Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 22

Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 SKIPTABÚVÖRU- SAMNINGAR NEYTENDURMÁLI? DAGSKRÁ ERHAGSMUNANEYTENDAGÆTT ÍNÝJUM BÚVÖRUSAMNINGUM? DaðiMár Kristófersson, dósent í hagfræði og forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands UMRÆÐUROG FYRIRSPURNIR VIÐPALLBORÐSITJA: • Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ • Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda • Teitur Atlason, varaformaður Neytendasamtakanna • Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Fundarstjóri: Margét Sanders, formaður SVÞ Fundurinn verður haldinn á GrandHótel. Morgunmatur frá kl. 8.00. Dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur yfir til 10. Enginn aðgangseyrir. Opinnmorgunverðarfundur um nýgerða búvörusamninga verður haldinn þriðjudaginn 1. mars nk. Á fundinum verður sjónumbeint að því hvernig samningarnir falla að hagmunum íslenskra neytenda. SAMTÖK SKATTGREIÐENDA VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS ICELAND CHAMBER OF COMMERCE Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í samningi milli Nýja Kaupþings (síðar Arion banka) og slitabús Kaupþings er varðaði yfirfærslu krafna á hendur 40 félögum og dótturfélögum þeirra frá slitabúinu til bankans er kveðið á um að slita- búið hafi heimild til að tilnefna sér- stakan eftirlitsmann með kröfun- um. Listinn kom fyrst fyrir sjónir almennings í frétt í Viðskipta- Mogganum á fimmtudaginn, en hann hefur gengið undir nafninu „dauðalistinn“. Er þessi eftirlits- maður nefndur „Kaupthing Obser- ver“ í samningnum. Helgi Sigurðsson hæstaréttar- lögmaður telur mikinn vafa leika á því hvort lagaheimild hafi verið fyrir því að skipa eftirlitsmann af þessu tagi. Segir hann að þagn- arskylduákvæði sem hvíla á fjár- málafyrirtækjum, og tilgreind eru í 58. grein laga um fjármálafyrir- tæki, setji mjög strangar kröfur um hverjir megi hafa aðgang að upplýsingum um viðskiptamenn fjármálafyrirtækja. „Fyrir fram er erfitt að sjá að veita megi slíka heimild án þess að fyrir því sé skýr heimild í lögum. Þrátt fyrir að slitastjórnin hafi vitneskju um kröfur á hendur þeim fyrirtækjum sem eru á umræddum lista getur hún ekki haft aðkomu að innheimtu þeirra og áframhald- andi viðskiptasambandi þeirra við nýja bankann með þeim hætti sem lýst er í frétt Morgunblaðsins frá því á fimmtudaginn. Umfjöllun um meðferð krafna á hendur viðskipta- mönnum krefst yfirleitt afhending- ar á ýmsum trúnaðargögnum sem falla undir þagnarskylduákvæði laga um fjármálafyrirtæki og verð- ur ekki séð á hvaða grunni eigi að veita slíkum eftirlitsmanni aðgang að þeim.“ Strangar kröfur um aðkomu Helgi segir að lög um fjármála- fyrirtæki geri mjög skýrar kröfur til þeirra sem aðgang að upplýsing- unum megi hafa. Þá sé auk þess ekki ljóst með hvaða hætti hafi mátt fella fulltrúa Kaupþings undir þann hóp sem í lögunum er til- greindur og má í raun hafa aðgang að upplýsingum um viðskiptamenn fjármálafyrirtækis. Hann bendir á að allt bendi til að eftirlitsmaður Kaupþings hafi haft aðkomu eða afskipti að einstaka viðskiptum sem tengdust þeim fyr- irtækjum sem nefnd eru á hinum svokallaða „dauðalista“. „Það eru mjög strangar kröfur gerðar um að aðkoma stjórnar- manna og hluthafa sé bundin við þær stjórnunareiningar sem skil- greindar eru í lögunum. Lögin koma jafnframt í veg fyrir að stjórnarmenn, hvað þá aðrir, hafi afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti. Tilnefning sérstaks eftir- litsmanns með þennan víðtæka að- gang virðist á skjön við slíkar reglur.“ Þagnarskylda brotin varðandi „dauðalistann“  Eftirlit Kaupþings án lagaheimildar Eftirlitsmaðurinn » Samkvæmt samningi milli Nýja Kaupþings og slitabús gamla Kaupþings hafði eftir- litsmaður slitabúsins viðtækar heimildir. » Hann mátti sitja alla fundi lánanefndar bankans þar sem fyrirtækin á „dauðalistanum“ voru til umfjöllunar . » Hann mátti sitja alla stjórnarfundi bankans þar sem fyrrnefnd fyrirtæki voru rædd. » Hann mátti fá allar upplýs- ingar um fyrirtækin sem tengdust þeim. » Eftirlitsmaðurinn mátti koma með skriflegar tillögur um með hvaða hætti farið yrði með kröfur á hendur fyrirtækj- unum. hækkun ráðgjafarkostnaðar en hann fór úr réttum 3 milljörðum króna í rúma 8,3 milljarða. Mest hækkun varð á lögfræðiráðgjöf sem fór úr ríf- lega milljarði króna árið 2014 í tæpa Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Slitastjórn Kaupþings þáði þóknun sem nam 288 milljónum króna á síð- asta ári. Í slitastjórninni eiga sæti þrír fulltrúar, skipaðir af Héraðs- dómi Reykjavíkur. Þóknun slita- stjórnarinnar hækkaði um ríflega 45% frá árinu 2014 þegar hún fékk greiddar 198 milljónir vegna vinnu sinnar í þágu slitabúsins. Þetta kem- ur fram í ársreikningi Kaupþings fyrir síðasta ár sem nú hefur verið birtur. Í reikningnum kemur fram að rekstrarkostnaður slitabúsins hækk- aði um nærri 140% milli ára. Þannig nam heildarrekstrarkostnaður þess 11,9 milljörðum króna í samanburði við tæpa 5 milljarða á árinu 2014. Mest munar þar um gríðarlega 3,4 milljarða 2015. Inni í ráðgjafa- kostnaðinn er einnig reiknuð fyrr- nefnd þóknun til slitastjórnar. Í árs- reikningi slitabúsins er einnig færður til gjalda virðisaukaskattur af aðkeyptri ráðgjafarþjónustu frá árunum 2009 til 2012 og nemur hann 1,7 milljörðum króna. Byggist sá kostnaður á þeim úrskurði ríkis- skattstjóra að slitabúunum hafi verið skylt að greiða virðisaukaskatt af kaupum á erlendri þjónustu. Í tilkynningu frá Kaupþingi kem- ur fram að hækkun rekstrarkostn- aðar megi fyrst og fremst rekja til erlendrar sérfræðiráðgjafar í tengslum við undirbúning og fram- kvæmd nauðasamnings. Þá vekur nokkra athygli að laun og launatengd gjöld hækka milli ára og fara úr 1,2 milljörðum króna í 1,3 milljarða. Sú hækkun á sér stað á sama tíma og stöðugildum hjá slita- búinu fækkar úr 50 í 39. Þannig hækkar launakostnaðurinn um ríf- lega 8% á sama tíma og starfsfólki fækkar um 22%. Eignirnar 816 milljarðar Eignir slitabúsins hækkuðu um 16,2 milljarða frá fyrra ári og námu í árslok 816 milljörðum. Handbært fé jókst um 8,6 milljarða og stóð í 410,2 milljörðum. Lýstar kröfur á hendur Kaupþingi voru færðar niður í 676,4 milljarða í samræmi við ákvæði nauðasamnings og skilmála breytan- legs skuldabréfs. Þá var skuldbinding slitabúsins vegna stöðugleikafram- lags í ríkissjóð 135,8 milljarðar króna. Það sem af er ári hefur Kaupþing greitt stöðugleikaframlag sitt til rík- isins og hafið útgreiðslur til kröfu- hafa í formi peningagreiðslna að upphæð 242,9 milljarðar króna, auk útgáfu breytanlegs skuldabréfs í pundum að fjárhæð 588,1 milljarður króna og hlutafjár í krónum að fjár- hæð 13,9 milljarðar. Slitastjórnin kostaði 45% meira  Rekstrarkostnaður Kaupþings hækkaði um 140% á síðasta ári  Kostnaðurinn nam 10,6 milljörðum  Þóknun til þriggja slitastjórnarmanna var 288 milljónir króna  Lögfræðiráðgjöf við búið þrefaldaðist Morgunblaðið/Kristinn Uppgjör Slitastjórn Kaupþings hafa á síðustu árum skipað þau Jóhannes Rúnar Jóhannsson, Theodór S. Sigurbergsson og Feldís Lilja Óskarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.