Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 30

Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Í gosunum miklu á Reykjanesskaga á 13. öld, er eldur kom upp rétt við bæjardyr Grindvíkinga, er ekki ofsögum sagt að byggð væri þá í Grindavík hættast komin frá landnámi og tvísýnt um tíma hvort hún lifði þær hörmungar af. Þá rann m.a. hraun það úr Eldvörp- um, sem hleðslurnar eru í sem fundust 1872 og Þorvaldur Thor- oddsen greinir frá. Apalhraunið greindist í tvær kvíslar, Eldborg- arhraun og Sundvörðuhraun. Sundvarða er hraunsandur austan í Sundvörðuhrauni. Hraunstandur þessi kom upp í gosunum á 13. öld. Hann ber í austasta taglið á Þórðarfelli, er nefnist Höskuldur. Höskuldur, Sundvarða og tvær vörður aðrar er hlaðnar voru á sjávarbakkanum austan við svo- kallað Vatnslón í landi Húsatófta, bar saman og voru leiðarmerki á djúpsundinu þegar bátar lögðu inn Staðarsund. Þessi merki sjást á korti af legunni á Staðarvík frá 1751. Tvær síð- arnefndu vörðurnar voru hugsanlega hlaðnar upp eftir 1650 vegna kaupskipa sem þá fóru að sigla á Staðarvík frá Dan- mörku. Enda sést af hafnarkortinu 1751 að þessi neðstu merki vestan við Vatnslón hafa verið endurbætt eftir að siglingar hófust á víkina frá 1650. Gos urðu líka í sjó undan Reykjanesi á 13. öld og 1210 fann Sörli Kollsson sjófarandi Eldey hina nýju. Sóknarlýsing stað- arsóknar frá 1840 greinir frá þess- um sundmerkjum inn Staðarsund er lagt var á sundið og bátar lentu ýmist í Staðarvör eða Tóftavör. Er bátur kom í mynni Staðar- sunds og hugðist leggja þar inn áttu Staðarmalir að liggja á stjórnborða og bera í Eldey er var hæsta og ysta kennileiti í sjónlín- unni úr bátnum í sundinu til vest- urs. Er komið var inn úr sund- mynninu var stýrt á Höskuld í norður og Sundvörðu og neðstu vörðurnar tvær í heimalandi Tófta. Bar Sundvörðu merkilega vel við loft utan af sundinu og var bungan í raun annað lykilmerki við leiðina inn Staðarsund ásamt Eldey. Ljóst er að bæði þessi kennileiti, Eldey og bungan Sund- varða, verða til í gosunum á 13. öld, líklega 1210-1230. Eldey var þá greinilega nýtt merki sem tekið var að miða við eftir uppkomu hennar 1210. Sama virðist um upptök Sundvörðu sem leið- armerkis. Merkin á Staðarsundi virðast því varla eldri en frá fyrri- hluta 13. aldar eins og þeim er lýst í sóknarlýsingunni frá 1840. Þau voru síðan notuð allt til loka byggðar í Staðarhverfi um 1946 þegar róðrar þaðan lögðust niður. En hófust róðrar um Stað- arsund fyrst með gosunum miklu á 13. öld eða voru þar notuð önnur og eldri leiðarmerki inn sundið fyrir uppkomu Eldeyjar og Sund- vörðu? Voru þessi eldri merki lögð niður í kjölfar hamfaranna á 13. öld. Vart verður fullyrt um það nú en heldur þykir manni ólíklegt að ekki hafi verið róið úr sundinu fyrir þann tíma allt frá landnámi í Grindavík. Eiginlegt prestssetur var ekki á Stað í kaþólskum sið frá því um 1000 til 1540 því prest- ar voru menn búlausir og bjuggu heima á bæjum hjá bændum og höfðu þar uppihald og bjó Stað- arprestur líklega á Járngerðar- stöðum fremur en á Húsatóftum. Aðeins kirkjan stóð ein á graftra- svæði sem var kirkjugarður og átti hún allar eignir sjálf. Prestur var þjónn hennar í kaþólskum sið og prestsheimili með vinnufólki og fjölskyldu þekktust ekki á Stað fyrr en eftir siðaskipti 1550. Þá var byggt prestssetur á Stað. Því var færra fólk sem dvaldi þarna við víkina fyrir siðaskipti og minni þörf að róa þaðan eftir að bústað- ur reis þar fyrir prest. Aðalbýlið við víkina var því að Húsatóftum sem átti líka uppsátur við Stað- arvíkina. Viðeyjarklaustur, stofnað 1227, átti Húsatóftir en Skálholts- stóll aðrar jarðir í Grindavík. Hvort byggð hófst á Húsatóftum er jörðin komst í eigu Viðeyinga einhvern tíma eftir 1227 er óljóst en hins vegar hófust þá um leið stöðugir róðrar úr Tóftavör við Staðarvík enda þurfti klaustrið jafnan á miklum fiski að halda. Stóðu róðrar þaðan samfellt fram á 20. öld. Því er ljóst að aldur sundmerkjanna við Staðarsund ber greinilega saman við eign- arhald Viðeyinga á Húsatóftum. Líklegt er að upptaka sundmerkj- anna sem áður var lýst virðist fremur tengjast útvegi klausturs- ins á Húsatóftum en róðrum frá kirkjunni á Stað, enda óljóst hvort eiginleg Staðarvör var þá til orðin. Heimræði er því eldra úr Tófta- vör en Staðarvör. Hugsanlegt er að örnefnið Höskuldur, nafnið á austasta tagli Þórðarfells sé ekki eldra en frá gostíma 13. aldar og sé dregið af nafni einhvers for- manns á þessum tíma, t.a.m. frá Húsatóftum sem lagði leið sína um sundið en nafnið hefur orðið hluti af leiðarmerkjum upp frá því. Aldur sundmerkja við Staðarsund í Grindavík Eftir Skúla Magnússon » Ljóst er að bæði kennileitin, Eldey og bungan Sundvarða, verða til í gosunum á 13. öld, líklega 1210-1230. Skúli Magnússon Höfundur er sagnfræðingur. Nokkrar greinar hafa birst í Morg- unblaðinu og einnig Bændablaðinu að undanförnu er snerta áhrif villtra refa á fuglalíf landsins og þar með talinn æðarfuglabúskap og sauð- fjárrækt. Fánaberi í þessari umræðu hefur verið Indriði Aðalsteinsson bóndi á Skjaldfönn og á hann þakkir skildar fyrir einarða afstöðu til máls- ins ásamt góðum rökstuðningi fyrir máli sínu. Eftir lestur blaðagreina Indriða síðustu mánuði hefur mér dottið í hug hvort hæstvirtur um- hverfisráðherra, Sigrún Magn- úsdóttir, hafi lesið umræddar greinar en fljótlega fjarlægðist ég þá hugsun. Hins vegar finnst mér trúlegt að um- hverfisráðherra hafi rennt huganum til þeirra mála er snerta lífríkið úti í náttúru Íslands og myndað sér skoð- un á því sem þar er um að vera og hver væri staðan til dæmis annars vegar í fuglalífinu og hins vegar þeim áhrifavaldi sem skaðar fuglastofn landsins. Miðað við fjölda í refastofni landsins síðustu ár má gera ráð fyrir að refir höggvi stór skörð í fuglalífið, t.a.m. rjúpu. Ekki er það mín mein- ing að útrýma íslenska refnum held- ur halda honum í hóflegri stærð sem miðast við bestu niðurstöðu um fjölda í refastofni landsins. Athygli vekur að friðlönd, t.d. á Horn- ströndum og víðar, eru uppeld- isstofnanir refa, sem dreifast vítt um land sem vitað er. Ég vil höfða til háttvirts umhverfisráðherra og sveitunga míns að beita sér fyrir auknu fjármagni til sveitarfélaga svo þau ráði við að halda íslenska refa- stofninum í hæfilegri stærð að mati fróðra aðila um refastofninn. Að lok- um vísa til umhverfisráðherra: Í Svarfaðardalnum síst er nauð þá sauðakjöt er tuggið, af list er skorið laufabrauð og lapið þorrabruggið. Virðingarfyllst, Þorgils Gunnlaugsson, Sökku 2. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Hugleiðing um refinn Refir Bréfritari vill að íslenska refastofninum sé haldið í hæfilegri stærð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.