Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
✝ Þórður Matt-hías Þórðarson
fæddist á Krossi í
Berufirði 10. des-
ember 1925. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað 18. febr-
úar 2016.
Foreldrar hans
voru Matthildur
Bjarnadóttir, f.
1890, d. 1972, og
Þórður Bergsveinsson, f. 1891, d.
1925. Þórður Matthías var yngst-
ur fimm systkina. Þau voru:
Bjarni, f. 1914, d. 1982, Sig-
ursveinn, f. 1917, d. 1994, Ing-
ólfur, f. 1921, d. 1983, og Sigríð-
ur, f. 1923, d. 2009. Uppeldis-
systir Þórðar er Þóra
Guðjónsdóttir, f. 1935.
Hinn 25. desember 1948
kvæntist Þórður Ingibjörgu
Finnsdóttur, f. 5. júní 1927, d. 5.
október 2010. Foreldrar hennar
voru Finnur Sigfús Jónsson, f.
1888, d. 1962, og Margrét Guðna-
dóttir, f. 1886, d. 1968. Börn
Þórðar og Ingibjargar: 1) Þórð-
ur, f. 1948, maki Anna Margrét
Björnsdóttir. Börn þeira eru
Margrét, Ingibjörg og Þóra
Matthildur. 2) Finnur, f. 1949,
í Neskaupstað (PAN) og þá fólust
verkefni hans meðal annars í því
að hugsa um bókhald og fjár-
reiður. Bókhald varð síðan lífs-
starf hans. Þórður réðst til starfa
á skrifstofu Samvinnufélags út-
gerðarmanna árið 1951 og sinnti
þar bókhaldi til ársins 1955 en
hóf þá störf á skrifstofu tog-
araútgerðanna í bænum. Á tog-
araskrifstofunni starfaði hann í
tvö ár en þá lá leiðin á ný til Sam-
vinnufélagsins, þar sem hann
sinnti verkum til 1968. Skrifstofa
Samvinnufélagsins sá um bók-
hald Síldarvinnslunnar á árunum
1957-1960 og þegar Síld-
arvinnslan festi kaup á fisk-
vinnslustöð og síldarsöltunarstöð
Samvinnufélagsins árið 1965
annaðist skrifstofa þess allt bók-
hald fyrir þá starfsemi um
þriggja ára skeið. Árið 1968 hóf
Þórður síðan störf sem skrif-
stofustjóri Síldarvinnslunnar og
gegndi því um þrjátíu ára skeið.
Hann kvaddi starf sitt í árslok
1998. Fyrir utan sitt fasta starf
sinnti Þórður bókhaldi fyrir
helstu útgerðirnar í bænum um
langt skeið. Þórður sinnti marg-
víslegum félagsstörfum, var
meðal annars gjaldkeri Íþrótta-
félagsins Þróttar í hálfan annan
áratug og bæjarfulltrúi fyrir Al-
þýðubandalagið á árunum 1978-
1990.
Útför Þórðar fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag, 27.
febrúar 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
maki Socorro Perez
Þórðarson. Börn
hans eru Guðni,
Anna Rósa, Ingi-
björg og Kolfinna.
3) Skúli, f. 1952, d.
1991. 4) Sturla, f.
1956, maki Rakel
Halldórsdóttir.
Börn þeirra eru
Halldór Freyr, Ósk-
ar, Þórður og Heið-
rún Kara.
Barnabarnabörnin eru 16.
Þórður fæddist föðurlaus því
faðir hans drukknaði þegar
Þórður var í móðurkviði. Matt-
hildur móðir hans flutti úr Beru-
firði með börnin til Norðfjarðar
1930 þegar Þórður var á fjórða
ári því bróðir hennar Sigurður
Bjarnason bjó þar og Bjarni, elsti
sonur hennar, bjó hjá honum.
Þórður stundaði nám við
Barnaskólann og Gagnfræða-
skólann á Norðfirði. Hann hóf
snemma að stunda launavinnu
eins og strákar gerðu á þeim
tíma. Fyrstu störf hans fólust í að
stokka upp og beita og síðan lá
leiðin til Hornafjarðar og Kefla-
víkur á vertíð. Þegar Þórður var
liðlega tvítugur hóf hann að
starfa hjá Pöntunarfélagi alþýðu
Lilli afi var risastór persónu-
leiki með risastórt hjarta. Þegar
ég var að alast upp í Neskaup-
stað var heimili Indu ömmu og
Lilla afa góður staður til að koma
á. Ég gat verið þar tímunum
saman, lesið gömul dönsk Andr-
ésblöð, lagt kapal eða byggt hús
úr spilum. Þar hékk ég í
áhyggjuleysi æskunnar og aldrei
virtust þau verða leið á mér,
óþæga stelpuskottinu sem talaði
alltaf of mikið. Ég hjálpaði afa
við að leysa upp frímerki og svo
fengum við okkur kaffi með mik-
illi mjólk og miklum sykri.
Þegar ég varð unglingur fór
ég að vinna á skrifstofunni hjá
afa á sumrin. Það var stórkost-
legt að fylgjast með afa í
vinnunni. Hann gerði aldrei
mannamun og fólk streymdi inn
til hans til að fá aðstoð. Afi tók
vel á móti fólki og passaði upp á
að enginn liði skort. Segja má að
afi hafi í raun verið einhvers kon-
ar félagsmálastofnun þess tíma.
Þarna unnum við saman fjölmörg
sumur. Afi var vinnuhestur og
tók sér aldrei frí og varla kaffi-
pásu.
Við Lilli afi áttum fjölmörg
sameiginlega áhugamál. Við
fylgdumst með komu far-
fuglanna og horfðum saman á
óteljandi fótboltaleiki. Hann
fylgdist vel með enska boltanum
en átti samt ekki uppáhaldslið.
Hann hélt einfaldlega með þeim
sem voru neðstir í deildinni og í
hverjum leik hélt hann með lið-
inu sem var að tapa. Hann vildi
afnema rangstöðuregluna og
vítaspyrnur því þá vorkenndi
hann alltaf liðinu sem var dæmt
á.
Lilli afi var mikill lestrarhest-
ur. Hann vildi helst lesa nýjar
bækur, t.d. eftir Jón Kalman og
Einar Má Guðmundsson. Á síð-
ustu árum voru bækurnar Þegar
kóngur kom eftir Helga Ingólfs-
son og Stundarfró eftir Orra
Harðarson í sérstöku uppáhaldi
hans. Einnig var hann heillaður
af Náðarstund eftir Hannah
Kent og Mánasteini eftir Sjón.
Við höfðum gaman að því að lesa
sömu bókina og ræða svo um
hana fram og til baka. Yfirleitt
vorum við sammála.
Hin seinni ár ræddum við ekki
síst um stjórnmál. Lilli afi var
harður vinstri maður og hann
vildi sjá samfélag þar sem jöfn-
uður ríkti. Ef hann hefði fengið
að ráða hefði enginn verið sér-
staklega ríkur og alls enginn fá-
tækur. Líklega hefur enginn haft
meiri áhrif á mínar pólitísku
skoðanir en hann. Hann studdi
mig dyggilega þegar ég ákvað að
fara í framboð. Honum fannst ég
reyndar ekki nægilega vel inni í
öllum málum og skildi ekki af
hverju ég horfði ekki á allt sem
fram fór á Alþingisrásinni. Ég
fékk því alltaf útdrátt úr því sem
var í gangi á þinginu þegar ég
kom til hans. Það gladdi hann
mjög þegar ég fór inn á þing í
tvær vikur í haust sem varaþing-
maður VG. Hann horfði á þingið
á hverjum degi og var reyndar
alveg hissa á því að allir Norð-
firðingar væru ekki að fylgjast
með.
Lilli afi var glaðlyndur og
skemmtilegur og ég var ekki
tilbúin til að kveðja hann og lík-
lega hefði ég aldrei orðið tilbúin.
Hann hefur verið svo stór hluti af
lífi mínu að ég á erfitt með að
hugsa mér lífið án hans. Mér
fannst hann eilífur. Ég er full af
þakklæti fyrir að fá að hafa hann
í mínu lífi og minningarnar um
okkar fjölmörgu samverustundir
eru huggun.
Ingibjörg Þórðardóttir.
xxxLilli Matt er fallinn frá.
Hans verður sárt saknað. Saga
Lilla og Neskaupstaðar er sam-
ofin og þeir voru ófáir þættir
bæjarlífsins sem Lilli hafði af-
skipti af. Lilli umgekkst marga
og bera allir sem hann hafði sam-
skipti við honum vel söguna.
Hann bar svo sannarlega hags-
muni heimabyggðarinnar fyrir
brjósti og studdi eindregið öll
þau málefni sem gátu eflt hana.
Atvinnumálin, bæjarmálin og
íþróttamálin voru þó án efa þeir
málaflokkar sem helst nutu at-
hygli hans og starfskrafta.
Þórður M. Þórðarson fluttist
með móður sinni og systkinum til
Neskaupstaðar árið 1930, en fað-
ir hans drukknaði tæpum þrem-
ur mánuðum áður en hann kom í
heiminn. Þarna var heimskrepp-
an mikla að ganga í garð og at-
vinnuleysi og fátækt einkenndi
íslenskt samfélag en fjölskyldan
var samhent og þraukaði þessa
erfiðu tíma. Án efa hefur krepp-
an mótað lífsviðhorf Lilla; hann
aðhylltist róttækar stjórnmála-
skoðanir og gerðist staðfastur
verkalýðssinni. Ávallt skipaði
hann sér í fylkingu með þeim
sem stóðu lengst til vinstri í ís-
lenskum stjórnmálum. Hann var
einlægur sósíalisti. Þórður
kynntist alvarlegu andstreymi í
lífinu þegar hann veiktist af
berklum sem ungur maður og
það var einnig til að auka samúð
hans með öllum þeim sem minna
máttu sín í samfélaginu.
Sá sem þetta ritar var svo
heppinn að alast upp í sama húsi
og Lilli bjó í ásamt sinni fjöl-
skyldu. Ávallt var töluverður
samgangur á milli fólksins í hús-
inu og Lilli fylgdist gjarnan
grannt með því sem við krakk-
arnir aðhöfðumst. Hann hvatti
okkur til atvinnuþátttöku og
þátttöku í íþróttum og félagsmál-
um, hann hvatti okkur til að hafa
metnað fyrir öllu því sem norð-
firskt var.
Síðar áttum við Lilli saman
sæti í bæjarstjórn Neskaupstað-
ar á árunum 1982-1990. Þar vor-
um við samherjar og störfin þar
með honum eru ógleymanleg.
Lilli var ekki áberandi á bæjar-
stjórnarfundum. Hann tók ekki
oft til máls og ræður hans voru
ekki langar en þegar hann talaði
var hlustað. Er hann hafði lokið
máli sínu velktist enginn í vafa
um viðhorf hans til þess málefnis
sem var til umræðu; hann kom
skoðunum sínum á framfæri með
skýrum og skilmerkilegum
hætti. Eins og fyrr greinir ein-
kenndust viðhorf hans af rót-
tækni og metnaði fyrir hönd
byggðarlagsins en um leið voru
skoðanir hans íhaldssamar hvað
varðaði þjóðfélagsbreytingar.
Hann átti til dæmis erfitt með
sætta sig við hugmyndir um sam-
einingu sveitarfélaga, en ýmsir
samherjar hans töldu slíka sam-
einingu óhjákvæmilega vegna
þróunar samfélagsins.
Þá störfuðum við Lilli saman
innan Íþróttafélagsins Þróttar
og það eru eftirminnilegir tímar.
Lilli var gjaldkeri félagsins og
tryggði að starfsemin gæti ávallt
gengið snurðulaust fyrir sig. Á
þeim vettvangi sem öðrum lofuðu
allir samskiptin við Lilla. Hann
var kjölfestan sem treyst var á.
Lilli starfaði lengst af hjá öfl-
ugustu fyrirtækjunum í Nes-
kaupstað; fyrst Samvinnufélagi
útgerðarmanna og síðan Síldar-
vinnslunni hf. Hann gerði sér
manna best grein fyrir því að
gengi atvinnulífsins á staðnum
var grundvöllur alls. Ef atvinnu-
lífið gengi vel yrði hagur fólks og
bæjarfélags góður og fé-
lagsstarfsemin í bænum átti
einnig mikið undir slíkri vel-
gengni. Þegar veiði var góð var
allt í blóma en þegar afli var
tregur mátti eiga von á erfiðleik-
um á flestum sviðum bæjarlífs-
ins. Það var ómetanlegt að hafa
Lilla í bæjarfulltrúahópnum því
hann hafði yfirsýnina og gat með
raunhæfum hætti metið stöðu og
horfur bæjarsjóðs út frá því sem
var að eiga sér stað á vettvangi
atvinnulífsins. Lilli var í þeim
hópi sem hikaði ekki við að mæla
með þátttöku sveitarfélagsins í
atvinnulífinu ef þörf var á og eins
studdi hann ítrekað aðstoð bæj-
arfélagsins við einstaklinga þeg-
ar þeir fjárfestu í mikilvægum
atvinnutækjum.
Með fráfalli Lilla hefur Nes-
kaupstaður misst einn af sínum
bestu drengjum. Við María vott-
um öllum aðstandendum hans
innilega samúð á þessari stundu
en minnum á að við getum öll ylj-
að okkur við ljúfar minningar.
Smári Geirsson.
Þórður Matthías Þórðarson er
fallinn frá. Hann var einn af
frumkvöðlunum sem komu að
stofnun Síldarvinnslunnar hf.
fyrir hartnær 60 árum og hann
var einn af kommunum í Nes-
kaupstað sem áttu sinn þátt í því
að berjast fyrir hagsmunum bæj-
arfélagsins og fyrirtækisins sem
var burðarás atvinnulífsins.
Fljótlega eftir stofnun félags-
ins kom hann að bókhaldi þess,
fyrst sem starfsmaður Sam-
vinnufélags útgerðarmanna, en
árið 1968 var hann ráðinn skrif-
stofustjóri Síldarvinnslunnar og
gegndi því starfi á farsælan hátt í
30 ár. Lilli Matt var hægri hönd
stjórnenda Síldarvinnslunnar og
hann var ávallt vakinn og sofinn
yfir starfseminni, sem lýsti sér í
því að hann tók sér nánast aldrei
frí. Honum var annt um fram-
gang Síldarvinnslunnar og
starfsmanna hennar enda lifði
hann þá tíma að það var ekki allt-
af sjálfgefið að eiga fyrir reikn-
ingum og launagreiðslum til
starfsmanna. Sagan segir að á
ákveðnu tímabili hafi Lilli skrifað
undir ábyrgð á lántökum all-
flestra starfsmanna félagsins,
þannig hafi bankinn veitt við-
komandi lánafyrirgreiðslu. Lilli
ávann sér traust samferðar-
manna sinna og norðfirðingar og
aðrir sem til hans þekktu báru
ómælda virðingu fyrir honum.
Lilli hélt vel utan um starf sitt
og hugsaði vel um sitt fólk og
samfélagið í heild. Þegar ég kom
til starfa hjá Síldarvinnslunni
Þórður M.
ÞórðarsonOkkar ástkæri,
HAUKUR GUÐJÓNSSON,
Garðatorgi 7, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju,
þriðjudaginn 1. mars kl. 13.
.
Margrét Hauksdóttir, Haraldur Olgeirsson,
Sigurlaug Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur frændi okkar,
PÁLMI JÓNSSON,
Álfheimum 26,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans föstudaginn
19. febrúar.
Útför hans fer fram í Bænhúsinu í
Fossvogskirkju mánudaginn 29. febrúar klukkan 13.
.
Aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÚSTAV NILSSON,
Norðurbrú 3,
Garðabæ,
lést á Landspítala Landakoti
þriðjudaginn 23. febrúar. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. mars klukkan 13.
.
Þóra Ólafsdóttir,
Svava Gústavsdóttir, Jón Þór Ólafsson,
Gerður Gústavsdóttir, Lúðvík Hjalti Jónsson,
Nils Gústavsson, Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Ástkær amma okkar og frænka,
ELLÝ S. HÖJGAARD,
Hafnarbyggð 53,
Vopnafirði,
lést þann 22. febrúar á hjúkrunarheimilinu
Sundabúð á Vopnafirði. Útförin fer
fram þriðjudaginn 1. mars klukkan 14 frá Vopnafjarðarkirkju.
.
Friðrik Óli Höjgaard,
Agnes Ellý Elvarsdóttir,
Linda Eymundsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
(Haddý),
lést í faðmi fjölskyldunnar 24. febrúar.
Útför hennar verður gerð frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn
3. mars kl. 15.
.
,,Farin til Hauks"
Ólafur Haukur Ólafsson, Sigurbjörg H. Gröndal,
Kristján Már Ólafsson,
Ásdís Katrín Ólafsdóttir, Pål O. Borgen,
Sigríður Edda Ólafsdóttir, Magnús Jón Sigurðsson,
barnabörn og fjölskyldur.
Hlýjar kveðjur og þakkir til allra sem
auðsýndu okkur samúð við andlát og útför
okkar kæra eiginmanns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
RAGNARS VIGNIR,
fv. aðstoðaryfirlögregluþjóns,
Sléttuvegi 21,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur.
.
Hafdís Vignir,
Reynir Vignir, Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir,
Anna Ragnheiður Vignir, Pétur Stefánsson,
Hildur Elín Vignir, Einar Rúnar Guðmundsson,
Sigurhans Vignir, Margrét Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og langafabörn.