Morgunblaðið - 27.02.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.02.2016, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Þegar byrjuninni sleppir tek-ur miðtaflið við og þá vand-ast oft málið. Miðtöflin erunú einu sinni erfiðasti þátt- ur skákarinnar og þar skilur á milli feigs og ófeigs. Þegar miðtaflstækni ber á góma verður manni stundum hugsað til vinar okkar Boris Spasskí. Á bestu árum hans frá 1964 – 7́0 skaraði hann fram úr öðrum á því sviði. Þetta kom berlega í ljós í ein- vígunum sem hann háði og vann flest með yfirburðum. Fyrir hverja keppni gerði hann sér far um að kryfja persónuleika andstæðinga sinna og hjálparhella hans, Igor Bondarevskí, hafði sitthvað til mál- anna að leggja. Þegar Spasskí tefldi við Tal í lokaeinvígi áskorenda- keppninnar 1965 var dagskipun Igors þessa ávallt hin sama: engin þvinguð afbrigði gegn Mischa Tal. Spasskí vann 7:4. Í „einvígi aldarinnar“ 1972 var Bondarevskí ekki lengur í liði Spass- kís, gamlir púkar sem heimsmeist- arinn þáverandi hafði stundum verið að kljást við settust aftur á öxl hans og því fór sem fór. En leikbrögðin gleymast ekki; skákir Spasskí eru allar skráðar í gagnagrunna. Þar geta menn áreiðanlega geta fundið einhverja snjalla millileiki svo vísað sé til fyrirsagnar þessarar greinar. Ég var að fylgjast með Akureyr- ingnum Símoni Þórhallsyni tefla í fjórðu umferð Norðurlandamóts ungmenna í bænum Kosta í Svíþjóð og leiðirnar virtust ekki greiðar í miðtafli þegar Símon datt niður á lausnina: NM ungmenna 2016; 4. umferð: Símon Þórhallsson - Johan Hard- lei ( Danmörk ) Bogo-indverskv vörn 1. d4 e6 2. c4 Bb4+ 3.Bd2 Bxd2+ 4. Dxd2 f5 5. g3 Rf6 6. Rc3 0-0 7. Bg2 d5 8. Rf3 c6 9. Re5 Rbd7 10. Rxd7 Bxd7 11. 0-0 De7 12. f3 b5 13. b3 Hae8 14. Hfe1 e5 15. dxe5 Dxe5 16. cxd5 b4 17. Ra4 Rxd5 18. e4 fxe4 19. fxe4 Rf6 20. Dxb4 Dh5 Um byrjun þessarar skákar þarf ekki að hafa mörg orð. Skákmenn- irnir virtust undir áhrifum þess þanka að ekki væri gott að taka á c4. Það hefði svartur samt átt að gera strax í 12. leik. En hvernig á hvítur nú að verjast mótspili svarts á kómgsvæng, - Bh3 og – Rg4 liggur í loftinu og 21. Dc5 má svara með 21. … He5 o. s.frv. Millileikur er svarið! 21. Dc4+! Kh8? Nauðsynlegt ar 21. … Be6. 22. Dc5! Í því liggur munurinn að hrók- urinn á f8 er valdaus eftir 22. …. He5. 22. … Dh6 23. e5 Rg4 24. h3 Rf2 25. Hf1! Gernýtir sér valdleysið á f8. Svartur er varnarlaus. 25. … Bxh3 26. Hxf2 Hxf2 27. Dxf2 Bxg2 28. Kxg2 Hd8 29. He1 Kg8 30. e6 Hf8 31. De3 Dh5 32. e7 – og svartur gafst upp. Símon átti góða möguleika á þvi að ná efsta sæti í fimmtu umferð en missti vinningsstöðu niður í tap. Að lokum fékk hann bronsið í sínum flokki. Óskar Víkingur Davíðsson varð Norðurlandameistari í yngsta ald- ursflokknum, E-flokki, sem skipaður var keppendum 10 ára og yngri. Íslensku þátttakendurnir virtust um tíma eiga möguleika á gulli í öll- um fimm aldursflokkunum. Í landa- keppninni, sem mælir samanlagðan árangur sex þátttökuþjóðanna, náði Ísland 2 ½ vinnings forskoti um mitt mót en óhagstæð úrslit í nokkrum lykilskákum á lokasprettinum ollu því að Danir skriðu fram úr. Róbert Luu sem tefldi í E-flokki eins og Óskar Víkingur krækti sér í silfurverðlaun og D-flokknum varð Vignir Vatnar Stefánsson að láta sér bronsið lynda en fékk þó 4 ½ vinning af sex mögulegum og hækkaði um 30 elo-stig í leiðinni. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Millileikur í miðtafli Rótarý er alþjóðleg þjónustu- og mann- úðarhreyfing sem nær til allra heimsálfa með rótarýklúbba í um tvö hundruð þjóðlöndum. Rótarýhreyfingin er fé- lagsskapur leiðandi karla og kvenna sem sameinast um þá ósk að þjóna öðrum án tillits til trúarbragða, stjórn- mála, kynþátta eða þjóðernis. Rótarý er því í reynd fjölmenningarsamfélag þar sem félagar frá mismunandi menningarheimum sameinast í ein- kunnarorðunum „Þjónusta ofar eigin hag“ í því að leggja lið, skapa frið og efla skilning þjóða í milli. Þátttaka í Rótarý er þannig þjón- usta, þjónusta við nærsamfélagið og þjónusta á heimsvísu. Einkunnarorð alþjóðaforseta þessa árs, „Verum ver- öld gefandi“, senda í þessu samhengi mikilvæg skilaboð og eru í senn hvatning til okkar rótarýfélaga um þjónustu og sömuleiðis vissa hinna þurfandi um að Rótarý muni rétta fram hjálpandi hönd. Munum að ver- öld í þessu samhengi er bæði heima- vettvangur okkar og heimsbyggðin öll. Það er á grunni þessarar hug- sjónar að Rótarýhreyfingin á Íslandi hefur ákveðið að helga einn dag á ári sérstöku átaki til þess að kynna hreyfinguna og klúbbarnir vítt og breitt um landið leggi lið ákveðnu málefni sem snertir þeirra nærsam- félag en hefur samtímis alþjóðlega skírskotun. Í ár hefur verið lagt til að þemað verði „Fjölmenning“ í víðum skilningi þess hugtaks. Það er ánægjulegt að fleiri og fleiri einstaklingar af marg- víslegu þjóðerni finni sér farveg og lífsviðurværi á okkar fagra og gjöfula landi. Þessum nýju landsmönnum fylgja ný sjónarmið, ný viðhorf og ný- ir menningarstraumar. En til þess að hver og einn okkar þegna geti notið sín og gefið samfélaginu af gæðum sínum, þarf þeim hinum sama að líða vel, finna að hann er velkominn, metinn að verðleikum og gert kleift að fóta sig á nýj- um vettvangi. Þetta á ekki síst við þá sem hingað koma úr fram- andi umhverfi. Það er því í okkar höndum hversu vel okkur nýtist þessi nýi mannauður til eflingar samfélagi framtíðarinnar. Hvern- ig við tökum á móti þeim þegnum sem hingað koma um langvegu. Ég vil trúa því að flest okk- ar taki vel á móti hverjum þeim sem vill setjast að í okkar nágrenni, en því miður heyrum við of oft af því að þessum nýju landsmönnum er sýnd óvirðing og jafnvel haturskennt við- mót. Það kemur jafnvel fyrir að fólk í opinberum þjónustustörfum verður sér til skammar vegna framkomu sinnar. Þetta er blettur sem við verð- um í sameiningu sem þjóð að þrífa af okkur. Rótarýhreyfingin hefur margoft átt frumkvæði að því að hrinda af stað baráttu fyrir málefnum sem til heilla horfa. Rótarýhreyfingin leggur nú þessu málefni lið með því að beina athyglinni í dag, 27. febrúar, að þeirri auðlegð sem felst í fjölmenningu sem er til staðar í nærumhverfi hvers klúbbs og landinu sem heild. Rótarý- félagar munu halda áfram að leggja þessu verkefni lið sem aflgjafar í að bæta heiminn, hvort það er nærsam- félagið okkar eða hið alþjóðlega leik- svið. Allar upplýsingar um dagskrár rótarýklúbba er að finna á slóðinni. http://www.rotary.is/ . Ég hvet alla rótarýfélaga og aðra áhugasama til þess að taka þátt í verkefni Rótarýdagsins og alla lands- menn hvet ég til þess að bjóða þá, sem hingað sækja sér til framdráttar og lífsviðurværis, velkomna svo við sem einstaklingar og þjóð getum með stolti sagt að hér ríki frelsi, jafnrétti og bræðralag öllum til handa. Rótarýdagurinn 2016 – í anda fjölmenningar Eftir Magnús B. Jónsson » Það er í okkar hönd- um hversu vel okkur nýtist þessi nýi mann- auður til eflingar sam- félagi framtíðarinnar. Magnús B. Jónsson Höfundur er umdæmisstjóri Rótarý 2015-2016 Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili. Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450 zenus@zenus.is • zenus.is Augljós kostur 5 ára ábyrgð Finnbogi Kristjánsson löggiltur fasteigna- skipa og fyrirtækjasali finnbogi@fron.is, www.fron.is FRÓN fasteignamiðlun kynnir sex herbergja íbúðarhæð í vel byggðu steinhúsi frá árinu 1933, á heitasta staðnum í 101. Auk þess fylgir 70% hlutur í risi sem má innrétta og sér herbergi í kjallara, sem breyta má í íbúðarrými. Svalir og garður snúa í suður. Tvö baðherbergi með hita í gólfum, þrjár góðar stofur með ljósu parketi og arinn í mið stofu. Íbúðin er um 168,5 fm birt stærð. Herbergi í kjallara 24 fm, herbergi í risi 20,9 fm og 17,9 fm bílskúr eða alls um 231,3 fm. Þetta er eitt vandaðasta hús í bænum! FRÓN fasteignamiðlun kynnir vel skipulagða 110,5 fm fjögurra herbergja íbúð á 3ju hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er í vestur enda og með sér inngangi af svölum. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Stórar flísalagr svalir í vestur og suður. (22,9 fm), sem má yfirbyggja. Stæði í bílskýli í kjallara fylgir með. Um 22 millj. kr. lán frá Íls getur fylgt með. Útsýni á sjóinn, yfir hraunið og uppí fellinn. Þessi höfðar sérstaklega til Vestmannaeyinga! Einivellir 7, 221 Hafnarfirði, íbúð 301 OPIÐ HÚS þriðjudaginn 1. mars, kl. 18.00-19.00 FRÓN fasteignamiðlun óskar eftir 3ja íbúða húsi við Garðastræti, Hávallagötu eða á Landakotssvæðinu og nágreni, fyrir samhennta fjölskyldu. Uppl. veitir Finnbogi Kristjánsson lögg. fasts. 897 1212 / finnbogik@gmail.com Túngata 3, 101 Reykjavík OPIÐ HÚS miðvikudaginn 2. mars, kl. 17.30-18.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.