Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
Við svo búið fékk Þingvallanefnd
lögfræðiálit frá Lilju Jónasdóttur,
hjá lögfræðistofunni Lex. Í hennar
áliti kemur fram að hún hallast frem-
ur að því að óskinni verði hafnað, þar
sem bandarísku hjónin séu ekki bú-
sett á Evrópska efnahagssvæðinu.
Að fengnu þessu áliti ákvað Þing-
vallanefnd að hafna beiðninni um
leyfi til sölu. Synjunin var samþykkt
með fimm atkvæðum þeirra Sigrúnar
Magnúsdóttur, formanns nefnd-
arinnar, Haralds Einarssonar, Odd-
nýjar Harðardóttur, Svandísar Svav-
arsdóttur og Róberts Marshall, en
hjá sátu fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í nefndinni, þau Birgir Ármanns-
son og Unnur Brá Konráðsdóttir.
Í bréfi sem Þingvallanefnd sendi
eiganda bústaðarins er bent á, að ís-
lensku hjónin geti kært málið og af-
greiðsluna til forsætisráðuneytisins.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að afar ólíklegt sé, að salan verði
samþykkt í forsætisráðuneytinu,
kæri hjónin á annað borð ákvörðun
Þingvallanefndar.
Þingvallanefnd hefur hafnað
beiðni um sölu á sumarbústað
Íslensk hjón vildu selja bandarískum hjónum bústað sinn í landi Kárastaða
Morgunblaðið/Ómar
Helgistaður þjóðarinnar Þingvellir hafa gífurlegt aðdráttarafl fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn. Þingvalla-
nefnd leggur kapp á að standa vörð um þennan helgistað og reynir að fækka bústöðum innan þjóðgarðsins.
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þingvallanefnd hefur á undanförnum
fundum sínum fjallað um ósk eldri
hjóna, sem eiga sumarbústað í þjóð-
garðinum, nánar tiltekið Kárastaða-
landi, í Neðristíg 10, um að fá að selja
bústaðinn bandarískum kunn-
ingjahjónum sínum, sem voru
reiðubúin að greiða gott verð fyrir
bústaðinn, eða nálægt 35 milljónum
króna, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.. Niðurstaða nefnd-
arinnar var að verða ekki við þessari
ósk og var beiðninni hafnað.
Á forkaupsrétt
Þingvallanefnd á lögum sam-
kvæmt forkaupsrétt á bústöðum sem
eru falboðnir í þjóðgarðinum. Nefnd-
in kannaði hug innanríkisráðuneyt-
isins til málsins og voru fyrstu við-
brögð ráðuneytisins að heimila þessi
viðskipti.
Þingvallanefnd vildi, samkvæmt
fundargerðum frá 19. janúar 2016,
27. janúar 2016, 1. febrúar 2016 og 8.
febrúar 2016, kynna sér málið nánar,
leita frekara álits innanríkisráðu-
neytisins og lögfræðilegrar ráð-
gjafar, því annars vegar var um það
að ræða að hjónin seldu bústað, sem
þau eiga sjálf, og hins vegar að þau
fengju aðgang að lóðaleigusamn-
ingnum sem húseigendur hafa gert
við ríkið, því landið er allt í eigu rík-
isins.
Þar sem bandarísku hjónin eru
ekki búsett á Evrópska efnahags-
svæðinu, var málinu á nýjan leik vís-
að til innanríkisráðuneytisins, með
vísan til þess hvað gerðist þegar kín-
verski athafnamaðurinn Nubo vildi
kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins voru skiptar skoðanir um
málið í innanríkisráðuneytinu, en á
endanum var erindið samþykkt á
nýjan leik og barst því aftur inn á
borð Þingvallanefndar.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og formaður
Þingvallanefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að ákvörðun Þingvallanefndar um að hafna beiðn-
inni, byggðist á því að Þingvallanefnd stefndi að því að
fækka sumarhúsum í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
„Við í nefndinni tókum þetta mál fyrir á fjórum fund-
um, vegna þess að við vildum vera alveg örugg um
þessa ákvörðun,“ sagði Sigrún.
„Stefnan hjá okkur hefur alfarið verið sú að við leyf-
um framsal sumarhúsanna til ættingja og erfingja, en
helst ekkert þar fyrir utan.
Við höfum forkaupsrétt, en við höfum ekki tök á því að kaupa upp alla
bústaðina. Í einstaka tilfellum höfum við nýtt okkur forkaupsréttinn, en
til þess höfðum við enga burði í þessu tilviki,“ sagði Sigrún.
„Þingvellir eru sannarlega helgistaður íslensku þjóðarinnar og allar
stærstu stundir þjóðarinnar hafa verið á Þingvöllum. Það er því dýrmætt
að við höfum hemil á massatúrisma og fjölgun fjársterkra einstaklinga á
þessum helgistað, því maður veit aldrei hver þróunin yrði ef opnað yrði á
svona viðskipti,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir.
Stefnan að fækka bústöðum
FORMAÐUR ÞINGVALLANEFNDAR
Sigrún
Magnúsdóttir
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Fax: 414 1001 • www. tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • Fax: 414 1051 • tengi@tengi.is
Ófullnægjandi LED-ljós eru ólögleg.
Samgöngustofa sendi í gær frá sér
tilkynningu þar sem eigendum
nýrra bíla er bent á að svokölluð
LED-ljós, sem eru í mörgum nýjum
bílum og fara sjálfkrafa í gang þegar
kveikt er á bílnum, eru ekki hæf til
aksturs. „Margir ökumenn nýrra
bifreiða eru ólöglegir við akstur sök-
um ljósaskorts. Margar nýjar bif-
reiðar eru búnar ljósum sem kvikna
þegar bíllinn er ræstur og í fyrstu
má halda að um sé að ræða ökuljós
en sú er ekki raunin,“ segir í tilkynn-
ingu frá Samgöngustofu. Er á það
bent að ökumenn verði sjálfir að sjá
til þess að ljós sem eru hæf til akst-
urs séu kveikt. „Þessi ljósabúnaður
kallast dagljós (LED ljós) og er
leyfður á Evrópska efnahagssvæð-
inu og af þeim sökum er heimilt að
flytja slíkar bifreiðar inn til Íslands.
Það gegnir hinsvegar öðru máli um
notkun þessa búnaðar hér á landi.
Það er ljósaskylda hér á landi - allan
sólarhringinn og allan ársins hring -
og því þarf ökumaður að gæta þess
að ökuljósin, ekki stöðuljósin, séu
kveikt á meðan á akstri stendur,“
segir í tilkynningunni.
LED-ljós
ekki lögleg
hér á landi
Örninn lét
mála myndina
Það var Örninn, hollvinafélag Flug-
safns Íslands, sem heiðraði minn-
ingu Hafþórs heitins Hafsteins-
sonar, forstjóra Atlanta, með því að
láta mála af honum mynd, en ekki
safnið sjálft, eins og ranghermt var í
blaðinu í gær. Myndin var hins veg-
ar afhjúpuð í safninu og verður þar.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
Birkir Fanndal
Mývatnssveit
Næg verkefni eru hjá björgunar-
sveitarfólki í Mývatnssveit um þess-
ar mundir. Björgunarsveitin Stefán
leggur til starfsmenn við kvik-
myndaverkefni í sveitinni og er
ávallt reiðubúin í útköll þegar á
þarf að halda.
Þeir Anton Birgisson, Guðjón Vé-
steinsson og Kristján Steingríms-
son, formaður björgunarsveitar-
innar, voru nýkomnir úr útkalli þar
sem þeir björguðu ferðamanni upp
úr sprungu við Leirhnjúk, en sá
hafði fallið niður um snjóloft eina
þrjá metra. Lenti hann í fönn, sem
forðaði alvarlegu slysi, en hann sló
höfðinu utan í klettavegginn við
fallið. Þegar myndin var tekin voru
þeir félagar önnum kafnir við fylla
sleðana af eldsneyti áður en þeir
fóru viðstöðulaust inn í Herðu-
breiðarlindar að sækja kindur sem
vitað var um þar.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Björgunarsveit Félagarnir í björgunarsveitinni Stefáni eru ávallt viðbúnir.
Björgunarsveitin
Stefán önnum kafin