Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Við svo búið fékk Þingvallanefnd lögfræðiálit frá Lilju Jónasdóttur, hjá lögfræðistofunni Lex. Í hennar áliti kemur fram að hún hallast frem- ur að því að óskinni verði hafnað, þar sem bandarísku hjónin séu ekki bú- sett á Evrópska efnahagssvæðinu. Að fengnu þessu áliti ákvað Þing- vallanefnd að hafna beiðninni um leyfi til sölu. Synjunin var samþykkt með fimm atkvæðum þeirra Sigrúnar Magnúsdóttur, formanns nefnd- arinnar, Haralds Einarssonar, Odd- nýjar Harðardóttur, Svandísar Svav- arsdóttur og Róberts Marshall, en hjá sátu fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í nefndinni, þau Birgir Ármanns- son og Unnur Brá Konráðsdóttir. Í bréfi sem Þingvallanefnd sendi eiganda bústaðarins er bent á, að ís- lensku hjónin geti kært málið og af- greiðsluna til forsætisráðuneytisins. Heimildir Morgunblaðsins herma að afar ólíklegt sé, að salan verði samþykkt í forsætisráðuneytinu, kæri hjónin á annað borð ákvörðun Þingvallanefndar. Þingvallanefnd hefur hafnað beiðni um sölu á sumarbústað  Íslensk hjón vildu selja bandarískum hjónum bústað sinn í landi Kárastaða Morgunblaðið/Ómar Helgistaður þjóðarinnar Þingvellir hafa gífurlegt aðdráttarafl fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn. Þingvalla- nefnd leggur kapp á að standa vörð um þennan helgistað og reynir að fækka bústöðum innan þjóðgarðsins. BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þingvallanefnd hefur á undanförnum fundum sínum fjallað um ósk eldri hjóna, sem eiga sumarbústað í þjóð- garðinum, nánar tiltekið Kárastaða- landi, í Neðristíg 10, um að fá að selja bústaðinn bandarískum kunn- ingjahjónum sínum, sem voru reiðubúin að greiða gott verð fyrir bústaðinn, eða nálægt 35 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.. Niðurstaða nefnd- arinnar var að verða ekki við þessari ósk og var beiðninni hafnað. Á forkaupsrétt Þingvallanefnd á lögum sam- kvæmt forkaupsrétt á bústöðum sem eru falboðnir í þjóðgarðinum. Nefnd- in kannaði hug innanríkisráðuneyt- isins til málsins og voru fyrstu við- brögð ráðuneytisins að heimila þessi viðskipti. Þingvallanefnd vildi, samkvæmt fundargerðum frá 19. janúar 2016, 27. janúar 2016, 1. febrúar 2016 og 8. febrúar 2016, kynna sér málið nánar, leita frekara álits innanríkisráðu- neytisins og lögfræðilegrar ráð- gjafar, því annars vegar var um það að ræða að hjónin seldu bústað, sem þau eiga sjálf, og hins vegar að þau fengju aðgang að lóðaleigusamn- ingnum sem húseigendur hafa gert við ríkið, því landið er allt í eigu rík- isins. Þar sem bandarísku hjónin eru ekki búsett á Evrópska efnahags- svæðinu, var málinu á nýjan leik vís- að til innanríkisráðuneytisins, með vísan til þess hvað gerðist þegar kín- verski athafnamaðurinn Nubo vildi kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins voru skiptar skoðanir um málið í innanríkisráðuneytinu, en á endanum var erindið samþykkt á nýjan leik og barst því aftur inn á borð Þingvallanefndar. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og formaður Þingvallanefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ákvörðun Þingvallanefndar um að hafna beiðn- inni, byggðist á því að Þingvallanefnd stefndi að því að fækka sumarhúsum í þjóðgarðinum á Þingvöllum. „Við í nefndinni tókum þetta mál fyrir á fjórum fund- um, vegna þess að við vildum vera alveg örugg um þessa ákvörðun,“ sagði Sigrún. „Stefnan hjá okkur hefur alfarið verið sú að við leyf- um framsal sumarhúsanna til ættingja og erfingja, en helst ekkert þar fyrir utan. Við höfum forkaupsrétt, en við höfum ekki tök á því að kaupa upp alla bústaðina. Í einstaka tilfellum höfum við nýtt okkur forkaupsréttinn, en til þess höfðum við enga burði í þessu tilviki,“ sagði Sigrún. „Þingvellir eru sannarlega helgistaður íslensku þjóðarinnar og allar stærstu stundir þjóðarinnar hafa verið á Þingvöllum. Það er því dýrmætt að við höfum hemil á massatúrisma og fjölgun fjársterkra einstaklinga á þessum helgistað, því maður veit aldrei hver þróunin yrði ef opnað yrði á svona viðskipti,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir. Stefnan að fækka bústöðum FORMAÐUR ÞINGVALLANEFNDAR Sigrún Magnúsdóttir GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Fax: 414 1001 • www. tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • Fax: 414 1051 • tengi@tengi.is Ófullnægjandi LED-ljós eru ólögleg. Samgöngustofa sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem eigendum nýrra bíla er bent á að svokölluð LED-ljós, sem eru í mörgum nýjum bílum og fara sjálfkrafa í gang þegar kveikt er á bílnum, eru ekki hæf til aksturs. „Margir ökumenn nýrra bifreiða eru ólöglegir við akstur sök- um ljósaskorts. Margar nýjar bif- reiðar eru búnar ljósum sem kvikna þegar bíllinn er ræstur og í fyrstu má halda að um sé að ræða ökuljós en sú er ekki raunin,“ segir í tilkynn- ingu frá Samgöngustofu. Er á það bent að ökumenn verði sjálfir að sjá til þess að ljós sem eru hæf til akst- urs séu kveikt. „Þessi ljósabúnaður kallast dagljós (LED ljós) og er leyfður á Evrópska efnahagssvæð- inu og af þeim sökum er heimilt að flytja slíkar bifreiðar inn til Íslands. Það gegnir hinsvegar öðru máli um notkun þessa búnaðar hér á landi. Það er ljósaskylda hér á landi - allan sólarhringinn og allan ársins hring - og því þarf ökumaður að gæta þess að ökuljósin, ekki stöðuljósin, séu kveikt á meðan á akstri stendur,“ segir í tilkynningunni. LED-ljós ekki lögleg hér á landi Örninn lét mála myndina Það var Örninn, hollvinafélag Flug- safns Íslands, sem heiðraði minn- ingu Hafþórs heitins Hafsteins- sonar, forstjóra Atlanta, með því að láta mála af honum mynd, en ekki safnið sjálft, eins og ranghermt var í blaðinu í gær. Myndin var hins veg- ar afhjúpuð í safninu og verður þar. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT Birkir Fanndal Mývatnssveit Næg verkefni eru hjá björgunar- sveitarfólki í Mývatnssveit um þess- ar mundir. Björgunarsveitin Stefán leggur til starfsmenn við kvik- myndaverkefni í sveitinni og er ávallt reiðubúin í útköll þegar á þarf að halda. Þeir Anton Birgisson, Guðjón Vé- steinsson og Kristján Steingríms- son, formaður björgunarsveitar- innar, voru nýkomnir úr útkalli þar sem þeir björguðu ferðamanni upp úr sprungu við Leirhnjúk, en sá hafði fallið niður um snjóloft eina þrjá metra. Lenti hann í fönn, sem forðaði alvarlegu slysi, en hann sló höfðinu utan í klettavegginn við fallið. Þegar myndin var tekin voru þeir félagar önnum kafnir við fylla sleðana af eldsneyti áður en þeir fóru viðstöðulaust inn í Herðu- breiðarlindar að sækja kindur sem vitað var um þar. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Björgunarsveit Félagarnir í björgunarsveitinni Stefáni eru ávallt viðbúnir. Björgunarsveitin Stefán önnum kafin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.