Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Blaðberarnir okkar eru einvala
sveit sem sinnir sinni vinnu svo til
fyrirmyndar er. Við viljum gera vel
við þetta starfsfólk og að það fái lofið
sem því ber,“ segir Örn Þórisson,
dreifingarstjóri Árvakurs. Nýlega
var blaðberum fyrirtækisins, sem
sjá um dreifingu Morgunblaðsins og
fleiri blaða, boðið í heimsókn í prent-
smiðju Landsprents. Þar var frá-
bærum árangri hinna ötulustu í
hópnum fagnað, en á síðasta ári voru
það 76 blaðberar sem unnu meira en
250 daga af 306 dreifingardögum og
náðu að vera með kvartanafjölda
innan gæðamarka.
Sjö blaðberar unnu alla 306 út-
gáfudaga Morgunblaðsins í fyrra, á
síðasta ári og fjórir blaðberar af áð-
urnefndum 76, báru út kvart-
analaust á síðasta ári. Það er með
öðrum orðum sagt fullkominn ár-
angur í starfi. Fengu þeir sérstaka
viðurkenningu fyrir vel unnin störf.
Með sjö hverfi
Blaðberar Árvakurs bera, sem
fyrr segir, út Morgunblaðið, en einn-
ig koma þeir að dreifingu Fréttatím-
ans, DV, Stundarinnar, tímarita
Birtíngs, og bóka og blaða Eddu –
útgáfu, hvar blöðin um Andrés Önd
ber sennilega hæst.
Auk viðurkenninga fyrir vel unnin
störf var dregið í ferðahappadrætti
þar sem allir blaðberarnir 76 voru í
pottinum. Aðalvinningurinn, ferð til
Flórens á Ítalíu með ferðaskrifstof-
unni VITA, féll í skaut hins serb-
neska Nenad Bogdanovic sem ann-
ast blaðburð í Smáranum í Kópavogi
og Bökkum í Breiðholti Reykjavík-
ur. „Ég er með alls sjö hverfi og
blaðafjöldinn getur rokkað frá 150
alveg upp í 1.200. Þetta er ágæt
vinna sem ég hef stundað í alls sjö ár
og sá tími segir sitt,“ segir Nenad
sem er fjölskyldumaður. Bæði hann
og kona hans vinna hjá Íslandspósti
og eiga þrjú börn, 19, 8 og 3 ára.
„Ég hlakka til Flórensferðar.
Raunar verð ég mikið á faraldsfæti á
næstunni, því einnig stendur Frakk-
landsferð fyrir dyrum þar sem ég
ætla að fylgjast með Íslendingum á
EM,“ segir Nenad.
Fríðindi og tilboð
Gjarnan vantar blaðbera til starfa
hjá Árvakri, en þeir sem í hópinn
ganga verða sjálfkrafa félagar í
Blaðberaklúbbnum og njóta ýmissa
fríðinda og tilboða. Nú veita veit-
ingastaðirnir Lemon og Subway af-
slátt, Laugarásbíó býður bíómiðann
á 1000 kr. og Smáratívolí veitir 20%
afslátt af tímakortum. Þá njóta allir
blaðberar 25% afsláttar af bókum
Eddu útgáfu. Fleiri tilboð eru vænt-
anleg, að sögn Írisar Óskar Frið-
riksdóttur fulltrúa í blaðberaþjón-
ustu Árvakurs.
Fullkominn árangur
Blaðberar Árvakurs fá viðurkenningu Njóta ýmissa
fríðinda 76 eru sérlega ötulir Nenad á leið til Flórens
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heppinn Örn Þórisson, dreifingarstjóri Árvakurs, afhendir Nenad Bogd-
anovic, duglegum og traustum blaðbera, happdrættisvinninginn góða.
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Blaðberasveitin sem dreifir Morgunblaðinu og fleiri blöðum er stór
hópur og mikilvægur hlekkur í starfseminni. Kátt var í hófi þeim til heiðurs.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur hafið
fjársöfnun til að svara neyðarbeiðni
Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna,
Act Alliance, vegna langvarandi
þurrka í Eþíópíu. Tíu milljónir
manns, þar af nær sex milljónir
barna, þurfa á aðstoð að halda.
Þurrkarnir byrjuðu í mars á síð-
asta ári þegar ekki rigndi á venju-
bundnum vorregntíma. Ekki rigndi
heldur í júlí og ágúst þannig að
haustuppskera brást, dýr drápust
úr þorsta og milljónir íbúa urðu þá
þegar háðar matar- og drykkjar-
aðstoð. Stjórnvöld í Eþíópíu hafa
brugðist við en útilokað er að þau
ráði hjálparlaust við það neyðar-
ástand sem nú blasir við, segir í
frétt frá Hjálparstarfinu.
Söfnunarsími 907 2003 (2500
krónur). Söfnunarreikningur 0334-
26-886, kt. 450670-0499
Eþíópía Miklir þurrkar hafa valdið mikilli
neyð í landinu og aðstoðar er þörf.
Fjársöfnun vegna
þurrka í Eþíópíu
Rótarýfélagar um land allt
standa að Rótarýdeginum í dag,
laugardaginn 27. febrúar. Mark-
mið dagsins er
vekja athygli á
fjölmenningu og
þeim fjölmörgu
verkefnum sem
Rótarýhreyf-
ingin stendur
fyrir hér á landi
og á alþjóðavettvangi og að kalla
til liðs fleiri áhugasama ein-
staklinga sem vilja leggja hönd á
plóg. Rótarýhreyfingin er meðal
fremstu mannúðar- og frið-
arsamtaka í heimi. Á Rótarýdag-
inn leggja íslenskir Rót-
arýklúbbar áherslu á
fjölmenningu í víðu samhengi og
hafa þeir undirbúið dagskrá hver
á sínum stað. Dagskrána má sjá á
www.rotary.is.
Fjölbreytt dagskrá
á Rótarýdeginum
Stjórnmálasamtökin Dögun hafa
flutt í nýjar höfuðstöðvar að
Borgartúni 3 í Reykjavík, 2.
hæð.
Í tilefni þess verður opið hús
þar milli kl 14 og 16 í dag, laug-
ardaginn 27. febrúar. Þar gefst
fólki kostur á því að ræða við fé-
laga í Dögun og kynna sér
helstu stefnumál samtakanna.
Opið hús í höfuð-
stöðvum Dögunar
STUTT
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Sænska fyrirtækið IVF Sverige
opnaði nýja tæknifrjóvgunardeild í
gær, föstudag, í Glæsibæ. Fyr-
irtækið tilkynnti um kaup sín á Art
Medica í desember í fyrra og hefur
lagt niður starfsemina þar. Í staðinn
hefur ný deild verið opnuð sem ber
heitið IVF-klíníkin Reykjavík.
IVF Sverige er stærsti aðilinn í
þjónustu og meðferð ófrjósemi á
Norðurlöndunum og rekur 8 deildir í
Svíþjóð, Noregi og nú einnig á Ís-
landi. „Undirbúningsferlið hefur
staðið yfir í marga mánuði og hefur
gengið afar vel,“ segir Snorri Ein-
arsson, yfirlæknir á IVF-klíníkinni.
Ásamt honum verður deildin rekin
af Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og
kvensjúkdómalækni og Steinunni
Þorsteinsdóttur, líffræðingi.
Deildin verður búin nýjum full-
komnum tækjum og búnaði. „Glasa-
og tæknifrjóvgunarstarfsemi er
gríðarlega tæknileg og sömuleiðis
eru gerðar miklar kröfur til hennar
frá sjúklingum, en ekki síður frá yf-
irvöldum,“ segir Snorri. IVF-
klíníkin þarf að lúta ýmsum reglu-
gerðum, svo sem þegar kemur að
gæðakerfum, tölvukerfum og rekj-
anleika gagna. „Þó að það séu
kannski ekki sérstök tæki eru það
mikilvæg verkfæri sem við fáum
hjálp með frá móðurfyrirtækinu,“
segir Snorri.
Meðal nýrra tækja á rannsókn-
arstofunni eru hita- og rækt-
unarskápar fyrir fósturvísa sem eru
með innbyggðum smásjám og
myndavélum fyrir hvern fósturvísi.
„Þannig getum við fylgst náið með
þeim og tekið af þeim svokallaðar
hikmyndir. Ein mynd er tekin með
ákveðnu millibili sem sýnir okkur
hvað gerist yfir tíma sem gerir okk-
ur kleift að velja betur hvaða fóst-
urvísar eiga góða möguleika,“ segir
Snorri.
Hvað varðar kostnað segir Snorri
að notast verði við sömu verðskrá og
áður, líkt og búið var að lofa. „Fyrir
sömu aðferðir og áður voru fram-
kvæmdar munum við ekki taka
meira fyrir, þó að við séum að nota
fullkomnari tækjabúnað nú. Við tök-
um upp nýjar aðferðir, eins og til
dæmis að rækta fósturvísana lengur
og aðra tegund af frystiaðferð og þar
kemur inn nýr liður í verðskrána.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tæknifrjóvgun Þórir Harðarson, forstöðumaður rannsóknarstofa hjá IVF,
Sverige og Snorri Einarsson, yfirlæknir á IVF Klíníkinni Reykjavík.
Ný tæknifrjóvgun-
ardeild í Glæsibæ
IVF Sverige kaupir Art Medica