóm Hæstaréttar þar sem fram kom að lög um nefndina standist ekki stjórnarskrá og laga vinnulag sitt að honum, að sögn Björns L. Bergssonar, formanns nefndarinnar. Hún hafi verið skipuð til starfa af Al- þingi og muni halda áfram að sinna þeim. Í dómi sínum í máli manns sem hafði fengið endurupptöku máls síns komst Hæstiréttur að þeirri nið- urstöðu að endurupptökunefnd gæti ekki fellt fyrri dóma úr gildi þrátt fyr- ir ákvæði í lögum um nefndina þess efnis. Ákvæðið ætti sér ekki stoð í stjórnarskrá. „Alþingi setur þessi lög um endur- upptökunefnd. Við erum skipuð til starfa og þá sinnum við þeim að sjálf- sögðu. Því hefur ekki verið breytt. Við munum horfa á dóm Hæstaréttar og taka mið af því í okkar störfum hver niðurstaða hans var,“ segir Björn. Hæstiréttur sé búinn að segja að það sé ekki hlutverk stjórnsýslu- nefndar að fella úr gildi dóma. Að öðru leyti vill Björn ekki tjá sig um hvernig nefndin muni mögulega bregðast við dómnum enda hafi hún ekki komið saman síðan dómur Hæstaréttar féll á fimmtudag. Skúli Magnússon, formaður Dóm- arafélags Íslands, sagði við mbl.is í gær að niðurstaða Hæstaréttar kæmi ekki á óvart og að ekki hefði verið vandað nægilega til lagasetning- arinnar um endurupptökunefnd. Sagðist hann telja störf nefndarinnar í uppnámi eftir niðurstöðuna í gær. Björn segist ekki vilja taka afstöðu til mats Skúla né annarra sem hafa tjáð sig um áhrif dóms Hæstaréttar. kjartan@mbl.is Laga sig að dómi Hæstaréttar Björn L. Bergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.