Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 19
FRÉTTIR 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
CATAN DAGAR
Afsláttur í verslunum okkar af öllum viðbótum og stækkunum við Catan grunnspilið til páska!
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Gjafir sem gleðja
Líttu við og
skoðaðu úrva
lið
Glæsilegir skartgripir á frábæru verði
Verð 45.400,-
Demantur 6p.
Verð 37.900,-
Demantur 2p.
Verð 69.000,-
Demantur 11p.Verð 47.000,- Verð 35.900,-
Verð 33.900,-
Vel gengur að selja laxinn frá
Bíldudal á erlendum mörkuðum.
„Það er stemning fyrir íslenskum
laxi. Það hjálpar okkur að íslensk-
ar sjávarafurðir hafa gott orð á sér
og íslenskur lax þykir spennandi,“
segir Víkingur Gunnarsson. Hærra
verð fæst fyrir íslenskan lax en
norskan á mörkuðunum en Kristi-
an Matthíasson bendir á að verð-
munurinn hverfi fljótt í meiri flutn-
ingskostnaði.
Ýmis ljón eru á þeim vegi og oft
flókið að koma fiskinum út á mark-
aðina. Allt þarf að smella saman,
bæði flutningur frá Bíldudal og til
útlanda.
Dýrt er að flytja laxinn beint út
með flugi og því er reynt að koma
honum með flutningaskipum. Allt-
af þarf þó að byrja á því að flytja
hann með flutningabíl frá Bíldudal
um heiðar og fjallvegi og ef til vill
með ferju yfir Breiðafjörð til
Reykjavíkur. Þaðan fara flutn-
ingaskip Eimskips og Samskipa.
Einu sinni í viku stendur þannig á
að best er að flytja fiskinn alla leið
til Vestmannaeyja. Hann nær ekki í
skip Samskipa sem fer frá Reykja-
vík að kvöldi en kemst um borð í
skipið þegar það kemur við í Vest-
mannaeyjum á leið til Evrópu.
Kristian segir að stjórnvöld
þurfi að gæta þess að Íslendingar
hafi alltaf besta mögulega aðgang
að öllum mörkuðum. Bendir hann
á að íslenskur lax sé útilokaður frá
Kína þrátt fyrir fríverslunarsamn-
ing landanna og einnig Rússlandi
vegna innflutningsbanns. Þá sé
tollur lagður á lax sem seldur er til
Evrópusambandslanda.
„Sýnt hefur verið fram á það að
hægt er að framleiða góðan lax
hér á landi á réttan hátt og með
viðráðanlegum kostnaði. Það sem
gerist þegar hann kemur í land er
útfærsluatriði. Hár flutningskostn-
aður í lofti og á sjó og fákeppni á
þeim markaði hefur komið á óvart
og við munum þurfa að setja mikla
vinnu í þann hluta. Þá verður Ís-
land laxaframleiðsluland sem
hægt er að reikna með í framtíð-
inni,“ segir Kristian.
Stemning fyrir íslenskum laxi
VEL GENGUR AÐ SELJA
Lax Beðið pökkunar og flutnings á erlendan markað.